Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2011, Síða 64
Læk á það!
Ómarktæk könnun
n Icesave-andstæðingurinn Jón
Valur Jensson var fljótur að komast
að þeirri niðurstöðu að ný Icesa-
ve-könnun
Capa cent-Gallup
væri „borguð eða
lítt marktæk,“
eins og hann
orðaði það á
bloggsíðu sinni
en könnunin
sýndi fram á
63 prósent
stuðning við samninginn, hjá þeim
sem tóku afstöðu. Þrennt nefndi
Jón Valur máli sínu til stuðnings.
Í fyrsta lagi sagði hann að aðrar
skoðanakannanir bentu í þveröfuga
átt. Í öðru lagi væri það almenn
reynsla fólks að „flestir kunningjar
og samstarfsmenn mæla gegn
Ice save-samningnum“. Þriðja skot-
helda dæmið sem Jón Valur nefndi
var að almennur straumur gegn
Icesave væri augljós sem sæist best
á þeim yfirgnæfandi fjölda hlust-
enda Útvarps Sögu sem hringdi inn
og lýsti sig andvígan samningnum.
Vel að ölinu komnir
n Handboltamennirnir og lands-
liðsmennirnir Alexander Petterson,
Sverre Jakobsson og Vignir Svavars-
son fögnuðu góðum sigri á sterku
liði Þjóðverja með því að skella
í sig nokkrum köldum bjórum á
Ölstofu Kormáks og Skjaldar á
miðvikudagskvöld. Sjónarvottar
segja að þeir hafi tekið því rólega
með öl í hönd þar sem þeir gáfu sig
á spjall við aðra gesti Ölstofunnar.
Landsliðsmennirnir unnu vel fyrir
bjórsopanum þetta
kvöldið þegar þeir
unnu glæsilegan
sigur á Þjóðverj-
um í Laugardals-
höll, en lokatölur
urðu 36–31.
Steini í Kók og ástin
n Þorsteinn M. Jónsson, eða Steini í
Kók, fyrrverandi eigandi Vífilfells,
hefur fundið ástina. Sú heppna er
Ingibjörg Egilsdóttir sem kjörin var
ungfrú Ísland árið 2009 en hún er
22 árum yngri en Steini. Þau hafa
samkvæmt heimildum ruglað
saman reytum frá því fyrr í vetur.
Til marks um alvarleika sam-
bandsins má nefna að hann skráði
það formlega á Facebook í gær,
fimmtudag. Hermt er að þó Steini
hafi misst Vífilfell vegna milljarða-
skulda komi hann með einum eða
öðrum hætti að rekstr-
inum en eins og
greint var frá
fyrir skemmstu
sá hann sjálfur
um að finna
kaupendur
að fyrirtækinu
og gekk frá
samkomulagi
um sölu þess.
„Okkur finnst að hér á Akureyri
sé enginn að gæta sjónarmiða al-
mennings,“ segir Björn Þorláksson,
fréttamaður og einn þeirra sem
vinna nú að stofnun nýs fjölmiðils
á Akureyri. Björn segir að annað-
hvort verði um að ræða dagblað
eða vefmiðil þó draumurinn sé að
gefa út blað. Nú er unnið að því
að kanna áhuga fjárfesta og von-
ast Björn til að fjölmiðillinn fæð-
ist fljótlega. „Ef það reynist grund-
völlur fyrir þessu þá verður það alla
vega ekki síðar en næsta haust en
jafnvel eftir nokkrar vikur.“
Björn segir að hópur hugsjóna-
fólks standi að baki hugmynd-
inni og segir hann að fjölmiðlun á
Akur eyri sé í slæmum farvegi. „Það
er eiginlega sögulega ömurlegt
ástand í akureyrskri fjölmiðlun í
augnablikinu. Það voru margir tug-
ir fólks að vinna við blaðamennsku
fyrir nokkrum árum. Þeir sem eru
að vinna fréttir og grafast fyrir um
mál eru teljandi á fingrum annarr-
ar handar í dag,“ segir Björn og bæt-
ir við að krafan um gagnrýnni fjöl-
miðlun hafi aukist síðustu misseri,
samfara uppbyggingu þekkingar-
samfélags á Akureyri með Háskól-
anum á Akureyri.
Eins og staðan í íslensku sam-
félagi er í dag er ekki auðvelt að
stofna nýjan fjölmiðil. Björn segir
að til að verkefnið gangi upp þurfi
margir að taka á sig veigamikla
sjálfboðavinnu. „Við áttum okk-
ur alveg á því að til að þetta rætist
þarf hellingur af fólki að leggja á sig
ómælda sjálfboðavinnu til að byrja
með. Sem stendur hefur það orðið
að samkomulagi að menn taki sér
ekki laun í þessu öllu heldur verði
þetta grasrótarvinna.“ Hann tekur
það þó fram að það muni ekki koma
niður á gæðum fjölmiðlilsins. „Þeir
sem myndu starfa við skriftir yrðu
að hafa annað hvort menntun eða
starfsreynslu því við lítum á blaða-
mennsku sem mjög sérhæft, flókið
og faglegt starf.“ einar@dv.is
Björn Þorláksson fer fyrir hópi hugsjónafólks á Akureyri:
Nýr fjölmiðill í fæðingu
Tropical Playa
Gott þriggja stjörnu íbúðahótel á Playa de las Américas, staðsett um 500
metra frá miðbænum og Playa de Troya ströndinni.
22. mars – 5. apríl
Verð frá 103.600 kr.*
og 15.000 Vildarpunktar
M.v. 2 fullorðna studio íbúð.
Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting og íslensk fararstjórn.
*Verð án Vildarpunkta 113.600 kr.
Tenerife
og Kanarí
Hálft fæði
Tenerife
Kanarí Það var þessi þægilegheitatilfinning
sem við höfðum í huga þegar við
settum nýtt afþreyingarkerfi í
flugflota Icelandair. Hver farþegi
hefur sinn eigin skjá þar sem er
í boði án endurgjalds fjölbreytt
úrval af kvikmyndum, vinsælum
sjónvarpsþáttum, tónlist og tölvu-
leikjum. Hver og einn velur sína
eigin dagskrá og getur auk þess sótt
upplýsingar um flugferðina sjálfa og
margt fleira.
Beint morgunflug,
glæsilegur farkostur.
Eugenia Victoria
Snyrtilegt og mjög vel staðsett hótel í miðbæ Ensku strandarinnar en
ströndin er í um tíu mínútna göngufjarlægð. Öll aðstaða á hótelinu er
til mikillar fyrirmyndar og hafa gestir aðgang að glæsilegri heilsulind.
16. mars - 23. mars
Verð frá 93.500 kr.*
og 15.000 Vildarpunktar
M.v. 2 fullorðna í tvíbýli.
Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting með hálfu fæði og íslensk
fararstjórn.
*Verð án Vildarpunkta 103.500 kr.
VITA - ferðaskrifstofa á traustum grunni
Flugsæti
Verð frá 49.800 kr.*
og 15.000 Vildarpunktar
22. mars Tenerife
16. mars Kanarí
Innifalið:
Flug fram og til baka og flugvallarskattar.
* Verð án Vildarpunkta 59.800 kr.
Tilbo
ðið g
ildir
til
16. m
ars!
Einst
akt v
erð!
VITA er lífið
VITA | Skútuvogi 13a | Sími 570 4444 | VITA.is
Skráðu þig í netklúbbinn - VITA.is
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 11.–13. MARS 2011 30. TBL. 101. ÁRG. LEIÐB. VERÐ 595 KR.
Slæmt ástand Björn segir að það sé
sögulega ömurlegt ástand í fjölmiðlun á
Akureyri.