Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2011, Blaðsíða 37
Viðtal | 37Helgarblað 11.–13. mars 2011
„Það starf gengur út á að fylgja
fólki út í samfélagið á ný. Oftast þeg-
ar það er að jafna sig eftir veikindi eða
jafnvel til að hindra veikindi og er því
forvarnarstarf líka. Fólk sem kemur til
okkar vill byggja upp sjálfstraust, vill
byggja upp bata og vill komast á skrið
á ný. Oft hefur sjálfstraust fólks beð-
ið hnekki í veikindunum og það þarf
að byggja það upp á nýjan leik. Finna
hvað er það sem hindrar það í dag-
legu lífi og komast yfir þær hindranir.
Þessi samvinna getur byggt á viðtöl-
um, heimavitjunum, fjölskyldufund-
um og hópatímum sem eru þá mest
starfræktir í gegnum Hugarafl.
Okkar hlutverk, fagfólksins, er
að mæta manneskjunni á jafningja-
grunni. Á hennar forsendum. Ég legg
mikla áherslu á það. Ekki að við séum
komin til þess að stýra og stjórna
heldur vinna saman. Það þýðir að
við förum gjarnan út úr rammanum.
Við erum ekki endilega bara á bak við
lokaðar dyr að spjalla heldur hittum
jafnvel fjölskylduna, förum í skólann,
á vinnustaðinn eða hvert sem er þar
sem er hægt að þjálfa upp og komast
yfir þessar hindranir.“
Minning Hallgríms lifir
Þótt Hallgrímur sé fallinn frá munu
Auður og allir þeir sem að Hugarafli
koma halda áfram að vinna á þeim
grunnhugmyndum sem samtökin
urðu til á. Halda áfram að bæta þjón-
ustu við þá sem þurfa hvað mest á
henni að halda. Þannig munu þau
halda minningu Hallgríms á lofti sem
og minningu Garðars Jónassonar og
Ragnhildar Bragadóttur sem voru á
meðal stofnenda en þau eru einnig
fallin frá.
„Við vorum fimm einstakling-
ar sem stofnuðum Hugarafl. Ég,
Hallgrímur og þrír aðrir sem höfðu
reynslu af geðsjúkdómum. Okk-
ar markmið var að sameina þessa
reynsluheima og breyta geðheil-
brigðiskerfinu. Breyta nálguninni
þar. Við vildum breyta kerfinu þannig
að reynsla þeirra sem hafa glímt við
þessi vandamál myndi nýtast til að
hjálpa fólki. Kenna þannig um leið
kerfinu hvað reynist vel og hvað ekki,
hvað virkar og hvað ekki. Við vildum
líka vera sýnileg og þar með minnka
fordóma.“
Að lokum vill Auður hvetja fólk til
þess að ræða málin og leita sér hjálp-
ar ef því líður illa. „Maður þarf ekki að
vera alvarlega veikur til þess að þurfa
hjálp. Það er mjög algegnt að fólk
glími við bæði kvíða og þung lyndi en
þá er ekki endilega lausnin að fara
beint á lyf. Frekar að ræða málin við
sína nánustu, leita sér ráðgjafar og
skoða hvað er hægt að gera til þess að
draga úr þessum tilfinningum. Hvað í
lífi okkar orsakar þessa líðan og reyna
að bæta það. Í staðinn fyrir að gleypa
bara pillu.“
asgeir@dv.is
FÓLKI GEFIN
LYF VIÐ SORG
Auður Axelsdóttir „Þótt við
séum sorgmædd, stressuð eða
verðum fyrir áföllum þurfum
við að ná okkur öðruvísi en með
lyfjaskammti.“ MYND SIGTRYGGUR ARI