Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2011, Side 24
24 | Fréttir 11.–13. mars 2011 Helgarblað
Samkvæmt heimildum DV er Fjár-
málaeftirlitið að skoða eignarhalds-
félagið Hafnarhól sem var í eigu
útgerðarmannsins Guðmundar
Kristjánssonar í Brimi. Engar eign-
ir fundust í félaginu upp í 9,5 millj-
arða króna skuldir þegar það var
lýst gjaldþrota árið 2010. Hafnar-
hóll var stofnað í lok desember 2006
og fékk þá fimm milljarða króna
lán hjá Landsbankanum til kaupa
á 4,2 prósenta hlut í fjárfestingar-
bankanum Straumi-Burðarás. Guð-
mundur Kristjánsson hefur ekki
svarað fyrirspurn DV um það hvort
Fjármálaeftir litið hafi haft samband
við hann þar sem það skoði nú félag-
ið Hafnarhól.
Nafn Hafnarhóls kom aldrei fram
á hluthafalista Straums. Hlutur fé-
lagsins var geymdur á vörslureikn-
ingi hjá Landsbankanum í Lúxem-
borg. Með því að skýla sér á bak við
bankaleynd í Lúxemborg var hægt
að koma í veg fyrir að upplýsa um
þennan 4,2 prósenta hlut Guðmund-
ar í Straumi. Auk þess skilaði Hafnar-
hóll aldrei ársreikningi áður en félag-
ið fór í þrot.
Skiptastjóri kannast ekki við
ábyrgð
Í lánabók Landsbankans þann 31.
mars árið 2007 kemur fram að fé-
lögin Tjaldur og Línuskip hafi lagt
fram sjálfskuldarábyrgð vegna
hlutabréfakaupa Hafnarhóls. Sam-
kvæmt heimildum DV var þessari
sjálfskuldarábyrgð síðar aflétt af út-
gerðarfélögum Guðmundar. „Ég
kannast ekki við að hafa séð neinar
sjálfskuldarábyrgðir,“ segir Magnús
Ingi Erlingsson, skiptastjóri þrotabús
Hafnarhóls, í samtali við DV. Skipt-
um lauk í búinu í ágúst 2010 og fund-
ust engar eignir upp í nærri 9,5 millj-
arða króna skuldir.
Í febrúar 2010 sagði Kastljós frá
því að félagið Línuskip væri í ábyrgð-
um fyrir 2,8 milljörðum króna af
skuldum Hafnarhóls. Það vekur því
furðu að skipstastjóri þrotabús Hafn-
arhóls skuli ekki hafa farið fram á
rannsókn á því hvers vegna þessari
sjálfskuldarábyrgð var aflétt.
Félagið Línuskip fer með 95 pró-
senta hlut í Brimi sem er áttunda
stærsta útgerðarfyrirtæki landsins
og er talið velta um 7,5 milljörðum
króna á ári. Þannig má segja að ef
sjálfskuldarábyrgð Hafnarhóls hefði
ekki verið aflétt hefði Landsbankinn
átt að geta gengið að veðum í stórum
hlut í Brimi. Guðmundur hefur ekki
svarað fyrirspurn DV um þetta atriði.
„Svo bara hvarf froðan“
Eins og áður kom fram fékk Hafnar-
hóll fimm milljarða króna lán hjá
Landsbankanum í lok árs 2006 til
þess að kaupa 4,2 prósenta hlut í
Straumi. „Þetta voru bankabréf,
keypt í banka, fjármögnuð af banka
og geymd í banka,“ sagði Guð-
mundur í samtali við Morgunblað-
ið í desember árið 2010 um félagið
Hafnarhól. „Þetta var keypt froða og
lánuð froða, og svo bara hvarf froð-
an,“ bætti hann við. Guðmundur
virðist því ekki hafa haft mikla trú á
Straumi-Burðarás þar sem hann sat
í stjórn frá því í mars 2007 og þar til
bankinn var yfirtekinn af Fjármála-
eftirlitinu í mars 2009.
Ólíklegt má telja að Guðmundi
hafi verið veitt fimm milljarða króna
lán hjá Landsbankanum án þess að
háttsettir menn innan bankans hafi
gefið vilyrði fyrir því. Það að setja
hlut hans á vörslureikning í Lúxem-
borg til að þurfa ekki að upplýsa um
eignarhlut hans gefur líka sterka
vísbendingu um að það hafi verið
á fárra vitorði að Guðmundur færi
með 4,2 próssenta hlut í Straumi.
Ragnhildur Sverrisdóttir, talsmað-
ur Novator, segir þó að Björgólf-
ur Thor Björgólfsson kannist ekki
við lánveitingarnar til Guðmundar.
Þess skal getið að Björgólfur Thor
og Guðmundur sátu saman í stjórn
Straums frá því í mars 2007 og þar til
bankinn féll í mars 2009.
Línuskip átti hlut í Landsbank-
anum
Eignarhaldsfélagið Línuskip sem
fer með 95 prósenta hlut í Brimi var
líka stór hluthafi í Landsbankan-
um. Línuskip átti 0,85 prósenta hlut
í Landsbankanum þegar bankinn féll
í október 2008. Í lok mars 2008 skuld-
aði Línuskip Landsbankanum um
fimm milljarða króna, samkvæmt
lánabók bankans. Áður en bankinn
fór í þrot var 0,85 prósenta hlutur
Línuskips í Landsbankanum metin
á um 1.300 milljónir króna. Ekki ligg-
ur ljóst fyrir hver staða Línuskips er
í dag. Félagið hefur ekki skilað árs-
reikningi síðan árið 2007. Nafni fé-
lagsins hefur auk þess verið breytt og
heitir það XX 26 ehf. í dag.
Stærstur í Vinnslustöðinni
Auk þess að eiga útgerðarfyrirtæk-
ið Brim sem er áttunda stærsta út-
gerðarfélag landsins er Guðmundur
stærsti hluthafinn í Vinnslustöðinni
í Vestmannaeyjum í gegnum eignar-
haldsfélagið Stillu útgerð. Vinnslu-
stöðin er sjötta stærsta útgerðarfélag
landsins og velti um 8,5 milljörð-
um króna árið 2009. Frægt er þegar
Guðmundur og Hjálmar bróðir hans
gerðu yfirtökutilboð í öll hlutabréf
Vinnslustöðvarinnar árið 2007. Urðu
mikil átök í Vestmannaeyjum og
lögðust heimamenn gegn yfirtöku-
tilboði bræðranna sem vildu eignast
Vinnslustöðina að fullu. Endaði það
með því að Vinnslustöðin var skráð
úr Kauphöllinni og þeim bræðrum
tókst ekki að ná undirtökunum í fé-
laginu. Í dag fer Stilla með 26 pró-
senta hlut í Vinnslustöðinni og Guð-
mundur á sjálfur fjögur prósent.
Langtímaskuldir Stillu útgerðar
námu um 1.200 milljónum króna
árið 2008 samkvæmt ársreikningi fé-
lagsins. Er hlutur félagsins í Vinnslu-
stöðinni metinn á tæplega 1.900
milljónir króna. Ekki liggur ljóst fyrir
hver er lánveitandi Stillu. Þó má telja
mjög líklegt að það sé einnig Lands-
bankinn líkt og í tilfelli Brims, Línu-
skips og Hafnarhóls.
Skuldug útgerð
Í lánabók Landsbankans frá 31.
mars 2008 kemur fram að þá hafi fé-
lög Guðmundar skuldað bankanum
23,4 milljarða króna. Námu skuldir
Brims 12 milljörðum króna, skuldir
Hafnarhóls 6,4 milljörðum og skuld-
ir Línuskips 5 milljörðum króna. Ef
tekið er tillit til lækkunar krónunnar
frá þessum tíma ættu skuldir þess-
ara félaga ekki að nema minna en 33
milljörðum króna í dag. Hins vegar
er ekki vitað hversu miklar afskriftir
félög í eigu Guðmundar hafa fengið
hjá Landsbankanum. Brim og Línu-
skip hafa ekki skilað ársreikningi síð-
an 2007 og Hafnarhóll skilaði eins og
áður segir aldrei ársreikningi.
Árið 1998 stofnaði Guðmundur
útgerðarfélagið Tjald ásamt Hjálm-
ari bróður sínum og Kristjáni Guð-
mundssyni, föður þeirra. Guð-
mundur varð landsþekktur árið
1999 þegar hann keypti útgerðar-
fyrirtækið Básafell á Ísafirði við litla
hrifningu heimamanna. Fékk hann
þá viðurnefnið Guðmundur vina-
lausi. Árið 2004 keypti hann síð-
an Útgerðarfélag Akureyringa. Árið
2005 var útgerð Guðmundar sam-
einuð undir nafninu Brim og hef-
ur hann frá þeim tíma rekið eitt
stærsta útgerðarfyrirtæki landsins.
Árið 2007 reyndi hann að yfirtaka
næststærsta útgerðarfélagið í Vest-
mannaeyjum en tókst ekki. Talið er
að fáir Íslendingar þekki íslenska
kvótakerfið jafn vel og Guðmundur
og það hefur hann nýtt sér í meira
en áratug.
Fær að halda Brimi
Í ársreikningi útgerðarfélagsins
Bergs Hugins árið 2009 kemur
fram að Landsbankinn fari með
45 prósenta hlut í félaginu sem er
í meirihlutaeigu Magnúsar Krist-
inssonar. DV sendi Landsbankan-
um fyrirspurn um það hvort bank-
inn ætti líka hlut í útgerðarfélögum
Guðmundar Kristinssonar. Kristj-
án Kristjánsson, upplýsingafulltrúi
Landsbankans, segir svo ekki vera.
„Um málefni einstakra viðskipta-
vina er bankanum ekki heimilt að
fjalla opinberlega,“ svaraði hann
um það hvort Landsbankinn hefði
náð samkomulagi við Guðmund
um endurskipulagningu á lánum
útgerðarfélaga hans hjá bankanum.
Ef miðað er við að skuldir Hafn-
arhóls hafi hækkað úr 5 milljörðum
króna í 9,5 milljarða má telja líklegt
að Guðmundur hafi skuldað Lands-
bankanum um 14 milljarða króna
vegna hlutabréfakaupa eftir banka-
hrunið. 9,5 milljarða vegna hluta-
bréfakaupa Hafnarhóls í Straumi
og 5 milljarða vegna hlutabréfa-
kaupa Línuskips í Landsbankan-
um. Þrátt fyrir að skilja eftir sig 14
milljarða króna skuldir hjá Lands-
bankanum með veði í hlutabréfum
sem nú eru verðlaus virðist Lands-
bankinn leyfa Guðmundi að halda
útgerðarfélaginu Brimi sem er átt-
unda stærsta sjávarútvegsfyrirtæki
landsins.
Annas Sigmundsson
blaðamaður skrifar as@dv.is
FME SKOÐAR „FROÐU“-
FÉLAG GUÐMUNDAR
n Engar eignir fást upp í 9,5 milljarða króna skuldir félagsins Hafnarhóls n Milljarða króna
sjálfskuldarábyrgð útgerðarinnar var aflétt n Guðmundur Kristjánsson stjórnar enn Brimi
Hlutabréfakaup félaga í eigu Guðmundar Kristjánssonar fyrir hrun:
Dags Nafn Keypt í Upphæð (m.kr.)
22.12. 2006 Hafnarhóll ehf. Straumi 5.000
02.05. 2007 Línuskip ehf. Landsbanki 1.624
03.05. 2007 Línuskip ehf. Landsbanki 951
Samtals: 7,6 milljarðar
Hlutabréfakaup félaga í eigu Guðmundar
Stórskuldugur Talið að skuldir Guðmundar
Kristjánssonar og tengdra félaga við
Landsbankann væru um 33 milljarðar króna
í dag. Hins vegar er ekki vitað hversu mikið
hann hefur fengið afskrifað.