Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2013, Blaðsíða 36
S
viðsmyndin minnir mann
umsvifalaust á elskaðasta
sjónvarpsmann þjóðarinn-
ar – Hemma Gunn heitinn.
Pastellitir, diskókúlur,
ljósastandar og flísarnar á gólfinu.
Tónlistarmaðurinn Maggi Kjartans,
sem var samstarfsmaður Hemma
til margra ára í Á tali, er nýbúinn að
yfir gefa settið – „hann sló í gegn“
segja tökumennirnir glaðir í bragði.
Það er nostalgía í loftinu, nánast
eins og maður sé kominn í tímavél.
Stúdíó 1
Tæknimaður kemur með kassa af
bjór. Tökum á sjötta þættinum af
Veistu hver ég var? er nýlokið og
tíu mínútna pása áður en næsti
þáttur rúllar af stað. Stúdíóið er
í kjallaranum í gamla Tónabæ í
Skaftahlíðinni þar sem 365 er nú
til húsa. Stúdíóið heitir Stúdíó 1 og
ganga gestir niður tröppur á rauð-
um dregli áður en komið er inn í
stúdíóið sjálft.
Siggi opnar einn kaldan og við
ákveðum að bíða með spjallið þar
til tökum sé lokið á næsta þætti. Ég
segi pass við bjórnum en fæ mér í
staðinn 7 up og Doritos-flögur og
fylgist með næsta hópi áhorfenda
koma sér fyrir, þarna eru konur úr
saumaklúbbi eiginkonu Sigga og
þær eiga eftir að skemmta sér vel
þegar „maskínan“, eins og Siggi
kallar sig stundum, byrjar sjóvið.
Hin íslenska þjóðarsál
Sjónvarpsþátturinn er byggður á
hinum feikivinsælu útvarpsþáttum
Sigga – Veistu hver ég var? Þættirn-
ir eru að sögn Sigga vinsælustu út-
varpsþættir landsins. Vinsælli en
sjálfar kvöldfréttirnar. Enda er
þátturinn eins konar fréttaþáttur
hins íslenska djammara þar sem
nauðsynlegir fylgihlutir eru grill og
heitur pottur. Í þáttunum er opið
fyrir innhringingar og svo virðist
sem fólk keppist við að hringja úr
heitu pottunum og biðja um óska-
lög – kannski er Veistu hver ég var?
hin nýja Þjóðarsál – þjóðar sem er
orðin þreytt á nöldrinu og vill ferð-
ast aftur í tímann á laugardagseftir-
miðdögum.
„Þetta gekk bara vel,“ segir Siggi
þegar við tyllum okkur niður eftir
tökurnar. Tæknimaður gefur Sigga
fimmu – „besti þátturinn hingað til.
Maskínan er með þetta,“ segir hann
og Siggi tekur undir. Ég skrifa hjá
mér að spyrja hann út í nafngiftina.
Bjórflaskan er horfin og nú er Siggi
með kók í hönd, erfiður vinnudagur
að baki, sjö þættir af Veistu hver ég
var? komnir í hús.
Konungur útvarpsins
„Þetta var bara dauður tími. Laugar-
dagseftirmiðdegi á Bylgjunni. Það
nennti í raun enginn að vera í stúd-
íóinu á þessum tíma. Þannig að
ég talaði við Bjarna Ara og Gústa
Heimis og spurði hvort ég mætti
ekki búa til sjóv. Ég skrifa hand-
rit að öllum þáttunum, skipulegg
þá eins og ég get. En símtölin eru
raunveruleg. Það spyrja mig margir
hvort þau séu ekki feik. En ég svara
á móti: Hvernig gæti ég leikstýrt
svona símtölum? Þarna er fólk að
hringja út um allt land, allir komn-
ir í heita pottinn með kjöt á grillinu.
Maður býr ekki svona stemningu til.
Þessi stemning er í gangi og ég opn-
aði bara einhvern glugga og gaf fólki
bara vettvang til að láta í sér heyra.“
Siggi heldur áfram: „Við fáum
líka ótrúlega mikla hlustun erlendis
frá. Það er fólk úti um allan heim að
hlusta og þátturinn er í dag sá vin-
sælasti í íslensku útvarpi.“
Kannski mætti kalla Sigga
„ Konung útvarpsins.“
„Það eru þín orð,“ svarar Siggi en
ég sé að honum líkar nafngiftin ekki
illa.
Spurningakeppni í sjónvarpi
Með Sigga í sjónvarpssettinu er vinur
hans Rögnvaldur Rögnvaldsson sem
gengur undir plötusnúðsnafninu DJ
Fox. Hans hlutverk er að halda uppi
stuðinu, smella gömlum eitís- og
næntísplötum á fóninn – hann er
„comic relief“ og gerir það vel.
Þátturinn er spurningakeppni
þar sem þemað er tónlist frá níunda
og tíunda áratugnum. Í auglýsinga-
hléi segir Freyr Einarsson, yfirmað-
ur sjónvarpsmála hjá 365, að Siggi
hafi komið til hans og sagst vilja búa
til sjónvarp. „Þarna er maður sem
er með vinsælasta útvarpsþátt á Ís-
landi og segist vilja stíga skrefið inn
í sjónvarpsheiminn. Það er þá bara
„80´s Quiz Show“ sem kemur til
greina,“ sagði Freyr og sú varð raun-
in.
Eftirminnilegur hausverkur
Þátturinn er samt ekki frumraun
Sigga Hlö í sjónvarpinu. Eflaust vildi
hann að sem fæstir myndu eftir þátt-
unum Með hausverk um helgar sem
hann framleiddi og bjó til ásamt fé-
laga sínum Valla sport í lok tíunda
áratugarins. Þættirnir voru á Skjá
Einum og vöktu talsverða athygli en
þóttu á þeim tíma hálfgert lágmenn-
ingarrusl.
„Já, Hausverkurinn. Maður
reynir nú bara að gleyma honum,“
segir Siggi og hlær. „Sem betur fer
áttum ég og Valli þættina með húð
og hári og allar spólurnar eru í ör-
uggri geymslu hjá okkur. Það hafa
margir beðið okkur um að setja eitt-
hvað af þessu efni á Youtbue en ég
held að það sé ekki svo góð hug-
mynd. Ég man að einu sinni kom
kona í settið og rakaði á sér skapa-
hárin. Svo þegar hún hafði lokið sér
af spurði hún hvenær upptökurnar
myndu byrja en þá hafði þetta allt
verið í beinni útsendingu! Ætli þetta
sé ekki orðin virðulegur banka-
starfsmaður í dag og ég held það
sé alveg óþarfi að setja svona efni á
veraldarvefinn.“
Siggi segir að þættirnir hafi engu
að síður átt sína spretti.
„Þarna kom til dæmis Birgitta
Haukdal fram í fyrsta skipti og
Magni Ásgeirsson. Í dag fær enginn
að koma fram í sjónvarpi nema
hann sé nú þegar orðinn frægur. Það
vantar þátt þar sem tónlistarmenn
sem eru að slíta barnsskónum geta
komið fram. Fólk sem á eftir að
verða frægt í framtíðinni.“
Elskar að skemmta
Talið berst aftur að nýja þættinum,
Veistu hver ég var? Þetta er þáttur
fyrir djammþyrsta þjóð og það var
enginn skortur á bjórflöskum í Stúd-
íói 1 þetta kvöld. Siggi Hlö er sjálfur
einn vinsælasti plötusnúður lands-
ins. Bókaður rúmt ár fram í tímann,
fastur gestur á böllum, árshátíðum
og í brúðkaupum.
„Að skemmta fólki er mitt dóp,“
segir Siggi. „Ef þú myndir hringja
36 16.–18. ágúst 2013 Helgarblað
m e n n i n g @ d v . i s | d v . i s / m e n n i n g
„Vísitölu sumarhasar“
Pacific Rim
Leikstjóri: Guillermo del Toro.
„Stenst ekki væntingar“
The Wolverine
Leikstjóri: James Mangold.
Viðtal
Símon Birgisson
simonb@dv.is
Að skemmta er mitt dóp
Sigurður Hlöðversson hefur skemmt fólki allt frá
því hann var unglingur og þeytti skífum í grunnskóla.
Hann er stjórnandi vinsælasta útvarpsþáttar landsins
og á laugardaginn hefst innrás hans í sjónvarpið með
þættinum: Veistu hver ég var?
Siggi Hlö í settinu Segist elska að
skemmta fólki. Mynd KRiSTinn MagnúSSon
Siggi og dJ Fox
Hressir félagar.
Mynd KRiSTinn MagnúSSon