Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2011, Side 26
26 | Erlent 11.–13. mars 2011 Helgarblað
Ramzan Kadyrov, forseti sjálf–
stjórnar svæðisins Tsjetsjeníu í Rúss-
landi, náði að skora úr vítaspyrnu
gegn brasilísku úrvalsliði í sýning-
arleik sem haldinn var í Grosní, höf-
uðborg Tsjetsjeníu. DV greindi frá
því þann 22. febrúar að Kadyrov,
sem virðist heltekinn af knattspyrnu,
hygðist leiða lið Tsjetsjena á völlinn
sem fyrirliði gegn liði Brasilíu – sem
átti að innihalda fyrrverandi bestu
leikmenn ársins hjá Alþjóðaknatt-
spyrnusambandinu, þá Ronaldo,
Rivaldo og Kaka. Þrátt fyrir að fyrr-
greindar stjörnur hafi ekki látið sjá
sig var úrvalslið Brasilíu ekkert slor.
Úrval heimsmeistara
Leikurinn fór fram síðastliðið þriðju-
dagskvöld en í brasilíska liðinu voru
stjörnur eins og Romario, Carl-
os Dunga, Cafu og Denilson. Þeir
hafa allir orðið heimsmeistarar,
Dunga og Romario árið 1994, Denil-
son árið 2002 og Cafu bæði 1994 og
2002. Denilson á það einnig á afreks-
skránni að hafa eitt sinni verið dýr-
asti leikmaður allra tíma, þegar hann
var keyptur til spænska liðsins Real
Betis árið 1998 á jafnvirði 40 millj-
arða íslenskra króna.
Til að jafna leikinn fékk Kadyrov
hollensku goðsögnina Ruud Gullit til
liðs við tsjetsjenska liðið, en Gullit,
sem var fyrirliði Evrópumeistaraliðs
Hollands árið 1988, var nýlega ráð-
inn þjálfari Terek Grosní – þar sem
Kadyrov er einmitt stjórnarformað-
ur. Með tsjetsjenska liðinu lék einnig
Þjóðverjinn Lothar Matthäus, sem
var fyrirliði heimsmeistaraliðs Vest-
ur-Þjóðverja árið 1990. Matthäus er
einnig einn leikjahæsti landsliðs-
maður allra tíma og var árið 1991
kosinn besti leikmaður heims af
FIFA. Hann er nú þjálfari búlgarska
landsliðsins.
Framherji og fyrirliði
Þrátt fyrir að hafa innanborðs þá
Gullit og Matthäus duldist engum að
það yrði Kadyrov sem myndi leiða
tsjetsjenska liðið út á völlinn sem
fyrirliði. Kadyrov lék sem framherji í
leiknum, með númerið 10 á bakinu,
eins og bestu leikmenn hvers liðs
gera oft og tíðum. Áhorfendur hrein-
lega trylltust af fögnuði þegar Kadyr-
ov kom nálægt boltanum, en sam-
herjar hans, og mótherjar reyndar
líka, gerðu sitt besta í að dæla til hans
sendingum. Kadyrov gekk hins vegar
illa að fóta sig með boltann þrátt fyr-
ir litla mótspyrnu Brassanna í vörn-
inni. Áður en fyrri hálfleikur var á
enda runninn hafði Kadyrov þó tek-
ist að taka tvær vítaspyrnur en for-
setinn þrumaði boltanum framhjá í
bæði skiptin.
Það var í raun sama hvað brasil-
íska liðið reyndi, þeir gátu ekki farið
leynt með að þeir voru miklu betri
í knattspyrnu. Náðu þeir þó að sofa
nægilega lengi á verðinum til að
tsjetsjenska liðið næði að skora fjög-
ur mörk í leiknum, en lokatölur urðu
6–4, Brössunum í vil. Fjórða mark
Tsjetsjena skapaði þó mestan fögnuð
áhorfenda, því undir lok leiksins fékk
Kadyrov að taka þriðju vítaspyrnu
sína í leiknum. Fyrrverandi lands-
liðsmarkvörður Brasilíu, Zetti, sýndi
snilldarleiklistartakta þegar hann lét
skot Kadyrovs renna undir sig – skot
sem hann hefði auðveldlega getað
varið. Áhorfendur kærðu sig kollótta
og fögnuðu ákaft, þó sennilega ekki
jafn mikið og Kadyrov sem sýndi þar
með og sannaði, að hann ætti heima
meðal þeirra bestu í knattspyrnu.
Pólitísk markmið
Markmið Kadyrovs með leiknum
var þó ekki aðeins að sýna hæfileika
sína á knattspyrnuvellinum. Hann
vildi einnig sýna erlendum gestum
fram á það að Tsjetsjenía væri ekki
lengur blóðugur vígvöllur og að höf-
uðborgin Grosní væri orðin að nú-
tímalegri höfuðborg sem stæðist
öðrum borgum snúning. Kadyrov
vissi mætavel að leikurinn myndi fá
alþjóðlega athygli og var þar stadd-
ur fjöldi erlendra blaðamanna.
Hann vill enda að Grosní verði
ein þeirra 13 borga sem fá að hýsa
heimsmeistarakeppnina í knatt-
spyrnu sem fer fram í Rússlandi árið
2018 og því mikið í mun að borgin
fái jákvæða athygli.
Flestir eru einmitt sammála um
að Kadyrov hafi tekist að ná fram
friði í nágrenni Grosní og gera þar
nútímalega höfuðborg, en því hef-
ur fylgt talsverður fórnarkostnaður.
Það var á sama leikvangi og leikur-
inn fór fram á þriðjudagskvöld, sem
faðir Kadyrovs, Akhmad, lést í kjöl-
far sprengjuárásar þar sem hann sat í
heiðursstúkunni árið 2004. Það kom
því ekki á óvart að öryggisgæslan fyr-
ir leikinn í vikunni var með mesta
móti. Heilt íbúðarhverfi í nágrenni
leikvangsins var rýmt, auk þess sem
allir áhorfendur þurftu að ganga
tvisvar sinnum í gegnum málmleit-
artæki.
Engar óvæntar uppákomur urðu
þó á leiknum. Áhorfendur voru him-
inlifandi og fóru heim með bros
á vör – þeir höfðu séð alþjóðlegar
stórstjörnur í knattspyrnu leika list-
ir sínar og ennfremur séð hetju sína,
Kadyrov, skora gegn þeim mark.
Uppreisnarmaður, en besti
vinur Pútíns í dag
Kadyrov er af þeirri kynslóð Tsjet-
sjena sem man vart eftir sér án þess
að blóðugir bardagar hafi geisað í
landinu. Frá því að Sovétríkin lið-
uðust í sundur í byrjun 10. áratugar
síðustu aldar hafa verið háðar tvær
borgarastyrjaldir. Kadyrov barðist í
þeim báðum, þeirri fyrri sem 13 ára
unglingur. Í síðari borgarastyrjöld-
inni gengu Kadyrov-feðgar til liðs
við Rússa og börðust gegn skærulið-
um sem kröfðust sjálfstæðis. Í skipt-
um fyrir það naut Akhmad aðstoðar
rússneskra sérsveita til að hrifsa til
sín völdin. Síðan hann féll frá hefur
sonur hans ráðið öllu sem hann vill
ráða, þó hann hafi ekki hlotið titilinn
forseti fyrr en árið 2007.
Ramzan Kadyrov berst ennþá við
skæruliða í norðurhluta Kákasus,
sérstaklega í fjöllum Dagestan. Hann
nýtur enn stuðnings Pútíns, en sagt
hefur verið að enginn leiðtogi fyrr-
verandi Sovétlýðveldis njóti jafn
mikils velvilja frá Pútín og einmitt
Kadyrov. Fjölmargir hafa líka látið að
því liggja, að í staðinn fyrir stuðning
Pútíns sjái Kadyrov og öryggissveit-
ir hans, „kadyrovítar,“ um hin ýmsu
skítverk. Eru öryggissveitir Kadyrovs
meðal annars bendlaðar við morð-
ið á blaðakonunni Önnu Politkovs-
kæju, þó ekkert hafi verið sannað í
þeim efnum.
Dáður og dýrkaður
Kadyrov virðist í öllu falli njóta gíf-
urlegra vinsælda í Grosní. Það er
kannski ekki furða, en þeir sem hafa
látið í ljós efasemdir sínar um leið-
togahæfileika forsetans hafa annað
hvort fundist myrtir – eða bara ekk-
ert fundist yfir höfuð.
Blaðamaður breska blaðsins
Guardian var staddur á leiknum og
spurði áhorfendur út í álit þeirra á
Kadyrov. „Það er einungis Ramzan
að þakka að við fáum að sjá þenn-
an leik,“ sagði Ali Geldbæjev, 26 ára
gluggatjaldasölumaður, kampakátur
með leikinn. „Hann er okkur allt. Ef
Ramzan yrði tekinn frá okkur Tsjet-
sjenum yrði ekkert eftir. Ég myndi
fórna lífi mínu fyrir hann, hér og nú.“
Kadyrov sagði í viðtali að leik-
urinn hefði verið gjöf frá honum
til þjóðarinnar. Þegar blaðamenn
spurðu hann hvað hann hafði borg-
að brasilísku stjörnunum fyrir að
spila leikinn brosti hann út í ann-
að. „Ég hef aldrei heyrt um neina
greiðslu fyrr en nú. Þeir komu af fús-
um og frjálsum vilja.“
„Hann er okkur allt. Ef Ramzan
yrði tekinn frá okkur Tsjetsjenum
yrði ekkert eftir. Ég myndi fórna lífi mínu
fyrir hann, hér og nú.“
n Ramzan Kadyrov, forseti Tsjetsjeníu, fékk ósk sína upp-
fyllta og mætti úrvalsliði frá Brasilíu n Fékk Ruud Gullit og
Lothar Matthäus til að leika með Tsjetsjenum n Leikurinn
var gjöf til þjóðarinnar, sem dýrkar Kadyrov og dáir
Björn Teitsson
blaðamaður skrifar bjorn@dv.is
ÓSKASTUND HJÁ
KADYROV
Barátta við heims-
meistara Kadyrov í
baráttu við Carlos Dunga,
fyrirliða heimsmeistara
Brasilíu árið 1994.
Klúðrar víti Kadyrov þrumar yfir úr
einni af þremur vítaspyrnum sínum.