Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2012, Blaðsíða 27
Ég var ekki þarna á
vegum borgarinnar.
Samtímasam-
félagsgagnrýni.
Einar Örn Benediktsson borgarfulltrúi þáði boðsferð WOW air.– DV.isÓlafur Arnarson pistlahöfundur um nýja vefmiðilinn tímarím.is. – DVÁrni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, um aðgerðir útgerðarmanna. – DV.is
Siðblinda
Vondur dagur fyrir 101
Þ
að er enginn dagur verri í 101
Reykjavík en 17. júní ár hvert. Þá
þyrpist alls konar lið, í þúsund-
um talið, úr úthverfum Reykja-
víkur til þess að þramma um borgina
í þægilegum skóm og með börnin sín
tjúlluð af sykuráti að horfa á Skoppu og
Skrítlu á Arnarhóli. Svo byrjar Jónsi í
Svörtum fötum að syngja og öll menn-
ing hverfur úr miðbænum á auga-
bragði. Soja-latte sést ekki á nokkrum
manni og virkilega svalar íslenskar
hönnunar lopapeysur úr Farmers
Market týnast í flíspeysuflóði úthverfa-
pakksins.
Svarthöfði skipti þó snarlega um
skoðun á fimmtudaginn. 17. júní er
frábær í samanburði við það þegar út-
gerðarmenn og sjómenn mæta í bæ-
inn. Skyndilega fyllist Austurstræti af
miklu hrjúfari og skeggjaðri karlmönn-
um en við höfum hingað til mátt venj-
ast. Þeir eru ekki klæddir í þröngar
gallabuxur, þeir reykja ekki vafðar sí-
garettur og enginn þeirra er með Ray
Ban-sólgleraugu. Þeir styðja álver og
svo eru þeir miklu sterkbyggðari en við
hin. Þeir eru skrýtnir!
Síðan er það nánast ómögulegt að
sitja spekingslegur á kaffihúsi með
Apple-tölvuna sína (100% lán með 36
mánaða afborgunum) og skrifa hnyttn-
ar stöðuuppfærslur á Facebook, á sama
tíma og þessir villimenn frá Grinda-
vík, Vestmannaeyjum eða hvaðan þeir
koma, þeyta þokulúðra á skipum sín-
um. Sjá þeir ekki að við erum bara að
reyna að vera atvinnulaus í friði? Það er
ekki hægt að yrkja póstmódernísk ljóð
í þessum hávaða frá lúðrunum. Það er
sannað að hann breytir jákvæðum jón-
um í andrúmsloftinu í neikvæðar jónir
og það hefur slæm áhrif á grænmetis-
rækt Svarthöfða. Hvað höfum við gert
ykkur? Farið heim!
Svarthöfði
S
em unglingur, skrifaði ég eitt
sinn stíl í skóla og fjallaði hann
um mann sem hafði svo magn-
að augnaráð að allar klukkur
sem hann leit á, hættu að ganga. Hann
var reyndar svo mikill andans maður
að hann stöðvaði tímann með augna-
ráðinu einu saman. Reyndar var mað-
ur þessi til stökustu vandræða, allt þar
til menn fundu honum það eina verk-
efni að loka augunum. En þeim verk-
þætti náði hann að sinna af kostgæfni,
enda fékk hann háar fúlgur úr ríkis-
sjóði fyrir það eitt að sjá ekki neitt.
Saga þessa manns hefur alltaf
komið upp í kolli mér annað veifið nú
síðastliðin ár; einkum í góðærinu svo-
kallaða þegar djöfulsins snillingarnir í
Sjálfstæðisflokki og Framsókn greiddu
mönnum afar há laun ef þeir litu und-
an eða reyndu að komast hjá því að
veita spillingunni athygli.
Tvö skýr dæmi um meðvitaða
blindu stjórnvalda má sjá í gjörn-
ingi siðblindra þegar núverandi fisk-
veiðistjórnunarkerfi var komið á og
hitt dæmið er sala bankanna. En svo
skemmtilega vill til að þetta tvennt
helst í hendur og hefur skapað á Ís-
landi mesta bil á milli ríkra og fátækra
sem sögur fara af. Þessi tvö dæmi eru
reyndar – hvort sem við trúum því
eður ei – rót fátæktar á Íslandi í dag;
rót vandans hjá einni ríkustu þjóð ver-
aldar.
Útgerðarmenn hafa efni á því að
halda úti Mogganum með miklu tapi,
þeir hafa efni á því að auglýsa fyrir
hundruð milljóna, þeir hafa efni á að
kalla flotann í land og binda skip við
bryggju. Þeir hafa efni á að kúga mig
og kúga þig. Þeir ráða nánast öllu sem
þeir vilja ráða. Og þegar þjóðin er að
reyna að rétta úr kryppunni eftir níð-
ingsverk helmingaskiptaklíkunnar, þá
er það útgerðin sem hagnast um 55
milljarða á ári og neitar að leyfa þjóð-
inni að njóta góðs af.
Þjóðin situr til hlés og rabbar í góð-
látlegu gríni um forsetakosningar, í
stað þess að nötra af bræði, berja í
borðið og öskra: –HINGAÐ OG EKKI
LENGRA!
Já, núna þæfa þeir mál á þingi;
fulltrúar kvótabraskara og eru stoltir
af. En þjóðin skrafar um sex valkosti
í embætti forseta. Og í heita pottin-
um er aðallega rætt um það hvern-
ig Herdís hafi einsog óboðinn gestur
stolið senunni í einvígi Ólafs og Þóru.
Ólafur konungur og fjölmiðladrottn-
ingin Þóra eru sögð glíma um sætið á
Bessastöðum. En, kæru Íslendingar,
fjármálaöflin hafa nú þegar ákveðið
hver verður næsti forseti okkar yndis-
legu þjóðar.
Það gerist oft nú í seinni tíð að
ég hitti fólk sem hefur gefist upp á
samfélagi okkar, fólk sem er á leið úr
landi, fólk sem ætlar að flytja og á þá
ósk heitasta að þurfa aldrei framar að
stiga hér niður fæti. Þetta er nöturleg
staðreynd og það sorglega er, að við
búum hér á landi allsnægta, þar sem
lífsskilyrði ættu að vera þau bestu í
víðri veröld; ef okkur mætti auðnast
að ástunda hið rómaða réttlæti.
Hér ranglæti það tæpast telst
tjón og mein að vinna
því siðblindir þeir sýna helst
syndir allra hinna.
„ Já, núna
þæfa þeir
mál á þingi; fulltrúar
kvótabraskara og eru
stoltir af.
Í ljósum logum Það loguðu eldar við Reykjavíkurhöfn á dögunum. Blessunarlega var aðeins um æfingu að ræða hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Mynd Sigtryggur AriMyndin
Umræða 27Helgarblað 8.–10. júní 2012
1 Jón stóri og Gunnar Nelson svara sögusögnum Svöruðu
þrálátum orðrómi um að þeim hefði lent
saman í Eyjum.
2 Sakaði þingmann um að vera ölvaður á þingfundi Björn
Valur Gíslason sakaði þingmanninn Jón
Gunnarsson um að vera undir áhrifum
áfengis.
3 „Frískandi fyrir kaffi-latte liðið í 101 að vakna hressi-
lega“ Guðmundur í Brimi vill vekja
menn með þokulúðrum.
4 Vilja meirihlutann burt í Reykjavík Hópur kjósenda í
Reykjavík hefur ákveðið að hefja
undirskriftasöfnun.
5 3 ára í brúnkusprautun í hverjum mánuði Þriggja ára
stúlka, Savanna, var aðeins tveggja
ára þegar móðir hennar fór með hana í
brúnkusprautun.
6 Ölvaðir stungu af frá reikningi og réðust á starfsfólk
Ölvaðir menn voru handteknir í miðbæ
Reykjavíkur.
7 Bein útsending frá höfninni DV.is sýndi beint frá höfninni á
fimmtudag þegar skip komu til
Reykjavíkurhafnar.
Mest lesið á DV.is
Bara eðlileg
viðbrögð.
Ber að virða og vernda Skáldið skrifarKristján Hreinsson
Komment
dagsins
við fréttir DV.is í vikunni
„Ætli sauð-
svartur almúg-
inn geti líka
notað DV til að leiðrétta
ósannar kjaftasögur?.. Ef
svo er, þá hef ég nokkrar
til að leiðrétta.. ;)“
Linda Silvía um frétt um
að Jóni stóra og Gunnari
Nelson bardagakappa
hafi lent saman.
„Sérstaklega
frískandi
fyrir ungabörn í
morgunlúri í vögnunum
sínum.“
Margrét Erla Maack
um ummæli Guðmundar
Kristjánssonar, forstjóra
útgerðarfélagsins Brims, á beinni
línu. Guðmundur taldi lúðraþyt
fiskiflotans í Reykjavíkurhöfn
hressandi fyrir 101 latte-liðið.
„Ég mun aldrei
eiga viðskipti við
Leonard hvaða
kennitölu sem notuð er.“
Gunnar Hafsteinsson
um frétt þess efnis
að Sævar Jónsson og
Helga Daníelsdóttir, best þekkt
fyrir skartgripa- og úraverslunina
Leonard í Kringlunni, hafi búið
frítt í húsnæði, sem Arion banki
hafði leyst til sín, í 16 mánuði.
„Þessir sjómenn
ættu kannski
að íhuga það
að útgerðarmennirnir
sem ætla að neyða þá
til mótmæla, hafa ekki
viljað semja við þá í eitt
og hálft ár.“
Agnar Kristján Þor-
steinsson um frétt þess
eðlis að áhöfn á skipi
Grindvísku útgerðarinnar Vísis
hafi verið boðuð til vinnu og mót-
mæla af vinnuveitendum sínum
21
51
39
8