Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2012, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2012, Side 2
2 Fréttir 16.–18. mars 2012 Helgarblað Logandi deilur í Fríkirkjunni Á dögunum sögðu fjórir af sjö aðalfulltrú- um í safnaðar- ráði Fríkirkjunn- ar sig úr ráðinu „vegna óásætt- anlegrar fram- göngu“ Hjartar Magna Jóhanns- sonar fríkirkjuprests. Þetta hafi verið í „mörgum málum, bæði gagnvart starfsfólki safnaðarins og okkur í safnaðarráðinu í langan tíma,“ segir í tilkynningu frá þeim fjórum. Sam- kvæmt heimildum DV höfðu þessir einstaklingar reynt að fá vinnufrið og samstarfsvilja frá Hirti Magna í mörg ár án árangurs. Kornið sem fyllti mælinn var að Hjörtur Magni vildi losna við Bryndísi Valbjarnardóttur fríkirkjuprest úr sókninni. Flúði undan Hirti „Þetta voru svona persónulegar árásir. Hann var stöðugt að segja manni hversu ómögulegt þetta og hitt væri. Það var ekki bara skortur á hrósi heldur var verið að grafa undan sjálfstrausti.“ Þannig lýsir Ása Björk Ólafsdóttir prestur fram- komu Hjartar Magna Jóhanns- sonar fríkirkjuprests í sinn garð. Hún starfaði um sex ára skeið við Fríkirkjuna, fyrst sem kirkjuvörður og síðar prestur. Ása lýsir ástand- inu sem slæmu einelti og hraktist hún úr starfi árið 2008, niðurbrotin eftir samskiptin við Hjört Magna. Ítarlega var fjallað um deilur innan kirkjunnar í vikunni. Skotið á hús Hilmars Skotið var á heimili Hilmars Leifs- sonar í Kópa- vogi þann 21. febrúar síðast- liðinn. Sam- kvæmt heimild- um DV tengist hinn meinti árásarmaður undir- heimum Reykjavíkur. Engin meiðsli urðu á fólki við skotárásina en skot- vopnið sem notað var ku ekki að hafa verið mjög öflugt. Skotið fór þó í gegnum rúðu í húsinu. Ólga ku vera í undirheimum vegna atviks- ins en að minnsta kosti einn þeirra sem grunaður er um skotárásina á að tengjast Outlaws-samtökunum. Spenna mun vera í loftinu vegna árásarinnar og óttast er að hennar kunni að verða hefnt. Fréttir vikunnar í DV 1 2 3Ostborgari franskar og 0,5l gos Máltíð Mánaðarins Verð aðeins 1.045 kr. d v e h f. 2 0 12 / d av íð þ ó r Stigahlíð 45-47 | Sími 553 8890 *gildir í mars Landsdómur: Óvíst með kostnað Það mun ekki liggja fyrir fyrr en réttarhöldunum í landsdómi lýkur hver endanlegur kostnaður við réttarhöldin verður. Á fjárlögum 2011 var veitt 113,4 milljóna króna fjárheimild til landsdóms. Samkvæmt upplýsingum frá innanríkisráðuneytinu byggist fjár- hæðin á áætlun sem unnin var af skrifstofustjóra Hæstaréttar og var hún gerð með fyrirvara um hve margir yrðu kallaðir til vitnis fyrir dóminn og hve langan tíma réttarhaldið myndi standa. Þar sem ekki tókst að klára málið á síðasta ári, eins og til stóð, flyst fjárveiting- in árið 2011 óskipt til ársins 2012 og er því engin viðbótarfjárveiting á fjárlögum þessa árs. Dómurinn ákvarðar síðan sjálfur þóknun fyrir dómarana og það verður því sem fyrr segir ekki fyrr en réttarhaldinu lýkur sem endanlegur kostnaður verður ljós. Ögmundur Jónasson innanrík- isráðherra sagði þann 7. apríl 2011 í svari við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þingmanns Sjálf- stæðisflokks, að ef meðferð málsins yrði ekki lokið fyrir árslok 2011 gæti einhver kostnaður lagst til á næsta ári. Því er ekki loku fyrir það skotið að kostnaður vegna landsdóms- málsins gegn Geir H. Haarde verði meiri en 113,4 milljónir króna. Röng mynd Í miðvikudagsblaði DV var röng mynd birt með frétt um skíðaferð sem meðlimir í eignarhaldsfélag- inu Stími fóru með starfsmönnum Glitnis, eftir að Stím fékk 20 millj- arða króna að láni frá Glitni til að kaupa bréf í bankanum. Með frétt- inni birtist mynd af starfsmanni sérstaks saksóknara í stað myndar af Jóhannesi Baldurssyni, starfs- manni Glitnis. Myndin að ofan er af Jóhannesi. E f unglingsdóttir þín er orð- in dálítið mislynd og erfið í umgengni, þarftu ekki endi- lega að hafa áhyggjur,“ seg- ir í markpósti sem fyrirtækið Íslensk Ameríska sendir til foreldra þrettán ára táningsstúlkna á kyn- þroskaskeiðinu til fræðslu um dömu- bindi og væntanlegar breytingar við kynþroska. Í bréfinu er stálinu stapp- að í foreldra stúlknanna og þeim sagt að slaka á, þótt kynþroskaskeiðið taki ef til vill einhver ár þá verði tánings- dætur þeirra að lokum aftur eins og þær eiga að sér að vera. Dömubindi og túrtappar eru meðfylgjandi ásamt bæklingi með yfirskriftinni „kyn- þroski og allt það“. Á umslag sendingarinnar er rit- að: „Passið ykkur, ég er að breyt- ast í dramadrottningu.“ Umslagið er skreytt með ljósmyndum af ung- lingsstúlku og, að því er virðist, leik- rænni tjáningu hennar á geðsveifl- um táningsstúlkna á blæðingum. Þá er stálinu stappað í foreldra og þeim sagt að „slaka bara á“ þótt dóttirin breytist í dramadrottningu. Klisjur og fordómafullar hugmyndir „Þetta eru þvílíkar klisjur og for- dómafullar hugmyndir um konur,“ segir Kristín Ástgeirsdóttir, fram- kvæmdastýra Jafnréttisstofu, um málið. DV bar bréfið til foreldra und- ir hana. „Þarna er verið að gera full- komlega eðlilegan hlut að einhverju fyrirbæri. Þetta er aftan úr fornöld. Maður verður orðlaus að sjá svona gamaldags hugmyndir og alhæfing- ar. Auðvitað finna einhverjar konur fyrir pirringi og verkjum,“ segir Krist- ín. Silvía Svavarsdóttir dagmóðir tek- ur í sama streng en dóttir hennar fékk markpóst frá fyrirtækinu. „Ég hefði tekið þessum pósti með gleði ef þeir hefðu bara óskað barninu mínu til hamingju með að vera komin á kynþroskaaldurinn. Stelpur verða að kynna sér dömu- bindi en að ýja að því að þær séu að breytast í dramadrottningar er kannski ekki alveg við hæfi,“ segir Silvía. Hún segir skilaboð fyrirtækis- ins ýta undir hugmyndir um að allar konur séu önugar dramadrottningar þegar þær eru á blæðingum. „Erum við konur þá bara allar dramadrottn- ingar?“ Silvía ítrekar að hún sé ekki ósátt við kynningu á dömubindum en finnist framsetningin ekki falleg. Fjórir kvartað á fimm árum „Við höfum sent þennan póst út í fimm ár og það eru nákvæmlega fjór- ir sem hafa kvartað til okkar frá upp- hafi,“ segir Berglind R. Guðmunds- dóttir, vörumerkjastjóri hjá Íslensk Ameríska. Raunar hafi reynsla fyrir- tækisins iðulega verið sú að margir sem ekki fái pakkann sendan hringi og óski þess. Fyrirtækið sendi póst- inn ekki á þá foreldra sem séu x- merktir í þjóðskrá, enda sé slíkt ekki heimilt. „Það er að sjálfsögðu allt- af í höndum foreldra hvort þeir vilji deila þessu með börnunum sínum eða ekki. Þess vegna er þetta stílað á foreldra,“ segir Berglind en ítrekar að almennt hafi fyrirtækið talið ánægju ríkja með markpóstinn. Berglind bendir einnig á að hjúkrunarfræð- ingar í skólum hafi leitað til fyrir- tækisins og óskað þess að fá fræðslu- pakka fyrir stúlkur. Þá hafi þær raddir heyrst að senda ætti pakkann fyrr til stúlkna enda sé almennt talað um að stúlkur byrji á blæðingum á aldurs- bilinu níu til sextán ára. Að brjóta ísinn Blaðamaður spurði Berglindi hvort hún óttaðist ekki að sending fyrir- tækisins ýtti undir fordóma og stað- alímyndir um að konur séu almennt önugar, pirraðar og jafnvel hyster- ískar þegar þær fara á blæðingar. „Ég held ekki að verið sé að segja að konur séu önugar, leiðinlegar og hysterískar. Það stendur hvergi í þessum markpósti. Aftur á móti er spurt hvort dóttir þín sé að breyt- ast í dramadrottningu og þér ráðlagt að slaka bara á.“ Berglind bendir á að fyrirmyndin sé bresk og að þessi setning sé tilraun til að brjóta ísinn. Aðspurð hvort unglingspiltum yrði lýst sem illa lyktandi óargadýrum í sölubréfum fyrirtækisins á svitalykt- areyði sagðist hún ekki geta svarað því en benti á að Íslensk Ameríska væri ekki stærsti söluaðili slíkrar vöru hér á landi. Brugðist við ábendingum Við vinnslu fréttarinnar kom fram að fyrirtækið hefði aldrei áður fengið ábendingu um að efni markpóstsins gæti ýtt undir staðalímyndir. Stuttu eftir að DV leitaði til fyrirtækisins óskaði Íslensk Ameríska þess af jafn- réttisstofu og umboðsmanni barna að farið yrði yfir málið. n Íslensk Ameríska stappar stálinu í foreldra 13 ára táningsstúlka „Mislyndar og erfiðar“ „Þetta eru þvílíkar klisjur og fordóma- fullar hugmyndir um konur. Atli Þór Fanndal blaðamaður skrifar atli@dv.is Passið ykkur Fræðslupakki fyrirtækisins til foreldra „mislyndra“ unglingsstúlkna inniheldur bréf til foreldra, dömubindi og túrtappa auk fræðslubæklings fyrir stúlkur um „kynþroska og allt það“. „Aftan úr fornöld“ Kristín Ástgeirsdóttir er framkvæmdastýra Jafnréttisstofu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.