Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2012, Síða 40
Lærðu á gítar á netinu
n Óhentugur tími og kostnaður ekki lengur afsökun
E
ins og við vitum líklega flest
er internetið til margra hluta
nytsamlegt. Þar er bókstaflega
hægt að finna allan heimsins
fróðleik ef maður kann að leita að
honum. Á internetinu er til að mynda
hægt að sækja kennslumyndbönd og
námskeið í gítarleik fyrir lítinn pen
ing. Þannig getur þú sjálfur ákveðið
hvenær þú grípur til gítarsins og
mætir í tímana. Er þetta einkar hent
ugt fyrirkomulag fyrir upptekið fólk
sem vill stýra sínum tíma sjálft.
Á Youtube má finna ógrynni
myndbanda þar sem boðið er upp
á gítarkennslu, bæði fyrir byrjendur
og lengra komna. Myndböndin eru
vissulega af misjöfnum gæðum en
mörg þeirra eru ansi góð og vel not
hæf til að læra helstu gítargripin.
Þá býður íslenska vefsíðan guitar
party.com upp á kennslu á gítar á
mjög sanngjörnu verði. Á síðunni
má finna yfirgripsmikið safn af há
gæða kennslumyndböndum með
reynslumiklum kennurum. Hægt er
að spjalla við kennarann um hvert
myndband og getur nemandi spurt
að vild og fengið svör við fyrirspurn
um. Nemendur fá einnig að hafa
áhrif á hvaða myndbönd verða gerð
í framhaldinu. Um guitarparty.com
segir að aðstandendur síðunnar, sem
einnig var opnuð á Bandaríkjamark
aði í síðustu viku, ætli sér að gera yfir
300 myndbönd á þessu ári sem öll
verði frábær.
Til að nýta sér þjónustu síðunn
ar þarftu að skrá þig inn og kaupa
aðgang. Fyrir 499 krónur færðu að
gang að fyrstu 15 myndböndunum
í mánuð og 20 prósenta afslátt af
seinni tíma viðskiptum.
Það er því ljóst að nú er kostnaður
eða óhentugur tími á námskeiðum
engin afsökun fyrir því að læra ekki á
gítarinn sem er búinn að liggja inn í
skáp síðustu árin. Nú er um að gera
að skella sér á netnámskeið og slá í
gegn í útilegupartíinu síðar í sumar.
40 Lífsstíll 22.–24. júní 2012 Helgarblað
Stýrðu náminu Mjög auðvelt er að læra á
gítar á netinu.
Gráttu yfir
bíómynd
Ótrúlegt en satt þá virðist vera
hollt að horfa á sorglega bíómynd
ef manni líður illa, sérstaklega ef
vanlíðanin tengist ástarsambandi
eða samskiptum við maka. Niður
stöður rannsóknarteymis við ríkis
háskólann í Ohio hafa leitt í ljós
að það að gráta yfir sorglegri bíó
mynd getur fengið fólk til að hugsa
jákvætt um samband sitt og meta
það að verðleikum.
Það kann að hljóma sem al
gjör þversögn að það að leggjast í
volæði og gráta yfir bíómynd geti
aukið vellíðan, en ef betur er að
gáð kann þetta að vera fullkom
lega rökrétt. Að upplifa óraun
veruleg vandamál annarra í gegn
um kvikmyndir ætti að geta kennt
manni að meta lífið betur og sjá
vandamálin í stærra samhengi.
„Dömp“
smáforrit
Nú er komið á markað smá
forrit eða app fyrir iPhonesíma
sem hjálpar til að ákveða hvort
„dömpa“ eigi kærastanum eða
ekki. Forritið heitir einfaldlega
„Should I Break Up With My
Boyfriend?“ eða „Á ég að hætta
með kærastanum mínum?“, líkt og
það myndi þýðast á íslensku. Til
að komast að niðurstöðu þarftu
að skrá niður í símann tilfinningar
þínar gagnvart sambandinu í tvær
vikur. Eftir þann tíma veitir forritið
þér svar við þessari erfiðu spurn
ingu. Niðurstöðurnar byggja í
raun á tilfinningasveiflum og hvort
sambandið virðist oftar veita þér
gleði eða vanlíðan.
Ef þú ert búin að vera að „deita“
í nokkurn tíma og ert óviss með til
finningar þínar eða átt erfitt með
að átta þig á því hvort sambandið
veiti þér í raun gleði þá er um að
gera að nýta sér tæknina, en henni
fleytir sífellt fram.
B
rúnkusprautun hefur
hingað til verið talin örugg
asta leiðin til að ná fram
fallegri og jafnri brúnku á
líkamann, enda þurfa þá
sólargeislarnir ekki að leika um
húðina með öllum sínum skað
legu áhrifum. Þeir sem nota þessa
leið mikið gætu þó þurft að fara að
vara sig líkt og sóldýrkendurnir sem
flatamaga í sólinni fyrir brúnkuna.
Niðurstöður nýrrar rannsóknar hafa
nefnilega leitt í ljós að brúnkusprei
er ekki jafn skaðlaust og áður var
talið. Það er þó ekki virkni efnisins á
húðina sem framkallar brúnku sem
er talin hættuleg heldur er það inn
öndun þess.
Það var rannsóknarteymi við
George Washingtonháskóla und
ir forystu dr. Lynn Goldman sem
komst að þessari að niðurstöðu.
Getur valdið krabbameini
Niðurstöðurnar sýndu fram á að
efnið „dihydroxyacetone“ (DHA)
sem gjarnan er notað í brúnkusprei
væri líklegt til að ýfa upp astma
einkenni, auka líkur á lungnakrabba
meini, lungnaþembu og öðrum
alvarlegum lungnasjúkdómum, við
innöndun í miklu magni.
Ef DHA kemst í miklu magni
út í blóðrásina getur það valdið
skemmdum á DNA genamenginu
sem aftur getur hrundið af stað
krabbameinsæxlismyndun í frum
um.
Það er einmitt sú stökkbreyting
sem DHA getur valdið á lifandi frum
um sem dr. Goldman hefur mestar
áhyggjur af þegar kemur að notkun
brúnkuspreis í miklu magni.
Hafa áhyggjur af innri áhrifum
„Við höfum ekki svo miklar áhyggjur
af því sem gerist í brúnkuferlinu utan
á líkamanum heldur miklu frekar því
sem gerist inni í líkamanum kom
ist efnið ofan í öndunarfærin. Við
höfum áhyggjur af því að efnið geti
breytt genamenginu og stökkbreytt
frumum og hvaða áhrif það getur
haft á líkamann,“ sagði Goldman í
yfir lýsingu eftir að niðurstöður rann
sóknarinnar voru kynntar.
„Lungun eru stórt yfirborðs
svæði svo þetta efnasamband getur
auðveldlega komist inn í frumurnar
og blóðrásina. Það hefur ekki verið
sýnt fram á að afleiðingar þess séu
skaðlausar,“ bætti dr. Rey Panetti
eri lungnasérfræðingur við í við
tali við ABCfréttastofuna. „Fyrir
þá sem nota brúnkusprei í hóflegu
magni, kannski einu sinni í mánuði
eða sjaldnar, ætti þetta þó að vera
í lagi.“
n Getur valdið lungnasjúkdómum á borð við lungnakrabbamein
Brúnkusprei er
ekki hættulaust
Varasamt Ný rannsókn sýnir
fram á að hættulegt getur ver-
ið að anda að sér brúnkuspreii.
Efnið getur meðal annars
valdið krabbameini.
Hvað er „dihydro-
xyacetone“?
n Líka þekkt sem DHA eða „glycerone“.
Efnið er algengt, virkt innihaldsefni
í bæði brúnkukremum og spreii sem
notað eru til að ná fram brúnku án
sólar. Það er einnig töluvert notað til
vínbruggunar. Efnið verður til við gerjun
á sykurrófum eða sykurreyr.