Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2013, Page 8
8 Fréttir 16.–18. ágúst 2013 Helgarblað
6,8 prósenta
atvinnuleysi
Á öðrum ársfjórðungi 2013 voru
að meðaltali 12.900 manns án
vinnu og í atvinnuleit, eða 6,8
prósent vinnuaflsins. Þetta kemur
fram í nýjum tölum Hagstofu Ís
lands. Atvinnuleysi mældist 6,2
prósent hjá konum og 7,4 pró
sent hjá körlum. Fjöldi starfandi
á öðrum ársfjórðungi 2013 var
175.500 manns, eða 77,6 prósent
af mannfjölda. Hlutfall starfandi
kvenna var 74,9 prósent og starf
andi karla 80,1 prósent.
Af þeim sem voru atvinnulaus
ir á öðrum ársfjórðungi 2013 voru
að jafnaði 5.400 manns búnir að
vera atvinnulausir í tvo mánuði
eða skemur eða 42,1 prósent at
vinnulausra. Til samanburðar
höfðu 4.800 manns verið atvinnu
lausir í tvo mánuði eða skemur á
öðrum ársfjórðungi 2012 eða 36,2
prósent atvinnulausra.
Lokar eftir
25 ára starf
„Það er ekki hægt að vera í frjálsu
falli endalaust, það segir sig sjálft,“
segir Árdís Þórðardóttir, eigandi
myndbandaleigunnar Videoheima
í Fákafeni í Reykjavík, sem hefur
tekið þá ákvörðun að loka þessari
þekktu leigu. Ásdís er fremur hrygg
yfir því eftir 25 ára starf en sér fram
á bjarta tíma. „Það er bæði gleði
og sorg en þetta er nýtt upphaf
sem tekur svo við,“ segir Árdís sem
vill þó ekki gefa of mikið upp um
framtíðina hjá sér. „Ég er bara með
hugmyndir sem ég ætla að leyfa að
malla svo kemur það í ljós.“
Hún segir leigu og sölu á
mynddiskum hafa hrunið. „Mið
að við hvernig þetta var um og eftir
árið 2000 þegar best var. Núna er
virknin ekki nema brot af því sem
hún var þá,“ segir Árdís og bæt
ir við: „Það heldur enginn lengi
úti taprekstri í þessu, það er bara
þannig.
Þetta er bara raunsætt mat á
stöðunni. Ég hélt á tímabili að
það myndu enda nokkrar leigur
á svæðinu, svona alvöru mynd
bandaleigur sem hafa boðið upp á
einhverja þjónustu, sýna hluta af
kvikmyndasögunni. Leggja sig eftir
að hafa gullmola úr kvikmynda
sögunni. Ég held hins vegar núna
að myndbandaleigurnar hætti all
ar og diskarnir verði bara söfn
unargripir. Þetta verður svona fyrir
nördana sem vilja eiga myndir. Þá
með einhverju aukaefni og þess
háttar. Ef Hollywood sér hagnað
arvon í því, það er segja. Þetta þarf
allt einhverja lágmarksveltu til að
rúlla og það sér Hollywood eins
og við, og sennilega búið að sjá
það langt á undan okkur. En þetta
er bara þróunin og það stöðvar
enginn tímans þunga nið,“ segir
Árdís.
Síðasti leigudagurinn hjá
Video heimum verður í dag, föstu
dag, og hefst útsala á laugardag
sem Árdís gerir ráð fyrir að standi
ekki lengur en til mánaðamóta.
É
g fer héðan. Ég pakka niður
dótinu mínu og flyt,“ segir lög
reglukona á Seyðisfirði, sem
telur sér ekki vært lengur í bæn
um, í samtali við DV. „Ég hef ekki
farið heim síðan þetta gerðist, mér
kemur það ekki til hugar, ég get ekki
hugsað mér það.“
Konan var eini lögreglumaðurinn
á vakt á svæðinu frá Vopnafirði til
Seyðisfjarðar síðastliðið mánudags
kvöld þegar henni barst tilkynning
um að maður hefði ruðst inn á henn
ar eigin heimili þar sem fjögurra ára
sonur hennar var í pössun.
Lögreglan á Eskifirði rannsak
ar nú málið en meintur gerandi er
38 ára karlmaður frá Seyðisfirði, Ívar
Andrés son að nafni. Í samtali við DV
segist Ívar eiga ýmislegt sökótt við
lögregluna á svæðinu og hyggst hann
sjálfur leggja fram kæru á hendur lög
regluþjóninum sem um ræðir.
„Kominn til að drepa mig“
Eins og áður sagði var lögreglukonan
á vakt að kvöldi mánudags og var
hún því ekki viðstödd þegar Ívar bar
að garði á heimili hennar. Kunningj
ar konunnar gættu fjögurra ára sonar
hennar þetta kvöld en þeir eru báðir af
erlendu bergi brotnir. „Þeir hringdu og
sögðu að það hefði komið maður sem
væri alveg snarvitlaus og hefði byrjað
að sparka niður útidyrahurðina. Þeir
opnuðu hurðina og þá öskraði hann
á þá. Hann sagðist vera kominn til að
drepa mig.“
Mennirnir hafi þá tjáð Ívari að kon
an væri ekki heima en þá hafi hann
brugðist illa við og haft í hótunum.
„Hann segir þeim að þeir eigi bara að
drulla sér strax út úr húsinu, annars
hafi þeir verra af,“ segir konan sem tel
ur að með því hafi hann verið að gefa í
skyn að hann hygðist kveikja í húsinu.
Kunningjar konunnar eru nú vitni
í málinu og það sama á við um menn
sem höfðu elt Ívar af nærliggjandi
kaffihúsi. „Ég er búin að komast að því
að áður en hann fór heim til mín þá
var hann á kaffihúsi þarna í bænum
þar sem hann hafði sagt við menn að
hann ætlaði heim til mín og að hann
ætlaði að drepa mig. Þeir trúðu hon
um þannig þeir eltu hann og hringdu
í Neyðarlínuna.“
Ætlar ekki aftur heim
Eins og gefur að skilja var konunni illa
brugðið þegar hún frétti af heimsókn
mannsins. „Ég var víðs fjarri. Hvað
átti ég að gera? Ég var lögreglumaður
á vakt, á ég að segja mig frá vinnu
skyldunni til að verja heimilið mitt?
Hvað er ætlast til að maður geri?“
spyr konan og bætir við að hún hafi
haft samband við yfirmann sinn og
þau hafi farið saman á vettvang. Þegar
þangað var komið var maðurinn hins
vegar á bak og burt.
„Ég talaði við son minn sem var
alveg frávita af skelfingu í síma á
leiðinni. Ég reyndi að róa hann niður,“
segir konan sem hefur ekkert komið á
heimili sitt frá því atvikið átti sér stað.
Hún hyggst flytja úr bæjarfélaginu.
„Við höfum ekkert komið heim síðan.
Við flytjum úr húsinu – og bæjar
félaginu.“
Hyggst kæra lögreglukonuna
„Ég fór bara og bankaði upp á þar sem
konan hafði farið hérna um allan bæ,
leitandi að mér. Ég vildi bara vita hvern
fjandann hún vildi. Ég steig aldrei inn
fyrir þröskuldinn. Ég sagði ákveðna
hluti – en ef þetta kallast húsbrot þá
ætti ég að geta kært hana fyrir mörg
húsbrot,“ segir Ívar sem hyggst kæra
konuna fyrir upplognar sakir. „Ég mun
líklega leggja fram kæru, það er ekk
ert hægt að ljúga svona upp á fólk. Þú
þarft að stíga yfir þröskuldinn til að
fremja húsbrot, er það ekki?“
Ívar kveðst ekki muna nákvæm
lega hvað hafi farið á milli hans og
mannanna tveggja en segir það af
og frá að hann hafi verið með hótan
ir í þeirra garð eða annarra. „Ég man
ekkert nákvæmlega hvað ég sagði. Ég
var bara hundfúll. Hvernig heldurðu
eigin lega að það sé fyrir einstakling
sem býr í svona smábæ þegar lög
reglan fer hérna um bæinn með reglu
legu millibili og er að leita að manni,
spyrjandi fólk hingað og þangað hvort
það hafi séð mann. Hvaða áhrif hef
ur það á mitt líf? Það er bara verið að
leggja það í rúst.“
Segist ofsóttur af lögreglu
Ívar segir farir sínar af samskiptum
við lögregluna á svæðinu ekki sléttar.
„Ég ætla að kæra það líka þegar lög
reglan réðst inn á mitt heimili hérna
haustið 2009 þann 18. desember.
Þeir voru fimm talsins og höfðu í
hótunum við mig,“ segir Ívar sem
var dæmdur fyrir kannabisræktun í
heimahúsi fyrr sama ár.
„Ég er búinn að sitja undir ofsókn
um af hálfu lögreglunnar síðan árið
2009. Ég er orðinn alveg brjálaður út
af þessu,“ segir Ívar og bætir við: „Ég er
búinn að vera þolinmóður til þessa en
ég verð ekki þolinmóður lengur, það er
nóg komið.“
Hann segist hafa fengið sig
fullsaddan af því að vera hundeltur
af lögreglu fyrir engar sakir. Steininn
hafi tekið úr þegar lögregluþjónar
hafi áreitt móður hans, hringt í hana
ítrekað og truflað. „Og þegar ég frétti
að þessi kona væri að spyrjast fyrir um
mig úti í bæ, þá ákvað ég bara að fara
og tala við hana,“ segir Ívar og ítrekar
að hann hafi hvorki ráðist inn á heimili
konunnar né haft í hótunum við fólk
ið á heimilinu. „Ég bankaði upp á, hún
var ekki heima, ég reif eitthvað kjaft og
svo fór ég.“
Bíll lögreglustjórans skemmdur
Lögreglan á Eskifirði staðfestir að mál
ið sé til rannsóknar og að Ívar sé grun
aður í málinu. Hann hafi þó ekki verið
yfirheyrður enn. „Við förum bara og
sækjum hann þegar við erum búin
að undirbúa málið þannig að hægt sé
að fá hann í yfirheyrslu,“ segir Jónas
Wilhelmsson, yfirlögregluþjónn á
Eskifirði. Aðspurður hvort Ívar sé talinn
hættulegur segir Jónas: „Jú, kannski
er hann hættulegur. Ég bara veit það
ekki.“ Hann segir þó að ekki hafi verið
farið fram á gæsluvarðhald yfir mann
inum. Lögreglukonan undrast það þar
sem hún telur manninn hættulegan.
Aðfaranótt miðvikudags var
bíll lögreglustjórans á Seyðisfirði
skemmdur og hefur málið verið kært
til lögreglunnar á Eskifirði vegna
vanhæfis lögreglunnar á Seyðisfirði
til að fjalla um málið. Lögreglukon
una sem Ívar heimsótti á mánudags
kvöldið grunar að málin tengist. „Ég
ætla ekki að fullyrða að sami maður
hafi verið að verki en ég meina,
þegar bíllinn hjá lögreglustjóranum
er skemmdur – ja, þetta er að verða
svolítið skuggalegt.“ n
Ólafur Kjaran Árnason
blaðamaður skrifar olafurk@dv.is
Lögregluþjónn
þorir ekki heim
n „Hef ekki farið heim síðan“ n Bíll lögreglustjórans skemmdur í vikunni
Þolinmæðin á þrotum „Ég er
búinn að sitja undir ofsóknum af hálfu
lögreglunnar síðan árið 2009. Ég er
orðinn alveg brjálaður út af þessu,“
segir Ívar Andrésson í samtali við DV.
Lögreglan á Eskifirði Jónas Wilhelmsson, yfirlögregluþjónn á Eskifirði, staðfestir að mál
lögreglukonunnar sé til rannsóknar. Lögreglan á Seyðisfirði var vanhæf til að fjalla um málið.
„Hann sagðist
vera kominn
til að drepa mig