Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2012, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2012, Síða 13
Fréttir 13Helgarblað 16.–18. mars 2012 MATAR & KAFFISTELLUM HNÍFAPÖRUM SWAROVSKI SKARTGRIPUM ÖLLUM GLÖSUM IITTALA VÖRUM ÍTÖLSKUM HITAFÖTUM og fleiru og fleiru t.d. fallegum fermingargjöfum NÝTT KORTATÍMABIL www.tk.is ERUM EINGÖNGU Á LAUGAVEGI 178 Laugavegi 178 - Sími. 568 9955 FIMMTUDAG, FÖSTUDAG, LAUGARDAG & MÁNUDAG AFSLÁTTUR AF ÖLLUM vertu vinur á Facebook Í TÉKK-KRISTAL Hnífaparatöskur 14 teg. TILBOÐ 8 stærðir Full búð af fallegum vörum hræddist ekkert og hugsaði ekki um afleiðingarnar. Ég þekkti bara þessa leið og þekkti hana vel.“ Annþór „hótaði mér og fjöl- skyldu minni“ Annþór ógnaði meðal annars Mikael Torfasyni, fyrrverandi ritstjóra DV, í kjölfar umfjöllunar um hann í blaðinu árið 2005. Gekk hann svo langt að dvelja fyrir utan heimili Mikaels og hafa í hótunum. Fyrrverandi eigin- kona Mikaels, María Una Óladóttir, tjáir sig um málið í athugasemdakerfi DV undir frétt af handtöku Annþórs síðastliðinn miðvikudag. „… hann Annþór mætti nú heim til mín fyrir nokkrum árum með hót- anir einmitt útaf myndbirtingu af honum á þeim tíma … hótaði mér og fjölskyldu minni. Og það endaði með því að ég og maðurinn minn þurftum að flýja heimilið okkar ásamt ungum börnum okkar í lögreglufylgd!! Það þarf ekkert að hlífa þessum manni!!“ skrifar María. Dóttir Annþórs kemur föður sín- um til varnar í kommentakerfinu og bendir á að umrætt atvik hafi átt sér stað fyrir nokkrum árum. „nokkrum árum?? enda er hann að taka sig á! og af hverju í andskot- anum ertu að segja mér þetta … batnandi mönnum er best að lifa og allir eiga skilið fyrirgefningu!“ skrifar dóttirin. Hún skrifar fjölmargar at- hugasemdir til viðbótar og er sann- færð um sakleysi föður síns. Hún virðist trúa því að hann hafi hald- ið sig á beinu brautinni líkt og hann ætlaði sér. Ætlaði að skrifa ævisögu Í nóvember í fyrra staðfesti Sölvi Tryggvason það í samtali við frétta- stofu Stöðvar 2 að hann hefði skrifað undir samning við útgáfufélagið Senu um að skrifa ævisögu Annþórs. Þegar DV hafði samband við þá báða nokkr- um dögum síðar vildu þeir þó ekkert staðfesta um málið. DV greindi frá því í byrjun árs 2009 að Annþór hefði hug á því að láta taka handrukkaraferil sinn fyrir í bók og mun hann á þeim tíma hafa sett sig í samband við Sölva. Í samtali við DV sagðist Annþór vera með meistara- próf í glæpum og vildi hann hafa bók- ina þannig uppbyggða að hún yrði höfð eftir honum. Þó ekki þannig að hún yrði skráð sem sönn saga af ótta hans við ákærur. „Í fjölmiðlum, bæði í DV og annars staðar, hefur verið máluð mjög svört mynd af mér. Hreinlega sem einhverj- um djöfli. Hlutirnir eru hins vegar aldrei svo einfaldir og ég er líka pers- óna eins og allir aðrir. Ég hef verið á villigötum en ég er fjölskyldufaðir, á börn, og maður vill líka sýna fólki á sér þá hlið.“ Handrukkarinn sem var til fyrirmyndar n Annþór var handtekinn í umfangsmikilli undirheimarassíu n Losnaði af Vernd í ágúst í fyrra n Fangelsisstýran hafði miklar mætur á honum Þótti til fyrirmyndar á Hrauninu Annþór sagðist staðráðinn í að bæta ráð sitt, síðast þegar hann sat inni. L ögreglan á höfuðborgar- svæðinu framkvæmdi á miðvikudag átta húsleitir og handtók fimm manns í umfangsmiklum aðgerðum gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Þeirra á meðal voru Annþór Kristján Karlsson og Börkur Birgisson. Börkur réðst árið 2004 inn á veit- ingastaðinn A Hansen í Hafnar- firði, vopnaður exi. Hann sló mann nokkrum sinnum með exinni með þeim afleiðingum að hann hlaut tvo skurði á enni, tvö brot í ennis- holu, særðist á innanverðu læri og marðist á handarbaki. Börkur var dæmdur í sjö ára fangelsi 2005 fyrir árásina og fleiri brot, meðal annars margar líkamsárásir og umferðar- og vopnalagabrot. Einum einstaklingi var sleppt eftir handtökurnar á miðvikudag, en Annþór og Börkur voru úrskurð- aðir í gæsluvarðhald ásamt tveim- ur öðrum. Lögregla fór síðan fram á gæsluvarðhald yfir tveimur ein- staklingum til viðbótar í tengslum við rannsókn málsins, sem snýr sér- staklega að líkamsmeiðingum, hót- unum, innbrotum og þjófnuðum. Samkvæmt heimildum DV eru Ann- þór og Börkur meðal annars grun- aðir um að hafa ráðist hrottalega á mann fyrir um það bil tveimur mán- uðum og mun sá hafa kært árásina til lögreglu. DV hefur mikið fjallað um vax- andi ólgu í undirheimum Reykja- víkur og síðast á miðvikudag var greint frá því að skotið hefði ver- ið á heimili Hilmars Leifssonar þann 21. febrúar síðastliðinn. Sam- kvæmt heimildum DV tengist hinn meinti árásarmaður undirheim- unum. Þrír menn voru handteknir grunaðir um að tengjast skotárás- inni, en engin kæra var lögð fram á hendur þeim. Samkvæmt heimildarmanni DV hefur mikil spenna verið í loftinu upp á síðkastið og óttast margir að árásarinnar kunni að verða hefnt. Þá herma heimildir að umrædd árás og undirheimarassía lögreglunnar á miðvikudag tengist með óbeinum hætti. Mikil spenna í loftinu n Aðgerðir lögreglu tengjast hugsanlega skotárás Undirheimarassía Heimildarmaður DV segir mikla spennu í loftinu í undirheimum Reykjavíkur. „En ég var bara lítið barn í stórum lík- ama, ég hræddist ekkert og hugsaði ekki um af- leiðingarnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.