Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2011, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2011, Blaðsíða 23
Nærmynd | 23Helgarblað 11.–13. mars 2011 SLÉTTUR OG FELLDUR Í ÓLGUSJÓ ið í tilkynningu: „Það er ljóst að ekki var farið eftir reglum í ákveðnum til- fellum á þessum áratug sem tekinn var til rannsóknar.“ Páll Gunnar Páls- son, forstjóri Samkeppniseftir litsins, sagði í samtali við Morgunblaðið á sínum tíma að málið hefði verið með þeim umfangsmeiri sem eftirlitið hefði tekið fyrir. Kærður af femínistum Á þeim tíma sem Höskuldur starf- aði fyrir Eimskip í Hollandi kenndi Sigríður kona hans meðal ann- ars íslensku og lauk Human Re- source Management-prógrammi frá Erasmus- háskólanum í Rotter- dam. Síðar héldu þau aftur heim og eftir árin sautján hjá Eimskip tók Hös k uldur við stöðu forstjóra kredit- kortafyrirtækisins VISA (síðar Valit- or) og sinnti henni þar til hann var ráðinn til Arion banka, en Valitor er einmitt að meirihluta í eigu bankans. Þrátt fyrir að oft og tíðum hafi Höskuldur siglt lygnan sjó í stjórn- unartíð sinni hefur hann stundum þurft að svara áleitnum spurningum fyrir hönd þeirra fyrirtækja sem hann starfar fyrir. Femínistafélag Íslands lagði árið 2007 fram kæru á hend- ur honum og stjórn Valitor – fyrir að stuðla að og taka þátt í dreifingu kláms, en fyrirtækið sér um færslu- hirðingu fyrir marga erlenda klám- vefi. Í því felst að þegar fólk kaupir klám með VISA-korti sér Valitor um innheimtuna. DV fjallaði um málið á sínum tíma en í þeirri umfjöllun kom fram að stór hluti tekna VISA á Íslandi á erlendri grundu væri vegna viðskipta við netfyrirtæki sem bjóða viðskiptavinum sínum upp á klám. En hagnaður fyrirtækisins vegna þessara viðskipta eru hundruð millj- óna króna ár hvert, samkvæmt heim- ildum DV. Deilt um klám „Ég neita því ekki að ákveðinn velta hjá okkur tengist þessum viðskipt- um en þetta er ekki fókusatriði hjá okkur. Ég held að það sé í einhverj- um mjög litlum mæli og nái ekki einu prósenti af veltu okkar,“ sagði Hös k uldur í samtali við DV á sínum tíma. Aðspurður um málið vísaði hann til þess að erfitt gæti verið að fylgjast með þessum viðskiptum og vita nákvæmlega hvað verið væri að versla með kortunum öllum tímum. Auður Magndís, talskona Femínista- félagsins, gaf lítið fyrir þær skýringar að eftirlit væri erfitt og sagði ótækt að fyrirtækið væri hugsanlega að hagn- ast á því, beint eða óbeint, að börn og konur væru seld í vændi. Þegar DV bað Höskuld um upp- lýsingar um veltu Valitor vegna við- skipta við fyrirtæki sem bjóða klám- efni á netinu, kvaðst hann engar upplýsingar geta gefið og vísaði til bankaleyndar. „Hjá okkur hefur ekki orðið nein stefnubreyting og við leggjum okkur fram við að vera í lög- legum viðskiptum. Við erum með ákveðnar reglur og þar er tekið á því hvaða viðskipti við viljum ekki. Klám er ekki ólöglegt en við höfum ekki áhuga á að vera með gróft eða ólög- legt klámefni í viðskiptum,“ sagði Höskuldur. Þess má geta að eftir að Höskuld- ur hvarf á braut frá Valitor lokaði VISA á fjárframlög til Wikileaks. Eng- ar sannanir hafa ennþá fundist fyrir því að fjáröflun síðunnar brjóti í bága við lög. „Fjölmörg tækifæri“ Laun Höskuldar hafa hækkað jafnt og þétt undanfarin ár en samkvæmt tekjublaði Mannlífs var hann með 958 þúsund krónur í laun þegar hann starfaði fyrir VISA árið 2006. Árið 2007, þegar hann gengdi stöðu forstjóra Valitor, hafði hann hækkað umtalsvert í launum og var kominn með 1,9 milljónir á mánuði. Launin hækkuðu enn frekar árið 2008 en þá hafði hann 2,6 milljónir króna í mán- aðartekjur. Nú er svo komið að hann er með 2,9 milljónir króna í laun hjá Arion banka, sem er að 13 prósent- um í eigu íslenska ríkisins. „Ég hlakka til að takast á við þau krefjandi verkefni sem bíða mín sem bankastjóra Arion banka. Við erum á afar mikilvægu uppbyggingarskeiði í íslensku samfélagi og sú uppbygg- ing felur í sér fjölmörg tækifæri. Mitt fyrsta verk verður að kynnast nýju samstarfsfólki og setja mig inn í þau verkefni sem fyrir liggja. Ég mun síð- an vinna að áframhaldandi þróun á framtíðarsýn og markmiðum Arion banka í góðri samvinnu við stjórn og starfsfólk bankans,“ sagði Höskuldur í tilkynningu eftir að hann var ráðinn bankastjóri. Laun margra verkamanna Eins og þekkt er orðið voru laun Finns Sveinbjörnssonar, fyrrver- andi bankastjóra Arion banka lækk- uð niður í 1.750 þúsund krónur eftir að upp komu háværar raddir þess efnis að laun hans væru úr takti við það sem almennt gerðist í samfélag- inu. Höskuldur er því með 119 pró- sent hærri laun en bankinn greiddi bankastjóranum árið 2009. Þessi hækkun bankastjóralaun- anna hefur vakið umtalsverð við- brögð og gagnrýni. Vilhjálmur Birgis son, formaður Verkalýðsfé- lags Akraness, benti meðal annars á það í samtali við DV á dögunum að hækkunin ein og sér væri ígildi launa fjölda verkamanna á lágmarkslaun- um, en þau eru 165.000 krónur á mánuði. Þá kom fram í DV á dögun- um að þann 1. júní, eða sama dag og Höskuldur tók til starfa fyrir Arion banka, hafi 2,5 prósenta hógværar launahækkanir tekið gildi hjá al- mennu launafólki. Leynd yfir umsækjendum Eins og áður segir fékk Höskuldur 10 milljónir króna fyrir það eitt að hefja störf hjá bankanum. Fulltrúi Banka- sýslu ríkisins í stjórn bankans, sagði í samtali við Síðdegisútvarp Rásar 2 að stjórnin hefði talið nauðsynlegt að greiða Höskuldi tíu milljóna króna eingreiðslu fyrir að hætta í fyrra starfi sínu og hefja störf sín hjá bank- anum. Athygli vakti að aldrei var upplýst hverjir voru á meðal hinna fjörutíu umsækjenda sem sóttu um bankastjórastöðuna. Í kjölfar ráðn- ingar Höskuldar í apríl 2010 sagðist Guðrún Johnsen, þáverandi vara- formaður í stjórn Arion banka, ekki vilja upplýsa hverjir aðrir sóttu um stöðuna. Þá vildi hún ekki tjá sig um launakjör nýja bankastjórans; um einkafyrirtæki væri að ræða. Í tilkynningu frá stjórn bankans í kjölfar ráðningar Höskuldar sagði: „Stjórnin býður Höskuld velkominn til starfa. Höskuldur býr yfir víðtækri þekkingu og reynslu sem mun nýtast við stjórn bankans. Hann hefur með störfum sínum sýnt hæfni til að tak- ast á við umfangsmikil og krefjandi verkefni. Við bindum miklar von- ir við samstarfið og hlökkum til að vinna með Höskuldi að uppbygg- ingu öflugs banka sem hefur hag við- skiptavina að leiðarljósi.“ „Afburðar stjórnandi“ Ljóst er að fleiri en stjórnarmenn Arion banka hafa fulla trú á Hös- kuldi og stjórnunarhæfileikum hans. Þeir viðmælendur sem DV náði tali af og þekkja til Höskuldar báru honum vel söguna. „Hann er einn af þessum afburðastjórnend- um. Við störfuðum saman í um það bil fimmtán ár, en þegar hann kom til starfa byrjaði hann í útflutningi hjá flutningasviði Eimskips. Hann var yfir þeirri deild í nokkurn tíma og starfaði síðan lengi vel sem fram- kvæmdastjóri Eimskips í Rotterdam í Hollandi,“ segir Þórður Sverris- son, fyrrverandi framkvæmdastjóri flutningasviðs Eimskips og sam- starfsmaður Höskuldar til margra ára. Hann segir Höskuld vera hógvær- an og ákveðinn mann. Hann sé bæði greindur og öflugur rekstrarmaður, skjótur í ákvörðunum og skynsamur í stefnumótunum. „Hann hefur þá kosti til að bera sem góður forstjóri þarf að hafa. Þau fyrirtæki sem hann hefur farið fyrir á sínum ferli hafa öll verið mjög farsæl. Ég held að stjórn Arion banka og starfsmennirnir all- ir hafi verið mjög heppnir að hann skyldi taka að sér það hlutverk að verða forstjóri bankans,“ segir Þórð- ur. „Við mátum Höskuld besta kostinn og stöndum við það. Farsæll en í vondum málum Launahækkanir Hösk uldar Ólafs- sonar og fleiri banka- stjóra og yfirmanna bankanna hafa ýft upp reiðiöldur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.