Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2010, Page 48

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2010, Page 48
48 FÖSTUDAGUR 21. maí 2010 NAFN OG ALDUR? „Ugla Egilsdóttir, 24 ára.“ ATVINNA? „Nemi við Listaháskóla Íslands“ HJÚSKAPARSTAÐA? „Í sambandi.“ FJÖLDI BARNA? „Barnlaus“ HEFUR ÞÚ ÁTT GÆLUDÝR? „Já, en þau dóu öll voveiflegum dauðdaga. Ég átti til dæmis páfagauk þegar ég var 7 ára og mamma gaf honum haframjöl. Hann sprakk. “ HVAÐA TÓNLEIKA FÓRST ÞÚ Á SÍÐAST? „Kórtónleika Listahaskólans.“ HEFUR ÞÚ KOMIST Í KAST VIÐ LÖGIN? „Nei, ég er svo saklaus og löghlýðin. En ef ég ætlaði ad brjóta lög myndi ég gerast njósnari. Veit bara ekki fyrir hvern.“ HVER ER UPPÁHALDSFLÍKIN ÞÍN OG AF HVERJU? „Kronkron hælaskórnir mínir. Af því að ég beið svo lengi með að kaupa þá og þeir eru svo flottir.“ HEFUR ÞÚ FARIÐ Í MEGRUN? „Nei.“ HEFUR ÞÚ TEKIÐ ÞÁTT Í SKIPULÖGÐUM MÓTMÆLUM? „Ég held að skemmtilegustu mótmæli sem ég hef tekið þátt í hafi verið leikrænn gjörningur sem studdi frumvarp Kolbrúnar Halldórsdóttur um bann við kaupum a vændi. Við klæddum okkur upp í alls kyns múnderingar og lékum portkonur og pimp.“ TRÚIR ÞÚ Á FRAMHALDSLÍF? „Ég trúi ekki á dauðann.“ HVAÐA LAG SKAMMAST ÞÚ ÞÍN MEST FYRIR AÐ HAFA HALDIÐ UPP Á? „Ég skammast mín ekki fyrir nein lög sem ég hef haldið upp á en hef skömm á þeim sem kunna ekki að meta Beyoncé og Mariah Carey.“ HVAÐA LAG KVEIKIR Í ÞÉR? „„Ég hata þig“ eftir sjálfa mig og Sögu vinkonu mína.“ TIL HVERS HLAKKAR ÞÚ NÚNA? „Sumarstarfs sem uppistandari hjá Hinu húsinu.“ HVAÐA MYND GETUR ÞÚ HORFT Á AFTUR OG AFTUR? „Gone with the Wind. Reyndar hef ég meira gaman af sjónvarpsþáttum heldur en kvikmyndum. House og Desperate Housewives byltu lífi mínu til hins betra.“ AFREK VIKUNNAR? „Nei. Ég er engin afrekskona.“ HEFUR ÞÚ LÁTIÐ SPÁ FYRIR ÞÉR? „Nei, en ég hef farið til hómópata sem sagði mér að lausnin á öllum mínum vandamálum væri að fyrir- gefa Afríku. Svo hef ég spilað á gong í Jónsmessunæt- urathöfn og verið tilraunadýr upprennandi sérfræð- ings í kirophonetik meðferð.“ SPILAR ÞÚ Á HLJÓÐFÆRI? „Já, ég spila á fiðlu, píanó og gítar. Svo syng ég eins og engill líka.“ VILTU AÐ ÍSLAND GANGI Í EVRÓPUSAMBANDIÐ? „Nei, en bara af því að lógóið þeirra er svo ljótt. En talandi um alþjóðlegt samstarf þá má alveg dusta ryk- ið af „Ísland úr Nato“ kröfunni.“ HVAÐ ER MIKILVÆGAST Í LÍFINU? „Skartgripir!“ HVAÐA ÍSLENSKA RÁÐAMANN MUNDIR ÞÚ VILJA HELLA FULLAN OG FARA Á TRÚNÓ MEÐ? „Yfirmann Lýðheilsustöðvar.“ HVAÐA FRÆGA EINSTAKLING MYNDIR ÞÚ HELST VILJA HITTA OG AF HVERJU? „Lauryn Hill af því að ég dái hana.“ HEFUR ÞÚ ORT LJÓÐ? „Já. Ég hef lengi haft það markmið að búa til harð- brjósta ímynd sprelligosa. En skilja eftir tárvotar stílabækur með ljóðum stútfullum af sálarangist sem finnast þegar ég dey.“ NÝLEGT PRAKKARASTRIK? „Ég er orðin svo vammlaus í seinni tíð en í gamla daga fannst mér fyndið að skipta út númerum í síma- skrá fólks fyrir númer hjá frægu fólki eða óvinum.“ HVAÐA FRÆGA EINSTAKLINGI LÍKIST ÞÚ MEST? „Góðhjartað fólk segir stundum að ég líkist Bette Davis eða Christinu Ricci en mamma segir að ég sé líkust E.T.“ ERTU MEÐ EINHVERJA LEYNDA HÆFILEIKA? „Ég er of athyglissjúk til að eiga leynda hæfileika.“ Á AÐ LEYFA ÖNNUR VÍMUEFNI EN ÁFENGI? „Já, mer finnst að kaffi ætti vafalaust að vera löglegt?“ HVER ER UPPÁHALDSSTAÐURINN ÞINN? „Í bankanum. Sumir fara i jóga, en ég fer i bankann til að tæma hugann.“ HVAÐ ER ÞAÐ SÍÐASTA SEM ÞÚ GERIR ÁÐUR EN ÞÚ FERÐ AÐ SOFA? „Bursta tennur og hlusta a tónlist“ HVER ER LEIÐ ÍSLANDS ÚTÚR KREPPUNNI? „Stríð við Færeyjar. Grín. Meiri bjartsýni og trú á hið góða í manninum.“ Ugla Egilsdóttir, leikkona og nemi í fræði og framkvæmd, hefur skömm á þeim sem kunna ekki að meta Beyoncé og Mariah Carey. Hún segir leið Íslendinga út úr kreppunni vera stríð við Færeyjar og langar helst að hella yfirmann Lýðheilsustöðvar fullan. ÁTTI PÁFAGAUK SEM SPRAKK www.birkiaska.is Birkilauf- Betulic Birkilauf hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum, dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox). Umbo›s- og sölua›ili Birkiaska ehf. sími: 551 9239 www.birkiaska.is Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi Minnistöflur OXYTARM Endurnærir og hreinsar ristilinn Allir dásama OXYTARM Í boði eru 60-150 töflu skammtar DETOX 30days& Betri apótekin og Maður lifandi www.sologheilsa.is. Losnið við hættulega kviðfitu og komið maganum í lag með því að nota náttúrulyfin Oxytarm og 30 days saman -120 töflu skammtur - KOMDU Í ÁSKRIFT! 512 70 80 dv.is/askrift FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.