Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2011, Blaðsíða 11
Fréttir | 11Helgarblað 11.–13. mars 2011
Vefuppboð í
Galleríi fold
Fjöldi listaverka eftir marga af helstu listamönnum þjóðarinnar
verða boðin upp, þar á meðal Tryggva Ólafsson, Harald Bilson,
Helga Þorgils, Magnús Kjartansson, Valtý Pétursson, Louisu
Matthíasdóttur og Jóhannes S. Kjarval. Þá verða einnig boðin
upp verk eftir Stórval og Picasso.
Gallerí Fold er leiðandi uppboðshús á Íslandi og hefur staðið
fyrir listmunauppboðum frá 1996. Nú hefur galleríið hannað
frá grunni hugbúnað fyrir vefuppboð þar sem kaupendum og
listunnendum býðst tækifæri að bjóða í listaverk á vefnum.
Rétt eins og á venjulegum uppboðum býður Gallerí Fold upp á
úrval verka eftir íslenska listamenn á vefuppboðum. Hægt er að
skoða verkin og bjóða í á vefnum www.uppbod.is
Fyrsta vefuppboð Gallerís Foldar hefst laugardaginn
12. mars kl. 12 og lýkur 26. mars kl. 12.
Grunur um stórfelld
lögbrot í Sigurplasti
lét Sigurplast greiða fyrir sig er
að finna fjölmargar færslur þar
sem Sigurður virðist hafa látið fyr-
irtækið greiða fyrir kostnað við
framkvæmdir við heimili sitt á
Suður mýri á Seltjarnarnesi. Þess-
ar greiðslur nema verulegum fjár-
hæðum.
Til að mynda greiddi Sigurplast
rúmlega 2,2 milljóna króna kostnað
vegna lagnavinnu og framkvæmd-
ir við snjóbræðslukerfi. Í skýringu
endurskoðenda segir að enginn
starfsmaður Sigurplasts kannist við
umræddar framkvæmdir hjá fyrir-
tækinu en að vitað hafi verið að
Sigurður hafi staðið í framkvæmd-
um við hús sitt þegar þetta var. Þá
benda endurskoðendurnir á að í
einhverjum tilfellum hafi heimil-
isfang Sigurðar verið nefnt á reikn-
ingum sem skoðaðir voru, fyrir ým-
iss konar byggingarefni. Til dæmis
kom heimilisfang Sigurðar í Suður-
mýri fram á rúmlega 500 þúsund
króna reikningi vegna brunndælu
og lagfæringar á rafmagni og þá
greiddi Sigurplast fyrir sand frá
Steypustöðinni sem sendur var
heim til Sigurðar. Fjölmarga reikn-
inga frá Byko er að finna í bókhald-
inu vegna kaupa á byggingarefni
en samtals námu greiðslur frá Sig-
urplasti vegna þessara verkefna
nærri 6 milljónum króna.
Hugsanlegt er að umrædd
viðskipti flokkist sem brot á auðg-
unarbrotakafla hegningarlaga.
Sigurplast borgaði 200 þúsund
krónur hjá Gilbert
Þá er einnig að finna yfirlit yfir
færslur á kreditkorti Sigurðar sem
Sigurplast borgaði fyrir hann.
Þessar greiðslur námu nærri 9
milljónum króna á árunum 2007
til 2010. Umræddur kostnaður var
bókaður á ýmsa gjaldalykla í bók-
haldi Sigurplasts og telja endur-
skoðendurnir að um sé að ræða
„persónulegan kostnað“ Sigurðar.
Meðal þess sem Sigurplast
greiddi fyrir Sigurð samkvæmt
þessu yfirliti var 200 þúsund króna
úr hjá Glibert úrsmið á aðfangadag
2009, 34 þúsund króna skjalataska
í Tösku- og hanskabúðinni sama
dag og 130 þúsund krónur vegna
„American harley 6.5“ en ætla má
að sá reikningur hafi verið vegna
vöru eða þjónustu sem tengist
mótorhjólum. Almennt séð er þó
um að ræða nokkur þúsund til
tugþúsunda króna neyslu af ýmsu
tagi, svo sem veitinga og annars
slíks, sem Sigurplast virðist hafa
greitt fyrir Sigurð samkvæmt end-
urskoðendunum.
Þessi viðskipti með fjármuni
Sigurplasts gætu einnig flokkast
sem brot á auðgunarbrotakafla
hegningarlaga.
Deilur Arion banka og Sigur-
plasts
Eftir að forsvarsmenn Sigurplasts
óskuðu eftir því við Arion banka í
fyrrahaust að fyrirtækið yrði tekið
til gjaldþrotaskipta var nokkuð rætt
um meinta aðgangshörku íslenskra
banka í garð fyrirtækja í kjölfar efna-
hagshrunsins. Forsvarsmenn Sigur-
plasts héldu því fram að Arion banki
hefði ekki sýnt fyrirtækinu nægjan-
lega mikinn sveigjanleika í ljósi þess
að skuldir félagsins höfðu hækkað
gríðarlega vegna gengisfalls krón-
unnar og í reynd keyrt það í þrot.
Bankinn greindi þá frá því að starfs-
menn hans hefðu ekki séð sér fært
að starfa áfram með forsvarsmönn-
um fyrirtækisins og að fyrir því lægju
efnislegar og alvarlegar ástæður.
Meðal þess sem bankinn benti á í
því sambandi var stofnun Viðarsúlu
og að Sigurplast hefði greitt starfs-
mönnum þess félags laun af ein-
hverjum ástæðum.
Tryggvi Agnarsson, lögmaður
Sigurplasts, sagði þá, við fyrirspurn
RÚV um málið, að ekkert ólöglegt
væri við það að eigendur Sigurplasts
hefðu stundað aðra atvinnustarf-
semi. Samkvæmt skýrslu Ernst og
Young eru endurskoðendurnir ekki
sammála þessu mati Tryggva. Auk
þess ber að geta að svo virðist sem
Sigurplast hafi ekki verið gjaldfært
í um tvö og hálft ár áður en félagið
varð formlega gjaldþrota.
Farið verður yfir skýrsluna á
væntanlegum kröfuhafafundi Sigur-
plasts. Þar er Arion banki lang-
stærsti kröfuhafinn. Í millitíðinni
mun lögreglan væntanlega halda
áfram að rannsaka málefni félags-
ins, og Sigurplast, fyrirtæki Arion
banka, og Viðarsúla, fyrirtæki Sig-
urðar L. Sævarssonar, munu halda
áfram að eiga í samkeppni á þessum
plastmarkaði.
Lögbrot rannsökuð Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra
rannsakar meint lögbrot eiganda iðnfyrirtækisins Sigurplasts,
Sigurðar L. Sævarssonar. Svört endurskoðendaskýrsla um
starfsemi Sigurplasts liggur fyrir. Myndin er af höfuðstöðvum
Sigurplasts í Mosfellsbæ en Arion banki rekur fyrirtækið í dag.
MYND SIGTRYGGUR ARI