Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2011, Side 10
10 | Fréttir 11.–13. mars 2011 Helgarblað
Grunur leikur á að margs konar lög-
brot, allt frá skattalagabrotum, skila-
svikum, umboðssvikum til fjárdráttar
hafi átt sér stað í rekstri iðnfyrirtæk-
isins Sigurplasts í Mosfellsbæ frá
því árið 2007 og þar til fyrirtækið var
tekið til gjaldþrotaskipta síðastliðið
haust. Félagið skuldaði Arion banka
þá um 1.100 milljónir króna. Arion
banki stofnaði í kjölfarið nýtt rekstr-
arfélag á nýrri kennitölu sem einn-
ig er rekið undir heitinu Sigurplast.
Sigurplast sérhæfir sig í framleiðslu á
alls kyns umbúðum úr plasti, meðal
annars flöskum og drykkjarbrúsum.
Þetta er meðal þess sem kemur
fram í skýrslu um starfsemi Sigur-
plasts sem endurskoðendafyrirtæk-
ið Ernst og Young vann fyrir skipta-
stjóra þrotabús fyrirtækisins, Grím
Sigurðsson. DV hefur skýrsluna und-
ir höndum. Heimildir DV herma að
bæði efnahagsbrotadeild Ríkislög-
reglustjóra og lögreglan á höfuðborg-
arsvæðinu rannsaki nú starfsemi
Sigurplasts með hliðsjón af skýrslu
Ernst og Young vegna gruns um að
lögbrot hafi átt sér stað í rekstri fyrir-
tækisins. Skýrslan er dagsett 19. jan-
úar 2011.
Sigurplast mjólkað – nýtt
fyrirtæki stofnað
Framkvæmdastjóri og eigandi Sig-
urplasts var Sigurður L. Sævarsson
en hann stofnaði sambærilegt fyrir-
tæki og Sigurplast, Viðarsúlu ehf.,
árið 2009. Viðarsúla sérhæfir sig í
framleiðslu á alls kyns umbúðum úr
plasti líkt og Sigurplast. Í skýrslunni
kemur fram að umtalsverð viðskipti
hafi átt sér stað á milli Viðarsúlu og
K.B. Umbúða, annars félags sem
er tengt Viðarsúlu, og að þau hafi í
langflestum tilfellum verið sérstak-
lega óhagstæð fyrir Sigurplast. Með-
al þess sem er nefnt í skýrslunni er
að Sigurplast hafi keypt vörur af K.B.
Umbúðum með 300 prósenta álagn-
ingu. Minnst er á það að Sigurplast
hafi selt umræddar vörur áður en
K.B. Umbúðir byrjuðu að gera það
en af einhverjum ástæðum hafi Sig-
urplast hætt að kaupa vöruna sjálft
og notað K.B. Umbúðir sem millilið
þrátt fyrir að það hafi kostað félagið
margfalt meira.
Viðarsúla og K.B. Umbúðir
stunda rekstur á þessu sviði í dag og
eru því í reynd í beinni samkeppni
við Arion banka sem tók yfir rekst-
ur Sigurplasts í kjölfar gjaldþrotsins
í fyrra.
Ógjaldfært frá 2008
Í skýrslu Ernst og Young kemur fram
að allt frá því í ársbyrjun 2008 og þar
til fyrirtækið var tekið til gjaldþrota-
skipta hafi það í reynd verið ógjald-
fært – ekki átt nægilegar eignir fyrir
skuldum sínum. Samt var fyrirtæk-
ið rekið áfram þrátt fyrir að það gæti
ekki staðið í skilum við helsta lánar-
drottinn sinn, Kaupþing banka, nú
Arion banka. Um gjaldfærni félags-
ins segir í skýrslunni: „Greining á
rekstri félagsins og sjóðstreymi sýn-
ir glöggt að rekstrarhagnaður þess
dugði flesta mánuði, frá árslokum
2007 og fram í desember 2010, ekki
fyrir vaxtakostnaði, hvað þá afborg-
unum af lánum.“
Af lánum við Kaupþing, síðar Ar-
ion banka, sem upphaflega voru
rúmar 400 milljónir króna, en hækk-
uðu í meira en milljarð vegna veik-
ingar íslensku krónunnar, greiddi
fyrirtækið einungis rúmar 3 millj-
ónir króna í afborganir á tímabilinu.
Lánin voru í japönskum jenum og
svissneskum frönkum. Gengishrun-
ið leiddi til þess að á árinu 2008 tap-
aði félagið rúmlega 560 milljónum
króna. Þetta var mikið tap fyrir fé-
lag sem rúmu einu og hálfu ári áður
hafði verið keypt á rúmar 350 millj-
ónir króna. Á sama tíma, frá því í árs-
lok 2007 til ársloka 2008, jókst yfir-
dráttarskuld félagsins umtalsvert,
um samtals tæpar 60 milljónir króna.
Myndin sem dregin er upp af
starfsemi Sigurplasts í skýrslunni er
því afar dökk: Á sama tíma og félagið
greiddi ekki af lánum sínum nema að
litlu leyti vegna ógjaldfærni gekk eig-
andi og framkvæmdastjóri félagsins
þannig á eignir þess og fjármuni að
rökstuddur grunur leikur á að hann
hafi farið á svig við lög með hátterni
sínu. Svo virðist því sem Sigurður
hafi verið búinn að sjá það fyrir strax
árið 2009 að Sigurplast myndi að öll-
um líkindum verða gjaldþrota og því
stofnaði hann annað félag, Viðar-
súlu, sem hóf sambærilegan rekstur.
Svo var gengið á fjármuni og eignir
Sigurplasts með þeim hætti að það
þjónaði hagsmunum Viðarsúlu og
veikti enn frekar stöðu Sigurplasts.
Á kostnað Sigurplasts
Í yfirliti endurskoðenda Ernst og
Young um viðskiptin á milli Sigur-
plasts, Viðarsúlu og K.B. Umbúða
– en Sigurður Sævarsson átti fyrr-
nefndu tvö félögin og hinu þriðja
virðist vera stýrt af sömu aðilum og
hinum tveimur samkvæmt skýrsl-
unni – koma fram mikil viðskipti á
milli þessara aðila á árunum 2009 og
2010.
Um viðskiptin við Viðarsúlu seg-
ir til dæmis að Sigurplast hafi greitt
kostnað upp á nærri 630 þúsund
krónur fyrir fyrirtækið. Meðal ann-
ars var um að ræða greiðslur á far-
símareikningum fyrir Sigurð Sæv-
arsson. „Samkvæmt framangreindu
gjaldfærði Sigurplast ehf. kostnað að
upphæð 627.496 í bókhaldi sínu sem
tilheyrði Viðarsúlu ehf.“ Sigurplast
greiddi því reikninga fyrir Viðarsúlu.
Í viðskiptunum við K.B. Umbúð-
ir seldi Sigurplast félaginu í einhverj-
um tilfellum vörur á verði sem var
undir kostnaðarverði eða með mjög
lágri álagningu. Heildarskuld K.B.
Umbúða við Sigurplast, upp á nærri
6,4 milljónir króna, var skuldajöfnuð,
án þess að neinir fjármunir skiptu
um hendur á milli félaganna, á með-
an K.B. Umbúðir hélt eftir eignunum
sem skiptu um hendur.
300 prósent álagning
Einnig keypti Sigurplast vörur, sem
áður höfðu verið fluttar inn af Sigur-
plasti, af K.B. Umbúðum á upp-
sprengdu verði – álagningin var allt
að 300 prósent. Um þetta atriði segir
í skýrslunni: „Í einhverjum tilfellum
hefur innkaupsverð varanna til Sig-
urplasts ehf. hækkað töluvert, sem
má rekja til þess að nú er kominn
milliliður, K.B. Umbúðir, sem tekur
sína álagningu.“ Engin útskýring á
þessu atriði er sett fram í skýrslunni
nema sú að K.B. Umbúðir og Viðar-
súla séu í reynd tengdir aðilar: „Hins
vegar virðast reikningar K.B. Um-
búða ehf. vera prentaðir út úr reikn-
ingakerfi Viðarsúlna ehf. sem var á
starfsstöð Sigurplasts ehf. á árinu
2010.“ Lítil skil virðast því hafa verið á
milli þessara þriggja félaga þó stefn-
an virðist hafa verið sú að flytja eign-
ir og fjármuni frá Sigurplasti og inn
í hin félögin tvö. Í útskýringu á ein-
um viðskiptum á milli Sigurplasts og
K.B. Umbúða upp á rúmlega 1.600
þúsund krónur segir að vart geti tal-
ist „eðlilegt“ að Sigurplast borgi 100
til 300 prósent hærra verð fyrir vör-
urnar.
Niðurstaða Ernst og Young um
þetta atriði er að rúmar 14 milljónir
króna hafi runnið frá Sigurplasti til
K.B. Umbúða í beinhörðum pen-
ingum í þessum viðskiptum sem
endurskoðandinn telur ekki eðlileg.
Ályktunin sem dregin er um þessi
viðskipti er eftirfarandi: „Þegar þess-
ir tveir viðskiptareikningar K.B. Um-
búða eru skoðaðir virðist það liggja
fyrir að K.B. Umbúðir keyptu vörur
af Sigurplasti á óeðlilega lágu verði
og að K.B. Umbúðir ehf. hafi byrj-
að að flytja inn vörur sem Sigurplast
ehf. hafði áður flutt inn og selt þær
vörur til Sigurplasts ehf., í einhverj-
um tilfellum, á óeðlilega háu verði.
Einnig virðist K.B. Umbúðir ehf. vera
að gefa út reikninga á Sigurplast ehf.
vegna kostnaðar sem Sigurplast ehf.
átti ekki að greiða.“
Á sama tíma og þessi viðskipti
áttu sér stað, frá því í janúar 2009
og þar til fyrirtækið varð gjaldþrota í
september, rýrnuðu vörubirgðir Sig-
urplasts með „óeðlilegum“ hætti um
nærri 30 milljónir króna samkvæmt
skýrslunni. „Kostnaðarverð þeirra
niðurfærslna sem flokkaðar voru
sem óeðlilegar niðurfærslur er um
26.9 mkr.“ Birgðir fyrirtækisins rýrn-
uðu því verulega á sama tíma og vör-
ur fóru á milli Sigurplasts, K.B. Um-
búða og Viðarsúlu án þess að greitt
væri fyrir þær.
Umrædd viðskipti gætu flokkast
sem skilasvik þar sem verið var að
ganga á bú ógjaldfærs félags með
óeðlilegum hætti og færa út úr því
eignir án endurgreiðslu en einnig er
hugsanlegt að þau flokkist sem brot á
auðgunarbrotakafla hegningarlaga,
að um fjárdrátt hafi verið að ræða.
Sigurður lét fyrirtækið borga
Í skýrslunni er einnig að finna yfir-
lit yfir greiðslur sem Sigurplast
innti af hendi fyrir Sigurð. Benda
endurskoðendurnir á það að þeir
telji að umræddar greiðslur Sig-
urplasts séu vegna „persónulegs
kostnaðar“ hans, sem ekki hafi
tengst rekstri Sigurplasts.
Auk farsíma, leigubíla, veitinga-
húsaferða, hótelgistinga og ann-
arrar slíkrar neyslu sem Sigurður
Grunur um stórfelld
lögbrot í Sigurplasti
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
1. hluti
n Endurskoðendaskýrsla sviptir hulunni af ótrúlegum viðskiptaháttum Sigurplasts fyrir
gjaldþrotið n Sigurplast ógjaldfært 2008 n Eigandinn færði eignir yfir í annað félag
sem starfar enn n 1.100 milljóna kröfur n Vísbendingar um fjárdrátt, skilasvik,
umboðsvik og skattalagabrot n Sigurplast greiddi fyrir milljónaframkvæmdir
við hús eigandans og 200 þúsund króna reikning í úraverslun
Rannsaka starfsemina Efnhags-
brotadeildríkislögreglustjóra,semHelgi
MagnúsGunnarssonstýrir,rannsakarnú
starfsemiSigurplastsengrunurleikurá
aðýmisskonarlögbrothafiveriðframiní
starfsemifyrirtækisinsáðurenfélagiðvarð
gjaldþrota.
Eigandinn Arionbanki,semHöskuldur
Ólafssonstýrir,ereigandiSigurplastssem
stofnaðvarágrunnihinsgjaldþrotafélags.