Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2013, Blaðsíða 19
Fjöldamorð í
Egyptalandi
Fréttir 19Helgarblað 16.–18. ágúst 2013
Evrópu niður sveiflan á enda
n Landsframleiðsla eykst á evrusvæðinu á ný
N
iðursveiflunni í Evrópu er
lokið. Þetta segir í frétt á við-
skiptavef CNN en tilefnið nýj-
ustu tölur fyrir annan árs-
fjórðung 2013 sem sýna 0,3 prósenta
aukningu í landsframleiðslu (GDP)
á evrusvæðinu.
Þetta er í fyrsta sinn sem lands-
framleiðsla eykst síðan á þriðja árs-
fjórðungi 2011. Í frétt CNN er betri
staða tveggja stærstu hagkerfanna,
Þýskalands og Frakklands, nefnd
sem stærsta ástæðan fyrir þessum
viðsnúningi auk þess sem kreppan
sé að hjaðna í þriðja og fjórða
stærsta hagkerfinu, á Spáni og Ítalíu.
Bæði staða Þýskalands og Frakk-
lands var sterkari en fræðimenn
höfðu spáð en þýska hagkerfið óx
um 0,7 prósent á milli fjórðunga og
það franska um 0,5 prósent.
Neytendur og fyrirtæki virðast
vera að taka við sér þegar kemur að
neyslu og fjárfestingum og eru sögu-
lega lágir stýrivextir Seðlabanka
Evrópu nefndir til sögunnar sem
ein af orsökunum. Einnig aðgerðir
stjórnvalda víða til að auka hagvöxt.
Þrátt fyrir þessa aukningu er enn
búist við því að landsframleiðsla
minnki um 0,6 prósent þegar árið
er skoðað í heild en að sama skapi
er áætlað að hún aukist þó nokkuð
á árinu 2014.
Það er þó ýmislegt sem enn gæti
farið úrskeiðis og má nefna að þrátt
fyrir að atvinnuleysi sé nú stöðugt á
svæðinu þá hefur það aldrei verið
jafn mikið. Þá telja sérfræðingar að
pólitískur óstöðugleiki í Grikklandi
og á Spáni gæti einnig haft áhrif.
Þá er skuldastaða evrusvæðisins
Landsframleiðsla eykst í fyrsta skipti síðan 2011
Q3
Q4
Q1
Q2
Q3
Q4
Q1
Q2
0,1%
-0,3%
-0,1%
-0,2%
-0,1%
-0,6%
-0,3%
0,3%
2011 2012
í heild 90% af landsframleiðslu og á
enn eftir að hækka.
Portúgal er einnig að berjast fyrir
því að fá neyðarlán og bætist þá í
hóp ríkja eins og Grikklands, Írlands
og Kýpur. n asgeir@dv.is
Evrusvæðið á uppleið
H
ei
m
iL
d
e
u
r
o
s
ta
t
2013
n Borgarastyrjöld yfirvofandi n Lögreglan felldi hundruð mótmælenda
L
jóst er að í það minnsta 525
voru drepnir á miðvikudag
þegar lögreglan í Egyptalandi
réðst til atlögu í tjaldbúðum
mótmælenda í Kaíró. Flestir
féllu í höfuðborginni Kaíró en átök
urðu einnig víðar í landinu. Sveitir
lögreglunnar réðust á tvennar mót-
mælabúðir og fjórar kirkjur. Síauk-
innar spennu hefur gætt á milli stríð-
andi fylkinga, sitjandi stjórnvalda og
Bræðralags múslima, undanfarnar
vikur. Miðvikudagurinn var blóð-
ugasti dagurinn í landinu í tvö ár,
eða síðan þáverandi stjórnvöld voru
hrakin frá völdum.
Rétt er að taka fram að upplýs-
ingum um fjölda látinna ber ekki
saman, frekar en stundum áður.
Stjórnvöld segja að mannfallið hafi
verið minna en aðrir óttast að mun
fleiri hafi fallið í valinn. Þannig telja
stuðningsmenn hins fallna forseta,
Mohammed Morsi, að fleiri en tvö
þúsund manns hafi látið lífið. Ekki er
víst að tilkynnt hafi verið um alla þá
sem féllu í átökunum.
„Fjöldamorð“
BBC greinir fá því að fréttamaður
þeirra hafi séð um 140 lík sem hul-
in höfðu verið klæðum við Eman-
moskuna, nærri búðum mótmæl-
enda á Rabaa al-Adawiya-torginu.
Fjölmargir hafa fordæmt að-
gerðir lögreglunnar, þeirra á meðal
Bandaríkjamenn, Frakkar, Evrópu-
sambandið og Sameinuðu þjóðirnar.
Tyrkneski forsætisráðherrann, Recep
Tayyip Erdogan, lýsti aðgerðunum
sem „grafalvarlegu fjöldamorði“. Ör-
yggisráð Sameinuðu þjóðanna verði
að kalla saman þegar í stað. Francois
Hollande, forseti Frakklands, hefur
hvatt Egypta til að forðast aðgerð-
ir sem leitt geti til borgarastyrjaldar
í landinu. Nauðsynlegt sé að lausn
verði fundin á óöldinni og að kosn-
ingar verði haldnar í landinu eins
skjótt og verða má.
Varaforsetanum nóg boðið
Bráðabirgðastjórnin í Egyptalandi,
undir forystu Hazem Beblawi for-
sætisráðherra, sem herinn skipaði á
dögunum, segir að nauðsynlegt hafi
verið að ráðast á mótmælabúðirnar.
Markmiðið hafi verið að tryggja
frið í landinu. Á meðal hinna föllnu
var á fimmta tug lögreglumanna.
Mohammed ElBaradei, varaforseti
í bráðabirgðastjórn hersins, sagði af
sér í kjölfar uppþotanna og sagðist
harma manntjónið. ElBaradei, fyrr-
verandi framkvæmdastjóri Alþjóða-
kjarnorkumálastofnunarinnar og
friðarverðlaunahafi Nóbels, hefur
verið einn helsti andstæðingur
Morsi.
Í afsagnarbréfi sínu til Adly
Mansour bráðabirgðaforseta, sem
skipaður var í embætti þegar Morsi
var steypt af stóli snemma í júlí,
lýsir ElBaradei þeirri skoðun sinni
að auðveldlega hefði mátt koma í
veg fyrir blóðbaðið og binda enda á
þá stjórnmálakreppu sem ríkt hafi í
landinu. Það hefði verið hægt með
friðsamlegum aðgerðum. Hann væri
ósammála aðferðum stjórnarinnar
og óttist frekari afleiðingar.
Bræðralag múslima, stuðnings-
menn Mohammed Morsi, efndi til
mótmælagöngu í Kaíró á fimmtudag
með það að markmiði að mótmæla
aðgerðunum. Samtökin virðast
hvergi af baki dottin þrátt fyrir blóð-
baðið. Óttast er að borgarastyrjöld
kunni að vera handan við hornið. n
Herinn ræður Kallað hefur verið eftir því
að Öryggisráð SÞ komi saman.
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Óeirðir Lögreglan
brenndi kirkjur og
felldi hundruð mót-
mælenda.myndir reuters
skelfing Lík liggja víða um átakasvæðin.
Dæmdur fyrir
vinabeiðni
18 ára Svíi hefur verið sakfelldur
fyrir að rjúfa nálgunarbann sem
ung kona hafði fengið hann
dæmdan í. Vinabeiðni sem mað-
urinn sendi konunni á samfélags-
miðlinum Facebook nægði til að
dómari mat það svo að hann hefði
rofið bannið. The Local segir frá
þessu. Maðurinn, sem hefur áður
fengið dóm fyrir kynferðisbrot,
fékk skilorðsbundinn dóm og sekt
að auki fyrir athæfið. Í niðurstöðu
dómsins kemur fram að með því
að senda konunni vinabeiðni hafi
hann reynt að hafa samband við
hana. Það væri honum óheimilt.