Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2013, Qupperneq 2
Þ
að kemur mikið af styttum
eftir Guðmund frá Miðdal,
tugir styttna á hverju. Það er
ekkert leyndarmál og hefur
alltaf verið í gegnum árin,“
segir Friðrik Ragnarsson, verslunar-
stjóri í Góða hirðinum, aðspurður um
magn verka eftir þekkta myndlistar-
menn sem berast versluninni. „Þessi
verk hafa oft verið boðin upp á upp-
boðum hérna í gegnum árin.“
Guðmundur Einarsson frá Mið-
dal var þekktur listamaður, fjallamað-
ur og veiðimaður sem gerði meðal
annars styttur og höggmyndir. Með-
al þeirra styttna sem hann gerði voru
styttur af dýrum, til að mynda fálkum
og rjúpum. Guðmundur fæddist árið
1895 og lést árið 1963. Hann er fað-
ir listamannsins Errós, Guðmundar
Guðmundssonar, og Ara Trausta Guð-
mundssonar, jarðfræðings og rithöf-
undar.
Ógrynni hluta
Góði hirðirinn er nytjamarkaður
Sorpu og skilja viðskiptavinirnir lista-
verkin eftir í gámum á starfsstöðvum
Sorpu. Verkin eru svo seld á uppboð-
um hjá Góða hirðinum, líkt og aðrir
munir sem viðskiptavinir Sorpu skilja
eftir til að selja í versluninni. Frið-
rik segir að ógrynni af hlutum berist
Góða hirðinum og að oft geti verið
erfitt að henda reiður á þá alla. „Það
kemur svo ofboðslega mikið af hlut-
um hingað þannig að yfirleitt staldrar
hugurinn ekki lengi við einstaka hluti
því þetta selst jafnt og þétt.“
Seldar á allt að hundrað
þúsundum
Friðrik segir að styttur Guðmundar frá
Miðdal seljist á nokkur þúsund krón-
ur og allt upp í meira en hundrað þús-
und á uppboðum í Góða hirðinum.
Því er um að ræða verðmæti sem ýms-
ir eru reiðubúnir að greiða ágætt verð
fyrir. „Það er voða misjafnt hvað þess-
ar styttur fara á: Allt frá 8 til 10 þús-
unda að lágmarki – stundum eru þær
brotnar og við þurfum að líma þær –
og upp í meira en hundrað þúsund,“
segir Friðrik.
Kvittur um Kjarvalsverk
Sú saga hefur spurst út að Góða
hirðinum hafi fyrir skömmu borist
verk eftir Jóhannes Kjarval sem skilið
hafi verið á endurvinnslustöð Sorpu
– væntanlega þá af einhverjum sem
ekki hefur vitað að um Kjarvalsverk
hafi verið að ræða. Samkvæmt þeirri
sögu átti Kjarvalsverkið að hafa ver-
ið selt á 85 þúsund krónur á uppboði
í Góða hirðinum. „Nei, við höfum
aldrei séð svoleiðis verk hér. Við höf-
um aldrei fengið Kjarvalsverk hingað
inn, ég myndi muna það. Við erum að
selja listaverk hérna allan ársins hring
á öllu verði, meðal annars því sem þú
nefnir í tilfelli Kjarvalsverksins en ég
kannast ekki við að hafa séð það hér,“
segir Friðrik.
Aðspurður hvort hann muni eftir
því að Góða hirðinum hafi borist verk
eftir þekkta íslenska listamenn eins og
Gunnlaug Scheving, Jón Stefánsson,
Louisu Matthíasdóttur eða aðra slíka
segir Friðrik að hann reki ekki minni
til þess.
Miðað við orð hans er hins vegar
algengt að þokkalega verðmætum
listaverkum sé hent á Sorpu í stað þess
að vera seld annars staðar; listaverk-
um sem geta farið á meira en 100 þús-
und á uppboðum Góða hirðisins. n
2 Fréttir 16.–18. ágúst 2013 Helgarblað
Lánaði bæturnar
3 Georg Viðar Björnsson, fyrrver-andi varaformaður Breiðavíkur-
samtakanna, lánaði Hauki Haralds-
syni, sem gjarnan er kenndur við
danshópinn Pan, milljón krónur af
bótafé sem hann fékk frá ríkinu vegna
Breiðavíkurmálsins. Nú eru liðnir átta
mánuðir frá lánveitingunni og enn
hefur Georg ekki fengið krónu af höf-
uðstólnum til baka, þrátt fyrir ítrek-
aðar innheimtutilraunir, en fær þó
himinháar vaxtagreiðslur frá dans-
kónginum fyrrverandi. Þetta kom fram
í DV á mánudag og þar sagðist Georg
hafa séð eftir að hafa lánað bæturnar.
Meintur ritsóði
rannsakaður
2 Lögreglan á Vopna-
firði rannsakar nú
meint ærumeið-
andi ummæli Em-
ils Thorarensen
í garð lögreglu-
mannsins Þórs
Þórðarsonar, sem
hann kallar Ofur-
Þór. Ummælin lét Emil falla í opnu
bréfi sem hann birti á Facebook-vegg
sínum og stílað var á Inger L. Jóns-
dóttur, sýslumann á Eskifirði. Emil og
Þór eru búsettir á Eskifirði, en sökum
vanhæfis lögreglunnar á staðnum var
lögreglumaður frá Vopnafirði fenginn
til að annast skýrslutöku á hinum
meinta ritsóða. Á milli þessara tveggja
kaupstaða eru 179 kílómetrar.
Hræðilegt slys
1 „Ég er heppinn
að vera ekki
lamaður,“ sagði
athafnamað-
urinn Róbert
Wessman í DV
á mánudag.
Róbert lenti í
slæmu hjól-
reiðaslysi á
Krýsuvíkurvegi föstudaginn 12. júlí
síðastliðinn. Slysið varð á síðustu
hjólaæfingu Róberts fyrir hreysti-
keppnina Járnkarlinn 2013. „Ég var
að hjóla á svona 48 kílómetra hraða,“
sagði Róbert en á undan honum var
bíl ekið, sem allt í einu staðnæmdist
úti á miðjum vegi. Róbert lenti á full-
um hraða aftan á bílnum og allt varð
svart. Róbert hryggbrotnaði í slysinu
en er á batavegi.
Fréttir vikunnar Þessar fréttir bar hæst í DV í vikunni
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Verðmætri list
hent í Sorpu
n Verk þekktra listamanna enda í Góða hirðinum og eru seld á uppboðum
Seljast fyrir fínt verð
Styttur Guðmundar frá
Miðdal seljast oft fyrir
ágætt verð í Góða hirðin-
um, allt upp í meira en
hundrað þúsund krónur.
Hér sést Guðmundur
mála mynd árið 1934.
„Upp í meira en
hundrað þúsund.
Virðast ekki átta sig Viðskiptavinir Sorpu virðast ekki átta sig á hvað þeir gætu fengið
mikið fyrir sum af þeim listaverkum sem enda í Góða hirðinum. Mynd RÓbeRt ReyniSSon
Íslendingar
óhultir
Sendiráð Íslands í Ósló hefur
verið í sambandi við Íslendinga
sem vitað er að búa í Egypta-
landi og eru þeir allir óhultir.
Skálmöld ríkti í höfuðborginni
Kaíró á miðvikudag og á fimmtu-
dag var staðfest að rúmlega 500
manns hefðu látið lífið þegar ör-
yggissveitir gerðu áhlaup á mót-
mælabúðir stuðningsmanna
Mohammeds Morsi í borginni.
Sendiráðið í Ósló er sendiráð
Íslands gagnvart Egyptalandi
og samkvæmt upplýsingum frá
utanríkisráðuneytinu eru þeir
Íslendingar sem búsettir eru á
svæðinu „í góðu lagi.“
Ráðuneytið beinir þeim til-
mælum til Íslendinga að forðast
ferðalög til Egyptalands vegna
ástandsins þar.
Sigmundur
hittir Barack
Obama
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
forsætisráðherra mun funda með
Barack Obama Bandaríkjaforseta
í september. Sigmundur verður
í Stokkhólmi þann 4. september
á fundi með forsætisráðherrum
Svíþjóðar, Danmerkur og Finn-
lands en Barack Obama verður
einnig í Svíþjóð og mun hann
eiga kvöldverðarfund með for-
sætisráðherrunum. Samkvæmt
danska utanríkisráðuneytinu
verður samvinna Bandaríkjanna
og Norðurlandanna á ýmsum
sviðum, meðal annars utan-
ríkis- og þróunarmála, rædd á
kvöldverðarfundinum.