Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2011, Blaðsíða 6
6 | Fréttir 11.–13. mars 2011 Helgarblað
Júlíus Vífill Ingvarsson segir vinnubrögðin móðgun:
Reka alla fyrir fyrsta apríl
„Þetta er stjórnsýsla sem á ekkert
heima í samtímanum og er í eðli sínu
ekki í samræmi við íslenskt samfélag
þar sem smæðin ætti nú að kenna
okkur að tala saman til að komast
að vitrænni niðurstöðu. Þetta mál
hefur allt verið eins klaufalega unn-
ið og hægt hefur verið og það tekur
nú alveg steininn úr ef það á að sam-
þykkja með þessum hætti,“ segir Júlí-
us Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi
Sjálfstæðis flokksins.
Hann er verulega ósáttur við að
borgarstjórn ætli sér að öllum lík-
indum aðeins að taka einn dag í
að fara yfir allar þær umsagnir er
varða sameiningu leik- og grunn-
skóla borgarinnar. „Mér finnst
þetta algjör móðgun við alla þá
fag- og hagsmunaaðlila sem hafa
fengið þetta mál til umsagnar,“
segir hann. Júlíus segir að áform-
in um sameiningarnar hafi verið
sendar til umsagnar fjölmargra að-
ila. Þeim beri að skila álitum 25.
mars, á föstudegi. Nú sé rætt um
að funda í borgarstjórn 29. mars,
á þriðjudegi og eigi því einungis
að nota einn dag, mánudaginn
28. mars, til að fara yfir öll álitin.
Hann segir að þau muni vafalaust
kalla á nánari skoðun á málinu. Til
þess gefist hins vegar enginn tími.
„Það verður enginn tími til þess því
stefnt er að því halda, strax daginn
eftir, fund í borgarstjórn til að geta
rekið alla þessa skólastjórnendur
fyrir 1. apríl,“ segir Júlíus. Vinnu-
brögðin séu forkastanleg.
baldur@dv.is
Forkastanleg vinnubrögð Júlíus Vífill
gagnrýnir meirihlutann harðlega.
Laus gegn
tryggingu
Breska efnahagsbrotadeildin mun
hafa krafist tryggingar áður en hún
sleppti Sigurði Einarssyni, fyrrver-
andi stjórnarformanni Kaupþings,
og öðrum sem handteknir voru á
miðvikudag í tengslum við rannsókn
sérstaks saksóknara og efnahags-
brotadeildarinnar á hruni Kaup-
þings banka. Mönnunum var sleppt
eftir yfirheyrslur.
Slík trygging mun eingöngu vera
lögð fram í veigameiri málum og
getur bent til þess að þeir sem hand-
teknir voru verði áfram yfirheyrðir.
Yfirheyrslur stóðu yfir á fimmtudag
en ekki hefur komið fram hverjir eru
yfirheyrðir.
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur
saksóknari, sagði í Morgunútvarpi
Rásar 2 á fimmtudag að einhver tími
væri í það að breska efnahagsbrota-
deildin tæki ákvörðun um það hvort
ákært yrði í málinu. Það yrði gert
eftir að farið hefur verið yfir gögn í
málinu.
Skera upp herör
gegn einelti
Útvarpsstöðin FM 957 fer á föstu-
dag af stað með átaksviku þar sem
skorin verður upp herör gegn ein-
elti. Stöðin ætlar meðal annars að
bjóða Þorvaldi Berglindarsyni, fórn-
arlambi eineltis í Hveragerði sem
DV fjallaði um í vikunni, í Go-Kart
og fjölskylduveislu á Hamborgara-
fabrikkunni.
Útvarpsstöðin vill með átakinu
leggja sitt af mörkum til umræðunn-
ar um einelti. Stöðin mun frá og með
morgundeginum vekja hlustendur
sína, og vonandi sem flesta, til um-
hugsunar um einelti og alvarleika
þess, hvar svo sem það á sér stað.
FM 957 hefur fengið marga af
þekktustu einstaklingum þjóðarinn-
ar til liðs við sig til að vekja athygli á
málstaðnum.
Átaksvikan byrjar á því að út-
varpsstöðin, gokart.is og Hamborg-
arafabrikkan ætla að færa Þorvaldi
Go-Kart-námskeið að gjöf og fjöl-
skylduveislu á Hamborgarafabrikk-
unni. Þorvaldur lýsti því yfir í viðtali
við Ísland í dag á dögunum að hann
væri mikill áhugamaður um Go-Kart.
Ófriðlega horfir fyrir aðalsafnaðar-
fund Selfossprestakalls sem hald-
inn verður 13. mars næstkomandi.
Mjög hefur kastast í kekki milli
séra Kristins Ágústs Friðfinns-
sonar sóknarprests annars veg-
ar og séra Óskars H. Óskarssonar
sem þjónar einnig í prestakallinu.
Sóknarnefndin og Eysteinn Ó. Jón-
asson sóknarnefndarformaður
hafa blandast inn í deilurnar og er
nú málið í höndum biskups. Svo
langt gekk, að Eysteinn, formað-
ur sóknarnefndarinnar, neyddist
á dögunum til að biðja séra Kristin
opinberlega afsökunar á bréfi sem
hann hafði sent honum síðastliðið
haust. Afsökunarbeiðnin birtist í
Dagskránni á Selfossi í lok febrúar:
„Biðst undirritaður velvirðingar á
því og biður þig vinsamlegast að
líta svo á að innihald þess sé dreg-
ið til baka,“ segir Eysteinn í bréfinu
til séra Kristins.
Samstarf í molum
Á sóknarnefndarfundi var efni bréfs
frá séra Karli Sigurbjörnssyni, biskupi
Íslands, til umræðu en það var ritað
og sent sóknarnefndinni eftir að séra
Kristinn Ágúst hafði séð sig til knú-
inn að kvarta yfir samskiptum við séra
Óskar og meintum trúnaðarbresti. Er
að sjá sem séra Óskar hafi komið efni
einkasamtala hans og séra Kristins á
framfæri við sóknarnefndarmenn og
fleiri að Kristni forspurðum. Þessu
undi séra Kristinn illa og eftir það sem
á undan hafði gengið taldi hann óhjá-
kvæmilegt að kvarta beint til biskups.
Séra Karl biskup sendi sóknar-
nefndinni bréf um þetta efni sem
dagsett er 1. febrúar síðastliðinn. DV
er ekki kunnugt um hvort biskup hafi
þar leitað eftir skýringum eða reynt
með einhverjum hætti að sannreyna
hvort umkvartanir séra Kristins ættu
við rök að styðjast.
Vildi áminna séra Óskar
Sóknarnefndin virðist hins vegar hafa
tekið afdráttarlausa afstöðu til bréfs
biskups ef marka má fundargerð
hennar frá 6. mars síðastliðnum: „Um
bréfið vill sóknarnefnd taka fram eftir-
farandi: Ljóst er að sóknarprestur (séra
Kristinn Ágúst) hefir að undanförnu
verið með margvíslegar umkvartanir
við biskup vegna sr. Óskars H. Óskars-
sonar án vitundar sóknarnefndar og
sr. Óskars. Rekur biskup þær kvartanir
í bréfi sínu, en hafnar þeim síðan með
öllu og hafnar því einnig að sr. Óskari
verði veitt áminning eins og sr. Krist-
inn leggur til. Þá ítrekar biskup ákvörð-
un sína frá 11. maí 2010 að prestur
skipuleggi starfsmannafundi í samráði
við sóknarprest og sóknarnefnd.
Sóknarnefnd leggur áherslu á það
góða fyrirkomulag, sem verið hefur
bæði um gerð starfsáætlana og starfs-
mannafundi í Selfosskirkju og haldist
óbreytt með umsjón sr. Óskars. Ljóst er
að ákvörun biskups frá 11. maí stendur
óhögguð.“
Biskup tekur afstöðu
Af framangreindri samþykkt safnað-
arins má ráða að séra Karl biskup hafi
þegar tekið afstöðu gegn umkvörtun-
um séra Kristins án þess að rannsaka
málið frekar. Það getur að sínu leyti
tengst ákvörðun þeirri sem biskup
tók í maí í fyrra um verkaskiptingu
séra Kristins Ágústs og séra Óskars.
Með ákvörðuninni var séra Óskari
falið visst forræði yfir Selfosskirkju
en þar með var sneitt hjá lagaákvæði
um að sóknarpresturinn, það er séra
Kristinn Ágúst, skyldi fara með mál
starfsmanna og kirkjunnar sjálfrar.
Eftir því sem DV kemst næst hefur
séra Óskar sent biskupi afrit af trún-
aðarsamtölum sínum við séra Kristin
Ágúst að því er virðist málstað sínum
til framdráttar. Þetta mun vera eitt
helsta umkvörtunarefni séra Kristins
auk þess sem séra Óskar hafi þráfald-
lega vikist undan eðlilegu samstarfi
við sóknarprestinn nema í viðurvist
sóknarnefndarformannsins. Sam-
kvæmt heimildum DV standa þar
orð séra Kristins Ágústs gegn orðum
séra Óskars sem borið hefur af sér
sakir í eyru biskups.
Málið ber keim af samstarfsörð-
ugleikum og væringum innan Sel-
fosssóknar sem gætu bakað biskupi
umtalsverðan vanda. Málið verður
til umræðu á aðalsafnaðarfundi Sel-
fossprestakalls næstkomandi sunnu-
dag.
Jóhann Hauksson
blaðamaður skrifar johann@dv.is
n Átök og samstarfsörðugleikar innan Selfossprestakalls n Skerst í odda
með sóknarpresti og aðstoðarpresti n Kvartanir berast biskupi n Sóknar-
nefndarformaður biðst opinberlega afsökunar á bréfi til sóknarprestsins
„Rekur biskup
þær kvartanir í
bréfi sínu, en hafnar
þeim síðan með öllu
og hafnar því einnig
að sr. Óskari verði
veitt áminning.
ÁTÖK SELFOSSPRESTA
Í HÖNDUM BISKUPS
Sóknarpresturinn
Séra Kristinn Ágúst
Friðfinnsson kvartaði til
biskups yfir trúnaðarbresti
og ólögmætri ákvörðun en
á í vök að verjast.
Týr kom með
týndan pramma
að landi
Týr, varðskip Landhelgisgæslunn-
ar, kom með stálpramma í togi til
Reykjavíkur um sexleytið á fimmtu-
dag. Landhelgisgæslan hefur leitað
prammans en síðdegis á miðvikudag
tókst áhöfn varðskipsins að snara
hann í vonskuveðri við Malarrif.
TF-LÍF hafði fundið pramm-
ann en ekkert var hægt að aðhafast
vegna ölduhæðar og var ákveðið að
bíða með frekari aðgerðir þar til í
birtingu. Landhelgisgæslan mat það
sem svo að skipum og bátum stafaði
hætta af prammanum sem áætlað
er að sé um 10 metrar að lengd og 5
metrar á breidd enda sést hann ekki
á ratsjá.