Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2011, Page 54
54 | Sport 11.–13. mars 2011 Helgarblað
MESTU EFNIN
Í BOLTANUM
Það er aldrei skortur á ungum og efnilegum fótboltamönnum sem líklegir eru til að
slá í gegn. The Sun tók saman tíu efnilegustu fótboltamennina í dag en þessi nöfn er
vert að leggja á minnið fyrir framtíðina. Þeir eru allir undir tvítugu en nú þegar eftir-
sóttir af öllum helstu stórliðum heims.
ROMELU LUKAKU
Lið: Anderlecht
Staða: Framherji
Aldur: 17 ára
Þessi sautján ára piltur er einfaldlega
eðlisfræðilegt undur og vilja margir meina
að hann sé ekkert sautján ára gamall. Hann
er 193 sentimetrar og 88 kíló af vöðvum.
Í fyrra, þá sextán ára gamall, varð hann
markahæsti leikmaður belgísku úrvalsdeild-
arinnar en hann skoraði 19 mörk í 45 leikjum. Á þessu tímabili hefur
hann haldið áfram markaskoruninni og raðar nú inn mökum. Real
Madrid, Chelsea og Arsenal hafa elt Lukaku lengi en þá helst Arsenal
sem hefur fylgst með drengnum frá því hann var fjórtán ára gamall.
COUTINHO
Lið: Inter
Staða: Miðjumaður
Aldur: 18 ára
Rafael Benitez gerði ekki margt rétt á
sínum tíma hjá Inter en eitt gerði hann þó
vel. Hann gaf átján ára Brassa að nafni
Coutinho sinn fyrsta leik með Inter-liðinu
en hann hefur vakið nokkra athygli á
tímabilinu. Coutinho kom til Inter árið
2008 en vegna reglna um útlendinga mátti hann ekki spila fyrr en
á þessu tímabili. Coutinho þykir einstaklega góður að rekja boltann
og sækir alltaf á markið. Stuðningsmenn Inter eru nú þegar farnir að
kyrja nafn hans á pöllunum.
ERIK LAMELA
Lið: River Plate
Staða: Miðjumaður
Aldur: 18 ára
Erik Lamela er barnastjarna í orðsins
fyllstu merkingu. Hann var svo góður sem
gutti að Barcelona reyndi að kaupa hann
þegar pilturinn var aðeins tólf ára gamall.
Þessi átján ára Argentínumaður, sem
þykir mesta efnið þar í landi, afþakkaði
félagaskipti til Barcelona því hann vildi spila með sínu liði. Í dag er
hann orðinn lykilmaður hjá River Plate og það þýðir bara eitt: Stóru
liðin eru mætt aftur á vaktina. Real Madrid, AC Milan, Juventus og
Manchester City eru öll talin hafa áhuga á að kaupa piltinn í sumar en
hann er verðlagður í dag á tíu milljónir punda.
MARIO GOTZE
Lið: Borussia Dortmund
Staða: Miðjumaður
Aldur: 18 ára
Ungliðar Borussia Dortmund eru nánast
orðnir meistarar í Þýskalandi. Meðalaldur
liðsins er ekki nema 22 ár en einn átján
ára, Mario Gotze, hefur vakið hvað mesta
athygli. Gotze spilar á miðjunni og þykir
hafa ótrúlegan leikskilning þrátt fyrir
ungan aldur. Þá er hann hvergi banginn við sér eldri og reyndari
menn. Mario Gotze er nú þegar kominn inn í landsliðshóp Þýska-
lands og er sagt að Manchester United fylgist vel með framgöngu
piltsins.
GEORGI SCHENNIKOV
Lið: CSKA Moskva
Staða: Varnarmaður
Aldur: 19 ára
Þrátt fyrir ungan aldur er Schennikov
nú þegar búinn að leika hátt í hundrað
leiki fyrir CSKA en hann spilar sem vinstri
bakvörður. Hann er einnig búinn að fá
tækifæri með landsliðnu og þykir eitt
mesta efnið í Rússlandi. Hann þótti
standa sig frábærlega í Meistaradeildinni gegn Manchester og
Valencia og vakti frammistaða hans áhuga stærri liða. Þó má ekki
gleyma að CSKA er styrkt duglega af Roman Abramovich þannig að
það ætti ekki að koma neinum á óvart ef Schennikov endaði í bláum
búningi Chelsea.
ALEX CHAMBERLAIN
Lið: Southampton
Staða: Miðjumaður
Aldur: 17 ára
Það er kannski svolítið skrýtið að sjá
leikmann sem spilar í þriðju efstu deild
á þessum lista. Þó má ekki vanmeta
akademíu Southampton sem hefur alið
af sér menn á borð við Theo Walcott og
Gareth Bale. Hvað er svo sérstakt við
Chamberlain? Hann er fyrst og fremst ótrúlega hraður, hefur næmt
auga fyrir spili og skorar mikið af miðjumanni að vera. Það vita allir
í Southampton að hann er að spila sitt síðasta tímabil þar en fá lið
hafa meiri áhuga á honum en Arsenal.
CONNOR WICKHAM
Lið: Ipswich
Staða: Framherji
Aldur: 17 ára
Þessi sautján ára piltur hefur verið að
gera það heldur betur gott með Ipswich
í Championship-deildinni. Hann er risi
miðað við aldur, 191 sentimetrar og nýtir
hæð sína vel. Wickham fór gjörsamlega á
kostum á Evrópumóti U17 ára landsliða í
fyrra sem England vann. Þar einfaldlega hljóp hann í gegnum varnir
andstæðinganna. En hann er ekki bara stór. Wickham er góður að
klára færin sín og er með frábæra fyrstu snertingu. Það þykir næsta
víst að hann færi sig til stærra liðs í sumar.
Lið: Santos
Staða: Framherji
Aldur: 18 ára
Neymar er án efa eftirsóttasti ungi
leikmaður í heiminum í dag. Það eru
einfaldlega öll stórliðin á eftir honum.
En hvað er hann þá enn að gera í Santos?
Fyrr á árinu ákvað þessi ungi Brassi sem
oft er nefndur hinn nýi Pele að hann væri
ekki tilbúinn að fara til stærra liðs alveg strax. Sjaldan hafa fréttir
af nýjum samningi átján ára stráks í Brasilíu vakið jafnmikla athygli
enda eru margir á því að Neymar verði besti leikmaður heims. Þegar
hann loks fer til Evrópu er alveg bókað að hann muni slá í gegn.
THIAGO
Lið: Barcelona
Staða: Miðjumaður
Aldur: 19 ára
Knattspyrnuakademía Barcelona, La
Masia, er margrómuð fyrir gæði sín en
sex leikmenn spænska landsliðsins
sem byrjuðu úrslitaleikinn á HM lærðu
fótboltafræðin þar. Upp er að koma nýtt
undur, nítján ára Brassi að nafni Thiago,
sem hefur fengið nokkra leiki með aðalliðinu. Hann þykir einstaklega
góður sendingamaður og er að fá viðurnefnið hinn nýi Xavi. Samning-
ur hans rennur þó út í sumar og svo gæti farið að peningamaskínurn-
ar á Englandi nýti sér það tækifæri og sæki hann yfir hafið.
JOSH MCEACHRAN
Lið: Chelsea
Staða: Miðjumaður
Aldur: 17 ára
Það er nánast ómögulegt fyrir unga leik-
menn að fá tækifæri með aðalliði Chelsea
enda nóg af peningum þar og heimsklas-
samenn í öllum stöðum, meira að segja á
bekknum. Einn sautján ára gutti er þó búinn
að koma reglulega inn af bekknum og vekja
mikla athygli en það er Josh McEachran. Þó hann sé ekki stór og sterkur
bætir hann það upp með afbragðs sendingargetu og er hann nú þegar
kominn í U21 árs landslið Englands, sautján ára gamall.
NEYMAR