Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2010, Qupperneq 70

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2010, Qupperneq 70
70 FÖSTUDAGUR 21. maí 2010 FÓLKIÐ Þetta var stórkostlegt atriði, eins og búast mátti við þeg-ar svona hörkutól mætast. Og við getum orðað það þannig að Gillz hefur litið betur út,“ seg- ir Sverrir Þór Sverrisson, eða Sveppi, um atriði sem hann og Auðunn Blön- dal tóku upp á dögunum fyrir föstu- dagsþátt sinn á Stöð 2. Þar keppa Gunnar Nelson, margfaldur verð- launahafi í bardagaíþróttum, og Egill „Gillz“ Einarsson líkamsræktarfröm- uður með meiru, í bardaga. „Þemað í þessum þætti, sem verð- ur sýndur þarnæsta föstudag, er að safna milljón krónum fyrir Mæðra- styrksnefnd,“ segir Sveppi. „Það eru fjögur fyrirtæki sem gefa 250 þúsund krónur hvert og í staðinn máttu þau velja atriði sem þau vildu sjá í þættin- um. Eitt þeirra, símafyrirtækið Ring, vildi sjá þaggað niður í Gillz og við fundum leiðina með því að láta hann fara inn í hringinn á móti Gunnari Nelson.“ Tóku kapparnir þrjár lotur en Sveppi vill ekki gefa upp hvernig leikar fóru. „En þetta var mjög skemmtilegur bar- dagi og gaman að sjá Gunnar, sem er 1,70 á hæð og 77 kíló, á móti „Þykka“,“ segir Sveppi og bætir við að Egill hafi oft verið meira töff um ævina en hann var á meðan Gunnar fékk að sýna hvað hann kann í bardagalistum gegn kjaftfora Kópavogsbúanum. Hin atriðin sem fyrirtækin ósk- uðu eftir að sjá í þættinum voru heldur ekki af verri endanum. Eitt þeirra vildi nefnilega sjá Friðriku Geirsdóttur, sjónvarpskokk á Stöð 2, ganga í gegnum bílaþvottastöð. Ef einhverjir miðaldra karlar sperrast upp við að lesa þetta verður því mið- ur að hryggja þá með því að Friðrika var í blautbúning, en það er örugglega margur annar klæðnaður sem dregur kynþokkann meira fram. Ingó „Veður- guði“, poppara og leikmanni Selfoss- liðsins í knattspyrnu, var misþyrmt af samherjum sínum að ósk þriðja fyrir- tækisins, en ofbeldið fólst í því að sjö skotföstustu leikmenn liðsins skutu bolta í rassinn á honum. Rúsínan í pylsuendanum er svo sena þar sem Auddi og Sveppi fara í freyðibað með Hilmi Snæ Guðna- syni leikara. „Forsvarsmönnum eins fyrirtækisins fannst svo krútt- legt þegar Auddi og Pétur Jóhann fóru einu sinni í bað saman þannig að þeir spurðu hvort við gætum ekki farið í bað með einhverj- um frægum. Við hringd- um í Hilmi og hann var bara til í það. Það var mjög krúttlegt móment.“ kristjanh@dv.is ÞÁTTUR AUDDA OG SVEPPA: GILLZ LAMINN, RIKKA BLEYTT Athyglisverður þáttur með Audda og Sveppa verður um næstu helgi þar sem Gillz er tekinn í bakaríið, Friðrika Geirs sjónvarpskokkur heimsækir bílaþvottastöð og Hilmir Snær fer í freyðibað með þáttarstjórnendum. Egill Gillzenegger Fór inn í bardaga- hringinn gegn sjálfum Gunnari Nelson. BARIST UM BOLTANN Það er ekki bara innan vallar sem barist er í boltanum í Pepsi-deild karla. Á meðan leikmenn deildarinn- ar takast á í hverri viku keppast Stöð 2 Sport og RÚV um að hafa bestu markaþættina. RÚV var líklegt til að verða eftirbátur Pepsi-markanna sem sýnd eru á Stöð 2 Sport eins og í fyrra enda geta menn þar á bæ sett á þátt hvenær sem þeim hentar. Á sama tíma fengu íslensku mörkin á RÚV aðeins úthlutað plássi á mánu- dagskvöldi, sama hvenær umferðir væru leiknar. En það virðist gleymt og grafið í Efstaleitinu. Heil umferð var leikin á fimmtudagskvöldið og píndi íþróttadeildin þar í gegn þátt sem hún fékk eftir mikinn barning við yfirvaldið hjá Sjónvarpinu. RÚV-arar viðast ekkert ætla að gefa eftir í baráttunni um boltann við Stöð 2 Sport. ERNA AFTUR Á RÓL? Ekki er langt síðan nektarfyrirsætan fyrrverandi Erna G gerði upp tímabilið fyrir framan myndavélina, neysluna og nektina, í helgarviðtali við DV. Erna sat á sama tíma fyrir í þokkafullri myndatöku og það virðist eitthvað hafa kveikt í kynbombunni. Erna hefur verið dugleg að undan- förnu að hlaða inn á Facebook-síðu sína gömlum myndum af sér sem teknar voru þegar frægðarsól hennar reis sem hæst. Einnig hefur Erna setið fyrir í nýjum myndaþætti ljósmyndarans Kalla Sig og ljóst er að hún hefur engu gleymt. Erna er í dag tveggja barna móðir en hver veit nema Erna G verði aftur orðið heitasta nafnið á allra vörum. VEÐRIÐ Í DAG KL. 15 2 14-16 4 9-11 2 11-13 4 8-10 3 10-12 4 11-13 3 9-11 9 10-12 4 10-12 1 11-13 9 8-10 4 12-14 4 14-16 7 9-11 7 7-9 3 7-9 2 8-10 11 9-11 2 9-11 4 9-11 7 9-11 3 9-11 3 8-10 2 6-9 3 7-9 6 9-11 3 9-11 3 7-9 3 9-11 4 7-9 2 6-9 2 8-10 4 10-12 3 10-13 3 10-12 3 9-11 3 9-11 1 9-11 9 6-8 2 10-12 2 10-12 9 3-5 11/8 13/2 26/4 13/4 22/8 28/12 19/12 25/13 16/10 18/2 19/4 15/7 27/11 24/13 19/12 23/12 19/10 19/9 24/9 22/19 26/9 22/12 20/13 24/13 19/12 23/11 24/8 24/13 24/12 22/11 20/13 24/13 5 8-11 2 8-10 2 6-8 4 8-10 8 12-15 3 13-16 3 12-16 ...OG NÆSTU DAGA Sun Mán Þri Mið vindur í m/s hiti á bilinu Stykkishólmur vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu Sun Mán Þri Mið vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu Höfn Reykjavík Egilsstaðir Ísafjörður Vestmannaeyjar Patreksfjörður Kirkjubæjarkl. Akureyri Selfoss Sauðárkrókur Þingvellir Húsavík Keflavík Fös Lau Sun Mán hiti á bilinu Kaupmannahöfn hiti á bilinu Osló hiti á bilinu Stokkhólmur hiti á bilinu Helsinki hiti á bilinu London hiti á bilinu París hiti á bilinu Tenerife hiti á bilinu Alicante VEÐRIÐ ÚTI Í HEIMI Í DAG OG NÆSTU DAGA 5 10-13 4 9-11 4 9-12 4 7-9 9 8-10 4 9-11 4 4-6 VEÐRIÐ Á MORGUN KL. 15 14 12 7 9 11 7 14 14 1515 16 10 22 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 22 2 2 5 Hitakort Litirnir sýna hitafarið á landinu (sjá kvarða) Hitakort Litirnir sýna hitafarið á landinu (sjá kvarða) INDÆLISVEÐUR UM HELGINA HÖFUÐBORGAR- SVÆÐIÐ Hreint frábærar veður- horfur eru þessa helgina. Í dag verður sýnu þungbúnast en hlýtt og þurrt að mestu. Á morgun verður bjart með köflum, þurrt og hlýtt og á sunnudaginn sömuleiðis en þá eru raunar horfur á enn hlýrra veðri eða jafnvel 16-17 stigum eins og spárnar líta út núna. LANDSBYGGÐIN Svipað er að segja um lands- byggðina. Það verður hægviðrasamt alla helgina. Dagurinn í dag verður þó svalastur fyrir norðan, morgundagurinn ákaflega hlýr og svo kólnar þar heldur á sunnudaginn en þá verður þeim mun hlýrra á Suður- og Vesturlandi. Dagurinn í dag verður bjartur austanlands annars fremur þungbúinn en síðan eru horfur á björtu veðri bæði laugardag og sunnu- dag. Þetta þýðir að hitamunur dags og nætur verður þó nokkur. Sunnudagurinn er hlýjastur á Suður- og Vesturlandi en hafgolan gæti dregið hitann niður með ströndum. EFTIR HELGI Yfirleitt hægviðri eða hafgola. Þurrt og milt en kólnar þó austanlands undir lok vikunnar. Víða má búast við nokkuð björtu veðri. <5 Mjög hægur vindur 5-10 Fremur hægur vindur. 10-20 Talsverður vindur 20-30 Mjög hvasst, fólk þarf að gá að sér. >30 Stórviðri, fólk ætti ekki að vera á ferli að nauðsynjalausu.VEÐRIÐ MEÐ SIGGA STORMI siggistormur@dv.is 13 12 10 14 16 14 15 12 1516 16 10 FELLUR 20 STIGA HITAMÚRINN? Ekki er fráleitt að ætla að 20 stiga hitamúrinn falli um helgina. Mestu líkurnar á því eru raunar á sunnudeginum og þá helst til landsins sunnan eða vestan til. Staðir eins og Húsafell, Hjarðarland eða jafnvel Árnes liggja sterklega undir grun. Nú er allt lagt undir! ATHUGASEMD VEÐURFRÆÐINGS ! Friðrika Geirsdóttir Gekk í gegnum bílaþvottastöð. MYND GUNNAR GUNNARSSON
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.