Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2010, Page 54

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2010, Page 54
54 FÖSTUDAGUR 21. maí 2010 HELGARBLAÐ Í EUROVISION Eitt sem mun alltaf fylgja Eurovision er lög sem eiga að vera fyndin og sniðug. Stundum virkar það og stundum virkar það alls ekki. Oft er um gott grín að ræða þótt árangurinn sé ekki alltaf í samræmi við það. Stundum gengur þetta hins vegar upp eins og Lordi sannaði eftirminnilega árið 2006. Þessi atriði, góð eða ekki, eru hins vegar ómissandi í keppninni og gera hana eins litríka og raun ber vitni. DV tók saman eftirminnilegustu flippin og floppin síðustu ár í Eurovision. Verka Serduchka Framlag Úkra- ínu árið 2007 vakti mikla lukku og telst til eins best heppn- aða flippsins frá upp- hafi. Andriy Danylko sló í gegn sem dragdrottningin Verka Serduchka þegar hann flutti lagið Danc- ing Lasha Tumbai. Kraftmikið danslag sem var flutt af þessum silfraða furðufugli. Lagið end- aði í öðru sæti. Ekki langt á eftir Serbum sem unnu keppnina með laginu Molitva. Lt United Al- veg hræðilegt flipp en ótrúlega árangursríkt. Einhvern tímann var því haldið fram að ef þú segðir eitthvað nógu oft þá yrði það satt. Lithá- um tókst næstum því að sanna það árið 2006 með laginu We Are The Winners Of Eurovision. Texti lagsins samanstóð nánast einungis af þessari línu og skilaði það Lt United alla leið í annað sæti. Ótrúlegt. Sébastien Tellier Eitt besta flipp seinni ára og frábært lag þó eflaust séu ekki allir Eurovision-sérfræðing- ar sammála því. Franski spéfuglinn Sébastien Telli- er gerði það nefnilega ekki gott í keppninni 2008 þrátt fyrir töluverðar vinsældir utan hennar. Lagið end- aði í 19. sæti en það var mjög umdeilt vegna þess að það var að mestu sungið á ensku en það heyrir til algjörra undantekninga hjá Frökkum. Spurning hvort skeggjuðu kvenkyns bakradda söngkonurnar hafi gert útslagið. Daz Samp- son Eitt allra slak- asta lag keppninnar frá upphafi. Breski rappar- inn Daz Sampson var ekki að gera gott mót með laginu Teenage Life árið 2006. Með honum á sviðinu var hópur unglingsstúlkna í skóla- búningum og sungu þær hárri og kröftugri röddu með arfaslöku rappi Daz. Vont lag, vont flipp og árangurinn eftir því; 19. sæti og 25 stig. Dustin the Turkey Dustin er þekkt persóna í heima- landinu Írlandi. Hann er kjaftfor kalkúnn sem hefur verið á skjánum síðan árið 1989. Hann gerði það því gott í undankeppn- inni þar í landi en mistókst að komast áfram úr undankeppni Eurovision árið 2008. Hinn kjaftfori Dustin gerði grín að keppninni í texta sínum og það lagðist ekki vel í Eurovision-að- dáendur. Grínið var ekki alslæmt en frammi- staðan á sviðinu og lagið var lélegt. Scooch Bretar hafa verið gjörsamlega týndir í keppninni undanfarin ár og fram- lag bresku danssveitar- innar Scooch var næst- um því jafnvont og frá vini okkar Daz Samp- son. Þið munið kannski eftir laginu sem „flugfreyju- atriðinu“. Meðlimir Scooch voru nefnilega klæddir upp sem flugþjónar í laginu Flying the Flag (for You). Rosa vont og rosa óvinsælt. 23. sæti af 25. Las Ketchup Spænska stúlknasveitin Las Ketchup gerði allt vitlaust víða um Evrópu með laginu The Ketchup Song árið 2002. Flippað lag sem smaug djúpt inn í heilann og hékk þar eins og hundur á roði. Spánverjar sáu sér því leik á borði árið 2006 og sendu Las Ketchup með lagið Un Blodymary. Það var lítið ketchup í því og meira bara mess up. Mænusködduð frammistaða þeirra á svið- inu bætti heldur ekki úr skák og lagið endaði í 21. sæti af 25. Marko Kon & Milaan Svo sem ekki versta, besta eða flippaðasta at- riðið í keppninni undanfarin ár, lagið Cipela með þeim Marko Kon & Milaan. En það er hálfgerð steríótýpa af „austan- tjaldsflippinu“ í keppninni undanfarin ár. Hversu mörg lög lík þessu höfum við séð? Feitlaginn karl með gleraugu og af litað afró hleypur um með smávaxinn harmonikku- leikara í leðurbúningi á eft- ir sér. Hljómar ekkert ókunn- uglega. Pirates of the Sea Stundum kallað sjóræn- ingjaútgáfan af Merzedes Club sem gerði það gott í undankeppninni hér heima þett a sama ár, 2008. Þar var viðlagið Hey, hey, hey we say ho, ho, ho en hjá vinum okkar Lettum var það Hi, hi ,hi and the ho, ho, ho. Samkynhneigð ir sjóræningjar voru hins vegar ekki næstu m því jafntöff og þrælmassaðir Íslendingar. Þó vi ðlögin hafi verið svipuð var lag Barða mikl um mun betra og Lettarnir eiga skilið löðrung fyrir þetta framlag sem endaði í 12. sæti. Lordi Finnsku skrímslarokkararnir í Lordi komust heldur betur langt á öfg- unum. Þeir mættu dulbúnir sem skrímsli og komust alla leið á toppinn. Lordi sigraði í keppninni árið 2006 með yfirburðum en sigur þeirra gaf flippurum Eurovision byr undir báða vængi. Sem gerði það að verkum að öfgarnar urðu meiri en nokkurn tíma fyrr í keppnunum á eftir. &FLIPPIN FLOPPIN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.