Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2011, Qupperneq 14
14 | Fréttir 11.–13. mars 2011 Helgarblað
„Ég vildi ekkert með stjórnmál eða
trúmál hafa, hafði engan áhuga á
að blanda stjórnmálum saman við
íþróttir, ég vildi bara fá að upplifa
frelsi,“ segir Meisam Rafiei, 24 ára
taekwondo- meistari, í samtali við
DV. Meisam sem er fæddur og upp-
alinn í hafnarborginni Bandar-Abb-
as við Persaflóann í Íran kom hing-
að til lands í októ ber 2010 eftir að
Taekwondo-samband Ísland réð
hann til starfa sem aðstoðarlands-
liðsþjálfara. Eftir að landsliðsþjálf-
ari lét af störfum í janúar tók hann
svo við sem aðalþjálfari landsliðsins.
Auk þess að vera þrefaldur heims-
meistari í einni vinsælustu íþrótt
Írans hefur Meisam unnið tíu gull-
verðlaun á níu árum, ein þeirra fyrir
hönd Íslands á þessu ári.
Nýlega voru fjölskyldumeðlimir
hans yfirheyrðir af írönsku leyni-
þjónustunni en hann hefur lítið
heyrt frá þeim síðan. Atvinnuleyfi
hans hér á landi rennur út þann 30.
júní næstkomandi og íranska vega-
bréfið gildir út september. Hann
hefur áhyggjur af því hvað verði um
hann, þurfi hann að fara aftur til
Írans. „Ég vil búa á Íslandi og þjálfa
ungt fólk hér, ég stefni á að vinna
ólympíutitilinn fyrir hönd Íslands,“
segir Meisam.
Meisam Rafiei-gata
Meisam byrjaði að æfa taekwondo
einungis þriggja ára gamall. Hann
segir áhugann hafa kviknað fljót-
lega eftir að hann byrjaði að keppa
í íþróttinni. Taekwondo er ein vin-
sælasta íþróttin í Íran og strax á ung-
lingsárunum var Meisam Rafiei far-
inn að vekja athygli fyrir snilli sína í
íþróttinni. Árið 2002, þá einungis 16
ára, vann hann gullverðlaun í Vest-
ur-Asíu-keppninni.
Hann segir fjölda tækifæra hafa
opnast honum í Íran í kjölfar góðs
árangurs í íþróttinni. Þeir sem vinni
til verðlauna fyrir Íran bjóðist ýmsir
möguleikar sem standa öðrum ekki
til boða. Hann tekur fram að nafni
götunnar sem hann bjó við hafi
meðal annars verið breytt í „Meisam
Rafiei-götu“ til heiðurs honum árið
2006. „Mér fannst þetta mjög skrít-
ið og ég var feiminn. Það er furðu-
legt að heita Meisam Rafiei og búa
við Meisam Rafiei-götu,“ segir hann
og hlær.
Fjölskyldan áreitt
Þrátt fyrir allan þann velvilja sem
honum var sýndur í kjölfar góðs
árangurs fannst honum eitthvað
vera að. „Þrátt fyrir að geta fengið
gott og vel launað starf í Íran fannst
mér samt eitthvað verulega bogið
við lífið. Það fór mjög fyrir brjóstið
á mér hvernig hlutirnir voru í Íran.
Ég veit ekki hvernig ég á að útskýra
það. Ég vildi geta sagt það sem mér
lá á hjarta en ég þorði ekki að segja
það. Ég vildi ekki lifa svona. Það var
ástæða þess að ég fór á endanum.“
Þegar leið á fullorðinsárin var
Meisam að eigin sögn orðinn lang-
þreyttur á þeirri þöggun sem við-
gengst í heimalandi hans og vildi,
þrátt fyrir mótbárur foreldra sinna,
stunda íþrótt sína í öðru landi. Ís-
land var ekki eina landið sem sýndi
honum áhuga því hann fékk tilboð
frá Bandaríkjunum, Argentínu og
Dúb aí. „Taekwondo-samband Ís-
lands var fyrst til að svara mér svo ég
kom hingað,“ segir Meisam.
Allt hefur gengið vel fram til
þessa en í febrúar fékk Meisam mið-
ur skemmtilegar fregnir af því að
leyniþjónusta Írans hefði heimsótt
fjölskyldu hans við Meisam Rafiei-
götu í Bandar-Abbas.
Viðurkenna ekki Ísrael
Hann segir þá heimsókn tengjast
nýlegri þátttöku hans á opna taek-
wondo-mótinu í Trelleborg í Sví-
þjóð. Þar átti Meisam að mæta kepp-
anda frá Ísrael en var ítrekað færður
til af írönskum dómara til að koma
í veg fyrir að þeir mættust. Íranska
ríkið viðurkennir Ísrael ekki sem
sjálfstætt ríki og leggst alfarið gegn
því að Íranir keppi við Ísraela. Álitið
er að með því að gera slíkt væru þeir
að viðurkenna sjálfstæði Ísraelsríkis.
Andstaðan við Ísrael ristir djúpt
í Íran en nýlega hótaði ríkisstjórn
Írans því til að mynda að íþrótta-
menn þjóðarinnar myndu snið-
ganga Ólympíuleikana í London
2012 yrði merki leikanna ekki breytt.
Sögðu talsmenn stjórnarinnar að úr
lógóinu mætti lesa stafina ZION, en
slíkt væri hreinn rasismi og móðgun
við keppendur frá Íran.
Vill geta keppt við alla
Sjálfur vildi Meisam keppa við
ísra elska keppendur: „Ísraelar
eru manneskjur rétt eins og aðr-
ir og ég vil geta keppt við alla. Þetta
eru íþróttir, ekki stjórnmál. Það er
ástæðan fyrir því að ég kom hingað
til Íslands, ég vil ekki blanda stjórn-
málum og íþróttum saman.“
Þrátt fyrir að Meisam hafi ekki
keppt við Ísraela á mótinu leit allt
út fyrir að hann hefði mætt fleiri en
einum á mótinu. Hann var skráð-
ur í flokk með þremur ísraelskum
keppendum og mætti þeim því sam-
kvæmt pappírunum. Varúðarráð-
stafnir dómarans breyttu því litlu í
þessu tilviki og leyniþjónustan hafði
í framhaldinu samband við foreldra
hans.
„Meisam er ekki sonur minn“
Eftir að hafa unnið Evrópumeist-
aratitilinn í Trelleborg í Svíþjóð fékk
Meisam tölvupóst frá bróður sínum.
„Hann spurði hvað væri eiginlega í
gangi, hvað ég hefði eiginlega ver-
ið að gera. Þá hafði leyniþjónustan
komið heim til okkar og tekið pabba
og stóra bróður minn í yfirheyrslu.
Þeir spurðu um mig og hvað ég væri
að gera á Íslandi og hvers vegna ég
væri þar,“ segir Meisam.
Hann segir augljóst að fylgst hafi
verið með Facebook-síðu hans að
undanförnu. Leyniþjónustumenn-
irnir spurðu feðgana meðal annars
út í yfirlýsingar Meisams þess efnis
að hann styddi írönsku stjórnarand-
stöðuna. Meisam segist skilja við-
brögð föður síns sem á að hafa sagt:
„Meisam er ekki sonur minn lengur.“
Saknar mömmu
Meisam segist ekkert hafa heyrt frá
fjölskyldu sinni síðan þá: „Ég veit að
þeir fylgjast með net- og símasam-
skiptum og ég vil ekki blanda fjöl-
skyldunni minni meira inn í málin.
Þau geta ekki hringt í mig og ég get
ekki hringt í þau. Maður veit aldrei
hvað getur gerst, þeir hafa drepið
fólk fyrir það eitt að mótmæla.“
En hvernig líður honum með það
að vera algjörlega sambandslaus við
fjölskyldu sína? „Auðvitað líður mér
ekki vel. Ég sakna mömmu minnar. Í
síðasta mánuði gat ég til dæmis ekk-
ert sofið á nóttunni. Stundum verð
ég mjög reiður yfir þessu öllu sam-
an. Nú hef ég sagt við sjálfan mig að
þetta sé lífið mitt og að ég verði að
sætta mig við það. Ég get ekki farið
aftur til Írans. Ég bý hér, keppi fyrir
íslenska landsliðið á stórmótum og
þjálfa fólk á öllum aldri.“
Stjórnmál á Facebook
Aðspurður um stjórnmálaþátttöku
segist Meisam hafa látið ýmislegt
flakka um írönsk stjórnmál á Face-
book eftir að hann kom hingað til
lands: „Ég styð stjórnarandstöðuna
og hef sagt það á Facebook. Fólk-
ið vill frelsi og ég styð það. Ríkis-
stjórnin afneitar því opinberlega að
undanfarin misseri hafi mótmæli
átt sér stað í landinu.
Tveir leiðtogar stjórnarandstöð-
unnar hafa verið handteknir og
sitja nú í fangelsi. Í fréttum í Íran er
samt sem áður sagt frá því að engin
mótmæli hafi átt sér stað, að enginn
hafi látið lífið. Þá er sagt að Banda-
ríkin og Ísrael hafi stutt uppreisn-
armenn sem hafi drepið saklaust
fólk. Á sama tíma er lögreglan í Íran
að drepa eigið fólk. Þannig er það
bara. 100 prósent fjölmiðla styðja
ríkisstjórnina. Ef þú gerir það ekki
ertu látinn hverfa.“
Óvissan fram undan
Meisam þarf að endurnýja íranska
vegabréfið sitt ekki seinna en í
september á þessu ári vilji hann
framlengja atvinnuleyfi sitt hér á
landi. Útlendingastofnun hefur
ráðlagt honum að hafa samband
við íranska sendiráðið í Noregi en
hann er óviss um hvort það muni
takast. Allt sé í raun óljóst á þessum
tímapunkti.
Engin hrein og bein sönnunar-
gögn eru til fyrir því að hann sé í
beinni hættu fari hann aftur heim
en sjálfur er hann hræddur við þá
tilhugsun. „Ég veit ekkert hvað
myndi gerast. Kannski myndu þeir
meiða mann. Kannski berja mann.
Þeir geta gert hvað sem er.“
Öðruvísi hugur
Hugur Meisams er hjá þeim Írön-
um sem hafa mátt þola ýmislegt
misjafnt af hendi stjórnvalda. Hann
tekur dæmi af uppháhaldsleik-
konu sinni, Golshifteh Farahani.
„Hún lék með Leonardo DiCaprio í
Hollywood. Hún var meira að segja
með slæðu vegna þess að hún vildi
komast aftur til Írans. Samt var hún
sökuð um að þiggja peninga frá
zíonistum og úthrópuð af stjórn-
völdum. Hún settist í kjölfarið að í
Þýskalandi.“
Þá nefnir hann hinn fræga kvik-
myndaleikstjóra Jafar Panahi sem
handtekinn var í mars árið 2010.
„Hann var dæmdur í fangelsi fyr-
ir að gagnrýna stjórnarfar Írans í
kvikmynd. Í kjölfarið var honum
bannað að gera fleiri kvikmyndir.
Það er alveg ljóst að ríkisstjórnin
vill slökkva á heilanum í þér.“
Að lokum bendir Meisam svo
á hausinn á sjálfum sér og segir:
„Þessi heili hugsar öðruvísi!“
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
n Þrefaldur heimsmeistari í tae-
kwondo þorir ekki aftur til Írans af
ótta við leyniþjónustuna n Hefur unn-
ið brons- og gullverðlaun fyrir Íslands
hönd n Langar að búa á Íslandi og
stefnir á að vinna ólympíu meistaratitil
fyrir hönd landsins
FJÖLSKYLDAN
YFIRHEYRÐ
AF LEYNI-
ÞJÓNUSTUNNI
Meisam Rafiei „Ísraelar eru manneskjur rétt eins og
aðrir og ég vil geta keppt við alla. Þetta eru íþróttir, ekki
stjórnmál. Það er ástæðan fyrir því að ég kom hingað til
Íslands, ég vil ekki blanda stjórnmálum saman við íþróttir.“