Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2013, Page 12
12 Fréttir 16.–18. ágúst 2013 Helgarblað
Fimm staðir brutu reglur
n Voru ekki með matseðil við inngang staðarins eins og reglur gera ráð fyrir
F
imm veitingastaðir brutu
reglur um verðmerkingar
þegar fulltrúar Neytendastofu
könnuðu stöðu mála í júlí-
mánuði. Alls var farið á 97 veitinga-
staði á höfuðborgarsvæðinu í þeim
tilgangi að skoða hvort farið væri
eftir reglum um verðmerkingar.
Skoðað var hvort matseðill með
verðupplýsingum væri við inn-
göngudyr og hvort magnupplýs-
ingar drykkja kæmu fram.
Á vef Neytendastofu kemur
fram að veitingahúsum beri að
hafa matseðil með verði við inn-
göngudyr sínar svo neytendur geti
kynnt sér vöruúrval og verð áður
en þeim er vísað til borðs. Í flestum
tilvikum var matseðill við inngang
eða á 92 veitingastöðum af 97. Þeir
fimm staðir sem ekki höfðu mat-
seðil við inngang voru Kopar, Le-
bowski Bar, Sushi samba, Íslenska
hamborgarafabrikkan og Grillhús-
ið.
„Erfitt getur verið að átta sig á
verðinu ef magns er ekki getið. Til
þess að neytendur geti betur áttað
sig á verðinu á að gefa upp magn á
drykkjarföngum hvort sem það er
í flösku eða glasi, auk verðs. Á 14
veitingastöðum vantaði magnupp-
lýsingar á verðskrá drykkja. Einnig
var skoðað hvort að vínmálin væru
löggild og þar af leiðandi að mæla
rétt, niðurstöður þeirrar skoðunar
verða birtar síðar,“ segir á vef Neyt-
endastofu. Þar eru neytendur
hvattir til að vera á verði og koma
ábendingum til skila í gegnum raf-
ræna neytendastofu á vefslóðinni
neytendastofa.is. n
„Það er von“
M
ig langar að vekja athygli
á sjúkdómnum því hann
er ekki mjög þekktur hér
líkt og hann er víða annars
staðar, til dæmis í Banda-
ríkjunum en umræðan um hann hefur
þó aðeins opnast undanfarin ár,“ segir
Guðjón Reykdal Óskarsson. Guðjón er
með Duchenne-vöðvarýrnunarsjúk-
dóminn, sjaldgæfan hrörnunarsjúk-
dóm sem einungis drengir fá. Einn af
hverjum 3.500–4.000 drengjum sem
fæðast greinast með sjúkdóminn.
Hér á landi er vitað um í kringum tíu
drengi sem eru með sjúkdóminn.
12 ára í hjólastól
Guðjón greindist með sjúkdóminn
þegar hann var um sex ára gamall sem
hann segir vera nokkuð seint mið-
að við þá sem greinast í dag en flestir
séu að greinast um 3–4 ára aldur. Fyrir
þann aldur eru einkenni sjúkdómsins
yfirleitt ekki sjáanleg fyrir utan að um
helmingur þeirra sem greinast voru
seinir til að byrja að ganga. „Ég fann
ekki mikið fyrir sjúkdómnum fyrr en
ég varð tólf ára en þá þurfti ég að byrja
nota hjólastól,“ segir hann aðspurður
hvernig einkenni Duchenne hafi
lýst sér í hans tilfelli til að byrja með.
„Áður hafði ég fundið fyrir máttleysi
og var oft að detta og meiða mig og
svona. En þegar ég varð 12 ára fann
ég fyrir þessu fyrir alvöru,“ segir hann.
Í lyfjafræði í Háskólanum
Þrátt fyrir að vera bundinn við hjóla-
stól lætur Guðjón það ekki stöðva sig
í því sem hann vill gera. Hann hefur
aðstoðarkonu sem hjálpar honum við
flestar hans daglegu athafnir, meðal
annars að sækja nám. Guðjón er mik-
ill námshestur og segist alltaf hafa haft
gaman af náminu. „Það hefur eigin-
lega allur minn tími farið í það.“
Guðjón hefur verið verðlaunaður
fyrir frammistöðu sína í námi en hann
var dúx frá Fjölbrautaskóla Suður-
lands. Að loknu stúdentsprófi fór
hann í lyfjafræði við Háskóla Íslands
og í haust byrjar hann á þriðja árinu
sínu þar. „Pabbi minn og systur hans
eru læknar þannig áhuginn kemur
svolítið þaðan. Ég vildi fara í eitthvað
heilbrigðistengt en vildi ekki fara í jafn
langt nám og læknisnámið er þannig
ég valdi milliveginn og fór í lyfja-
fræðina,“ segir Guðjón sem kann vel
við námið. „Þetta er æðislega gaman.“
Miklar framfarir í rannsóknum
Guðjón segist ekki vita hvað hann
geri að námi loknu en vonast til þess
að geta nýtt sér þekkinguna úr nám-
inu til þess að þróa lyf við Duchenne-
sjúkdómnum. „Ég reikna með að fara
í rannsóknarvinnu. Mig langar að
þróa lyf og eftir að ég fór á ráðstefnu
í London og sá hvað það var mikið
að gerast í þessum málum þá fékk ég
mikinn áhuga á þessu,“ segir hann.
Síðastliðið haust sótti hann ráð-
stefnu um sjúkdóminn í London. Þar
komst hann sér til mikillar ánægju
að því að miklar framfarir eru í rann-
sóknum á sjúkdómnum. „Margar
meðferðir sem eru á tilraunastigi lofa
góðu og það er vonast til þess að fyrsta
meðferðin komi á markað í lok árs
2014,“ segir hann en um er að ræða
lyf sem vonast er til að hjálpi þeim
sem eru með vissa tegund sjúkdóms-
ins. „Ég er með þá tegund af galla sem
þetta myndi virka á. Það er ekki kom-
ið á markað en komið langt á tilrauna-
stigi þannig að kannski get ég fengið
það á næstu árum. Það er allavega
gott að sjá hvað það er margt í gangi
í rannsóknum á sjúkdómnum og að
það er von.“
Tíu kílómetrar í hjólastólnum
Guðjón ætlar þrátt fyrir að vera
í hjólastól að fara tíu kílómetra
í Reykjavíkurmaraþoninu sem
fram fer þann 24. ágúst næstkom-
andi. Hann hefur nú þegar safnað
um 90 þúsund krónum til styrktar
Duchenne-samtökunum á Íslandi og
vonast til þess að ná upp í 100 þúsund
krónur. „Það er markmiðið,“ segir
hann en rannsóknir á sjúkdómnum
hafa að miklu leyti verið fjármagn-
aðar með fjármagni frá samtökum
líkt og þeim íslensku. Þeim sem vilja
heita á Guðjón er bent á að fara inn á
heimasíðuna: hlaupastyrkur.is. n
n Guðjón er með Duchenne-vöðvarýrnunarsjúkdóminn
Duchenne
Duchenne Muscular Dystrophy (DMD)
er arfgengur vöðvarýrnunarsjúkdómur
sem leiðir til vaxandi vöðvamáttleysis,
hjarta- og öndunarbilunar en drengir
setjast alfarið í hjólastól 10–12 ára.
Genagallinn er á X-litningi því fá drengir
sjúkdóminn en mæður þeirra eru oftast
arfberar. Í dag er engin lækning til við
DMD. Samtökin eru með síðu á facebook:
facebook.com/DuchenneCharityIceland.
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is
„Ég fann ekki mikið
fyrir sjúkdómnum
fyrr en ég varð tólf ára
en þá þurfti ég að byrja
nota hjólastól.
Öflugur Guðjón
er að fara að byrja
á þriðja ári sínu í lyfja-
fræði við Háskóla
Íslands. Hann vonast
til þess að geta nýtt
sér námið við að þróa
lyf við Duchenne-
sjúkdómnum sem
hann sjálfur er með.
Mynd KrisTinn Magnússon
Spá óbreyttum
stýrivöxtum
Peningastefnunefnd Seðlabanka
Íslands mun taka ákvörðun um
stýrivexti í næstu viku og verður
niðurstaðan tilkynnt miðviku-
daginn 22. ágúst næstkomandi.
Á vef Hagfræðideildar Lands-
bankans er því spáð að nefndin
ákveði að halda vöxtum bank-
ans óbreyttum að þessu sinni.
„Það ræðst helst af því að hag-
þróun frá síðasta fundi nefndar-
innar 12. júní síðastliðinn
hefur verið tíðindalítil og ekk-
ert sérstakt gerst sem kallar á
breytingu vaxta,“ segir á vef Hag-
fræðideildar bankans.
Aflinn jókst
lítillega
Heildarafli íslenskra skipa í ný-
liðnum júlímánuði, metinn á
föstu verði, var 0,8 prósentum
meiri en í júlí 2012. Það sem
af er árinu veiddist 0,1 prósent
meiri afli en á sama tímabili árið
2012, sé aflinn metinn á föstu
verði samkvæmt upplýsingum á
vef Hagstofu Íslands. Frá þessu
er greint á vef Landssambands
íslenskra útvegsmanna, LÍÚ, en
þar kemur fram að aflinn hafi
alls numið 101.444 tonnum í júlí
2013 samanborið við 113.051
tonn í júlí 2012.
Botnfiskafli jókst um tæp
2.800 tonn frá júlí 2012 og nam
tæpum 27.100 tonnum. Þar af
var þorskaflinn tæp 13.200 tonn,
sem er aukning um tæp 2.900
tonn frá fyrra ári. Ýsu aflinn nam
rúmum 1.700 tonnum sem er
295 tonnum minni afli en í júlí
2012. Karfaaflinn nam tæp-
um 4.000 tonnum í júlí 2013
sem er rúmlega 1.200 tonnum
meiri afli en í fyrra. Rúm 5.000
tonn veiddust af ufsa sem er 170
tonna aukning frá júlí 2012.
Afli uppsjávartegunda nam
rúmum 70.900 tonnum, sem er
rúmlega 14.400 tonnum minni
afli en í júlí 2012. Samdráttinn
má rekja til um 6.500 tonna
minni síldarafla, sem nam 8.900
tonnum í júlí 2013, og rúmum
8.100 tonna minni makrílafla,
sem nam rúmum 61.800 tonn-
um í júlí 2013. Nær engar aðrar
uppsjávartegundir voru veiddar
í mánuðinum.
Flatfiskaflinn var rúm 2.300
tonn í júlí 2013 og jókst um
709 tonn frá fyrra ári. Skel- og
krabbadýraafli nam 913 tonnum
samanborið við tæplega 1.600
tonna afla í júlí 2012.
Afli á föstu verði er reiknað-
ur út til þess að finna breytingu
á verðmæti heildaraflans að gef-
inni þeirri forsendu að verðhlut-
föll milli einstakra fisktegunda
séu þau sömu og á ákveðnu við-
miðunartímabili sem hér er fisk-
veiðiárið 2011–2012. Hér er því
um að ræða hliðstæðu við um-
reikning á afla yfir í þorskígildi.
Aflinn í tonnum sýnir hins vegar
magn aflans án tillits til þess
að fisktegundir eru misjafnlega
verðmætar.
Hamborgarafabrikkan Kopar, Lebowski Bar, Sushi samba, Íslenska hamborgarafa-
brikkan og Grillhúsið brutu reglur.