Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2010, Síða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2010, Síða 38
38 FÖSTUDAGUR 21. maí 2010 VIÐTAL „Ég hef nú meiri áhuga á uppbygg- ingunni fram undan því hrunið er afstaðið. En við þurfum samt að hafa alla okkar sögu og reynslu und- ir í þessari uppbyggingu,“ segir Pét- ur Gunnarsson rithöfundur þegar blaðamaður spyr hann um hvaða skoðanir hann hafi á íslenska efna- hagshruninu. Pétur er nýkominn heim frá Frakk- landi þar sem hann hefur dvalið und- anfarið ásamt konu sinni Hrafnhildi. Hann hefur því ekki verið hér á landi í því fjölmiðlafári sem greip um sig við útkomu skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Skýrslan bíður hins vegar eftir Pétri í öllu sínu veldi á skrifborð- inu í vinnustofu hans. „Ég hef að- eins nasað af henni og svo hef ég séð útdrættina í fjölmiðlum: Stærðin í þessu botnlausa og þessu glórulausa er meiri en fólk gat órað fyrir,“ segir Pétur sem nýverið hlaut viðurkenn- ingu Hagþenkis fyrir síðustu bækur sínar, tveggja binda verk um ævi Þór- bergs Þórðarsonar rithöfundar. Þeir sem þekkja til Péturs sem höfundar og samfélagsrýnis vita að hann er djúpþenkjandi maður og ekki gjarn á að einfalda hlutina með yfirborðslegum skýringum. Útskýr- ingar Péturs á íslenska efnahags- hruninu er því ekki hægt að fanga með einu orði eða tveimur – græðgi, hroka, drambi eða heimsku. Að hans mati þarf að leita dýpra en það. Leit Péturs að orsökum hrunsins hér heima hefst suður í Frakklandi þar sem hann staðnæmist fyrst við hug- myndir fólks um vinnuna. Ofvinna er slæm „Við áttum heima í Suður-Frakklandi endur fyrir löngu í nokkur ár. Við eig- um marga vini þarna og kunningja og heimsóttum suma þeirra. Það var fróðlegt að bera kjör og hugarfar þessa fólks saman við viðhorf okk- ar hér heima. Kunningjar okkar eru nú flestir komnir á eftirlaun – Frakkar fara á eftirlaun sextugir. Hér heima líta menn nánast á þetta sem refsingu eða heimsendi, eitthvað ægilegt sem beri að forðast í lengstu lög. Frakkar aft- ur á móti taka þessu fagnandi og eru alla sína starfsævi að láta sig hlakka til þessara langþráðu tímamóta: Að geta ráðstafað tíma sínum öllum og óskipt- um eins og þeir kjósa. En það er eins og við Íslendingar paníkerum gagn- vart þessu: Að öllum tímanum sé ekki ráðstafað fyrir okkur af einhverjum vinnudegi, einhverju striti, einhverju streði, einhverju basli. Þetta fannst mér umhugsunarvert og lærdómsríkt í samhengi við það ástand sem nú ríkir í landinu. Og í kjölfarið hef ég farið að hugsa um viðhorf okkar Íslendinga til vinnunnar,“ segir Pétur. Pétur segir að það sé alþekkt hvað Íslendingar gangist mikið upp í því að vinna mikið og að þetta hafi oft verið kennt við dugnað. „En ég held að það sé nú með vinnuna eins og mörg önn- ur fyrirbæri að það er til ofát, það er til ofneysla, og það er til ofvinna. Og ofát er ekki endilega gott át, ofneysla er ekki endilega góð neysla og ofvinna er ekki endilega góð vinna. Reyndar eru heilu tímabilin í sögu vestrænna manna þar sem vinnan var eins kon- ar hornreka, eiginlega ekki frjálsum mönnum bjóðandi. Þannig var um Forn-Grikki. Við dáumst að þeim fyr- ir framlag þeirra til heimspeki, lista og vísinda sem er öldungis fáheyrt hjá svo fámennri þjóð. En jafnvel enn meiri furðu gegnir að jafnframt þess- um afrekum þá fyrirlitu þeir vinnuna. Hún var samboðin þrælum,“ segir Pét- ur og bætir því við að Sókrates hafi til dæmis boðað að menn ættu fyrst og fremst að bera umhyggju fyrir sálu sinni og þroska hennar. Vinna sem sóun Pétur segir að hann staðnæmist við þessa hugsun um vinnuna eftir hrun- ið því í kjölfar þess kalli Íslending- ar nú eftir vinnu í stórum stíl í kjölfar aukins atvinnuleysis. „Það eru farn- ar Keflavíkurgöngur þar sem iðnað- armenn og verktakar eru að kalla eft- ir vinnu og verkefnum. Og ég spyr mig: Verkefnum til hvers? Ætla þeir að byggja fleiri blokkir sem standa auð- ar? Ætla þeir að byggja fleiri íbúðar- hverfi sem standa auð? Hvaða eigum við við þegar við tölum um vinnu? Var þetta vinna eða var þetta sóun? Var það vinna að byggja þessar byggingar og þessi hverfi út í bláinn eða var það sóun? Var það vinna að búa til þessa fjármálavafninga alla eða var þetta sóun? Þetta finnst mér að við ættum að athuga. Sjáðu til dæmis blokkina á Reyðarfirði sem var byggð vegna Kára- hnjúkavirkjunar. Er hún ekki hálftóm? Það er svo margt sem við höfum kallað vinnu sem í raun og veru hefur verið sóun. Þessum peningum hefði líkast til betur verið varið í annað. Turninn í Borgartúni er líka minnisvarði um þessa tíma og þennan hugsunarhátt,“ segir Pétur en í góðærinu sem hann vísar til var gríðarleg þensla hér á landi og atvinnuleysi náði óþekktu lág- marki. Þúsundir erlendra verkamanna komu hingað til lands til að vinna þá vinnu sem Íslendingar vildu láta vinna en höfðu ekki mannafla til. Byggingar nýrra húsa og hverfa í stórum stíl voru liður í þessari miklu þenslu og sagði erlendur gestur sem kom hingað til lands að hægt hefði verið að sjá hrun- ið fyrir með því að telja byggingarkran- ana sem bar við himin í Reykjavík fyrir hrunið. Mikið af þessari uppbyggingu í góðærinu var í raun með öfugum for- merkjum að mati Péturs og hefði lík- ast til verið betra að sleppa henni því hún hefði fremur verið réttnefnd sóun. „Það sjá það held ég allir að það starf sem er fram undan við uppbygging- una verður ekki með sömu formerkj- um og fyrir hrun. Það eru grundvallar- þættir sem við þurfum að breyta út af því að vinnan eins og við höfum skil- ið hana hingað til er að líða undir lok. En þetta þýðir samt sem áður ekki að við munum ekki öll hafa tækifæri á allsnægtum líkt og áður,“ segir Pétur en hann telur meðal annars að hluti af þeim breytingum sem þurfi að eiga sér stað sé að fundið verði nýtt kerfi til að útdeila gæðum – Pétur segist hins vegar ekki vita hvernig þetta kerfi eigi að vera, þetta sé aðeins hans hugboð. Hann er orðinn tómur Pétur segir að Íslendingar og aðrir Vesturlandabúar gætu hæglega unn- ið miklu minna ef þeir kærðu sig um. „Árið 1930 spáði hagfræðigoðið John Maynard Keynes því að við aldarlok, það er um það bil núna, myndu þrjár vinnustundir á dag duga til að mann- kynið sæi fyrir þörfum sínum. En þá erum við komin að þessari ægilegu spurningu sem heimspekingurinn Hannah Arendt spurði í verki sínu The Human Condition sem út kom fyrir rúmlega hálfri öld. Þar kemst hún að þeirri niðurstöðu að Vesturlönd séu fyrir löngu orðin að vinnusamfélagi sem gangi út á að vinna án þess að skeyta um til hvers er unnið. Jafnvel svo að lausn undan þessu fyrirkomu- lagi þyki ógnvænleg. Og af hverju staf- ar það? Af því að Vesturlandabúinn er orðinn tómur. Hann hefur ekki innra með sér þær uppsprettur og þær lindir sem duga honum til lífsfyllingar. Þess- ar lindir hafa í tímans rás þornað upp, við höfum þurrkað þær upp, eða beint þeim í aðrar áttir. Þess vegna reyna menn með öllum ráðum að fram- lengja ástandið þar sem vinnudagur- inn er eins og við þekkjum hann í dag,“ segir Pétur. GÓÐÆRIÐ var sóun Pétur Gunnarsson rithöfundur segir að Íslendingar og Vesturlandabúar standi á miklum skilum eftir efna- hagshrunið árð 2008. Hann segir að mikið af þeirri vinnu sem unnin hafi verið í góðærinu hafi verið sóun. Pétur kallar eftir nýjum hugsunarhætti og verðmætamati í samfélaginu. Ingi F. Vilhjálmsson settist niður með Pétri á heimili hans í Hvassaleitinu og ræddi við hann um hrunið. Var það vinna að búa til þessa fjármála- vafninga alla eða var þetta sóun? LJÓSMYNDARI: SIGTRYGGUR ARI JÓHANNSSON

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.