Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2012, Page 24
24 Annáll 28. desember 2012 Áramótablað
Janúar
1.–11. janúar
Mótmælt í
Sýrlandi
n Mótmæli gegn
stjórn Bashar
al-Assad for-
seta héldu
áfram í Sýrlandi
í upphafi ársins.
Sprengja sprakk í
Damaskus þann 6. janúar með
þeim afleiðingum að 25 létust.
Þann 11. janúar kom Assad forseti
fram opinberlega í fyrsta skipti eftir
að mótmælin hófust og þakkaði al-
múganum fyrir að styðja sig.
13. janúar
Costa Concordia
strandaði
n Costa Concordia-
skemmtiferðaskipið
strandaði úti fyrir
eyjunni Giglio með
þeim afleiðingum
að 32 létust. Í kjöl-
farið fór skemmtisigl-
ingabransinn á Ítalíu í
naflaskoðun enda þótti víða pottur
brotinn í öryggismálum. Skip-
stjórinn, Francesco Schettino, var
harðlega gagnrýndur fyrir að yfir-
gefa skipið eftir að það strandaði og
gæti átt yfir höfði sér refsingu fyrir
manndráp af gáleysi.
Íbúar flúðu
skógarelda
n Yfir tíu þúsund manns neyddust
til að yfirgefa heimili sín í Nevada
í Bandaríkjunum eftir að miklir
skógareldar brutust út. Nokkrir lét-
ust í skógareldunum og tugir heim-
ila eyðilögðust.
Febrúar
1. febrúar
Uppþot á
knattspyrnuvelli
n Að minnsta kosti 73 létu
lífið þegar uppþot varð á
knattspyrnuleik í Port Said í Egypta-
landi. Öryggisgæsla á vellinum var
harðlega gagnrýnd í kjölfarið enda
tókst áhorfendum að komast inn á
völlinn með vopn. Í kjölfarið brut-
ust út óeirðir í Kaíró gegn herstjórn
landsins með þeim afleiðingum að
fjölmargir létust.
4. febrúar
Neitunarvaldi
beitt
n Rússar og Kínverjar beittu
neitunarvaldi í öryggisráði Sam-
einuðu þjóðanna gegn hernaðar-
íhlutun í Sýrlandi. Nokkrum
klukkustundum áður hafði sýr-
lenski herinn ráðist inn í úthverfi
borgarinnar Homs til að koma upp-
reisnarmönnum frá. Fjölmargir
féllu í þessum hluta borgarinnar
enda rigndi sprengjum yfir hann.
12. febrúar
Fjöldamótmæli
í Aþenu
n 80 þúsund manns komu saman
í Aþenu, höfuðborg Grikklands,
til að mótmæla boðuðum niður-
skurði stjórnvalda. Mótmælin fóru
úr böndunum og í kjölfar þeirra var
kveikt í 40 byggingum. Daginn eftir
samþykkti gríska þingið aðgerðirn-
ar enda eina leiðin til að fá neyðar-
lán.
13. febrúar
Hjónabönd sam-
kynhneigðra
n Washington varð sjöunda ríki
Bandaríkjanna til að leyfa hjóna-
bönd samkynhneigðra. Nokkrum
dögum áður hafði dómstóll í Kali-
forníu fellt úr gildi lög í ríkinu sem
bönnuðu samkynhneigðum að gift-
ast.
14. febrúar
300 farast
í eldsvoða
n Að minnsta kosti 300 fangar létu
lífið þegar eldur kom upp í
fangelsi í Hondúras.
26. febrúar
Trayvon
Martin
skotinn
n Trayvon Martin, 17 ára blökku-
maður, var skotinn til bana í San-
ford í Flórída. George Zimmerman,
sem sinnti nágrannavörslu á
svæðinu, var handtekinn grunað-
ur um verknaðinn. Mikil mótmæli
blossuðu upp eftir að honum var
sleppt úr haldi.
Mars
4. mars
Pútín kjörinn
forseti
n Vladimír Pútín var kjörinn forseti
Rússlands með 64 prósentum at-
kvæða. Í kjölfarið var hann sakaður
um kosningasvindl og fjöldi fólks
mótmælti nýkjörnum forseta á göt-
um úti.
10. mars
Hermaður gekk
berserksgang
n Bandarískur hermaður, Robert
Bales, skaut 17 manns, þar á með-
al níu börn, til bana í nágrenni
herstöðvar Bandaríkjahers í
Afganistan. Í kjölfarið urðu mikil
mótmæli gegn íhlutun Bandaríkja-
hers í Afganistan. Hamid Karzai,
forseti landsins, kallaði í kjölfarið
eftir því að Bandaríkjamenn
minnkuðu umsvif sín verulega í
landinu á næstu misserum.
19. mars
Fjórir myrtir í
gyðingaskóla í
Frakklandi
n Mohammed Merah, franskur
maður af alsírskum uppruna,
skaut fjóra til bana í gyðingaskóla
í Toulouse í Frakklandi. Merah
sagðist hafa verið meðlimur al-
Kaída-hryðjuverkasamtakanna og
skotárásin væri hefnd vegna drápa
á börnum í Palestínu. Þann 22.
mars, eftir 30 klukkustunda um-
sátur, var Merah skotinn til bana af
lögreglu.
21. mars
Sam-
þykkti
vopnahlé
n Bashar al-Assad, forseti Sýrlands,
féllst á beiðni Sameinuðu þjóðanna
um vopnahlé í landinu og sagðist
ætla að draga herafla sinn til baka
innan tuttugu daga. Margir efuðust
þó um að hann efndi loforð sitt.
Apríl
1. apríl
Baráttukona
komst á þing
n Baráttukonan og
Nóbelsverðlauna-
hafinn Aung San
Suu Kyi komst á
þing eftir þing-
kosningarnar í
Mjanmar. Suu Kyi
hlaut friðarverðlaun
Nóbels árið 1991 en var handtekin
ári áður og haldið í stofufangelsi í
fimmtán ár.
4. apríl
2.000 sagt upp
hjá Yahoo
n Netrisinn Yahoo tilkynnti að tvö
þúsund starfsmönnum, eða 14 pró-
sentum allra starfsmanna fyrirtæk-
isins, hefði verið sagt upp störfum.
Niðurskurðinum var ætlað að spara
fyrirtækinu 375 milljónir dala árlega.
11. apríl
Stór skjálfti reið
yfir Indónesíu
n Jarðskjálfti að stærðinni 8,6 varð
undan ströndum Indónesíu og í
kjölfarið var send út flóðbylgju-
viðvörun. Eftirskjálfti af stærðinni
8,2 reið yfir skömmu síðar en sem
betur fer varð eignatjón lítið og
engin flóðbylgja reið yfir í kjölfar
skjálftans.
22. apríl
Blindur að-
gerðasinni
n Chen Guangcheng, blindur lög-
fræðingur og einn þekktasti andófs-
maður Kína, flúði úr stofufangelsi
þar sem hann hafði verið frá árinu
2010. Chen hafði unnið sér það til
saka að berjast gegn þvinguðum
fóstureyðingum í Linyi-héraði.
Chen flúði loks til Bandaríkjanna og
var útveguð íbúð í stúdentagörðum
New York-háskóla.
Maí
1. maí
Sögulegt
samkomulag
n Barack Obama Bandaríkja forseti
skrifaði undir samkomulag við Ha-
mid Karzai, forseta Afganistans,
þess efnis að Bandaríkjamenn
veittu Afgönum fjárhagsaðstoð í
tíu ár eftir fyrirhugað brotthvarf
Bandaríkjamanna frá landinu á
næsta ári.
n Árið einkenndist af áframhaldandi ólgu í Mið-Austurlöndum n Náttúruhamfarir tóku sinn skerf en voru minna áberandi en árin á undan
2012: Ár ólgu og ófriðar
Erlendur fréttannáll árið 2012