Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2011, Side 38
Rannveig fæddist á Siglufirði og
ólst þar upp. Hún var í Grunnskóla
Siglufjarðar, stundaði nám við Fjöl-
brautaskólann á Sauðárkróki, lauk
þaðan stúdentsprófi, stundaði síðan
nám í viðskiptafræði við Háskólann í
Reykjavík og lauk þaðan prófum í jan-
úar 2006.
Rannveig var skiptinemi í Argen-
tínu 1999 og í Frakklandi 2004. Hún
hefur mikinn á að ferðast og er nú ný-
komin frá Indlandi.
Rannveig vann við Sjúkrahúsið á
Siglufirði á fjölbrautarárunum, starf-
aði við iðngjaldaskráningu hjá Spari-
sjóðnum á Siglufirði á háskólaárun-
um, starfaði síðan við Landsbankann
á árunum 2006–2008 og hefur starfað
hjá Sparisjóði Siglufjarðar frá hausti
2008.
Fjölskylda
Systkini Rannveigar: Elísabet Ás-
mundsdóttir, f. 1977, viðskiptafræð-
ingur í Reykjavík; Þórunn Freyja
Gústafsdóttir, f. 1985, MA- nemi í hag-
fræði við Kaupmannahafnarháskóla;
Baldur Gústafsson, f. 1991, nemi við
Verzlunarskóla Íslands; Rósbjörg
Jenný Magnúsdóttir, 1991, nemi á
Siglufirði; Páll Sigurvin Magnússon, f.
1996, grunnskólanemi.
Foreldrar Rannveigar eru Gúst-
af Daníelsson, f. 1957, starfar við út-
gerð á Siglufirði, og Hrönn Fanndal, f.
1961, skrifstofumaður á Siglufirði.
Fósturmóðir Rannveigar og fyrrv.
kona Gústafs, er Sigurósk Edda Jóns-
dóttir, f. 1957, hjúkrunarfræðingur í
Reykjavík.
Fósturfaðir Rannveigar og eigin-
maður Hrannar er Magnús Jónasson,
f. 1963, skrifstofustjóri hjá Sparisjóði
Siglufjarðar.
Hjalti fæddist á Blönduósi og ólst
þar upp. Hann var í Grunnskóla
Blönduóss, stundaði nám við
Menntaskólann á Akureyri, lauk
stúdentsprófi frá Borgarholtsskóla,
lauk BA í sálfræði frá Háskólan-
um á Akureyri 2009 og stundar nú
framhaldsnám í sálfræði við Há-
skóla Íslands.
Þá stundaði hann nám í klass-
ískum söng við Tónlistarskólann á
Akureyri og hélt framhaldsprófs-
tónleika árið 2010.
Hjalti hefur starfað við leikskóla
á Akureyri á sumrin með námi og
hefur sungið töluvert opinberlega í
brúðkaupum og jarðarförum.
Hjalti hefur sungið og leikið á
gítar við sunnudagaskóla Glerár-
kirkju og Akureyrarkirkju.
Fjölskylda
Eiginkona Hjalta er Lára Sóley Jó-
hannsdóttir, f. 30.1. 1982, fiðluleik-
ari og starfsmaður við menningar-
húsið Hof á Akureyri.
Sonur Hjalta og Láru Sóleyjar
er Jóhann Ingvi Hjaltason, f. 22.3.
2008.
Systkini Hjalta eru Einar Örn
Jónsson, f. 8.12. 1975, hljóm-
borðsleikari hjá hljómsveitinni
Í svörtum fötum og starfsmað-
ur Orkuveitunnar; Ásta Berglind
Jónsdóttir, f. 4.8. 1990, nemi.
Foreldrar Hjalta eru Margrét
Einarsdóttir, f. 31.12. 1953, verslun-
arstjóri ÁTVR á Blönduósi, og Jón
Sigurðsson, f. 18.2. 1952, umboðs-
maður TM á Blönduósi.
Hjalti og Lára Sóley verða með
afmælisfagnað í Hofi.
Jóhanna Guðrún fæddist á Flat-eyri við Önundarfjörð. Hún lauk stúdentsprófum frá MA
1959, kennaraprófi frá KÍ 1964 og
stundaði sérkennslunám við KÍ
1968-69 og Bristol University á
Englandi 1976-77. Þá stundaði hún
framhaldsnám í sérkennslufræð-
um við Statens Spesiallærerhøg-
skole í Noregi og University of Virg-
inia í Bandaríkjunum 1987-90.
Jóhanna var kennari við Höfða-
skóla í Reykjavík 1964-73 og 1974-
75, skólastjóri Barna- og mið-
skólans á Skagaströnd 1973-74,
yfirkennari við Öskjuhlíðarskóla
í Reykjavík 1975-76 og skólastjóri
sama skóla 1977-87.
Hún flutti til Flateyrar 1991 og
var þar sérkennsluráðgjafi, fyrst
við Fræðsluskrifstofu Vestfjarða til
1996 er hún var aflögð og síðan hjá
Skólaskrifstofu Vestfjarða til 2000
er stofnun var aflögð og var síðan
forstöðumaður Fræðslumiðstöðv-
ar Vestfjarða sem er fræðslu- og sí-
menntunarmiðstöð á Vestfjörðum.
Jóhanna var formaður kvenfé-
lagsins Brynju á Vestfjörðum.
Fjölskylda
Jóhanna var gift Erlingi E. Hall-
dórssyni, f. 20.3. 1930, rithöfundi,
leikstjóra og kennara, en þau
skildu 1973.
Börn Jóhönnu og Erlings eru
Kristján Erlingsson, f. 1.12. 1962,
stundar útflutning í Úganda í Afr-
íku, en kona hans er Lesley Wales
og eiga þau tvö börn; Vigdís Er-
lingsdóttir, f. 11.2. 1970, búsett á
Flateyri og á hún þrjú börn.
Bróðir Jóhönnu var Einar Oddur
Kristjánsson, f. 26.12. 1942, d. 14.7.
2007, alþm., var kvæntur Sigrúnu
Gerðu Gísladóttur hjúkrunarfræð-
ingi og eignuðust þau þrjú börn.
Hálfbróðir Jóhönnu, samfeðra,
er Sigurður Guðmundur Kristjáns-
son, f. 24.8. 1924, d. 5.12. 2005,
stýrimaður í Reykjavík, var kvænt-
ur Soffíu Jónsdóttur húsmóður
sem nú er látin og eru synir þeirra
þrír.
Foreldrar Jóhönnu: Kristján
Ebenezersson, f. 18.10. 1897, d.
30.3. 1947, skipstjóri á Flateyri, og
k.h., María Jóhannsdóttir, f. 25.5.
1907, fyrrv. stöðvarstjóri Pósts og
síma á Flateyri.
Ætt
Kristján var sonur Ebenezers, skip-
stjóra á Flateyri Sturlusonar. Móðir
Ebenezers var Kristín Ebenezers-
dóttir, b. í Innri-Hjarðardal Guð-
mundssonar, b. í Arnardal Bárð-
arsonar, ættföður Arnardalsættar
Illugasonar.
Móðir Kristjáns var Friðrikka,
systir Bersebe, móður Guðmund-
ar Inga skálds, Halldórs, skálds frá
Kirkjubóli, og Ólafs skólastjóra,
föður Kristjáns Bersa skólastjóra
og afa Ólafs Þ. Harðarsonar stjórn-
málafræðings. Friðrikka var dóttir
Halldórs, b. á Hóli í Önundarfirði,
bróður Ragnheiðar, langömmu
Gunnars Ásgeirssonar forstjóra og
Elsu Guðjohnsen safnvarðar. Hall-
dór var sonur Halldórs, b. á Graf-
argili Eiríkssonar, bróður Elín-
ar, langömmu Ólafs, föður Gests
skipulagsfræðings og Valdimars
yfirflugumferðarstjóra, föður Þór-
unnar, sagnfræðings og rithöfund-
ar.
Móðursystkini Jóhönnu eru
Margrét, móðir Hrafns Tulinius
prófessors; Torfi, faðir Kristjáns
bæjarfógeta, og Björn skrifstofu-
stjóri, faðir Ingibjargar skólastjóra.
María er dóttir Jóhanns Lúthers,
prófasts á Hólmum, bróður Sig-
ríðar, ömmu Gunnlaugs, alþm., á
Hvilft, og Hjálmars, forstjóra Loft-
leiða og Áburðarverksmiðjunn-
ar Finnssona. Jóhann var sonur
Sveinbjarnar, b. í Skáleyjum Magn-
ússonar, b. í Hvallátrum Einarsson-
ar, bróður Eyjólfs eyjajarls. Móð-
ir Jóhanns var María Jónsdóttir,
systir Sesselju, móður skáldanna
Herdísar og Ólínu Andrésdætra og
Maríu Andrésdóttur í Stykkishólmi
og einnig systir Sigríðar, móður
Björns Jónssonar ráðherra, föður
Sveins, fyrsta forseta lýðveldisins.
Móðir Maríu var Guðrún, syst-
ir Sigríðar, móður Esra læknis
og Maríu Pétursdóttur, fyrrv. for-
manns Kvenfélagasambands Ís-
lands. Bróðir Guðrúnar var Ás-
geir, faðir Haraldar, fyrrv. forstjóra
Rannsóknastofnunar byggingar-
iðnarins, og Önundar, fyrrv. for-
stjóra Olís. Guðrún var dóttir Torfa,
kaupmanns á Flateyri Halldórs-
sonar og Maríu Össurardóttur, b.
í Súðavík Magnússonar, b. í Bæ
í Súgandafirði Guðmundssonar,
bróður Ebenesers í Hjarðardal.
38 | Ættfræði Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is 11.–13. mars 2011 Helgarblað
Oddný fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hún bjó með foreldr-um sínum við Háteigsveg og
síðar í Hörgshlíð.
Oddný stundaði nám við Mennta-
skólann í Reykjavík 1958–59, en hóf
nám í hjúkrun haustið 1959 og lauk
prófi frá Hjúkrunarskóla Íslands 1962.
Hún stundaði framhaldsnám í lyf- og
handlæknisfræðum, ásamt skurð-
stofunámi við Columbia Presby-
terian Medical Center i New York
og framhaldsnám í geðhjúkrun við
New York Hospital, stundaði nám í
svæfingahjúkrun við Landspítalann
og framhaldnám í svæfingahjúkrun
við Amt og By Sygehus í Óðinsvéum
í Danmörku og lauk prófum og öðl-
aðist starfsréttindi hjúkrunarfræð-
ings RPN í New York. Hún lauk stúd-
entsprófi frá Menntaskólanum við
Hamrahlíð, stundaði nám við Há-
skóla Íslands við sálfræðideild; nám
í sálarfræði, lífeðlisfræði, þroskasál-
arfræði barna, stundaði nám í stjórn-
un við Háskóla Íslands og sérfræði-
nám í hjúkrun aldraðra og stundaði
tveggja ára framhaldsnám í uppeldis-
og kennslufræðum fyrir kennara við
Kennaraháskóla Íslands.
Oddný var deildarhjúkrunarfræð-
ingur við Landspítalann, lyflækninga-
og handlækningadeild; flugfreyja hjá
Loftleiðum hf.; starfaði á lyflækninga-
og handlækningadeild við Columbia
Presbyterian Medical Center í New
York; var svæfingahjúkrunarfræðing-
ur á Landspítala; deildarhjúkrunar-
fræðingur á geðdeild Borgarspítal-
ans; svæfingarhjúkrunarfræðingur
við Borgarspítala; hjúkrunarstjóri
á Hrafnistu í Hafnarfirði; kennari
við Nýja hjúkrunarskólann; deild-
arstjóri heimahjúkrunar við Heilsu-
gæslu Garðabæjar; leysti af deildar-
stjóra á Skjóli yfir sumartíma; leysti
sumarlangt af hjúkrunarforstjóra
Heilsugæslustöðvar Hveragerðis; var
fræðslustjóri og aðstoðardeildarstjóri
á Sólvangi í Hafnarfirði í nítján ár;
sinnti stundakennslu hjá Námsflokk-
um Hafnarfjarðar; var stundakennari
við Námsflokka Reykjavíkur, stunda-
kennari við Ármúlaskóla og var í
hlutastarf við hjúkrun á Hrafnistu í
Reykjavík.
Oddný gerði könnun á reyking-
um á Sólvangi, samdi kennsluverk-
efni um kransæðasjúkdóma og sinnti
fræðslu fyrir kransæðasjúklinga.
Oddný sat í kjaramálanefnd FÍH;
í fræðslu- og menntanefnd FÍH; í
framkvæmdastjórn HFÍ; í ritnefnd
Hjúkrunarkvennatala útg. 1979 og
1992; ritari stjórnar Fimleikasam-
bands Íslands; formaður foreldrafé-
lags Víðistaskóla í Hafnarfirði; for-
maður jafnréttisnefndar Bandalags
kvenna í Reykjavík; formaður Banda-
lags kvenna í Reykjavík, ritari stjórnar
Öldungadeildar HFÍ.
Fjölskylda
Oddný giftist, 30.12. 1970, Hrafnkeli
Ásgeirssyni, f. 4.4. 1939, hæstarétt-
arlögmanni, syni Sólveigar Björns-
dóttur húsmóður og Ásgeirs G.
Stefánssonar, byggingameistara, út-
gerðarmanns og forstjóra Bæjarút-
gerðar Hafnarfjarðar.
Dætur Oddnýjar og Hrafnkels eru
Kristín Ýr, textílhönnuður, viðskipta-
fræðingur og framkvæmdastjóri ELM
Design en maður hennar er Valbjörn
Jón Höskuldsson, vélfræðingur og
viðskiptafræðingur og er sonur þeirra
Höskuldur Hrafn en börn Valbjörns
frá fyrra hjónabandi eru Heiða Val-
björnsdóttir og Hörður Valbjörnsson;
Lára Sif, viðskiptafræðingur, fram-
kvæmdastjóri fjármálafyrirtækis á
Manhattan í New York.
Börn Hrafnkels frá fyrra hjóna-
bandi eru Elfa hjúkrunarfræðingur en
maður hennar er Ellert Guðjónsson
sjómaður og eru dætur þeirra Marta
og Telma; Ásgeir, pípulagningamað-
ur en kona hans er Guðfinna Páls-
dóttir húsmóðir og er sonur þeirra
Ófeigur Ásgeirsson, en börn Guð-
finnu frá fyrra hjónabandi eru Urður
Vilhjálmsdóttir, Týr Vilhjálmsson og
Þór Vilhjálmsson, og dóttir Ásgeirs frá
fyrra hjónabandi er Embla Ásgeirs-
dóttir.
Systkini Oddnýjar eru tvíbura-
bróðir hennar, Ólafur Hinrik hæsta-
réttarlögmaður, kvæntur Maríu Jó-
hönnu Lárusdóttur kennara; og
tvíburasystkinin Kristín Ragnhild-
ur, lífeindafræðingur, gift Geir Arn-
ari Gunnlaugssyni, verkfræðingi,
prófessor og framkvæmdastjóra, og
Ragnar, verkfræðingur, kvæntur Dóru
Steinunni Ástvaldsdóttur tónlistar-
kennara.
Foreldrar Oddnýjar: Kristín Sig-
ríður Ólafsson, fædd í Kanada, dótt-
ir Oddnýjar Ásgeirsdóttur og Hin-
riks Jónssonar, sem fluttu til Kanada
á 9. áratug 19. aldar. Faðir Oddnýjar
var Ragnar Ólafsson, hæstaréttarlög-
maður og löggiltur endurskoðandi,
fæddur á Lindarbæ í Holtum, sonur
Margrétar Þórðardóttur og Ólafs Ól-
afssonar, búfræðings og bónda þar.
Ætt
Afi og amma Ragnars Ólafssonar voru
Ólafur Ólafsson, bóndi og hrepp-
stjóri á Lundum í Stafholtstungum
og Ragnhildur Ólafsdóttir, sem síðar
giftist, að Ólafi látnum, Ásgeiri Finn-
bogasyni, tengdaföður Lárusar Blön-
dal sýslumanns. Dætur Ragnhildar
og Ásgeirs voru Oddný, Guðrún og
Sigríður. Sigríður giftist Jóni Tómas-
syni, bónda og hreppstjóra í Hjarðar-
holti í Stafholtstungum í Borgarfirði.
Dóttir þeirra var Áslaug sem giftist
Ingvari Vilhjálmssyni útgerðarmanni
í Reykjavík. Oddný og Guðrún fluttu
til Kanada og giftist Guðrún Finni
Jónssyni bóksala og ritstjóra Lög-
bergs Heimskringlu, sem ættaður var
frá Melum í Hrútafirði. Sonur þeirra
var Jón Ragnar Johnson, lögmaður í
Toronto í Kanada. Sonur hans er Jón
Ragnar Johnson yngri, sem starfar nú
sem lögmaður í Toronto og er hann
jafnframt íslenskur konsúll þar. Eig-
inmaður Oddnýjar var Hinrik Jóns-
son, fæddur á Mosvöllum í Önundar-
firði en Oddný var fædd á Lundum í
Stafholtstungum í Borgarfirði. Þau
eignuðust ellefu börn sem öll voru
fædd í Kanada. Afkomendur þeirra,
aðrir en Kristín móðir Oddnýjar, eru
dreifðir um Kanada og Bandaríkin.
Jakob Finnbogason, bróðir Ásgeirs
Finnbogasonar, var langafi Vigdísar
Finnbogadóttur, fyrrv. forseta Íslands.
Oddný Ragnarsdóttir og Vigdís Finn-
bogadóttir eru því fjórmenningar.
Ragnhildur Ólafsdóttir eldri í Bakka-
kosti, var móðir Ragnhildar Ólafs-
dóttur yngri sem kennd var við Engey,
móður Guðrúnar Pétursdóttur, móð-
ur Bjarna Benediktssonar ráðherra
og Sveins Benediktssonar, föður
Benedikts Sveinssonar, föður Bjarna
Benediktssonar, núverandi formanns
Sjálfstæðisflokksins. Afi Ragnars Ól-
afssonar var Þórður Guðmundsson,
bóndi á Hala í Holtum. Bræður Ragn-
ars voru Ólafur og Þórður, bændur í
Lindarbæ, Ásgeir Ólafsson, heildsali
í Reykjavík, kvæntur Kristínu Ólafs-
dóttur frá Kálfholti í Holtum, systur
Halldóru Ólafsdóttur, móður Guð-
mundar Ingva Sigurðssonar hrl. Son-
ur Ásgeirs Ólafssonar var Þorvaldur,
fyrsti atvinnugolfkennari á Íslandi.
Systir Margrétar í Lindarbæ var Jóna
Sólveig Þórðardóttir, amma Garðars
Valdimarssonar, fyrrv. ríkisskattstjóra
og núverandi hrl. Garðar nam end-
urskoðun hjá frænda sínum, Ragn-
ari Ólafssyni. Önnur systir Margrétar
var Þórdís Þórðardóttir, móðir Val-
týs Bjarnasonar, læknis, föður Bjarna
svæfingalæknis og Valtýs, sveitar-
stjóra í Bláskógabyggð.
Oddný Margrét Ragnarsdóttir
Hjúkrunarfræðingur
85
ára
85
ára
Jóhanna G. Kristjánsdóttir
Sérkennari
Hjalti Jónsson
Framhaldsnemi í sálfræði við Háskóla Íslands
Rannveig Gústafsdóttir
Lánasérfræðingur hjá Sparisjóði Siglufjarðar
70 ára á miðvikudag
70 ára á föstudag
30 ára á laugardag
30 ára á sunnudag