Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2012, Page 16
Deila um bætur
Í
dómi Hæstaréttar var í þessu
máli kveðið á um bótaskyldu
Sjóvár, ekki bótafjárhæð.“ Þetta
segir í svari tryggingafélagsins
Sjóvár við fyrirspurn DV þess
efnis hversvegna hetja sem bjarg
aði samstarfskonu sinni hafi ekki
ennþá fengið þær skaðabætur sem
hún á inni.
Ágreiningur
Þórarni Birni Steinssyni voru
dæmd ar skaðabætur í janúar, vegna
líkams tjóns sem hann hlaut eftir að
hafa bjargað samstarfs konu sinni.
Ágreiningur ríkir á milli Þórarins og
Sjóvár um það hversu miklar skaða
bætur sá fyrrnefndi á inni.
„Auðvitað hefur þetta gengið svo
lítið hægt, en það gerir það bara oft í
þessum málum,“ segir Steingrím
ur Þormóðsson lögmaður Þórar
ins í samtali við DV. „Það er búið að
meta hann og nú er verið að vinna
í því að semja um þessar bætur hjá
tryggingafélaginu.“ Hann segist ekki
vilja tjá sig frekar um málið.
„Í eðlilegum farvegi“
Þórarinn sagði í samtali við DV fyrr
í vikunni að hann hefði engar skýr
ingar fengið á því hversvegna bóta
greiðslurnar hefðu tafist eins mikið
og raunin er. Nú eru liðnir fimm
mán uðir frá því að lokadómur féll í
Hæstarétti en Þórarinn hefur einung
is fengið lítinn hluta af því sem hann
á inni hjá tryggingafélaginu.
„Sjóvá mun ekki tjá sig sérstak
lega um mál Þórarins Björns Steins
sonar að öðru leyti en því að upplýsa
að málið er í eðlilegum farvegi,“ segir
einnig í svari tryggingafélagsins sem
er stutt og skorinort. Talað var um
fullnaðarsigur þegar dómur Hæsta
réttar féll í janúar síðastliðnum en
Þórarinn hafði barist fyrir rétti sínum
í málinu í sjö ár.
Kemur sér bölvanlega
DV sagði fyrst frá málinu en Þórar
inn hlaut alvarleg bakmeiðsli
þegar hann lyfti svokallaðri bak
skautsklemmu ofan af sam
starfskonu sinni sem hafði fallið á
hana, klemmu sem vegur 620 kíló.
Í dómi Hæstaréttar segir meðal
annars að þar sem viðbrögð Þórar
ins hefðu verið í þágu hagsmuna
Norðuráls, hefði hann átt rétt á bót
um.
Í svari frá Sjóvá segir að af
greiðsla málsins skeri sig ekki úr
sambærilegum málum hvað tíma
lengd varðar. „Þeir eru eitthvað að
draga að borga þetta,“ sagði Þórar
inn í samtali við DV.
Þórarinn hefur í samtali við
DV sagt að nú stefni í aðra mál
sókn vegna þess að hann fái ekki
greitt það sem hann eigi inni hjá
tryggingafélaginu. „Þetta kem
ur sér auðvitað bölvanlega,“ sagði
Þórarinn í samtali við DV fyrr í
vikunni en hann vildi ekki gefa
upp hversu mikið hann á inni hjá
Tryggingafélaginu Sjóvá.
n Sjóvá segir ekkert athugavert við töf á skaðabótum n Þórarinn bjargaði samstarfskonu
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
„Ágreiningur ríkir
á milli Þórarins
og Sjóvá um það hversu
miklar skaðabætur sá
fyrrnefndi á inni.
Hetja Þórarinn Björn Steinsson hefur ekki ennþá fengið þær bætur sem honum voru dæmdar í Hæstarétti í janúar. MYND SIGTRYGGUR ARI
16 Fréttir 22.–24. júní 2012 Helgarblað