Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2011, Blaðsíða 8
8 | Fréttir 11.–13. mars 2011 Helgarblað
Hárstofan Space er 5 ára
Hárstofan Space er 5 ára og af því tilefni bjóðum við
25% afslátt af völdum Tigi hárvörum út mars.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Eva, Pála, Bryndís, Þórir, Íris Thelma, Íris Hlín og Inga
Starfsmaður Íslandsbanka með góð laun í leyfinu:
Jóhannes stendur í ströngu
Einn af framkvæmdastjórunum sjö
hjá Íslandsbanka sem var með meira
en 20 milljónir króna í árslaun í fyrra,
samkvæmt nýbirtum ársreikningi,
heitir Jóhannes Baldursson. Jóhann-
es er framkvæmdastjóri markaðsvið-
skipta hjá bankanum.
Hann var sendur í leyfi frá störf-
um í bankanum í október síðast-
liðnum, ásamt nokkrum öðrum
starfsmönnum Íslandsbanka, vegna
meintrar aðildar að hugsanlegum
brotamálum sem embætti sérstaks
saksóknara rannsakar. Jóhannes
tengist Stím-málinu svokallaða og
ýmsum öngum þess, meðal ann-
ars kaupum Glitnis á 1.200 milljóna
króna skuldabréfi af Saga Capital í
ágúst 2008.
En Jóhannes tengist einnig öðr-
um málum. Hann var einn þeirra
starfsmanna Glitnis, fyrirrennara Ís-
landsbanka, sem fékk kúlulán frá
bankanum til að kaupa hlutabréf
í honum árið 2008. Kúlulánið, 800
milljónir króna, hefur verið afskrifað.
Jóhannes er sömuleiðis einn þeirra
fyrrverandi starfsmanna Glitnis sem
gert hafa launakröfu í bú Glitnis. Mál
Jóhannesar er nú rekið fyrir dómstól-
um. Hann vill fá 68 milljónir króna úr
þrotabúi Glitnis vegna samnings-
bundinna launa.
Jóhannes tengist því að minnsta
kosti fjórum málum sem fjallað hef-
ur verið um á gagnrýninn hátt eftir
hrunið 2008: háum launum starfs-
manna Arion banka og Íslands-
banka, rannsóknum ákæruvaldsins á
málefnum Glitnis, afskriftum á kúlu-
lánum starfsmanna Glitnis og launa-
kröfum starfsmanna í bú hins gjald-
þrota banka.
ingi@dv.is
Kemur víða við Jóhannes Baldursson
tengist mörgum málum sem komið hafa
upp á yfirborðið frá bankahruninu árið
2008. Hann er einn launahæsti starfsmaður
Íslandsbanka í dag en er í leyfi frá störfum
vegna rannsóknar ákæruvaldsins á málum
honum tengdum.
n Íbúar dvalarheimilis aldraðra við Dalbraut eru óánægðir með fyrirhugaðar breyt-
ingar á eldhúsi heimilisins n 120 skrifuðu undir mótmælaskjal og hvöttu velferð-
arráð til að endurskoða ákvörðun sína n Ráðið hnikar ekki frá ákvörðuninni
Eldri borgarar sjá
eftir eldhúsinu
„Björk Vilhelmsdóttir útskýrði þessi
mál og þau eru ákveðin í að standa
við þessa breytingu og leggja niður
eldhúsið. Matreiðslumeistarinn sem
þarna eldar matreiðir einstaklega vel
heppilegan heimilismat fyrir þessa
öldruðu einstaklinga. Það er því mikil
ógæfa að raska því hefðbundna fyrir-
komulagi sem verið hefur um áratuga-
skeið og fólkið er svo sátt við,“ segir
Ásgeir Nikulásson, íbúi í grennd við
Dalbraut, sem hefur nýtt sér að fá mat
í eldhúsinu. Hann segir eldhúsið að
Dalbraut vera einingu sem hafi staðið
undir sér og sem fólkinu líki vel við en
að nú eigi að hrófla við þessu. „Þetta
á að heita velferð en er í algjörri and-
stæðu við orðið sjálft. Það er verið að
taka hlunnindi sem fólki líkar vel við.“
Yfir hundrað undirskriftir
Fyrirhugaðar breytingar á eldhúsi Dal-
brautar snúast um að breyta því úr
framleiðslueldhúsi í móttökueldhús.
Maturinn verður eldaður á Lindargötu
og sendur á Dalbraut þar sem hann
verður framreiddur á diska. Þegar Ás-
geir ákvað að kanna hug íbúa Dal-
brautar og matargesta til breytinganna
fyrr á árinu kom í ljós engum hafði
verið tilkynnt um þær. Hann gekk því
á milli íbúa og safnaði undirskiftum
þar sem 120 manns mótmæltu breyt-
ingunum. Í framhaldinu var haldinn
fundur með Björk Vilhelmsdóttur,
formanni velferðarráðs, ásamt fleir-
um í lok nóvember. Sá fundur var full-
skipaður íbúum og umræður urðu
snarpar. Fundinum lauk með að því
Björk var afhentur undirskriftalistinn
ásamt erindi íbúa og matargesta að
Dalbraut þar sem skorað var á velferð-
arráð og borgarstjórn að endurskoða
ákvörðun sína.
Hnika ekki frá ákvörðuninni
Annar fundur var haldinn á fimmtu-
dag og þar mættu Björk Vilhelmsdótt-
ir, Hörður Hilmarsson, fjármálastjóri
velferðarsviðs, og Aðalbjörg Trausta-
dóttir, framkvæmdastjóri Þjónustu-
miðstöðvar Laugardals og Háaleitis.
Var þar tilkynnt að eftir að ráðið hefði
farið yfir málið að nýju hefði verið
ákveðið að ekki yrði hnikað frá upp-
haflegri ákvörðun. „Ég lofaði að end-
urskoða þessa ákvörðun en erindi ykk-
ar var lagt fyrir á fundi velferðarráðs
og ákveðið að halda þessari breytingu.
Ég geri mér alveg grein fyrir því að þið
eruð ósátt og þið hafið skorað á okkur
að endurskoða þetta. Við erum búin
að því og það er komin sú niðurstaða
að við getum ekki sleppt þessu þótt
fólk sé ósátt,“ sagði Björk á fundinum.
Hún sagði að maturinn sem boðið yrði
upp á þætti fullgóður um alla borg og
hún vonaði að heimilisfólk og matar-
gestum yrði ekki meint af. Eins að hún
tryði því að þau yrðu sátt við matinn
þegar hann kemur.
Endurskoða þetta ekki aftur
„Við erum að breyta öllu kerfinu í
Reykjavík, við höfum miklu minni
tekjur og miklu meiri útgjöld en áður
og það kemur í ljós fljótlega að þessi
sparnaður sem við erum að fara í núna
er ekki einu sinni nægur. Við þurfum
að gera meira og mér bregður ekkert
við það að hitta óánægða íbúa hér því
að það eru svo margar stórar og erfið-
ar ákvarðanir sem við erum að taka.
Sjálfri finnst mér ekkert erfitt að bjóða
upp á þennan mat. Það er ekki eins og
við séum að taka af ykkur þjónustu. Ég
stend bara keik við þessa ákvörðun og
við erum ekki til í að endurskoða þetta
aftur. Við erum búin að því margoft,“
sagði Björk. Hún afsakaði að vera ekki
með ljósrit af útreikningum en það
hefði gleymst vegna anna. „Ég er búin
að vera á fundum um sparnað, bara
svo það komi fram. Ég er í þessu alla
daga, þetta er bara veruleikinn í dag.“
Verður að taka mannlega
þáttinn inn í
Ásgeir er að vonum óánægður með
útkomuna en segir að fundurinn hafi
verið góður og endað í friði og spekt.
„Það var mikið talað um hvað þetta
verður mikil hagræðing en hún er þó
hverfandi finnst mér. Ég sagði að það
mætti jú sýna manni einhverjar tölur í
sambandi við skipulag og hagræðingu
en þarna væri um að ræða manneskj-
ur sem þarf að fara varlega með. Flest
eru þau komin hátt á fullorðinsárin og
það verður að taka þann mannlega
þátt inn í. Það er ekki hægt að reikna
allt út í peningum,“ segir hann. Að-
spurður um viðbrögð heimilisfólks-
ins sagðist hann hafa fundið hjá þeim
þakklæti fyrir að standa með þeim og
gagnrýna þessa ákvörðun. Hann seg-
ir marga eldri borgara ekki eiga sér
málsvara. Einnig sé leiðinlegt að vita
til þess að þessi ágæti kokkur verði
færður til eða látinn fara. Hann muni
þó ekki beita sér meira í þessu máli og
segir að lokum að hann sé glaður að
hafa getað vakið máls á þessu.
Matreiðslumað-
urinn Valur Svein-
björnsson hefur
rekið eldhúsið á
Dalbraut í fimmtán
ár. „Reksturinn
er búinn að vera í
góðu standi og því
finnst mér skrýtið
að þessar breytingar eigi að skella á
okkur núna. Gamla fólkið er ánægt með
matinn og vill ekki þessar breytingar.“
Valur segir að allt upp undir 140 manns
séu hjá honum í mat en auk hans starfa
sex aðrir í eldhúsinu. „Þau munu ekki
segja upp starfsmönnunum en ég mun
ekki starfa hér áfram sem matreiðslu-
maður.“ Hann skilur ekki hvernig spara
eigi 12,5 milljónir króna með þessu
breytingum og sér í lagi í ljósi þess
hagnaðar sem hann hefur sýnt fram á.
Valur SveinbjörnssonGunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
Ásgeir Nikulásson
Ásgeir barðist fyrir því
að eldhúsið á Dalbraut
yrði starfrækt áfram.
MYND RÓBERT REYNISSON
Frá fundinum Íbúar Dalbrautar
mættu margir á fundinn á
fimmtudag. MYND RÓBERT REYNISSON