Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2011, Blaðsíða 52
52 | Tækni Umsjón: Páll Svansson palli@dv.is 11.–13. mars 2011 Helgarblað
HAFNARGÖTU 90 REYKJANESBÆ S: 414 1740 • EYRARVEGI 21 SELFOSSI S: 480 3700 • GARÐARSBRAUT 18A HÚSAVÍK S: 464 1600 • GLERÁRGÖTU 36 AKUREYRI S: 460 3380 • SUÐURLANDSBRAUT 26 REYKJAVÍK S: 569 1500
ht.is
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
HÁGÆÐA SJÓNVARP
42 TOMMUR
100Hz CLEAR LCD
Philips 42PFL5405H
42” Full HD 1080p LCD sjónvarp með 1920x1080
upplausn, Pixel Plus HD, Progressive Scan, HD natural
motion, 100Hz Clear LCD, 100.000:1 skerpu, 2ms
svartíma, 40w RMS Virtual 2.1 hljóði, stafrænum
HDTV DVB-T móttakara, USB, VGA, Scart, 3x HDMI ofl.
TILBOÐ
FULLT VERÐ 229.995
159.995
webOS
í allar HP-tölvur
Á næsta ári munu allar tölvur frá HP hafa
tvö stýrikerfi. webOS-kerfið sem HP hefur
nú uppfært fyrir TouchPad-spjaldtölvuna
verður sett á allar nýjar tölvur sem koma
frá fyrirtækinu en eins og áður verður
Windows-kerfið einnig til staðar. Hewlett
Packard selur mestan fjölda tölva í heiminum
í dag og er þessi ákvörðun talin vera til að
laða að forritaþróendur fyrir webOS en búast
má við því að kerfið verði til staðar á tugum
milljóna tölva innan tveggja ára. Ekki er vitað
hvort þessi útgáfa webOS verði frábrugðin
þeirri fyrir TouchPad.
Explorer og Safari
hakkaðir í spað
Á CanSecWest-öryggisráðstefnunni sem
haldin var í vikunni fór fram árleg samkeppni
„hakkara“ sem felst í því að þátttakendur
reyna að finna glufur í öryggisneti stærstu
netvafranna og brjótast þannig inn í tölvur
notenda. Mikla athygli vakti þegar kom í
ljós að nýjustu útgáfur Safari frá Apple og
Internet Explorer frá Microsoft létu fljótt
undan aðferðum þátttakenda. Þannig tók
það aðeins 5 sekúndur fyrir franska öryggis-
fyrirtækið VUPEN að brjóta niður varnir
Safari-vafrans, en fyrirtækið hafði útbúið
sérstaka vefsíðu sem opnuð var í vafranum.
Næsti þátttakandi, Harmony Security, lagði
Explorer-vafrann með svipuðum hætti. Að
sögn tók það um einn og hálfan mánuð að
undirbúa árásina á vafrann.
Stýrikerfi iOS 4.3
Örgjörvi 1Ghz tvíkjarna A4
Vinnsluminni 512MB eða 1GB?
Forrit 40 þús.+ iPad-forrit hjá App Store; 300 þús + samhæfð iPhone-forrit
Flash- stuðningur Nei
Fjölvinnsla Já, með nýjustu iOS uppfærslunni
Skjár 24,6 cm 4:3 IPS-skjár
Vídd og upplausn 1024 x 768 pixlar - 132 pixlar á tommu
Myndavélar HD (720p) á bakhlið og VGA (640 x 480) að framan.
Tengi Apple-kvíartengi, HDMI, Micro-SIM í 3G útfærslu
Leiðsögukerfi Áttaviti, GPS hjálparleiðsögn (assisted GPS - eingöngu í 3G útfærslu)
Geymslurými 16, 32 eða 64 GB
Þráðlaust Wi-Fi, Blátönn, 3G (í sumum útfærslum)
Áætlaður endingartími rafhlöðu 10 klukkutímar
Ummál 24 cm x 18,5 cm x 0,9 cm
Þyngd 613 grömm
Apple iPad 2
Stýrikerfi Android 3 (Honeycomb)
Örgjörvi 1GHz tvíkjarna NVIDIA Tegra 2
Vinnsluminni 1GB
Forrit Rúmlega 100 þúsund Android forrit
Flash- stuðningur Já
Fjölvinnsla Já
Skjár 25,7 cm, hlutföll nálægt 16:9 eða breiðtjaldsskjá
Vídd og upplausn 1280 x 800 pixlar
Myndavélar 5 MP á bakhlið, 2MP að framan
Tengi micro-USB, HDMI (video out)
Leiðsögukerfi Áttaviti og GPS
Geymslurými 32 GB og SD-kort að auki
Þráðlaust Wi-Fi, Blátönn, 3G, uppfæranleg í 4G. Hægt að búa til eigin „heitan reit“.
Áætlaður endingartími rafhlöðu 10 klukkutímar
Ummál 24,9 cm x 16,8 cm x 1,3 cm
Þyngd 725 grömm
Motorola Xoom
Útlit
Hvað sem menn vilja segja um Apple
er það ótvírætt að útlitshönnun og
viðmót eru alltaf í hæsta gæðaflokki.
iPad 2 er þynnri og straumlínulagaðri
en forveri sinn og býðst nú einnig í
hvítri útfærslu samhliða hinni hefð-
bundnu svörtu. Xoom er nánast upp
á millimetra jafnþykk og fyrsta kyn-
slóð iPad. Tölvan er ekki með stóran
hnapp (home button) í ramman-
um því Motorola hefur valið að hafa
stýrihnappa í skjánum sjálfum.
Afl
Báðar tölvurnar eru með 1GHz tví-
kjarna örgjörva og ómögulegt um að
segja á þessari stundu hvor sé betri.
Apple hefur enn ekki gefið upp hvort
vinnsluminnið í iPad 2 sé 512MB eða
1GB. Xoom er með 1GB.
Skjár
Apple ákvað að breyta í engu skján-
um frá fyrri útgáfu. Upplausn og
hlutföll eru sem fyrr 1024 x 768 – 4:3.
Xoom er hins vegar með hærri upp-
lausn, 1280 x 800 og nærri því 16:9
hlutföll eða breiðtjaldsskjá. Þetta
gerir Xoom að vænlegri kosti fyrir
kvikmyndaáhorf.
Myndavélar
Báðar tölvurnar skarta sinni mynda-
vélinni hvorri á framhlið og bakhlið.
Apple hefur hins vegar ekki gefið
upp nákvæm gæði sinna véla, seg-
ir aðeins að vélin á bakhlið geti tek-
ið upp í 720p en það getur þýtt að
sú myndavél sé einungis 1,3 mega-
pixla. Myndavélin á framhlið er sögð
í VGA-gæðum eða 640 x 480. Xoom
er með vinninginn að þessu leyti, 5
megapixla vél á bakhlið með sjálf-
virkum fókus og flassi og 2 megapixla
vél á framhlið.
Forrit
Í öllum samanburði iOS og Android
er fjöldi forrita sem hægt er að nálg-
ast fyrir kerfin talinn upp. Minna er
sagt um að meirihluti þessara forrita
er rusl. Hvort að fjöldinn sé 100 þús-
und eða 300 þúsund skiptir því litlu.
Fyrir bæði kerfin eru til gagnleg og
góð forrit, innbyggð, frí eða hægt að
kaupa. Og í fjölmörgum tilvikum er
það sami aðili sem býr til hvað bestu
forritin fyrir bæði kerfi. Honeycomb
er hins vegar fyrsta Android-kerfið
sem er sérsniðið fyrir spjaldtölvur og
eðlilegt að fyrst um sinn verði úrval
forrita þar fábrotnara.
Verð
Verð á ódýrustu útgáfu iPad 2, 16GB
Wi-Fi, er um 90 þúsund hér á landi
(epli.is og macland.is), en dýrasta út-
gáfan sem er 64GB Wi-Fi + 3G er á
150 þúsund krónur.
Ekki er vitað um verð á Motorola
Xoom þegar hún kemur til landsins
en miðað við verð í Bandaríkjunum
verður hún nokkuð dýrari.
palli@dv.is
Motorola Xoom-spjaldtölvan kom á markað í
Bandaríkjunum fyrir stuttu og önnur kynslóð iPad-
tölvunnar leit síðan dagsins ljós í síðustu viku. Xoom
er álitin sú spjaldtölva sem gæti veitt iPad hvað
mesta samkeppni og því ekki úr vegi að bera saman
innviði og aðra eiginleika þessara tölva.
Heimsmet
hjá Microsoft
Kinect, Xbox-jaðartækið frá Microsoft sem
kom á markað í byrjun nóvember, hefur
hlotið frábærar viðtökur undanfarna mánuði.
Heimsmetabók Guinness hefur nú skráð sölu
á Kinect sem nýtt heimsmet en frá því að
það kom á markað hafa selst um 10 milljónir
eintaka sem er met í þessum vöruflokki
rafeindatækja. Með þessu áhugaverða
jaðartæki geta eigendur Xbox-leikjatölva
notað líkama sinn og handahreyfingar í Xbox
360-leikjum.
iPad 2 og Xoom
bornar saman „Xoom er með 5 megapixla myndavél á bakhlið með sjálfvirkum fókus og flassi.
Motorola Xoom og
iPad 2 Báðar tölvurnar
eru með 1GHz tvíkjarna
örgjörva. Xoom er með
vinninginn í myndavélum
en er dýrari.