Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2013, Blaðsíða 4
S
tjórnendur fjölmiðla fyrir
tækisins 365 hafa boðað
til funda út af stöðunni
á Fréttablaðinu en fjöldi
starfsmanna hefur sagt
upp störfum á blaðinu á liðnum
mánuðum samhliða því sem
reynslumiklir starfsmenn hafa verið
reknir. Þetta herma heimildir DV.
Fundahöldin beinast fyrst og fremst
að stöðu Mikaels Torfasonar sem
yfir ritstjóra fjölmiðla 365 en sjaldan
eða aldrei hefur verið eins mikil
ólga á ritstjórn Fréttablaðsins og
síðustu mánuðina. Stjórnendur 365
brugðust hins vegar ekki við þessari
ólgu fyrr en nýlega og grasseraði hún
því áfram meðal starfsmanna.
Óánægja hefur verið meðal
einhverra starfsmanna blaðsins
vegna ráðningar Mikaels í stól
ritstjóra Fréttablaðsins og síðar
yfirritstjóra miðla 365. Var Mikael
þar með settur yfir Ólaf Stephensen,
ritstjóra Fréttablaðsins, sem hefur
verið nokkuð vinsæll og óumdeildur
í starfi á blaðinu og hefur setið á
friðarstóli. Um það bil tíu starfsmenn
hafa sagt upp störfum á Fréttablaðinu
á liðnum mánuðum auk sem öðrum
eins hópi hefur verið sagt upp
störfum, meðal annars tveimur
reynslumiklum fréttastjórum.
Spurt um Mikael
Starfsmannastjóri Fréttablaðsins
boðaði meðal annars nokkra af
starfsmönnum blaðsins á sinn
fund fyrir skömmu og spurði þá út
í „ástandið“ eins og það er orðað af
þeim sem til þekkja. Voru þeir meðal
annars spurðir að því hvort þeir teldu
að andrúmsloftið á Fréttablaðinu
yrði betra ef Mikael Torfason yrði
ekki áfram yfirritstjóri miðilsins. Eftir
því sem DV kemst næst er sú skoðun
ekki fjarri ýmsum starfsmönnum
blaðsins.
Óánægjan með Mikael beinist
fyrst og fremst að því hversu
takmarkaða færni í mannlegum
samskiptum hann er talinn hafa
og að hann sýni fólki vanvirðingu
og frekju. Auk þess efast ýmsir af
starfsmönnum blaðsins einnig um
getu hans sem ritstjóri, meðal annars
í ljósi þess að hann þykir hvorki hafa
vit né áhuga á flóknari og þyngri
samfélagsmálum eins og stjórnmála,
viðskipta og efnahagsfréttum.
Sem dæmi um andrúmsloftið þá
var í síðustu viku haldið kveðjuhóf
fyrir núverandi og fyrrverandi
starfsmenn Fréttablaðsins þar sem
hermt er að afmælissöngurinn hafi
verið sunginn í kaldhæðni fyrir
Mikael. Ritstjóranum var ekki boðið
í samkvæmið.
Kannast við „titring“
Ari Edwald, forstjóri 365,
segist kannast við ólgu innan
Fréttablaðsins. „Það er sjálfsögðu
hlutverk mannauðsstjóra
fyrirtækisins að kanna hug
starfsmanna til þess sem hér er að
gerast, bæði plús og mínus. […] Ég
kannast bæði við ánægju og óánægju,
líka mikla ánægju. Það er alveg ljóst
að það voru nokkrir starfsmenn
sem hættu á Fréttablaðinu, öðrum
var sagt upp. Það er að sjálfsögðu
ákveðinn titringur sem slíkum
breytingum fylgir og eðlilegt að fara
yfir það í rólegheitum og fá „input“
frá mörgum um hvernig eigi að móta
framhaldið. […] Nei, þessi ólga fer
ekkert framhjá manni,“ segir Ari.
Aðspurður hvort að eitthvað sé
ákveðið um framhaldið þá segir Ari
að það sé stöðugt í skoðun „frá degi
til dags“ innan 365 hvað megi laga.
Ari segir að hann þekki
ekki einstaka fundi sem
starfsmannastjóri 365 heldur með
tilteknum starfsmönnum þar
sem starfsmannastjóri greini ekki
forstjóra frá öllum slíkum samtölum.
Auk þess hljóti að ríkja trúnaður
um þessi samskipti. Hann segir að
starfsmannastjórinn ráðfæri sig
svo við forstjóra um mögulegar
breytingar. „Við leggjum mikið upp
úr því að hafa hér góðan starfsanda
og hann hefur verið mjög góður
og verður það áfram. Við viljum að
sjálfsögðu hafa fólk ánægt hérna og
reynum að koma hlutunum þannig
fyrir að svo megi vera.“
Boðaður á fund
DV hefur heimildir fyrir því að
þegar Ólafur Stephensen komi úr
sumarfríi á dögunum hafi hann og
Mikael Torfason verið boðaðir á
fund með nokkrum stjórnendum
365. Fundurinn mun hafa komið
flatt upp á Mikael sem hafði ætlað að
taka umsækjanda um starf í viðtal í
stað þess að sækja umræddan fund.
Þegar umsækjandinn um starfið kom
í viðtalið var hins vegar enginn til að
taka á móti honum. Þetta bendir til
að boðað hafi verið til fundarins án
mikils fyrirvara. Fundur Mikaels,
Ólafs og Ara mun hafa staðið í um
tvo tíma.
Á sama tíma og starfsmannastjóri
365 boðar blaðamenn Fréttablaðsins
í viðtal til að spyrja þá út í andrúms
loftið og stöðuna á blaðinu í kjölfarið
á komu Mikaels funda ráðamenn
fyrir tækisins með honum og hin
um ritstjóra blaðsins. Þessi funda
höld hafa orðið til þess að starfsmenn
Fréttablaðsins eru farnir að spyrja sig
að því hvort breytinga sér að vænta
hjá stjórnendum blaðsins. Líkt og Ari
segir þá er framtíð 365 í stöðugri mót
un og endurskoðun og leggur forstjór
inn mikið upp úr því að starfsandinn
hjá fjölmiðlafyrirtækinu sé góður. n
4 Fréttir 16.–18. ágúst 2013 Helgarblað
Boðið er upp á tveggja vikna spænskunámskeið með menn-
ingarlegu ívafi í Extremadurahéraði á Spáni. Kennt er í 3
tíma á dag utan þá tvo daga sem farið er í dagsferðir.
Fyrri vikuna er dvalið í klaustri sem breytt hefur verið í þriggja stjörnu
hótel í þorpinu La Parra. Þar gefst góður tími til slaka á, ná sambandi við
náttúruna og kyrrðina og borða mat sem framleiddur er í héraðinu.
Síðari vikuna er dvalið á undurfallegu fjögurra stjörnu hóteli á ráðhús-
torginu í bænum Zafra. Leiðsögumaður og spænskukennari er Margrét
Jónsdóttir Njarðvík, vararæðismaður Spánar.
Haustbúðir á Spáni
- fyrir fullorðna
www.mundo.is
11. - 25. október 2013
Verð: 369.900 miðað við tvo í herbergi
Verð: 410.000 miðað við einn í herbergi
Nánari upplýsingar í síma 6914646 eða margret@mundo.is
Innifalið: Flug, hótel, fæði (fullt fæði fyrri vikuna, hálft fæði
síðari vikuna), rútuferðir, skoðunarferðir til Mérida og Sevilla,
spænskukennsla 3 klst. á dag, gönguferðir við sólarupprás
í 2-3 klst á dag, jóga þrisvar í viku, aðgangseyrir að Reales
Alcazares í Sevilla og aðgangseyrir að söfnum í Mérida.
Íslendingar
halda sig heima
Brottfarir Íslendinga um Flug
stöð Leifs Eiríkssonar voru um
fimm prósentum færri í júlí síð
astliðnum en þær höfðu verið á
sama tíma í fyrra. Þetta kemur
fram á vef Greiningar Íslands
banka og þar kemur enn frem
ur fram að brottfarir Íslendinga
í mánuðinum hafi verið 33.400
en voru 35.100 í júlí í fyrra. Þetta
er annar mánuðurinn í röð sem
samdráttur á sér stað í brott
förum Íslendinga á milli ára,
en í júní síðastliðinn hljóðaði
hann upp á tæp átta prósent.
Greining vísar í tölur frá Ferða
málastofu Íslands um brottfarir
gesta frá landinu um Flugstöð
Leifs Eiríkssonar. „Þessi þróun
er nokkuð önnur en við höfðum
reiknað með þar sem ýmislegt
hefur bent til þess að Íslendingar
yrðu meira á faraldsfæti nú í ár
en í fyrra. Þannig hafa niður
stöður úr ársfjórðungslegri
könnun Capacent Gallup fyrir
fyrstu tvo fjórðunga ársins bent
til þess að landsmenn væru
nokkuð líklegri til þess að láta
undan útþrá sinni næsta árið
en þeir voru á sama tíma í fyrra.
Þar að auki var talsverður frétta
flutningur fyrr í sumar af því að
Íslendingar væru margir hverjir
orðnir langþreyttir á veðrinu, og
því hefði salan í utanlandsferð
um aukist talsvert,“ segir á vef
Greiningar og bætt við að ef tek
ið sé mið af sjö fyrstu mánuðum
ársins séu brottfarir Íslendinga
um Flugstöð Leifs Eiríkssonar
203.600 samanborið við 205.900
í fyrra. Nemur fækkunin á milli
ára rétt rúmlega einu prósenti.
Þó svo að Íslendingar haldi
sig í meira mæli heima er ekkert
lát á komum erlendra ferða
manna hingað til lands þar
sem met er slegið mánuð eftir
mánuð. Þannig var júlímánuður
fjölmennasti ferðamanna
mánuður frá upphafi, en þá
fóru rúmlega 123.500 erlend
ir gestir frá landinu um Flug
stöð Leifs Eiríkssonar. Um er að
ræða aukningu upp á tíu prósent
frá því í júlí í fyrra. Búast má því
að þetta met verði slegið enn
eina ferðina nú í ágústmánuði
enda hefur sá mánuður ávallt
verið fjölmennasti ferðamanna
mánuður ársins.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Fundað um stöðuna
Fundað hefur verið um
stöðuna á Fréttablaðinu eftir
komu Mikaels Torfasonar í
ritstjórastólinn og segist Ari
Edwald kannast við „titring“
meðal starfsmanna.
Krísufundir á
Fréttablaðinu
n Ari Edwald kannast við „titring“ innan Fréttablaðsins n Spurt um Mikael
Spurt um Mikael Starfsmannastjóri
365 hefur fundað með starfsmönnum
Fréttablaðsins og meðal annars spurt hvort
ástandið myndi batna ef Mikael væri ekki
ritstjóri.
Ólafur Stephensen DV hefur heimildir
fyrir því að þegar Ólafur Stephensen og
Mikael Torfason hafiverið boðaðir á fund með
nokkrum stjórnendum 365.
Það er að
sjálfsögðu
ákveðinn
titringur