Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2012, Blaðsíða 54
54 Fólk 22.–24. júní 2012 Helgarblað
Skúli Mogensen hjólaði hringinn
n Var ekki í sigurliðinu
W
OW stóð fyrir alþjóð-
legri hjólreiðakeppni
19.–22. júní þar sem
hjólað var hringinn í
kringum Ísland, eða 1.332 kíló-
metra án þess að stoppa.
14 lið, skipuð fjórum þátt-
takendum hvert, tóku þátt í
keppninni og hófst hún klukk-
an 19 á þriðjudagskvöld. Áheit-
um var safnað og allur ágóði
fór til Barnaheilla.
Skúli Mogensen tók þátt í
keppninni með liði sínu, WOW
air, sem skipað var skipuleggj-
endum mótsins, en þeir, ásamt
Piltunum, Hjólafélagi mið-
aldra skrifstofumanna 1 og 2
voru með forystu þegar rúm-
lega þriðjungi keppninnar var
lokið.
Um hádegi á fimmtudag
kom svo fyrsta liðið í mark,
en það var liðið Piltarnir en
samtals voru þeir 40 klukku-
stundir og 57 mínútur á
leiðinni.
Þorvaldur
þjóðlegur
Íslenska stórstjarnan Þor-
valdur Davíð Kristjánsson
var þjóðlegur á þjóðhátíðar-
daginn. Leikarinn var stadd-
ur hér á landi en til hans sást
úti á landi þar sem hann var
að fara að skella sér í sund
á Hrafnagili í Eyjafjarðar-
sveit. Með honum í för var
unnusta hans, Hrafntinna
Karlsdóttir. Þau voru fjarri
glamúr Los Angeles þar sem
þau búa og klæddust bæði
ullarsokkum í tilefni dagsins.
Þorvaldur Davíð útskrifaðist
úr Juilliard-listaháskólan-
um í New York í fyrra. Hann
fékk svo samning við um-
boðsskrifstofu í Los Angeles
og því ákvað parið að flytja á
vesturströndina.
Glímir ekki
við spik í
eilífðinni
Mikið hefur gengið á hjá
Jónínu Benediktsdóttur sem
er gengin úr Krossinum,
söfnuði eiginmanns síns.
Ekkert er með öllu slæmt og
Jónína segir frá því á Face-
book-síðu sinni að stressið
hafi reynst megrandi. „Gott
að vera laus við 5 stresskíló.
Það er svo merkilegt með
mig, ólíkt svo mörgum, að
undir álagi borða ég of mikið
:-) Kannast einhver við það.
En nú er þetta stress farið
norður og niður, ég búin að
létta mig og róa taugarn-
ar. Svona er þetta líf, fjöll og
dalir, gleði og sorg. Ég veit
að endirinn verður góður,
reyndar trúi ég á endalaust
líf og mér hefur verið lofað
endalausri hamingju. Þar
glímir maður í það minnsta
ekki við spik.“
Bam vinsæll
Jack Ass-stjarnan Bam
Margera var á landinu líkt og
greint hefur verið frá í fjöl-
miðlum. Bam fór út á lífið og
skemmti sér meðal annars
á Prikinu. Bam er greinilega
vinsæll á meðal Íslendinga
og þolinmóður líka því ófáir
hafa birt myndir af sér með
honum á Facebook eftir
helgina. Bam, sem einnig er
mikill hjólabrettakappi, var
staddur hér meðal annars til
að taka upp efni. WOW Liðið hans Skúla Mogensen í Borgarfirði.
Hjólakeppni Hjólað í kringum landið.
É
g kom þarna fram til að
gera karlinn reglulega
vandræðalegan og söng
svo bakraddir í einu
lagi,“ sagði Helgi Seljan
fréttamaður sem steig á svið
með Bjartmari og Bergrisun-
um á afmælistónleikum Bjart-
mars í Háskólabíói um síðustu
helgi.
Helgi söng bakraddir í slag-
aranum Ég er ekki alki ásamt
Andra Frey Viðarssyni og
Ágústi Aðal steinssyni eða
Gústa pink eins og hann er
kall aður. Þeir félagarnir lögðu
bakraddasöngkonum kvölds-
ins lið en þær voru María, eig-
inkona Bjartmars, Berglind,
dóttir hans, og frænka þeirra,
Aníta.
„Það er ekki rétt sem fólk
hefur verið að segja að við
strákarnir höfum sungið Ég er
ekki Höski í viðlaginu,“ segir
Helgi en það hefur verið vin-
sælt grín á Facebook og á kaffi-
stofum landsins að „höski“ hafi
tekið við af orðinu „alki“ eftir
að Höskuldur Þór Þórhallsson,
þingmaður Framsóknarflokks-
ins, missti bílprófið sökum ölv-
unaraksturs.
Ekkert Eurovision
Tónleikarnir, sem voru haldnir
í tilefni af sextugsafmæli Bjart-
mars, eru einhverjir þeir bestu
sem Helgi hefur farið á. „Karl-
inn var í feiknastuði og bandið
alveg ótrúlega gott. Tveir nýir
meðlimir sem komu sterkir
inn og ekki skemmdi fyrir að fá
að syngja aðeins með.
Helgi segir ekki miklar líkur
á því að hann verði í bakrödd-
um í næstu Eurovision-keppni.
„Nei, eigum við ekki bara að
láta Guðrúnu Gunnars og
Pétur Jesú sjá um það. Við nut-
um góðs af því að stemn-
ingin á tónleikunum var
svo góð að það hefði ver-
ið hægt að draga gargandi
páfagauk þarna upp á svið
til að hafa í bakröddum.“
Súrmjólk í hádeginu
Helgi las meðal annars
upp pistil á tónleikun-
um sem hann skrifaði um
Bjartmar og er að finna
á nýútkominni heildar-
útgáfu á verkum Bjart-
mars. En Helgi segir
meðal annars í pistlinum
að Bjartmar sé hirðskáld
sinnar kynslóðar.
„Ég var fjögurra ára
þegar ég heyrði hann fyrst.
Ég sat við eldhúsborðið hjá
ömmu minni og át Cheerios í
súrmjólk. Skyndilega var eins
og maður í útvarpinu hæfi að
sönglýsa þeim pínulitla heimi
sem ég þá þekkti. Lag-
ið var Súrmjólk í hádeginu og
var eins og upplestur á stunda-
skrá minni; í gær, þann daginn,
hinn daginn og næsta á eftir.
Hrollkaldur raunveruleikinn
var varðaður Cheerios-i, súr-
mjólk, stressfylltum morgnum
og of seinni mömmu,“ segir
Helgi í pistlinum.
asgeir@dv.is
Alki – ekki Höski
n Helgi Seljan og Andri Freyr í bakröddum n Stefnir ekki á Eurovision
Bjartmar Guðlaugsson Fagnaði sextugsafmælinu í Háskólabíói um liðna helgi.
M
Y
N
D
IR
E
Y
ÞÓ
R
Á
RN
A
SO
N