Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2011, Qupperneq 45

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2011, Qupperneq 45
Fókus | 45Helgarblað 11.–13. mars 2011 Hvað er að gerast? n Karlakór í Salnum Karlakór Dalvíkur ásamt Eurovision-faranum Matta Matt og rokkhljómsveit ætla að flytja lög Bítlanna og Queen í Salnum á föstudagskvöldið. Lögin verða í rokkuðum útsetningum Guðmundar Óla Gunnarssonar, stjórnanda kórsins. Þessi dagskrá var flutt síðastliðinn vetur bæði sunnan og norðan heiða alltaf fyrir fullu húsi og hefur hlotið einróma lof þeirra er á hafa hlýtt. Tónleikarnir hefjast klukkan 20.30 og kostar miðinn 3.300 krónur. n Óperustund Nemendaóperunnar Nemendaópera Söngskólans í Reykjavík býður gestum á Óperustund í Snorrabúð, tónleikasal skólans að Snorrabraut 54, á föstudagskvöldið klukkan 20. Flutt verða brot úr þekktum óperum á borð við Madama Butterfly, Rósarriddarann, Cosí fan Tutte og Brúðkaup Fígarós. Aðrar sýningar verða á laugardag og sunnudag kl. 16.00. Aðgangur er ókeypis á meðan húsrúm leyfir, en taka má miða frá í síma 552 7366. n Addi Intro á Prikinu Það verður heldur betur fjör á skemmtistaðnum Prikinu á föstudagskvöldið og um nóttina. Kvöldið hefst á þeim Franz og Kristó en þeir byrja að spila klukkan tíu. Plötusnúðurinn Addi Intro heldur svo uppi fjörinu um nóttina og sér til þess að allir skemmti sér almennilega. n 90 ś partí á Spot Það fær enginn leið á tíunda áratugnum eða næntís eins og öll þessi næntís-partí sanna. Á laugardags- kvöldið verður eitt slíkt á skemmtistaðnum Spot í Kópavogi. Þar munu stjórnendur 90 ś-þáttarins Sonic sjá um tónlistina en þeir vita vægast sagt hvað var heitt og ekki á þessum tíma. Veistu af hverju 23 er töff tala? Mættu þá á Spot og skemmtu þér. n Flautukórinn í Hofi Íslenski flautukórinn verður með tónleika í Hofi á laugardaginn en hann skipa um 20 flautuleikarar sem allir taka virkan þátt í íslensku tónlistarlífi. Í Íslenska flautukórn- um er leikið á allar flautur fjölskyldunnar og gott betur eins og heyra má á tónleikunum. Gestir flautukórsins á tónleikunum verða norðlenskir flautuleikarar og nemendur auk Páls Barna Szabó á fagott og Þórarins Stefánssonar á píanó. Miðinn á tónleikana kostar 2.500 krónur. n Alex Shaje í Sjallanum Plötusnúð- urinn Alex Shaje spilar fyrir dansþyrsta Akureyringa í Smirnoff-partíi í Sjallanum á Akureyri á laugardagskvöldið. Alex Shaje hefur spilað með stærstu plötusnúðum heims síðustu mánuði en þar má nefna menn á borð við Axewell úr Swedish House Mafia. Húsið er opnað á miðnætti. n Stórsveitin í Salnum Stórsveit Reykjavíkur verður með tónleika ásamt Bjössa Thor á sunnudaginn klukkan 15.00. Af þessu vill enginn missa en tónleik- ar Stórsveitarinnar bjóða vanalega upp á mikla skemmtun. 11 MAR Föstudagur 12 MAR Laugardagur 13 MAR Sunnudagur atvinna þeirra er. En ég held að það vilji mér til happs að ég er sein- þroska. Ég þarf að treysta á að læra af öðrum og hef lært að vera auðmjúk- ur hvað það varðar. Ég er mjög viljugur að læra og gera betur, mér finnst gott að láta benda mér á hluti og verð ánægður þegar ég finn leið til að gera eitthvað betur eða sigrast á einhverju.“ Samstarfið við Benedict Andrews þótti Atla Rafni skemmtilegt. „And- rews var opinn fyrir hugmyndum og mér finnst skemmtilegast að vinna við þannig kringumstæður. Mér finnst Þjóðleikhúsið hafa gert vel í að fá þennan frábæra leikstjóra til að setja upp Lé á þessum tíma, með fullkominn aðalleikara, Arnar Jóns- son. Það er gott fyrir íslenskt leikhús að fá leikstjóra og leikhúsfólk með annan hugmyndaheim en okkar. Ég hef líka verið að vinna með Þorleifi Arnarssyni en þótt hann sé Íslend- ingur er hann útlendingur í leikhús- inu því áhrif hans koma frá Evrópu þar sem hann hefur starfað. Eins og Benedict Andrews smitar hann frá sér gríðarlegum áhuga og gleði.“ Atli segist hafa verið sérlega heppinn hvað varðar samstarf við leikstjóra og stóran hóp leikara. „Maður lærir eitthvað af öllum. Sér- staklega þeim leikstjórum sem hafa þann hæfileika að þora að segja leikurum sannleikann án þess að þeir fari í kerfi. Leikarar geta tek- ið hluti nærri sér, því starfið er í eðli sínu mjög persónulegt. Það er þess vegna sem leikstjórar þora stundum ekki að segja hluti og leikarar burð- ast því með sína galla árum saman. Þetta er erfitt starf að þessu leyti, þetta er persónulegt og á sama tíma erum við eng- ir smíðagripir.“ Leikhúsið og samfélagið Verkið þykir hafa skír- skotun til samfélagsins og efni þess er Atla hugs- tætt. „Það er alltaf mikilsvert þegar leiksýningar hafa áhrif á þá sem taka þátt í þeim en aðalatriðið er alltaf að inntakið skili sér á öflugan máta til áhorfenda og jafnvel inn í sam- félagsumræðuna. Lér konungur var enginn lýðræðissinni að láta af völd- um. Lér var harðstjóri sem deildi og drottnaði og neyddist til að leggja niður völd. Ef við flytjum efnið til okkar daga fjallar Lér konungur um valdatafl, misbeitingu valds og af- leiðingar þess. Ríkið, þessi Lér, sem heldur öllu niðri þarf að víkja. Hvort sem það heitir einvaldur, alþingi eða ríkis- stjórn. Ég trúi að til þess að það sé mögu- legt að byggja upp nýtt samfélag hér á Íslandi þurfi völdin að færast til fólks sem raunverulega hefur misst en á þó von og lifir ekki í ótta við að missa stöðu sína sem atvinnupóli- tíkusar. Annars held ég að við get- um allt eins framselt valdið til ein- hvers bjúrókrata í Brussel. Mér finnst fólk hér hafa misst trú á stjórn- málamönnum. Í Lé konungi segir: „Hörmungartímum við hljótum að gera skil, hug okkar segjum, í stað þess sem ætlast er til.“ Hér eru menn ennþá að segja það sem ætlast er til á vettvangi stjórnmálanna. Hvernig væri að kjósa nýtt þing? Mér finnst ótrúlegt að sjá að við erum að missa af þessu tækifæri því það lítur allt út fyrir að hér ríki áfram einhver sturl- ungaöld eða það sem verra er, að við séum komin á hinar myrku miðaldir þar sem fólki er haldið í fáfræði, ét- andi skítinn hvert úr öðru. Við þurfum að byggja upp þessi mikilvægustu gildi sem eru hrein- lega trú, von og kærleikur. Ég hef alltaf trúað á mátt einstaklingsins, þarna er ég ekki að segja að það eigi bara hver að redda sér. Það verður að rækta fólk og heilbrigða einstak- linga, vel menntaða, sem eru hrein- ir í huga og hjarta, til þess að verða einhvers megnugir og gera keðjuna sterka. Þannig trúi ég á mátt ein- staklingsins og að kerfið sé byggt þannig upp að einstaklingarnir ráði sem mestu.“ Fram undan hjá Atla eru rólegir tímar. Í lífi leikara skiptast á vinnu- tarnir og frí og Atli ætlar í frítíma sín- um að sinna börnunum sínum og hestunum sínum þremur. „Sýningum á Lé er lokið og ég leik í verkinu Allir synir mínir eftir Mill- er sem frumsýnt var fyrir viku. Fyr- ir utan það verð ég rólegur það sem eftir er vetrar, ég ætla að eyða tíma mínum í það að sinna mínum nán- ustu og hestunum mínum.“ Atli Rafn slær ekki hendinni á móti því að eiga góðan tíma til að hvílast og verja tíma með fjölskyld- unni enda hefur hann lært að end- urmeta hlutina svolítið eftir að hafa lent í slysi við Þjóðleikhúsið fyrir nokkrum árum. Blaðamaður stenst ekki freistinguna og spyr hann nán- ar út í slysið sem var gróteskt, svo vægt sé til orða tekið, en Atli fékk spýtubút úr stillansa í hausinn og fékk stóran skurð sem varð til þess að það flettist af honum höfuðleðrið og tveir hálsliðir brotnuðu. „Það var verið að gera við Þjóðleikhúsið og það átti eftir að setja varnarnet utan um stillansana. Það var hrikalegt rok þetta kvöld og ég var að koma af sýn- ingu. Ég fékk spýtu úr stillansanum í hausinn og hefði sjálfsagt drepist ef ég hefði rotast við höggið. Það var mér hins vegar til happs að ég missti ekki meðvitund, ég hljóp alblóðug- ur inn í leikhús með opinn haus og fékk hjálp. Ég var sendur á sjúkra- hús og þar var höfuðleðrið saumað saman.“ Atli verð stundum þreyttur og stífur við mikið álag og er þakklát- ur því að eftirköstin séu ekki meiri. „Ég er heppinn að hafa ekki drepist eða orðið alveg geðveikur. Ég vakti mikið eftir slysið og hugsaði um þá staðreynd að ég hefði getað drepist. Ég var nokkur ár að jafna mig fylli- lega en eftirköstin eru þau að ég fæ höfuðverki og er stífur í hálsinum og þarf að gera æfingar til að liðka mig.“ kristjana@dv.is Heppinn að vera „En ég held að það vilji mér til happs að ég er seinþroska. „Ég er heppinn að hafa ekki drepist eða orðið alveg geðveikur. Fékk spýtu í hausinn og höfuðleðrið flettist af Atli Rafn er fyrir löngu kominn yfir slysið en er heppinn að glíma ekki við alvarlegri afleiðingar af höfuð- högginu. Atli og Skotta Hundur Atla Rafns, hún Skotta, var í miklu fjöri þegar blaðamaður heimsótti hann á heimili hans við sjávarsíðuna í Reykjavík.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.