Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2012, Qupperneq 63
n Fimmtán Íslendingar hafa leikið í ensku úrvalsdeildinni n Þeim gæti fjölgað í haust n Hvar eru þeir í dag?
Sport 63Helgarblað 8.–10. júní 2012
Ívar Ingimarsson
n Fæddur: 1977 n Staða: Varnarmaður
2007–08 Reading 73 leikir 6 mörk
Alls: 73 leikir 6 mörk
Hvar er hann í dag? Ívar lagði skóna
á hilluna eftir að hafa leikið nokkra leiki með
Ipswich í vetur. Hann býr núna fyrir austan.
73 leikir
Eggert Jónsson
n Fæddur: 1988 n Staða: Vörn/miðja
2012 Wolves 3 leikir 0 mörk
Alls: 3 leikir 0 mörk
Hvar er hann í dag? Var keyptur
til Wolves en fékk fá tækifæri. Nýr þjálfari,
Ståle Solbakken, hefur tekið við liðinu.
3 leikir
Jóhann Birnir
Guðmundsson
n Fæddur: 1977 n Staða: Vængmaður.
1999–00 Watford 9 leikir 0 mörk
Alls 9 leikir 0 mörk
Hvar er hann í dag? Leikur með
Keflavík í efstu deild hér heima.
9 leikir
Þórður
Guðjónsson
n Fæddur: 1973 n Staða: Vængmaður
2000–01 Derby County 10 leikir 1 mörk
Alls 10 leikir 1 mörk
Hvar er hann í dag? Hættur að
spila. Er framkvæmdastjóri knattspyrnu-
deildar ÍA.
10 leikir
Gylfi Þór
Sigurðsson
n Fæddur: 1989 n Staða: Miðjumaður
2012 Swansea 18 leikir 7 mörk
Alls: 18 leikir 7 mörk
Hvar er hann í dag? Swansea hafði
boðið í Gylfa og Hoffenheim samþykkti
tilboðið. Óvíst er þó hvort hann fari til
Swansea eftir að þjálfarinn fór til Liverpool.
Kannski fer hann líka til Liverpool.
18 leikir
Arnar
Gunnlaugsson
n Fæddur: 1973 n Staða: Framherji
1997–98 Bolton 15 leikir 0 mörk
1999–02 Leicester 30 leikir 3 mörk
Alls 10 leikir 1 mörk
Hvar er hann í dag?Arnar lagði
skóna á hilluna eftir síðasta sumar, þegar
hann lék með Fram.
45 leikir
Grétar Rafn
Steinsson
n Fæddur: 1982 n Staða: Bakvörður
2007–10 Bolton 126 leikir 5 mörk
Alls: 126 leikir 5 mörk
Hvar er hann í dag? Er án samnings
og leitar að nýju félagi. Verður örugglega
ekki í vanda með að finna sér nýja vinnuveit-
endur eftir góðan tíma hjá Bolton.
126 leikir
Heiðar Helguson
n Fæddur: 1977 n Staða: Framherji
1999–00 Watford 16 leikir 6 mörk
2005–07 Fulham 57 leikir 11 mörk
2007–08 Bolton 7 leikir 2 mörk
2011–12 QPR 16 leikir 8 mörk
Alls 96 leikir 27 mörk
Hvar er hann í dag? Átti frábært
tímabil (lengst af) með QPR í vetur en
meiddist svo. Var boðinn áframhaldandi
samningur við liðið.
96 leikir
15
7
14
6
13
5
12
4
Strákarnir okkar
í enska boltanum Sjáðu strákana okkar fríttÍslenska landsliðið í handknattleik karla mætir á sunnudag lands-liði Hollands í fyrri leik liðanna í umspili um sæti á HM á næsta
ári. Leikið verður í Laugardalshöll
en leikurinn hefst klukkan 18.30.
Arion banki býður landsmönnum
frítt á leikinn en tveir miðar verða í
boði á mann á meðan birgðir end-
ast. Hollenska landsliðið er sýnd
veiði en ekki gefin. Í því leika til
dæmis fjórir leikmenn í efstu deild
í Þýskalandi – í sterkustu deild í
heimi.
Kári í enska
boltann
Knattspyrnumaðurinn Kári Árna-
son hefur ákveðið að ganga í raðir
enska liðsins Rotherham United.
Kári undirritaði á fimmtudag
tveggja ára samning við félag-
ið, sem leikur í fjórðu efstu deild
á Englandi. Óhætt er að segja að
vistaskiptin komi nokkuð á óvart
þar sem Kári lék í skosku úr-
valsdeildinni á nýloknu keppn-
istímabili. Steve Evans knattspyrn-
ustjóri lofar hæfileika Kára í
hástert á heimasíðu félagsins,
svo nokkuð vægt sé til orða tekið.
Hann sé bæði skapandi, klókur,
vinnusamur og búi yfir frábærri
tækni, svo fátt eitt sé nefnt.
Harmleikur í
enska hópnum
Jermain Defoe, framherji enska
landsliðsins, hefur þakkað öllum
þann hlýhug sem honum og fjöl-
skyldu hans hefur verið sýndur
síðustu daga eftir að hann þurfti
að fljúga heim frá EM-búðum
landsliðsins vegna fráfalls föð-
ur hans. Jimmy Defoe lést eftir
langa og erfiða baráttu við krabba-
mein. Enska knattspyrnusam-
bandið hefur staðfest að Defoe
snúi aftur í hópinn þegar hann
telur sig reiðubúinn. „Ég vil þakka
stuðningsmönnum, fjölskyldu,
vinum, landsliðsþjálfaranum og
knattspyrnusambandinu fyrir
stuðninginn,“ segir markahrók-
urinn á Twitter. „Ég get vart sagt
ykkur hversu mikils virði þetta er.
Ég elska ykkur öll.“