Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2012, Side 30
30 Umræða 16.–18. mars 2012 Helgarblað
Þórdís Gunnarsdóttir: Heldur
þú að sitjandi ríkisstjórn
muni þrauka út kjörtíma-
bilið?
Þór Saari Ég hef miklar efasemdir
um það.
Ásta Sigrún Magnúsdóttir:
Ef Hreyfingin kæmist í þá
stöðu að geta myndað
ríkisstjórn í næstu kosningum, með
hverjum mynduð þið helst vilja vinna
af þeim flokkum sem nú eiga sæti á
Alþingi?
Þór Saari Við myndum helst vilja
starfa með Samfylkingu og VG
og þeirri Framsókn sem kosin var
inn á þing en hefur því miður tekið
umskiptingum til hins verra.
Gunnar Jónsson: Ertu meiri
vinstri maður eða hægri?
Eða er það vinstri, hægri
snú?
Þór Saari Ég er sennilega meiri
vinstri maður en hægri. En það veltur
á málefninu.
Atli Fanndal: Hvað varð um
njósnavélina frægu? Fengu
alþingismenn endanlegt
svar við spurningum um uppruna og
tilgang hennar?
Þór Saari Því hefur aldrei verið
fullsvarað. En hún var ekki á vegum
Hreyfingarinnar, svo mikið veit ég.
Natan Kolbeinsson: Hvaða
ríkisstjórn sérð þú að hægt
væri að mynda núna á
Alþingi ef núverandi fellur
(þjóðstjórn er ekki inni í myndinni)?
Þór Saari Það væru núverandi
stjórnarflokkar plús Hreyfingin og
Framsókn sem væri æskilegasta
samsetningin.
Hrannar Gunnarsson: Þór, nú
hafnaðir þú því í Kastljósi að
biðjast velvirðingar á
ummælum þínum hvað varðar
stunguárásina í Lágmúla en gerðir
það síðan nokkrum dögum síðar,
getur þú útskýrt af hverju þér snérist
hugur?
Þór Saari Við Margrét báðumst
afsökunar á ummælunum ef þau
væru meiðandi fyrir einhvern. Grein
mín á Eyjunni stendur áfram sem
slík.
Fundarstjóri: Þú hefur gefið í
skyn að málshöfðun
Ragnars Árnasonar á hendur
þér sé pólitísks eðlis. Tengir þú hana
við baráttu þína fyrir breyttu
kvótakerfi?
Þór Saari Já, ég held að hún tengist
því beint.
Natan Kolbeinsson: Er
flokkaflakk réttlætanlegt
þegar einstaklingur er kosinn
á þing því hann er kosinn sem fulltrúi
flokks/hreyfingar sem hann bauð sig
fram með?
Þór Saari Flokkaflakk sem slíkt er
ekki réttlætanlegt en þingflokkar
geta þó hæglega brugðist kjós-
endum sínum og þá er afsakanlegt
að yfirgefa þá.
Oddur Björnsson: Í Silfri Egils
helgina fyrir þingsetningu
sagðistu ætla að leggja til á
Alþingi að ISG, BGS og ÁMM yrðu
einnig dregin fyrir landsdóm. Hvers
vegna stóðstu ekki við það?
Þór Saari Það kom í ljós að málin
voru fyrnd.
Friðrik Sigurðsson: Hvenær á
að slíta samskiptum við
hryðjuverkalönd eins og
Bandaríkin og Ísrael?
Þór Saari Það má fyrst athuga með
harðari afstöðu gagnvart þessum
löndum áður en samskiptum við þau
er slitið. Að slíta samskipti er mjög
viðamikið og ætti ekki að gera nema
að mjög vel athuguðu máli.
Stefán Drengsson: Hversu
margir af þeim 63 sem eru á
Alþingi telur þú starfa þar af
heilindum fyrir alla þjóðina en ekki
fyrir ákveðna og þrönga sérhags-
munahópa?
Þór Saari Það er ekki gott að segja.
En því miður hafa flestir þing-
manna á þessu þingi sem öðrum
misfarið með umboð kjósenda
sinna.
Þröstur Karlsson: Hver er
formaður flokksins (hvað
heitir hann annars réttu
nafni?) og hver er afstaðan varðandi
ESB?
Þór Saari Hreyfingin hefur engan
formann og enga afstöðu til ESB
aðra en þá að leyfa þjóðinni að kjósa
um aðild.
Natan Kolbeinsson: Telur þú
að Vigdís Hauksdóttir hafi
brotið þingsköp í gær?
Þór Saari Nei, það tel ég ekki. En
sending hennar á Facebook var
ósönn og ekki í samræmi við það
sem fór fram á fundinum.
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
Sjáum við þig í framboði í
næstu kosningum?
Þór Saari Ég reikna með því.
Sigurjón Hafsteinsson: Þór,
ef Hreyfingin kæmist í
oddaaðstöðu til að mynda
ríkisstjórn með Samfylkingu eða
Sjálfstæðisflokknum, hvor kosturinn
telur þú að myndi verða fyrir valinu?
Þór Saari Það var yfirlýst stefna
fyrir síðustu kosningar að vinna ekki
með Sjálfstæðisflokki. Sú stefna
hefur ekki breyst.
Atli Fanndal: Hvaðan kemur
fyrirmyndin að kvótaskulda-
sjóðnum sem mælt er fyrir
um í frumvarpi Hreyfingarinnar að
breyttri fiskveiðistjórnun?
Þór Saari Slíkir sjóðir eru algeng
aðferð til að bæta tjón vegna
veigamikilla grundvallarbreytinga á
kerfum sem eru föst í sessi og kalla
á flóknar breytingar.
Valgeir Ragnarsson: Er hægt
að endurreisa traust
almennings á Alþingi?
Hvernig á að gera það?
Þór Saari Það er ekki hægt að
endurreisa þetta traust með
óbreyttu kosningakerfi þar sem fjór-
flokkurinn er kosinn aftur og aftur.
Stefán Drengsson: Þannig að
þú telur að það finnist
óheiðarlegir þingmenn á
þingi í dag? Þingmenn sem hugsa um
það eitt að skara eld að sinni köku?
Þór Saari Nei, það hef ég aldrei
sagt. En heilindi eru ekki alltaf í fyrir-
rúmi í stjórnmálunum.
Stefán Sigurðsson: Sæll, Þór.
Telur þú að tillaga
Hreyfingarinnar um
verðtryggð lán sem þið ætlið að
leggja fram verði samþykkt á
Alþingi? Hefur Hreyfingin kannað
stuðning við hana meðal annarra
þingmanna?
Þór Saari Tillagan fer til efnahags-
og viðskiptanefndar og verður þar
hluti af þverpólitískri umræðu um
skuldamál heimilanna.
Natan Kolbeinsson: Ef
Hreyfingin kæmi inn í
núverandi ríkisstjórn með
breyttum málefnasamningi, hvaða
ráðuneyti gerði Hreyfingin sér vonir
um að fá ?
Þór Saari Í viðræðum okkar við
forystumenn stjórnarflokkanna á
milli jóla og nýárs gerðum við engar
kröfur um ráðuneyti eða völd heldur
eingöngu að málefni Hreyfingar-
innar kæmust til framkvæmda.
Þór Víkingsson: Leitaði Lilja
Mósesdóttir eftir einhvers
konar samstarfi við
Hreyfinguna áður en hún stofnaði
flokk sinn?
Þór Saari Nei, en við höfum hins
vegar boðið henni upp á samstarf
í mjög langan tíma, sennilega í um
tvö ár.
Valgeir Ragnarsson: Hefur
þú orðið var við spillingu í
stjórnmálum síðan þú hófst
þátttöku í þeim?
Þór Saari Já, ég hef orðið var við
spillingu í stjórnmálum. Skýrasta
dæmið er atkvæðagreiðslan um að
koma ákveðnum ráðherrum í skjól
frá landsdómi.
Ásgeir Einarsson: Nú mælist
þið Hreyfingin með sama og
ekkert fylgi, er ekki þá
vafasamt hjá ykkur að halda því
fram að þið talið fyrir þjóðina?
Þór Saari Ég tel að skoðanakann-
anir í dag þar sem pólitísk upplausn
er mikil sé ekki mælikvarði á
hugsanlegt fylgi í kosningum.
Yfirleitt er um helmingur aðspurðra
óákveðinn eða neitar að svara.
Ástæðan fyrir því að við teljum
okkur tala fyrir þjóðina er að við
tölum aldrei fyrir sérhagsmunum að
hætti fjórflokksins.
Týr Þórarinsson: Enn sitja
allmargir embættismenn í
kerfinu í stólum sínum
síðan fyrir hrun. Hvað finnst þér
um að láta taka út störf þeirra
líka?
Þór Saari Við höfum lagt fram
tillögu um rannsóknarnefnd sem
fari yfir þátt Seðlabankans, for-
sætisráðuneytisins, fjármálaráðu-
neytisins og viðskiptaráðuneytisins
í aðdraganda hrunsins og eftir það,
með það í huga að staðsetja ábyrgð
og stöðu einstakra embættis-
manna.
Stefán Drengsson: Finnst
þér persónulega ókei að
manneskjur með bakgrunn
eins og Þorgerður Katrín og Árni
Johnsen séu þingmenn? Er þetta
ekki dæmi um stórbrenglað kerfi
sem við búum við?
Þór Saari Persónulega finnst mér
að þau eigi ekki að vera á þingi.
Lagahyggja og það siðleysi sem
viðgengst í íslenskum stjórnmálum
gerir þeim þetta hins vegar kleift.
Þór Víkingsson: Telur þú að
kosningabandalag með
leifunum af Frjálslynda
flokknum verði stefnuskrá
Hreyfingarinnar til framdráttar í
komandi kosningum?
Þór Saari Við höfum unnið með
þeim og Borgarahreyfingunni að
uppbyggingu breiðfylkingar þar
sem hugmyndafræði Hreyf-
ingarinnar kemur skýrt fram í þeirri
kjarnastefnu sem fundað verður um
næstkomandi sunnudag.
Aðalsteinn Agnarsson: Frelsi
almennings til handfæra-
veiða getur ekki skaðað
fiskistofna en kæmi gjaldþrota þjóð í
gang, hvers vegna talar enginn um
þetta á Alþingi?
Þór Saari Í frumvarpi okkar um
breytingar á fiskveiðistjórnunar-
kerfinu leggjum við til að fjörutíu
þúsund tonnum verði úthlutað til
strandveiða fyrir hvern sem er að
veiða.
Halldór Magus: Hvenær mun
Hreyfingin beita sér fyrir
aðskilnaði ríkis og kirkju?
Þór Saari Við höfum gert það alla
tíð frá því að við komum inn á þing.
Þetta er hins vegar að hluta bundið
í stjórnarskrá sem vonandi verður
breytt með upptöku nýrrar innan
næstu tveggja ára.
Friðrik Sigurðsson: Hvað
þarf að gera til að yfirvöld
hlusti á almenning og vinni
með fólkinu?
Þór Saari Í þau skipti sem ég hef
séð stjórnvöld taka við sér var
það í kjölfar mikilla mótmæla við
þinghúsið. Slíkt virðist því miður
nauðsynlegt til að Alþingi hlusti á
fólkið.
Aðalsteinn Agnarsson: Gætir
þú hugsað þér að gefa
almenningi frelsi til
handfæraveiða, allt árið?
Þór Saari Hef ekki hugsað það mál
ítarlega en bendi á að við leggjum til
að strandveiðitímabilið verði lengt
upp í sex mánuði.
Jóhann Hansen: Nú skilst
mér að þú hafir unnið fyrir
OECD og SÞ í skuldamálum
þjóða t.d. í Afríku. Það er ekki að sjá
að stjórnvöld hér á landi hlusti mikið
á ráðleggingar Hreyfingarinnar.
Hvers vegna, heldur þú?
Þór Saari Það er ákveðin kerfislæg
andstaða hjá mönnum innan
kerfisins við allar breytingar. Því
miður hlusta ráðherrar of mikið á
embættismenn í stað utanaðkom-
andi sérfræðinga.
Þór Víkingsson: Hverja telur
þú vera rótina að erfiðleikum
ríkisstjórnarinnar við að fást
við fjármálakerfið og hvernig vilt þú
taka á því?
Þór Saari Það hefur verið rótgróin
andstaða innan Samfylkingarinnar
gagnvart umbótum og breytingum á
fjármálakerfinu. Fyrsta viðfangsefn-
ið yrði að skilja á milli fjárfestingar-
banka og viðskiptabanka.
Kristján Haraldsson: Ertu
ennþá sannfærður um að
tíðni sjálfsmorða hafi aukist
verulega í kjölfar kreppunnar?
Þór Saari Ég hef aldrei haldið því
fram að tíðni sjálfsmorða hafi aukist
í kjölfar kreppunnar. Hins vegar
vantar gögn fyrir árin 2010 og 2011 til
að varpa ljósi á það.
Daníel Hermannsson: Hvað
útskýrir andúð þína á
frjálshyggju?
Þór Saari Frjálshyggja eins og hún
hefur verið sett fram hingað til er
hugmyndafræði sem gengur ekki
upp í praxís.
Benedikt Þorgeirsson: Telur
þú að það séu forsendur til
að auka lífrænan búskap á
Íslandi og auðvelda þeim sem
standa í slíku róðurinn, sbr. hænur og
kýr, og þannig ýta undir gæði
matvæla til neytenda?
Þór Saari Já, ég tel að forsendur séu
til þess. Við höfum mikið af ónotuðu
landi sem er í eigu auðmanna og
ætti skilyrðislaust að taka undir,
meðal annars, lífrænan búskap sem
hefðbundinn.
Daníel Hermannsson: Viltu
sjá Steingrím fyrir
landsdómi?
Þór Saari Nei, ekki að svo stöddu.
En ef þú getur bent á brot hans á
lögum um ráðherraábyrgð hvet
ég þig til að senda þinginu þá
ábendingu.
Þröstur Ólafsson: Viltu nýjan
forseta? Hvern?
Þór Saari Mér finnst
Ólafur Ragnar hafa staðið sig vel
og þar til hæfari frambjóðandi lítur
dagsins ljós mun ég styðja hann.
Fundarstjóri: Samræmist
þetta stefnu Hreyfingar-
innar?
Þór Saari Hreyfingin hefur ekki
stefnu varðandi forsetakjör en þetta
er ekki í samræmi við hugmyndir
okkar um hámark tvö kjörtímabil
fyrir alþingismenn.
Benedikt Þorgeirsson: Hver
er þín skoðun á Nubo-klúðr-
inu?
Þór Saari Ég er andvígur því að
einstaklingar, hverrar þjóðar sem
þeir eru, geti keypt upp stóra hluta
landsins til einkanota.
Daníel Hermannsson:
Varðandi ákæru á Steingrím,
þá á ég við skipun Svavars
Gestssonar til að semja um
Icesave-kröfurnar.
Þór Saari Sá fréttir um þetta í dag.
Ef þetta hefur að gera með lög um
ráðherraábyrgð þá þarf að skoða
það.
Þröstur Ólafsson: Hvernig
líst þér á að leiðtogar
stéttarfélaga og ríkisstofn-
ana fái hámark þreföld verkamanna-
laun?
Þór Saari Við í Hreyfingunni höfum
lagt fram frumvarp um að hámarks-
laun forystumanna stéttarfélaga
verði þreföld umsamin lægstu laun
kjarasamninga þeirra. Forystumenn
ríkisstofnana heyra undir kjararáð
og er flóknara mál við að eiga.
Þröstur Ólafsson: Þurfum
við að skipta um mynt?
Hvaða mynt vilt þú?
Þór Saari Já, það þarf að skipta um
mynt. Þetta er hins vegar flókið mál
með mörgum valkostum sem þarf
að meta, svo sem evru, Kanada-
dollar, nýkrónu eða öðru. Það sem
er brýnast er að valkostir verði rann-
sakaðir af kostgæfni sem fyrst.
Atli Fanndal: Hvaða mark
mun Hreyfingin skilja eftir sig
í íslenskri stjórnmálasögu?
Þór Saari Við höfum starfað á
allt öðrum forsendum og með allt
öðrum aðferðum en stjórnmála-
flokkar á Íslandi hingað til. Vonandi
gleymist það ekki.
Guðni Jónsson: Hvað mundir
þú kalla velferðarríki og telur
þú Ísland geta flokkast sem
velferðarríki?
Þór Saari Ísland er á jaðri þess að
geta flokkast sem velferðarríki þar
sem mjög víðtækar tekjutengingar
bóta hafa í mörgum tilfellum snúist
upp í andstæðu sína.
Ómar Kristvinsson: Í hverju
liggur þessi tregða
ráðamanna að skoða það í
alvöru með gjaldmiðlabreytingu?
Þór Saari Þetta er mjög róttæk
og viðamikil breyting og menn
eru í eðli sínu hræddir við slíkt.
Síðan eru að sjálfsögðu ákveðnir
sérhagsmunir að baki afstöðu
sumra.
Þröstur Ólafsson: Hvað þarf
til að brjóta niður valda-
bandalag fjórflokksins, ef
þín leið gengur ekki?
Þór Saari Persónukjör og beint
lýðræði er það sem mun takmarka
völd og áhrif fjórflokksins.
Nafn: Þór Saari
Aldur: 51 árs
Menntun: MA-próf í hagfræði
Starf: Alþingismaður fyrir
Hreyfinguna
Vill Ólaf Ragnar áfram
Þór Saari var á Beinni línu á DV.is á miðvikudag þar sem hann svaraði spurningum lesenda um umdeild bloggskrif og stjórnmálin.