Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2011, Blaðsíða 42
T
ommy Lynn Sells fæddist 28.
júní 1964, hann var tvíburi,
en tvíburasystir hans, Jean,
dó þegar hún var eins og hálfs
árs. Tommy átti tvo eldri bræður og
eignaðist síðar þrjá bræður til við-
bótar því móðir hans fór ekki varlega
þegar kynlíf var annars vegar.
Í kjölfar dauða Jean sendi Nina,
móðir Tommys, hann til frænku sinn-
ar, Bonnie, og heimsótti son sinn
sjaldan. Því fór svo að Bonnie vildi
ættleiða hann en þegar Nina fékk
veður af því brá hún skjótt við og
sótti drenginn, sem þá hafði verið hjá
Bonnie um þriggja ára skeið.
Flest bendir til þess að Tommy
hafi verið vandræðagemlingur sem
drengur og lét Nina sig það litlu
varða. Þegar Tommy var átta ára og
komst í kynni við karlmann sem gaf
honum gjafir leyfði hún Tommy að
gista hjá manninum og talið er að
hann hafi um skeið misnotað Tommy
með grófum hætti.
Varð háður fíkniefnum
Ellefu ára að aldri hafði Tommy kom-
ist í kynni við fíkniefni og ljóst var að
hann gekk ekki heill til skógar and-
lega þegar hann á táningsaldri reyndi
að nauðga móður sinni. Fjórt án ára
fór Tommy að heiman, búinn að
klára áttunda bekk og fór á vit glæpa
og fíkniefna sem hann neytti eins oft
og mikið og hann gat.
Hann var handtekinn nokkrum
sinnum en þá gaf ekkert til kynna að
um væri að ræða verðandi raðmorð-
ingja og í raun var það ekki fyrr en
eftir að Tommy var handtekinn fyrir
morð árið 2000 að yfirvöld gátu fyllt
í eyðurnar á ferli hans. En jafnvel þá
voru yfirvöld ekki viss um að allt sem
hann upplýsti þau um væri satt og
rétt, en um annað eru lítil áhöld.
Móðir og sonur myrt
Í júlí 1985 hitti Tommy Enu Cordt og
fjögurra ára son hennar, Rory, í For-
syth í Missouri. Þegar þar var kom-
ið sögu vann Tommy við farand-tív-
olí og mæðginin höfðu kíkt þar eitt
kvöldið. Morguninn eftir voru bæði
Ena og Rory liðin lík. Tommy barði
þau til dauða með hafnaboltkylfu.
Síðar fullyrti Tommy við yfir-
heyrslur að Ena hefði boðið honum
heim og þau hefðu haft kynmök, en
svo hefði Ena reynt að ræna hann. Þá
hefði hann reiðst með þeim afleið-
ingum að hann barði þau til dauða.
Lítill trúnaður var lagður á frásögn
Tommys og líklegra talið að hann
hefði elt mæðginin heim, nauðgað
Enu og myrt þau bæði í kjölfarið.
Tveimur árum síðar komst
Tommy með einhverjum hætti inn
á heimili Keiths og Elaine Dardeen
í Illinois. Lögreglan fann síðar lík
Keiths á engi í grenndinni og hafði
hann verið skotinn og kynfærum
hans misþyrmt.
Elaine fannst hins vegar inni á
heimili hjónanna og var hún, ásamt
þriggja ára syni sínum og barni sem
ljóst var að hafði fæðst fyrir tímann,
í hjónarúminu. Þau höfðu öll verið
barin til dauða. Leitt var að því get-
um að hún hefði eignast barnið fyrir
tímann í viðurvist Tommys sem síð-
an myrti þau.
Tommy fer í fangelsi
Árið 1992 var Tommy handtekinn í
Charleston í Vestur-Virginíu eftir að
hann hafði nauðgað og nánast drep-
ið konu þar í bæ. Talið er að konan
hafi aumkað sig yfir Tommy og ætl-
að að gefa honum eitthvað í gogginn.
En Tommy hafði aðrar hugmyndir
og nauðgaði konunni og stakk hana
með hníf.
Einhvern veginn tókst konunni
þó að ná af honum hnífnum og
særa hann tuttugu og þremur sár-
um. Tommy tók þá til handargagns
píanóstól og barði hana það illilega
að hann yfirgaf húsið í þeirri trú að
hún væri öll. En því fór fjarri og gat
hún gefið lögreglu greinargóða lýs-
ingu á honum sem leiddi til handtöku
hans. Hann slapp þó ótrúlega vel því
hann afplánaði einungis fjögurra ára
dóm fyrir alvarlega líkamsárás.
Þegar Tommy var í grjótinu kvænt-
ist hann konu að nafni Nora Price og
þegar honum var sleppt árið 1997
hófu þú búskap. En Tommy þurfti
oft að fara út úr bænum til að sinna
ýmsum viðvikum og hann yfirgaf eig-
inkonuna áður en ár var liðið frá gift-
ingunni.
Tvíkvæntur Tommy
Árið 1998 komst Tommy í kynni við
28 ára konu, Jessicu Lavrie, í Texas
þar sem hann var aftur kominn í
vinnu við farand-tívolí. Hann lét þá
staðreynd að hann væri enn kvæntur
Noru ekki flækjast fyrir sér og gekk að
eiga Jessicu og flutti inn til hennar og
fjögurra barna hennar.
En Tommy var iðulega á ferðinni
vegna vinnu sinnar og neytti fíkni-
efna og myrti fólk þegar svo bar undir.
Þann 4. apríl 1999 er talið að
Tommy hafi nauðgað og myrt 32 ára
konu og stungið átta ára dóttur henn-
ar til bana í Tennessee. Um hálfum
mánuði síðar nam hann á brott níu
ára stúlku, Mary Bea Perez, í San Ant-
onio í Texas. Hann misþyrmdi henni
kynferðislega, myrti og kastaði líki
hennar í árfarveg.
Innan við mánuði síðar nauðgaði
hann 13 ára stúlku, Haley Mchone,
í Kentucky og kyrkti hana í kjölfar-
ið. Sama kvöld var Tommy handtek-
inn fyrir að vera undir áhrifum á al-
mannafæri. Lögreglan hafði ekki
grænan grun um hvílíkt skrímsli hún
var með í höndunum og var hon-
um sleppt morguninn eftir. Tveimur
mánuðum síðar nauðgaði hann og
myrti fjórtán ára stúlku, Bobby Lynn
Wofford.
Vinfengi á vafasömum
forsendum
Síðla árs 1999 fór Tommy að stunda
messur í kirkju í Del Rio í Texas. Þar
kynntist hann Terry og Crystal Harr-
is og fór svo að honum var boðið inn
á heimili þeirra í nokkur skipti. Harr-
is-hjónin áttu þrjú börn og var eitt
þeirra bráðfalleg stúlka rétt undir
tán ingsaaldri, Katy, og ásetti Tommy
sér að komast yfir hana.
Á gamlárskvöld varð Tommy þess
áskynja að Terry yrði að heiman í ein-
hvern tíma og þegar hann var á brott
það sama kvöld réðst Tommy til at-
lögu. Hann braust inn í hjólhýsi Harr-
is-hjónanna í gegnum svefnherberg-
isglugga Justins, sonar þeirra. Þannig
var mál með vexti að Justin var blind-
ur og ályktaði að skarkalinn væri af
völdum systkina hans og fór aftur að
sofa. Tommy hreyfði ekki við hon-
um en fór í inn næsta herbergi þar
sem sjö ára stúlka, gestkomandi hjá
Harris-hjónunum, svaf. Tommy lét
sig hana litlu varða og hélt för sinni
áfram, fór í næsta herbergi en þar
voru Crystal og tólf ára dóttir henn-
ar í fastasvefni. Loksins fann hann
rétta herbergið þar sem Katy, þrettán
ára, svaf grunlaus í neðri koju. Í efri
kojunni lá Krystal Surles, tíu ára vin-
kona hennar.
Tommy Lynn Sells handtekinn
Tommy beið ekki boðanna, vakti
Katy og skar utan af henni nátt- og
nærfötin og hófst síðan handa við að
misþyrma henni kynferðislega. Katy
tókst að komast fram úr kojunni og
hrópaði: „Farðu og náðu í mömmu!“
Tommy brá þá hnífnum einu sinni
og fór svo aftan að henni og tvísk-
ar hana á háls og stakk hana síðan
sextán sinnum. Meðan á þessu stóð
hafði Krystal verið stjörf af skelfingu í
efri kojunni og skyndilega tók Tommy
eftir henni, teygði sig til hennar og
renndi hnífnum yfir háls hennar. Að
þessu loknu yfirgaf Tommy heimili
Harris-hjónanna.
En Krystal var ekki dáin en hélt að
allir aðrir væru það. Nærri dauða en
lífi tókst henni að komast yfir til ná-
grannanna sem hringdu á neyðarlín-
una. Katy lifði af og gat gefið lögregl-
unni lýsingu af Tommy og var hann
handtekinn 2. janúar 2000 eftir að
hún bar kennsl á hann af ljósmynd úr
safni lögreglunnar.
Réttarhöldin yfir Tommy hófust
í september sama ár og stóðu í að-
eins þrjá daga. Það tók kviðdóm að-
eins klukkustund að komast að nið-
urstöðu um sekt hans og bíður hann
nú örlaga sinna á dauðadeild fangels-
is í Texas.
42 | Sakamál Umsjón: Kolbeinn Þorsteinsson kolbeinn@dv.is 11.–13. mars 2011 Helgarblað
FARAND-
VERKA-
MORÐ-
INGINN
n Tommy Lynn Sells fullyrti að hann hefði meira en fimmtíu mannslíf á samviskunni,
jafnvel fleiri en sjötíu n Fullyrðingum hans hefur verið tekið með nokkurri varúð
n Litlum vafa er undirorpið að Tommy bar ábyrgð á þó nokkrum hrottalegum morðum
Tommy Lynn Sells
Aldur og kyn skiptu
engu máli þegar
Tommy Lynn myrti.
„Katy tókst
að komast
fram úr kojunni og
hrópaði: „Farðu og
náðu í mömmu!“