Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2011, Síða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2011, Síða 27
Erlent | 27Helgarblað 11.–13. mars 2011 n Nýr listi Forbes yfir ríkustu einstaklinga veraldar n Carlos Slim slær Bill Gates við annað árið í röð n Aðeins ein kona meðal tíu ríkustu ÞAU 10 RÍKUSTU CARLOS SLIM 74 MILLJARÐAR DALA CARLOS SLIM HELU er 71 árs og eru eignir hans metnar á 74 milljarða dala. Fyrirtæki hans, Telemex, ræður ríkjum á fjarskiptamarkaði í Mexíkó og er einnig með starfsemi í Argentínu og Brasilíu. Eignir hans jukust gríðarlega árið 2010, eða sem nemur 20,5 milljörðum dala. Má það rekja til hækkunar á hlutabréfamörkuðum í Mexíkó, auk þess sem gengi mexíkóska pesósins styrktist talsvert. Slim stundar einnig ýmsar aðrar fjárfestingar og á meðal annars hlut í bandaríska stórblaðinu New York Times. BILL GATES 55 MILLJARÐAR DALA BILL GATES er fastagestur á lista Forbes yfir ríkustu einstaklinga í heimi. Eins og flestum er kunnugt stofnaði Gates hugbúnaðarrisann Microsoft. Gates hefur á undanförnum árum beint sjónum sínum í auknum mæli að góðgerðamálum. Þannig hefur hann þegar lagt 30 milljarða dala í góðgerðasjóð sinn, The Gates Foundation, sem er stærsti góðgerðasjóður heims. Hann hefur lagt áherslu á baráttu gegn berklum og mænusótt í fátækari heimshlutum. Þá hefur hann kallað eftir því að vísindamenn leggi meira af mörkum til þróunar bólu- efnis gegn HIV. 70 prósent af auði Gates er bundinn í fjárfestingasjóðnum Cascade en sjóðurinn á hluti í fjölmörgum fyrirtækjum. WARREN BUFFET 50 MILLJARÐAR DALA Auðæfi bandaríska fjárfestisins WARRENS BUFFETS jukust um fimmtán prósent á síðasta ári, eða um þrjá milljarða banda- ríkjadala. Buffet, sem er 80 ára, er forstjóri og stjórnarformaður fjárfestingafélagsins Berkshire Hathaway sem fjárfestir í hinum ýmsu fyrirtækjum, má þar nefna matvæla-, trygginga-, og iðnfyrirtæki. Hann keypti fé- lagið árið 1965 og síðan þá hefur fyrirtækið vaxið og dafnað með hverju árinu. Buffet slóst í lið með Bill Gates, ásamt fjölmörgum stóreignamönnum, og hét að gefa stærstan hluta auðæfa sinna til góðgerðamála. BERNARD ARNAULT 41 MILLJARÐUR DALA BERNARD ARNAULT er ríkasti Evrópu- maðurinn á lista Forbes. Þessi 62 ára Frakki hefur einbeitt sér að verslun með lúxusvörur í gegnum tíðina. Hann er eigandi lúxus- vörufyrirtækisins Louis Vuitton sem selur alls kyns lúxusvörur eins og úr, skartgripi og tískufatnað frá fyrirtækjum eins og Dior. Eignir hans jukust um 13,5 milljarða dala árið 2010 en eftirspurn eftir lúxusvörum fór vaxandi í fyrra, sérstaklega á mörkuðum í Asíu. Þá er hann einnig eigandi fyrirtækisins Royal Van Lent sem smíðar lystisnekkjur. LARRY ELLISON 39,5 MILLJARÐAR DALA LARRY ELLISSON er aðaleigandi hugbúnaðarfyrirtækisins Oracle og jukust eignir hans um 11,5 milljarða dala á síðasta ári. Flaggskip fyrirtækisins eru svokallaðar viðskiptalausnir sem fjölmörg fyrirtæki nýta sér, bæði stór og smá. Fyrirtækið er þriðja stærsta hugbúnaðarfyrirtæki heims, á eftir Microsoft og IBM. Á undanförnum árum hefur fyrirtækinu vaxið fiskur um hrygg og það keypt 75 smærri hugbúnaðarfyriræki fyrir samtals 40 milljarða dala. Líkt og Warren Buffet og Bill Gates hefur Ellisson heitið því að gefa stóran hluta auðæfa sinna til góðgerðamála, eða allt að 95 prósent. LAKSHMI MITTAL 31,1 MILLJARÐUR DALA MITTAL er indverskur kaupsýslumaður og eigandi ArcelorMittal, sem er stærsta stáliðnfyrirtæki heims. Auðæfi hans jukust mikið í fyrra, þökk sé aukinni eftirspurn eftir stáli og þar með hærra verði. Það kemur engum á óvart að Mittal sé ríkasti maður Indlands. Nýlega keypti Mittal, sem búsettur er í Evrópu, gríðarlega stórt land rétt fyrir utan Lundúni. Þar ætlar hann að byggja sér stórhýsi fyrir 40 milljónir dala. Dóttir hans, Vanisha, er stór hluthafi í Roc Capital Management, sem er vogunarsjóður í New York. Tengdadóttir hans er eigandi þýska tískuhússins Escada. AMANCIO ORTEGA 31 MILLJARÐUR DALA Spánverjinn ORTEGA, sem er orðinn 74 ára, er líklega þekktastur fyrir að eiga tískuhúsið Zöru – sem er ein vinsælasta fataverslunar keðja heims. Hann steig til hliðar sem stjórnarformaður Inditex, sem er eignarhaldsfélag Zöru og fleiri tískuverslana, í janúar síðastliðnum. Versl- anir félagsins eru 5.000 í 77 löndum, þar á meðal Íslandi. Ortega á einnig fjölmargar fasteignir, meðal annars á Flórída, í Madríd, London og Lissabon. EIKE BATISTA 30 MILLJARÐAR DALA BATISTA er eigandi eignarhaldsfélagsins EBX en dótturfélög þess eru umsvifamikil á ýmsum sviðum, má þar nefna námavinnslu, skipasmíði, ferðaþjónustu og orkuiðnað. Fjármálaskýrendur gera ráð fyrir að eignir Batista muni einungis aukast á næstu árum. Árið 2007 stofnaði hann olíu- og gasfyrir- tækið OGX en stefnt er að því að fyrirtækið hefji olíuvinnslu á þessu ári. Batista er kvæntur fyrrverandi forsíðustúlku karlatímaritsins Playboy, Luma de Oliveira. Hann varaði kollega sinn og ríkasta mann heims, Carlos Helú Slim, við því í viðtali nýlega að hann myndi hirða af honum efsta sætið á lista Forbes. MUKESH AMBANI 27 MILLJARÐAR DALA Ambani er eigandi Reliance Industries sem er metið verðmætasta fyrirtæki Indlands. Ambani hefur auðgast gríðarlega á fjár- festingum í olíufyrirtækjum. Ambani komst nýlega í fréttirnar þegar greint var frá því að hann væri að byggja sér 27 hæða íbúðarhús í Mumbai á Indlandi. Er húsið talið dýrasta íbúðarhús heims. Á síðasta ári fjárfesti hann í þremur bandarískum orkufyrirtækjum fyrir samtals 3,3 milljarða dala. CHRISTY WALTON 26,5 MILLJARÐAR DALA Christy er eina konan sem kemst á lista yfir tíu ríkustu einstaklinga heims. Walton er eigandi bandarísku verslunarkeðjunnar Wal-Mart. Christy var gift John Walton en faðir hans stofnaði fyrirtækið árið 1962. John Walton lést í flugslysi nærri heimili þeirra í Wyoming árið 2005 og erfði Christy því fyrirtækið. Christy hefur auðgast mikið frá því að eiginmaður hennar féll frá. Frá árinu 2006 hefur hlutabréfaverð í First Solar, fyrirtæki sem eiginmaður hennar stofnaði, hækkað um 500 prósent. Stærsti hluti tekna hennar kemur þó gegnum Wal-Mart en yfir tvær milljónir manna starfa hjá fyrirtækinu. 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.