Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2010, Blaðsíða 44
44 FÖSTUDAGUR 21. maí 2010
36 ára gamall Spánverji er í innsta hring í Norður-Kór-eu. Hann fundar reglu-lega með æðstu mönnum
landsins. Hann hittir Kim Jong-
il, leiðtoga kommúnistaríkisins,
þó sjaldnar. „Hann er mjög upp-
tekinn, en við reynum að halda
sambandi með bréfum og tölvu-
skeytum eða í gegnum ráðgjafana.
Hann hittir mig þó alltaf þegar
hann hefur tíma til. Á hátíðisdög-
um ræðum við alltaf saman undir
fjögur augu,“ segir Alejandro Cao
de Benós.
Kominn af aðalsfólki
Hann er fæddur í Tarragona í
Katalóníu á Spáni og er af ríkum
aðalsættum sem stjórnuðu stór-
um landsvæðum á öldum áður.
„Ég er kominn beint af barón-
unum af Les, markgreifunum af
Rosal monte og jörlunum af Arje-
lejo,“ segir Alejandro Cao de Ben-
ós í viðtali við spænska dagblaðið
La Razón.
Auðvelt er að fullyrða að eplið
hafi fallið langt frá eikinni því í dag
er Alejandro heittrúaður kommún-
isti og í hópi sárafárra útlendinga
sem fá að ferðast til Norður-Kóreu.
Þegar hann fer yfir þessi lokuðustu
landamæri heims þarf hann ekki
einu sinni á vegabréfi að halda. „Ég
er svo frægur þar að ég þarf ekki að
sýna vegabréfið. Andlit mitt birtist
reglulega á sjónvarpsskjánum og í
blöðunum í Norður-Kóreu. Ég er
ekki bara frægur fyrir ræður mínar
og greinaskrif. Ég er líka söngvari.
Ég er Julio Iglesias Norður-Kóreu.
Ég syng kóresk ættjarðarlög í sjón-
varpinu, fyrir framan 15 þúsund
leikhúsgesti. Hvaða Norður-Kór-
eumaður sem er myndi hætta lífi
sínu til að bjarga lífi mínu,“ segir
Alejandro.
Tabúið Norður-Kórea
Alejandro Cao de Benós, sem
hefur tekið upp kóreska nafnið Zo
Sun-il, ólst upp á Spáni en flest-
ir ættingjar hans hafa stutt hægri-
sinnaða stjórnmálamenn í gegn-
um tíðina, enda af ætt aðalsmanna
úr efri lögum samfélagsins.
„Ég var ekki beint venjulegur
13 ára drengur frá Tarragona. Á
meðan hinir strákarnir eltust við
stelpur sökkti ég mér í sagnfræði
og stjórnmálasögu. Ég komst að
því að heimurinn er mjög ósann-
gjarn og mig langaði að leggja
mitt af mörkum. Ég las heimsbók-
menntirnar og Karl Marx og gekk
í kommúnistahreyfingu, þrátt fyr-
ir að flestir væru að linast á þeim
tíma. Ég veitti ríki einu mikla at-
hygli sem enginn vildi tala um, ekki
einu sinni félagar mínir kommún-
istarnir vildu vita af Norður-Kór-
eu. Landið var tabú, og þótti allt-
of rétttrúað og forhert. Forvitnin
leiddi mig á fund diplómatískra
útsendara frá Norður-Kóreu sem
voru staddir í Madrid vegna al-
þjóðlegrar ferðamálaráðstefnu.
Þar kynntist ég fyrstu félögum
mínum frá Kóreu,“ segir Alejandro,
sem nokkrum árum síðar ferðaðist
til Norður-Kóreu, náði valdi á kór-
esku og eignaðist marga vini.
Hannaði heimasíðu landsins
Alejandro stofnaði Alþjóðlegt
vinafélag Kóreu (KFA) árið 2000 og
hefur verið formaður þess síðan. Í
dag telja samtökin 9.000 meðlimi
frá 120 löndum. Meðlimir þeirra
reyna að bæta þá hörmulegu
ímynd sem landið hefur á alþjóða-
vísu. Árið 2000 hannaði Alejandro
opinbera vefsíðu norðurkóresku
stjórnarinnar og hlaut orðu fyrir.
Hann sinnir einnig embætti sér-
staks fulltrúa nefndar um menn-
ingartengsl við önnur ríki, en Kim
Jong-il veitti honum þennan titil á
sextugsafmæli sínu.
Ver einangrunina
Alejandro dregur ekkert undan
þegar hann ber skjöld fyrir norður-
kóresk stjórnvöld sem meðal ann-
ars hafa verið sökuð um að hafa
hrint af stað hungursneyð á tíunda
áratugnum en talið er að allt að
milljón manna hafi látist af völd-
um hennar. „Það er kolrangt. Fjöl-
miðlarnir sem flytja slíkar fréttir, til
dæmis CNN og BBC, snúast með
bandarískum hagsmunum. Þeir
reyna að kæfa sósíalismann með
áróðri. Við erum vanmáttug og
fátæk og eigum ekki roð í alþjóð-
legu fjölmiðlavélina sem er sterk-
ari en flestir herir. Vanþekkingin
á landinu okkar er gífurleg,“ seg-
ir Alejandro en síðustu orð hans
vekja furðu blaðamanns La Raz-
ón, sem bendir á að Norður-Kórea
sé eitt lokaðasta land heims. Það
sé því ómögulegt að vita nokkuð
um það sem gerist í landinu. Íbú-
ar landsins þurfi að biðja um leyfi
til að hringja til útlanda, internet-
ið fái enginn að nota nema stjórn-
völd og að það að ferðast til ann-
arra landa sé lúxus sem aðeins
hásettustu herforingjar njóti. Við
bætist að þeir fáu útlendingar sem
fái að ferðast til landsins séu undir
stöðugu eftirliti stjórnarinnar sem
fylgi þeim hvert fótmál.
Alejandro svarar um hæl að
stjórnvöld verði að vernda Norð-
ur-Kóreumenn. „Við verðum að
vernda okkur fyrir umheiminum.
Fólkið í Norður-Kóreu veit ekki
hvað kókaín og heróin er. Það hef-
ur aldrei kynnst heimilisofbeldi
og nauðgunum. Stress er ekki til í
landinu.“
Hernaðarsinnaður
Þsesi spænski embættismaður í
Norður-Kóreu segist hafa glatað
mörgum vinum vegna starfs síns.
Að auki hafi margir fjölskyldumeð-
limir snúið baki við honum. Hann
býr mestan part ársins á Spáni þar
sem hann starfar meðal annars
sem ráðgjafi fyrir tölvufyrirtæki.
„Ég er í engum samskiptum við
marga náskylda ættingja. Þrátt fyr-
ir að ættarhefðin stríði að mestu
leyti gegn lífsviðhorfum mínum er
ég stoltur af forfeðrum mínum eða
einu leyti; þeir voru hermenn. Ég
elska heri og ég er mjög hernaðars-
innaður. Ég gekk meira að segja í
spænska herinn á sínum tíma og ég
er mjög stoltur af því. Ég er maður
sem er reiðubúinn til að deyja fyrir
málstaðinn og hugsjónirnar.“
Heimild: La Razón.
helgihrafn@dv.is
„Ég er Julio Iglesias
Norður-Kóreu“
Spánverjinn Alejandro Cao de Benós er í innsta hring í valdakerfi Norður-Kóreu, eins einangraðasta og dul-
arfyllsta ríkis heims, þangað sem fáir útlendingar fá að koma. Alejandro er stórstjarna í kommúnistaríkinu,
bæði vegna embættisstarfa og söngs. Milljónir manna fylgjast með þegar Spánverjinn syngur ættjarðarlög í
norðurkóreska sjónvarpinu.
Ég er maður sem er reiðubúinn til
að deyja fyrir málstað-
inn og hugsjónirnar.
AF ARISTÓKRATAÆTTUM
Spánverjinn Alejandro er af
aðalsmannaættum og hefur
misst tengslin við fjölskyldu sína.
HÁTTSETTUR Alejandro
Cao de Benós er háttsettasti
útlendingurinn í Norður-Kóreu.
KIM JONG-IL Leiðtogi Norður-Kóreu
sendir Alejandro reglulega tölvuskeyti.
VEKUR UMTAL Alejandro Cao de Benós leiðir Alþjóðlegt vinafélag Kóreu en
meðlimir þess eru 9.000 talsins og koma frá 120 þjóðlöndum.
Skrýtið