Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2013, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2013, Síða 5
Skútuvogi 1c 104 Reykjavík Sími 550 8500 Fax 550 8510 www.vv.is Nettir snagar í mismunandi stærðum. Þessir snotru snagar fara vel í eldhúsi, baðherbergi til að hengja á skartgripi eða lykla ellegar einfaldlega sem skraut. Mini Camouflage snagarnir fást metalsprautulakkaðir í mörgum litum eða í ryðfríu stáli. Blóm sem opnast til fulls er hugmyndin að baki hönnuninni á Lulu snögunum. Fallegir og auðveldir í notkun og fást í mismunandi stærðum og lengdum og hægt að nota staka eða fleiri saman. Mismunandi stærðir gera snagana jafn frábæra fyrir úlpur og jakka, herðatré, regnhlífar eða töskur og þeir henta í forstofu, fataherbergi eða svefnherbergi. Lulu snagar eru lakkaðir með mjúku lakki sem ljær þeim matta og skemmtilega áferð. Verk hönnunartvíeykisins Flemming Busk og Stephan B. Hertzog einkennast af hreinum og einföldum línum sem tala skýru máli. Það er sannfæring þeirra að híbýli skuli alla jafna skreyta með því sem jafnframt hafi notagildi. Hönnun þeirra félaga er að finna um allan heim, allt frá alþjóðlegum flugvöllum til setustofu leikmanna Chelsea fótboltaklúbbsins. Busk+hertzog hafa hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga og verk þeirra eiga fastan sess á Danish Museum of Art and Design, auk þess sem ekki færri en 18 stólar eftir þá voru með í enduropnun á Museum of Modern Art í New York 2004. Óskabeinsborðið hæfir ótalmörgum tilefnum, til dæmis fer það vel í grennd við hinn glæsilega Wishbone fatastand, í forstofu eða á gangi. Eins er það nett hliðarborð við sófa eða undir fartölvu, blómavasa, kaffi- eða tebolla og jafnvel sem náttborð. Þú ákveður einfaldlega hvar þú vilt nota það. Borðið er úr lökkuðu áli og fæst í mörgum litum. FROST_220x297.ai 1 16.3.2011 09:54

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.