Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2012, Page 44
44 Menning 16.–18. mars 2012 Helgarblað
F
lestir myndu ætla að í kjölfar
hneykslis væri farsælast að sitja
af sér storminn og bíða þess að
öldur lægði, en stúlknasveit-
in Dixie Chicks tók annan pól í
hæðina. Hljómsveitin á rætur að rekja
til Texas, heimaríkis fyrrverandi for-
seta Bandaríkjanna, George W. Bush,
og föður hans George Bush.
Í mars 2003, þegar innrás Banda-
ríkjanna og viljugra þjóða, eins og
meðreiðarsveinar Bandaríkjamanna
voru kallaðir, inn í Írak var í farvatninu,
héldu stúlkurnar hljómleika í Lundún-
um.
Aðalsöngvari Dixie Chicks, Natalie
Maines, gat ekki stillt sig um að viðra
skoðanir sínar á fyrirætlunum Banda-
ríkjamanna og sagði: „Bara svo þið vit-
ið það, við erum í liði með hinum góðu
með ykkur öllum. Við kærum okkur
ekki um þetta stríð, þetta ofbeldi og
við skömmumst okkar fyrir að Banda-
ríkjaforseti sé frá Texas.“
Setningin var gerð að umfjöllunar-
efni í grein í The Guardian og skömmu
síðar gerðu bandarískir fjölmiðlar sér
mat úr henni. Ekki var að sökum að
spyrja; útvarpsstöðvar sniðgengu tón-
list Dixie Chicks og líflátshótunum og
haturspósti rigndi yfir stúlkurnar. Af-
sökunarbeiðni af hálfu Natalie breytti
litlu, en ekki hvarflaði að stúlkunum
að játa sig sigraðar.
Tveimur mánuðum eftir að um-
mælin féllu birtust Natalie, Martie
Maguire og Emily Robison á forsíðu
Entertainment Weekly á Evuklæðun-
um einum saman en á líkama þeirra
vori skrifuð ýmis þau ummæli sem
dembt hafði verið yfir þær, með-
al annars Dixie-dækjur, Svikarar og
Englar Saddams. Forsíðumyndin var
kannski ekki endilega til þess fallin að
lægja öldurnar í íhaldssömu dreifbýli
Bandaríkjanna en næsti diskur Dixie
Chicks, Taking the Long Way, seldist
i yfir tveimur milljónum eintaka og
vann til fimm Grammy-verðlauna.
Tvær ungar
Ein þeirra tónlistarkvenna sem ekki
hafa verið feimnar við að sýna hold er
litla systir Michaels Jackson heitins, Ja-
net. Árið 1993, þegar Janet var 24 ára
að aldri, skrifaði hún undir 50 milljóna
dala samning við Virgin-hljómplötu-
útgáfuna. Frumburður hennar hjá út-
gáfunni var diskur hlaðinn kynferðis-
legu efni, svo miklu að sumum stóð
ekki á sama.
En ekki nóg með að innihaldið væri
af kynferðislegum toga því umbúð-
irnar skörtuðu Janet nakinni að ofan
í gallabuxum einum fata. Reyndar
voru brjóst hennar hulin og sá sem sá
um það var þáverandi kærasti hennar,
Rene Elizondo.
Sex vikum fyrir dauða sinn sat Mari-
lyn Monroe fyrir hjá ljósmyndaranum
Bert Stern. Það verður þó ekki Mari-
lyn sem verður til umræðu hér held-
ur vandræðagepillinn Lindsay Lohan.
Sextíu árum eftir myndatöku Sterns
og Marilyn endurtók hann nefnilega
leikinn og Lohan sat fyrir sem Marilyn
væri. Þegar þar var komið sögu hafði
Lohan ekki enn heiðrað bandaríska
fangelsiskerfið með nærveru sinni og
þegar henni bauðst að sitja fyrir hjá
Stern hikaði hún ekki andartak: „Ég
þurfti ekki að hugsa þetta mikið. Ég
meina, Bert Stern? Marilyn-mynda-
taka. Þetta er eiginlega heiður.“
Tískumógúll með tvær í takinu
Tímaritið Vanity Fair hefur ávallt lagt
mikið upp úr forsíðu tölublaða sinna
– en ekki hvað? Hvað gæti verið betri
hugmynd en að láta tvær rísandi
stjörnur í kvikmyndaheiminum sitja
fyrir á Evuklæðunum einum saman,
allt innan ramma velsæmis þó?
Til að halda þeim selskap var tísku-
hönnuðurinn Tom Ford kallaður til
en hann er þó ívið meira klæddur en
tvístirnið, Keira Knightley og Scar-
lett Jo hansson. Það var látið nægja að
hneppa frá skyrtunni hjá honum svo
sést aðeins glitta í bringuhárin.
Stundum hefur verið haft á orði
að það séu ekki fötin sem menn vilja,
heldur það sem þau hylja. Hér verður
ekki lagt mat á þá fullyrðingu en látið
nægja að velta vöngum yfir þessari ár-
áttu að strípa kvenfólkið en hafa karl-
peninginn klæddan.
Hvað sem því líður var enginn
meðaljón fenginn til að ljósmynda
herlegheitin því Annie Leibovitz var
kölluð til, en hún hefur fest á filmu
margt frægðarmennið. Sú hugmynd
að hafa Tom Ford á forsíðunni ku hafa
vakið heilmikið umtal í fjölmiðlum,
bæði jákvætt og neikvætt.
Lennono
Úr því að ljósmyndarinn Annie Leibo-
vitz hefur borist í tal er ekki úr vegi að
líta á forsíðumynd sem hún tók fyrir
tímaritið Rolling Stone.
Þann 8. desember 1980 ljósmynd-
aði Annie Leibovitz Bítilinn fyrrver-
andi John Lennon og eiginkonu hans,
Íslandsvininn – hmmm – Yoko Ono, á
heimili þeirra í New York-borg.
Upphaflega ætlaði Annie að taka
eingöngu myndir af Lennon, en hann
linnti ekki látum fyrr en Yoko fékk að
vera með.
Annie Leibovitz bað Lennon að
afklæðast og hjúfra sig upp að spúsu
sinni. Að sögn Annie bauðst Yoko til
að afklæðast einnig en Annie afþakk-
aði gott boð. Eftir að hafa séð Polaroid-
mynd af árangrinum ku Lennon hafa
haft á orði að myndin „… næði sam-
bandi þeirra fullkomlega.“
Inna við sex klukkustundum síðar
var John Lennon allur. Hann var skot-
inn fyrir utan Dakota-bygginguna á
Manhattan. Rolling Stone-tímaritið
notaði myndina á tölublað sem gefið
var út honum til heiðurs og árið 2005
var forsíðan kjörin sú besta síðastlið-
inna 40 ára af sambandi ritstjóra tíma-
rita í Bandaríkjunum, American So-
ciety of Magazine Editors.
Rauðir borðar og blóð
Í raun má segja að Kim Kardashian sé
nánast fyrst og fremst og eingöngu fræg
fyrir að vera klæðalítil eða klæðalaus.
Árið 2007 skaut upp kollinum kynlífs-
myndband með henni og söngvar-
anum Ray J. Í desember sama ár birt-
ist Kim nakin í tímaritinu Playboy og á
forsíðu nóvembertölublaðs tímarits-
ins W birtist Kim – já, ótrúlegt en satt
– nakin með rauða borða sem plantað
er á úthugsuðum stöðum: „Þetta snýst
allt um mig – ég meina þig – ég meina
mig.“
Það fossar blóð – reyndar ekki í
frelsarans slóð heldur niður nakta lík-
ama stjarnanna úr True Blood-sjón-
varpsþáttunum, Alexanders Skars-
gard, Önnu Paquin og Stephens
Moyer, á forsíðu Rolling Stone.
Einhver áhöld voru um hvort hug-
myndin væri sexí eða sjúk en eflaust
geta flestir fallist á að myndin sé sitt lít-
ið af hvoru, í það minnsta aðdáendur
þáttanna sem fjalla um vampírur. Og
þar sem eru vampírur þar verður að
vera blóð – skyldi maður ætla.
Meira af Demi Moore
Ein alfrægasta nektarmyndaforsíða
sögunnar er af leikkonunni Demi
Moore. Í ágúst 1991 birtist mynd af
Demi kviknakinni á forsíðu Vanity
Fair. Með forsíðunni var brotið blað
því Demi var gengin sjö mánuði, hylur
brjóst sín með annarri hendi og styð-
ur undir kvið sinn með hinni, á Evu-
klæðunum einum saman með baug á
fingri.
Enn og aftur var það Annie Leibo-
vitz sem mundaði myndavélina og
þrátt fyrir að Demi hyldi líkama sinn
upp að einhverju marki var það mat
margra að myndin gengi helsti langt
og væri dónaleg.
Hvað sem því mati líður markaði
myndin upphafið á einhvers konar
„trendi“ hvað varðar óléttuljósmyndir
og verðandi mæður fóru að flíka kúl-
unni í tíma og ótíma. Og hvað er eðli-
legra, því oftar en ekki er um fagnað-
arefni að ræða en ekki eitthvað sem
þarf að fara í felur með, ekki frekar en
brjóstagjöf.
Serena, Jennifer og Cohen
Tennisdrottningin Serena Williams
prýðir forsíðu tímaritsins ESPN – The
Body Issue. Þegar myndin birtist, í
janúar árið 2009, var Serena 28 ára
að aldri og varð best kvenna í heimi í
tennis það ár og gumaði af mörgum
góðum sigrum.
Sama ár lét leikkonan Jennifer An-
iston slag standa og birtist á forsíðu
tímaritsins GQ í engu nema háls-
bindi. Þegar þar var komið sögu voru
tólf ár liðin síðan hún birtist fáklædd
á forsíðu Rolling Stone – á hátindi
Friends-æðisins. Í GQ árið 2009 var
Jennifer Aniston hins vegar að kynna
kvikmyndina Marley and Me sem kom
fyrir augu almennings tveimur dögum
eftir að janúartölublað GQ fór í sölu.
Sacha Baron Cohen vildi greini-
lega ekki vera eftirbátur Jennifer og í
júlítölublaði GQ situr hann fyrir með
öllu nakinn – ekki einu sinni með háls-
bindi.
n Nekt selur n Ófáar stjörnur hafa gripið til þess ráðs að láta ljósmynda sig fáklæddar
Nektin í fyrirrúmi
Lindsay Lohan Áður en hún villtist af braut var
hún fengin til að feta í fótspor Marilyn Monroe.
Jennifer Aniston Vinkonan birtist með hálsbindi eitt fata á forsíðu GQ.
Sacha Baron Cohen Grallarinn fetaði í fót-
spor vinkonunnar Jennifer í júlítölublaði GQ.
Dixie Chicks Snéru vörn í sókn, naktar á
forsíðu Entertainment.
Kardashian Kim Kardashian nakin – en
ekki hvað?
Gengin sjö mánuði Leikkonan Demi
Moore setti af stað nýja tísku.
John og Yoko Ljósmyndarinn Annie
Leibovitz tók þessa mynd örfáum klukku-
stundum fyrir dauða Lennon.
Serena Villiams Tennisdrottningin sýndi
kroppinn í allri sinni dýrð.
Tom Ford í kvennafans Leikkonurnar
Keira Knightley og Scarlett Johansson eru
ívið fáklæddari en karlinn.