Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2011, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2011, Qupperneq 32
32 | Viðtal 11.–13. mars 2011 Helgarblað S ölvi og Silvia Santana Briem kynntust árið 2007 og bjuggu saman síðustu árin í gamla hverfinu hans Sölva á Laugateign- um. Nú hafa þau hins vegar ákveð- ið að slíta sambandinu en halda þó áfram að rækta vinskapinn sem Sölvi segir bæði tryggan og hlýjan. Sambandsslitin urðu öllum ljós á forsíðu Séð og Heyrt en Sölvi segist slíku vanur. „Ég get ekki flúið umfjöllun fjölmiðla um einkalíf mitt meðan ég er áberandi í fjölmiðlum sjálf- ur. Ég verð að glíma við þetta eins og ég best get. Silvia er einstak- lega falleg og heilsteypt manneskja sem ég mun virða til æviloka. Hún mun alltaf eiga stað í hjarta mínu og ég er þakklátur fyrir þann tíma sem við áttum saman. Hún er gull af manni í alla staði. Við erum nú búin að ákveða að rækta vináttuna frekar en ástina og hættum sam- an í góðu. Ég er svona smám sam- an að venjast því lífi sem ég lifi án hennar. Ég er löngu búinn að átta mig á því að ég get ekki hengt mig á aðra manneskju fyrir hamingjuna. Hamingjan er alltaf á mínum eigin forsendum.“ Hégóminn hluti af sjónvarpsstarfinu Mörgum þykir Sölvi óhefðbundinn. Hann segir það sem hann meinar og vandar sig við að vera einlægur. Þegar talið berst að klæðnaðinum og því hvað hann er vel til hafður viðurkennir hann að sér sé umhug- að um útlitið og að hann eigi sínar hégómlegu stundir eins og annað fólk, en segist þola það illa þegar hégóminn er notaður gegn hon- um. „Er það æskilegt að ég hugsi lítið um útlitið? segir hann og hlær. „Þetta er hluti af mínu starfi og ég tek það alvarlega. Ég legg hart að mér í alla staði og þetta er bara hluti af því. Þú sérð ekki sjónvarpsfólk á alvöru sjón- varpsstöðvum úti í heimi í krum- paðri skyrtu og skítugum jakka. Ef það að ég klæði mig fallega og hugsi eitthvað um útlitið gerir það að verkum að eitthvert fólk úti í bæ ákveður að þar með hljóti að rigna upp í nefið á mér verður bara svo að vera. Þeir sem þekkja mig í raun vita hvaða mann ég hef að geyma og það eitt skiptir mig máli. En bara þetta viðtal sem dæmi. Stærsta ástæða þess að ég var upp- haflega á því að segja nei er að mér leiðist að fá að heyra það að ég sækist í athygli og sé upptekinn af sjálfum mér. Þannig er það ekki. Ég er ekki á nokkurn hátt meiri eða merkilegri en aðrar mannver- ur. En ég hef lært það að með því að tala og skrifa af einlægni nær mað- ur oft að snerta strengi hjá þeim sem eru á sama stað í sínu lífi. Þess vegna segi ég yfirleitt ekki nei ef ég er beðinn um að tjá mig.“ Það er af og til sem Sölvi fær harka lega gagnrýni. Nýlega lenti hann í ritdeilu við blaðamenn, rithöfunda og ritstjóra sem settu út á pistil sem hann skrifaði um tvíhyggju í samfélaginu en Sölva finnst ótækt hversu tilbúið ákveð- ið fólk í menningarelítunni er að skipa fólki á bás eftir útliti og hugð- arefnum og tók sem dæmi hversu umdeilt það þótti að veita Agli „Gillz“ Einarssyni inngöngu í Rit- höfundasambandið. Í fangelsi eigin huga „Það er afskaplega auðvelt að lok- ast inni í fangelsi eigin hugsunar. Við freistumst öll til þess að finnast það eitt rétt og satt sem felst í skoð- unum okkar. Í samskiptum okk- ar við annað fólk hugsum við bara um hvað við ætlum að segja næst, en hlustum ekki. Þetta er afskap- lega hvimleitt og ég reyni sjálfur eins og ég frekast get að vera stærri en mínar eigin hugsanir til þess að vera með það á hreinu að það sem ég túlka úr mínu lífi og annarra er þegar allt kemur til alls aðeins mín- ar hugsanir og túlkanir. Ég verð alltaf jafn hissa þegar fluggreint fólk fellur ítrekað í þá gryfju að telja sínar skoðanir heil- agan sannleik og ber þær fram fyr- ir aðra á kaldhæðinn og hrokafull- an máta. Þannig fólk er sannarlega fangar hugsunar sinnar. Það er búið að ramma sig af og bregst við af hörku þegar einhverjir benda því á rimlana. Umburðarlyndi er Venst lífinu án Silviu „Ég er löngu búinn að átta mig á því að ég get ekki hengt mig á aðra mann- eskju fyrir hamingjuna,“ segir fjölmiðla- maðurinn og rithöfundurinn Sölvi Tryggvason um líðan sína í kjölfar sambandsslitanna við Silviu Santana Briem. Hann segir þau hafa ákveðið að rækta vináttuna frekar en ástina og að hann sé smám saman að venjast lífinu án hennar. Kristjana Guðbrandsdóttir settist niður með Sölva og ræddi við hann um hamingjuna, sápuóperuna í sumar með Jónínu Ben, uppgjörið við bókaútgefanda sinn og þrætuna við menningarelítuna.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.