Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2011, Page 33
Viðtal | 33Helgarblað 11.–13. mars 2011
eiginleiki sem ég virði meira og
meira í öðru fólki og reyni af öll-
um mætti að tileinka mér. Sú dóm-
harka sem hér hefur ráðið ríkjum
allt of lengi er að sliga þetta samfé-
lag. Þeir sem stöðugt dæma aðra og
tala illa um annað fólk eru að aug-
lýsa eigin vanmátt alla daga.“
Þjáist í þögn
Sölvi segist sjaldan verða reið-
ur þótt hann hafi staðið í þessari
deilu. „Ég reiðist mjög sjaldan nú-
orðið, vegna þess að ég reyni að
vera það meðvitaður í daglegu lífi
að ég finni um leið og ég stekk upp
á nef mér að vandinn liggur hjá
mér. Ég get ekki breytt áreitinu sem
kemur til mín en ég get breytt því
hvernig ég svara því. Annað fólk er
eins og það er og ég væri nákvæm-
lega eins ef ég hefði þeirra sögu,
þeirra genamengi og þeirra til-
finningar. Það er ágætt að hafa það
hugfast þegar maður lendir í deil-
um. Reiði er hörmuleg tilfinning að
festast í.
Ég er hins vegar engan veginn
fullkominn og er oft viðkvæmur
og hörundsár. Ég er ekkert feim-
inn við að ljóstra því upp. Á meðan
sumir taka tilfinningar út í gegnum
reiði, hef ég átt það til að taka hluti
inn á mig og þjást í þögn. En það
er breytt. Um leið og ég finn sterkt
tilfinningaviðbragð í sjálfum mér
verð ég að spyrja: Af hverju snert-
ir þetta mig? Jú, þetta snertir mig
vegna þess að egóið særist. Tökum
sem dæmi þessa menningarum-
ræðu. Af hverju truflar það mig að
vel gefnir, þjóðþekktir menn gagn-
rýni mig? Líkast til af því að ég er
með einhverja þörf fyrir að allir
séu með það á hreinu að ég er klár.
En fyrsta skrefið í að láta af óþörfu
egói er að vera meðvitaður um það
og sjá hvað það er hlægilegt. Ef
ég geng inn í partí og er að hugsa
um stelpu á staðnum eru allar lík-
ur á að myndarlegasti gæinn í her-
berginu fari í taugarnar á mér. En
ég viðurkenni það að minnsta kosti
og er meðvitaður um hvað mekan-
isminn sem þarna býr að baki er
barnalegur. Hvað er maður að berj-
ast við að verja alla daga?
Sjálfsmynd sem í raun er ekkert
annað en blekking. Sú mynd sem
ég hef af Sölva og hvað öðru fólki
finnst um hann er eitthvað sem fer
ekki með mér í gröfina og ég ætla
ekki að eyða ævinni í að verja þá
mynd. Það fer þess vegna stund-
um í taugarnar á mér hvað ég get
verið viðkvæmur fyrir gagnrýni, en
að sama skapi er ég þakklátur fyr-
ir það, því um leið og maður hætt-
ir að finna til er maður kominn á
rangar brautir.“
Með tösku fulla
af gömlum vinum
Í hliðartösku hans er fjöldi lúinna
rita um heimspeki og andleg fræði.
Hvað slitnastar eru bækurnar
Kyrrðin talar eftir Eckhart Tolle og
dagbók Krishnamurti, hins heims-
fræga leiðtoga sem leiðbeindi John
Lennon um tilveruna.
„Ég ætlaði ekki að verða fjöl-
miðlamaður og það var tilviljun
að lífið æxlaðist þannig. Ég var af-
skaplega hlédrægur og feiminn á
yngri árum og í raun íka í mennta-
skóla og háskóla. Þannig að þeir
sem hafa þekkt mig lengi myndu
segja að ef þeim hefði verið sagt
að ég myndi vinna í sjónvarpi þeg-
ar ég var tvítugur, hefðu þeir hlegið
hátt að viðkomandi. Ég hef sigrast á
ótrúlega mörgum vígjum í sjálfum
mér með því að gera hluti sem ég
hefði aldrei haft kjark í að gera fyrir
áratug. Fyrir það er ég bæði stoltur,
en einkum og sér í lagi þakklátur.
Eg hef vaxið sem mannvera. En nú
hef ég starfað við fjölmiðla í sex ár
og ég nýt þess sem ég er að gera. Ég
lifi góðu lífi þar sem ég fæ að njóta
mín og hæfileika minna, það eru
mikil forréttindi. Mig langar samt
alltaf til þess að leggja harðar að
mér og í framtíðinni vil ég sækja
mér frekari menntun í sálfræði og
láta reyna frekar á ritstörf.
Ég hef lesið bækur um andleg
málefni frá því að ég var alger polli
og viðað að mér mikilli þekkingu.
Ég er alltaf með nokkrar af uppá-
haldsbókunum mínum á mér og
finnst gott að vita af þeim nálægt
mér. Þær eru eins og gamlir vin-
ir sem gefa mér styrk. Ég hef lesið
óteljandi bækur um andleg mál-
efni og unnið mikið í sjálfum mér.
Það er eitthvað sem maður ákveð-
ur ekki sí-svona, heldur má segja
að stöðug þörf fyrir að breyta lífi
sínu og í raun ákveðið ósætti við
stöðnun sé bensínið sem knýr
mann áfram.
Með aukinni næmni og þroska
Venst lífinu án Silviu
Með gamla vini í farteskinu Sölvi er alltaf með nokkrar af uppáhaldsbókunum sínum á sér og finnst gott að vita
af þeim nálægt. MYND SIGTRYGGUR ARI
„Er það æskilegt
að ég hugsi lítið
um útlitið? Þú sérð ekki
sjónvarpsfólk á alvöru
sjónvarpsstöðvum úti í
heimi í krumpaðri skyrtu
og skítugum jakka.
„Ég varð vitni
að ótrúlegustu
uppákomum síðasta
sumar. Ég var eiginlega
staddur í miðri sápu-
óperu.