Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2013, Síða 11
Fréttir 11Helgarblað 16.–18. ágúst 2013
Hlaupa til
minningar
um Lovísu
Hópur hlaupara sem tekur þátt í
Reykjavíkurmaraþoninu hleypur
til minningar um Lovísu Hrund
Svavarsdóttur sem lést 6. apríl síð-
astliðinn í hörðum árekstri á Akra-
fjallsvegi. Drukkinn ökumaður sem
kom úr gagnstæðri átt keyrði í veg
fyrir Lovísu Hrund með þeim af-
leiðingum að hún lést aðeins 17 ára
gömul. Þeir sem hlaupa til minn-
ingar um Lovísu Hrund safna um
leið áheitum sem renna til Minn-
ingarsjóðs Lovísu Hrundar en til-
gangur hans er að safna fjármagni
til að stofna fræðslu- og forvarnar-
sjóð um afleiðingar ölvunaraksturs.
„Allt fé sem safnast inn á minn-
ingarsjóð Lovísu Hrundar mun ein-
göngu vera notað til þess að stofna
nýjan löglegan forvarnarsjóð, en
til þess þarf 1.000.000.- Það er vel
við hæfi að starta sjóðnum hér á
hlaupastyrkur.is vegna þess hve
áhugasöm Lovísa Hrund var um
heilsu og heilbrigðan lífsstíl,“ segir
á síðunni hlaupastyrkur.is þar sem
greint er frá tilgangi sjóðsins en
sjóðurinn er stofnaður af foreldrum
Lovísu Hrundar.
Gróf í sundur
stofnlínu
Héraðsdómur Norðurlands eystra
hefur dæmt verktaka til að greiða
Mílu ehf. 710 þúsund krónur vegna
skemmda sem hann olli á stofnlínu
á Þórshöfn sumarið 2010. Verktak-
inn var við vinnu á vélgröfu þegar
skófla gröfunnar rakst í stofnstreng
með þeim afleiðingum að hann
slitnaði. Í dómi héraðsdóms kem-
ur fram að verktakinn hafi látið
forsvarsmenn Mílu vita af óhapp-
inu og voru þrír viðgerðarmenn
kvaddir á vettvang frá Egilsstöðum.
Að mati forsvarsmanna Mílu bar
verktakinn fulla ábyrgð á tjóninu
sem varð enda hafði hann ekki gætt
ítrustu varúðar áður en hann hóf
vinnu við gröftinn. Dómari héraðs-
dóms tók undir þessi rök og gerði
verktakanum að greiða Mílu rúmar
710 þúsund krónur ásamt vöxtum.
Þá var honum gert að greiða 350
þúsund krónur í málskostnað.
Benedikt aðstoð-
ar Sigurð Inga
Benedikt Sigurðsson hefur verið
ráðinn aðstoðarmaður Sigurðar
Inga Jóhannssonar, sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra. Hann hóf
störf í ráðuneytinu á fimmtudag.
Benedikt hefur starfað sem sviðs-
stjóri ytri og innri samskipta Act-
avis á Íslandi undanfarin ár og sat
einnig í framkvæmdastjórn fyrir-
tækisins.
Hann var áður aðstoðarmaður
formanns Framsóknarflokksins,
Sigmundar Davíðs Gunnlaugs-
sonar, fjölmiðlafulltrúi Kaupþings
banka, en lengst af starfaði hann
sem fréttamaður á fréttastofu Sjón-
varpsins.
Benedikt hefur bakkalárgráðu í
sagnfræði frá Háskóla Íslands.
„Ein elti hefur alltaf lifað góðu lífi í Bolungar vík“
n Faðir og sonur segja sögu sína á BB.is
A
lmennt eiga börn rétt á að
vera börn og foreldrar eiga
að geta treyst því að í skipu-
lögðu skóla- og íþróttastarfi
sé hugsað um þau, að þau
séu pössuð og andleg og líkamleg
vellíðan gangi fyrir. Ef börnum líður
mjög illa á þessum stöðum og verða
fyrir ítrekuðu einelti, andlegu eða
líkamlegu, í lengri tíma, eru þeir sem
bera ábyrgð á þessum málum ekki
að standa sig. Krafa foreldra á þessa
aðila er að málin leysist farsællega
og fljótt. Það er ekki ásættanlegt að
vera látinn taka þátt í einhverju til-
raunaverkefni, þessir aðilar eiga að
vita hvað þeir eru að gera,“ segir faðir
barns í Bolungarvík sem hefur orðið
fyrir einelti frá upphafi skólagöngu
sinnar, en barnið er að byrja í þriðja
bekk. Málið er tekið fyrir á vefnum
BB.is en þar kemur fram að bæði
hann og drengurinn séu orðnir lang-
þreyttir á ráðaleysi í málinu.
Hann skrifaði um málið á Face-
book í upphafi og í umræðum þar
sagði einn Bolvíkingur:
„Einelti hefur alltaf lifað góðu lífi í
Bolungarvík frá því ég man eftir mér
og er enn til staðar.“
Soffía Vagnsdóttir, skólastjóri
Grunnskóla Bolungarvíkur, segir að
fólk taki umræðu um einelti nærri
sér og að því verði oft heitt í hamsi
þegar slík umræða kemur upp. Hún
segir þó mikilvægt að muna að bar-
áttan gegn einelti sé eilífðarverkefni
og aldrei megi sofna á verðinum.
„Ég vil biðla til foreldra sem eiga
börn í Grunnskóla Bolungarvíkur
að gefast ekki upp fyrr en þeir hafa
fengið áheyrn. Mál eru oft flókin og
erfitt að koma auga á hlutina, en við
afneitum því ekki að einelti sé hér
eins og annars staðar og leggjum
okkur fram um að vinna með sam-
skipti nemenda,“ segir Soffía. „Ég
tala sem skólastjóri grunnskólans,
en um leið og ég fer út úr skólanum
er ég eins og hver annar íbúi sem ber
ábyrgð á að gera samfélagið sterkara
og að öllum líði vel.“ n
Bolungarvík Soffía Vagnsdóttir, skólastjóri
Grunnskóla Bolungarvíkur, segir að fólk taki
umræðu um einelti nærri sér og að því verði oft
heitt í hamsi þegar slík umræða kemur upp.