Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2012, Qupperneq 47
Best og verst á em
Sport 47Helgarblað 22.–24. júní 2012
Úrslit
Pepsi-deildin
Breiðablik - KR 2–1
1–0 Kristinn Jónsson (79.) 1–1 Þorsteinn
Már Ragnarsson (73.) 2–1 Sverrir Ingi
Ingason (87.)
Selfoss - Fylkir 1–2
1–0 Ingimundur Níels Óskarsson (73.) 2–0
Finnur Ólafsson (77.) 2–1 Ólafur Karl
Finsen (90.)
Grindavík - ÍBV 1–3
1–0 Guðmundur Þórarinsson (64.) 2–0
George Henry Ivor Baldock (71.) 3–0 Tonny
Mawejje (89.) 3–1 Magnús Björgvinsson
(91.)
Fram-Keflavík 0–2
1–0 Frans Elvarsson (7.) 2–0 Guðmundur
Steinarsson (20.)
FH - Stjarnan 2–2
0–1 Ellert Hreinsson (2.) 0–2 Garðar
Jóhannsson (24.) 1–2 Guðjón Árni
Antoníusson (42.) 2–2 Guðjón Árni
Antoníusson (85.)
Valur - ÍA 2–1
1–0 Rúnar Már S. Sigurjónsson (26.) 1–1
Garðar Bergmann Gunnlaugsson (71.) 2–1
Rúnar Már S. Sigurjónsson (89.)
Staðan
1 FH 8 5 2 1 20:7 17
2 KR 8 5 1 2 16:11 16
3 ÍA 8 4 2 2 12:13 14
4 Stjarnan 8 3 4 1 16:14 13
5 Breiðablik 8 4 1 3 7:7 13
6 Valur 8 4 0 4 13:10 12
7 Fylkir 8 3 3 2 10:15 12
8 ÍBV 8 3 2 3 15:9 11
9 Keflavík 8 3 1 4 12:13 10
10 Selfoss 8 2 1 5 10:15 7
11 Fram 8 2 0 6 7:12 6
12 Grindavík 8 0 3 5 11:23 3
Næstu leikir
29.6 18.00 ÍBV - Valur
30.6 16.00 ÍA - FH
1.7 16.00 KR - Grindavík
2.7 19.15 Stjarnan - Fram
2.7 19.15 Fylkir - Breiðablik
2.7 19.15 Keflavík - Selfoss
EM - 8 liða úrslit
Tjékkland - Portúgal 0–1
1–0 Christiano Ronaldo (80.)
Næstu leikir
22.6 Grikkland - Þýskaland
23.6 Spánn - Frakkland
24.6 England - Ítalía
n 22 tölfræðilegar staðreyndir um riðlakeppnina á EM í knattspyrnu n Ronaldo var besti leikmaðurinn
Skutu sjaldnast
Af öllum liðunum 16 sem tóku þátt
í mótinu áttu Grikkir fæst skot á
markið. Alls áttu þeir 9 markskot
sem rötuðu á markið, eða aðeins
3 í leik að jafnaði. Þeir áttu 10 skot
sem ekki hittu rammann. Aðeins
Króatar og Danir áttu færri.
Flestar fyrirgjafir
Nani og Ronaldo eru stærstu stjörnurnar í portú-
galska landsliðinu. Þeir spila báðir á köntunum og
til þeirra er oft leitað í sóknarleiknum. Það þarf því
kannski ekki að koma á óvart að Portúgalar voru það
lið sem oftast reyndi að senda boltann fyrir markið
í riðlakeppninni, eða 37 sinnum. Aðeins sex sinnum
heppnuðust þær tilraunir.
Bestur
Portúgalinn Cristiano Ron-
aldo spilaði best allra leik-
manna í riðlakeppninni,
samkvæmt Catrol EDGE-
stuðlinum. Að baki honum
liggja flóknir útreikningar
þar sem leikmönnum eru
gefin stig fyrir frammistöðu
sína; til dæmis heppnað-
ar sendingar, tæklingar og
þátt í mörkum. Stuðullinn
tekur einnig mið af því hvar
á vellinum tiltekin sending
heppnaðist og til hvers hún
leiddi, svo dæmi sé tekið.
EDGE-stuðullinn reiknar út
heildarframlag leikmanna
til liða sinna. Ronaldo fær
einkunnina 9,68 fyrir leikina
þrjá en næstur á eftir honum
er Spánverjinn David Silva
með 9,60 í einkunn. Rússinn
Alan Dzagoev er þriðji með
9,53 og Svíinn Olof Mellberg
hlýtur 9,47 í einkunn og er
fjórði besti leikmaður riðla-
keppninnar.
Þjóðverjar
prúðastir
Aðeins þrjú rauð spjöld litu dagsins
ljós í riðlakeppninni. Grikkir fengu
eitt, Pólverjar eitt og Írar eitt. Grikk-
ir, Ítalir og Króatar fengu flest gul
spjöld, eða níu hvert lið. Þjóðverj-
ar brutu sjaldnast af sér í leikjunum
þremur og fengu auk þess fæst gul
spjöld, eða þrjú.
Vesalings
Kerzhakov
Rússneski framherjinn
Aleksandr Kerzhakov átti
ekki góða leiki á EM. Hann
var reyndar duglegur að
koma sér í færi, eins og
góðum framherja sæmir,
en gekk afleitlega að hitta
markið. Hann nýtur þess
vafasama heiðurs að vera sá
leikmaður sem oftast skaut
framhjá markinu. Í 11 skipti
hitti hann ekki rammann.
Hann fékk nokkur úrvals-
færi til að skora í mótinu.
Baros
grófastur
Tékkinn Milan Baros, fyrr-
verandi leikmaður Liver-
pool, var sá leikmaður í
riðlakeppninni sem oft-
ast braut af sér. 14 sinnum
var hann dæmdur brotleg-
ur sem er einkennileg stað-
reynd í ljósi þess að hann
spilar sem fremsti maður
síns liðs. Markaskorarinn
Mario Mandzukic, leikmað-
ur Króata, var næstoftast
dæmdur brotlegur, eða 11
sinnum.
Bjuggu
til mörkin
Þrír leikmenn lögðu upp
þrjú mörk fyrir samherja
sína í umferðunum þrem-
ur sem búnar eru. Það eru
Spánverjinn David Silva,
Rússinn Andrei Arshavin
og Englendingurinn Steven
Gerrard.
Hitti oftast á markið
Christiano Ronaldo er sá leikmaður sem oft-
ast átti skot á mark í riðlakeppninni. Hann
skaut 13 sinnum á rammann en skoraði
reyndar bara eitt mark. Hann átti reyndar
8 skot sem ekki hittu markið. Næstur á eft-
ir honum kemur Frakkinn Karim Benzema
með 12 tilraunir á markið og Spánverjinn
Andrés Iniesta með 10 marktilraunir.
Ronaldo hetjan
Cristiano Ronaldo var hetja
Portúgala þegar hann skor-
aði eina mark þeirra í sigri
gegn Tékkum í fyrsta leik
átta liða úrslita Evrópumóts-
ins í knattspyrnu á fimmtu-
dag. Leikurinn einkenndist
af baráttu beggja liða en það
var Ronaldo sem skallaði
boltann í mark Tékka á 79.
mínútu eftir góða fyrirgjöf
frá Moutinho. Portúgalar eru
því fyrsta liðið til að tryggja
sér sæti í undanúrslitum
mótsins, en í dag föstudag,
eigast við Spánverjar, ríkj-
andi Evrópumeistarar, og
Frakkar.