Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2013, Page 21
Sport 21Helgarblað 16.–18. ágúst 2013
Mourinho landar titlinuM
n Spá DV fyrir ensku úrvalsdeildina sem hefst um helgina n Chelsea landar titlinum n Brotthvarf Ferguson fellir United
9 Southampton
Einhverjir myndu segja það djarft að spá Southampton 9. sætinu.
Staðreyndin er sú að liðið er með hörkumannskap og hefur Mauricio
Pochettino fengið fáa en afar sterka leikmenn í sumar. Má þar nefna
miðjutröllið Victor Wanyama frá Celtic og varnarmanninn Dejan
Lovren frá Lyon sem munu koma til með að styrkja liðið mikið. Þá hefur
Southampton haldið öllum lykilmönnum sínum frá síðustu leiktíð. Liðið
mun halda áfram að byggja á fínum árangri sem liðið náði í fyrra, en þá
endaði Southampton í 14. sæti.
Lykilmaður: Ricky Lambert
Fylgstu með: Morgan Schneiderlin
10 West Ham
Sam Allardyce mun halda áfram að
leika kraftfótbolta í vetur með fínum
árangri. Liðið festi kaup á Andy Carroll
og Stewart Downing frá Liverpool sem
gætu reynst varnarmönnum erfiðir
viðureignar. West Ham náði 10. sætinu
í fyrra og flest bendir til þess að West
Ham verði áfram í baráttunni um miðja
deild í vetur. Leikmannahópurinn er
nokkuð sterkur en án þess að vera
framúrskarandi á neinum sviðum.
Lykilmaður: Kevin Nolan
Fylgstu með: Ravel Morrison
11 Norwich
Norwich verður ekki í neinum vandræðum í vetur og mun
sigla lygnan sjó um miðja deild allt til loka tímabilsins. Chris
Hughton hefur styrkt liðið mikið frá því í fyrra og fengið tvo
öfluga framherja, þá Gary Hooper frá Celtic og Ricky van
Wolfswinkel frá Sporting Lissabon. Þá datt liðið í lukkupottinn
þegar Leroy Fer, hollenskur miðjumaður, ákvað að ganga í
raðir félagsins en sá gæti vakið mikla athygli í vetur. Á hverju
tímabili eru eitt til tvö lið sem koma á óvart og gæti Norwich
komið þægilega á óvart í vetur.
Lykilmaður: Robert Snodgrass
Fylgstu með: Ricky van Wolfswinkel
12 Newcastle
Leikmannahópur Newcastle er á
pappírunum nógu sterkur til að berjast
um sæti í Evrópudeildinni. Hann var
það líka í fyrra en þá endaði liðið í 16.
sæti deildarinnar og var í raun heppið
að sleppa við fall. Meiðsli settu strik í
reikninginn hjá Newcastle það tímabilið
en fyrir fyrstu umferðina um helgina
eru nær allir lykilmenn liðsins heilir.
Alan Pardew þarf að ná að skapa góða
liðsheild ef liðið á ekki að lenda í vand-
ræðum í vetur. Í fyrra skein það í gegn
að ósamstaða var í hópnum sem gæti
reynst helsti óvinur liðsins í vetur.
Lykilmaður: Yohan Cabaye
Fylgstu með: Loic Remy
14 Aston Villa
Eftir erfitt tímabil í fyrra mætir ungur og
efnilegur leikmannahópur Aston Villa
til leiks reynslunni ríkari í vetur. Paul
Lambert tókst að sannfæra Christian
Benteke um að vera áfram og munar
um minna. Þá hefur Villa fengið til sín
tvo spennandi Dani, þá Jores Okore
og Nicklas Helenius. Lambert er í
uppbyggingarstarfi á Villa Park og mun
halda áfram að bæta leik liðsins. Mikil
batamerki voru á spilamennsku Villa á
seinni hluta síðustu leiktíðar. Ef deildin
hefði byrjað um áramót hefði Villa
endað í 8. sæti í vor.
Lykilmaður: Christian Benteke
Fylgstu með: Jores Okore
15 Sunderland
Paolo di Canio er stjóri sem nýtur mikill-
ar virðingar og hann náði að hífa Sund-
erland upp úr fallsæti á síðustu leiktíð
og skilaði liðinu í 17. sæti deildarinnar.
Sunderland hefur átt þokkalega leiki á
undirbúningstímabilinu og fengið til sín
ógrynni leikmanna. Gæðin í Sunderland-
liðinu eru þó takmörkuð en með Paolo
di Canio við stjórnvölinn gæti hann vel
skilað liðinu ofar en í 15. sæti. Hvað sem
því líður verður Sunderland í miðjumoði
en ætti að sleppa nokkuð örugglega
við fall.
Lykilmaður: Steven Fletcher
Fylgstu með: Emmanuele Giaccherini
16 Fulham
Fulham hefur lengi verið í deild þeirra
bestu og ávallt verið í miðjumoði. Fátt
bendir til annars en að Fulham verði
í sama farinu á þessu tímabili. Liðið
hefur fengið til sín nokkra nýja leikmenn
og ber helst að nefna varnarmanninn
Fernando Amorebieta og markvörðinn
Martin Stekelenburg. Leikmannahópur
Fulham er ekki mjög stór og gæðin auk
þess takmörkuð. Ef til dæmis Dimitar
Berbatov meiðist er liðið í vondum mál-
um. Liðið verður í basli framan af leiktíð
en nær að bjarga sér frá falli í síðustu
umferðunum.
Lykilmaður: Dimitar Berbatov
Fylgstu með: Sascha Riether
17 Cardiff
Cardiff rúllaði upp Championship-
deildinni á síðustu leiktíð. Nýliðarnir
munu þó eiga erfitt uppdráttar í deild
þeirra bestu eins og oft vill verða hjá
nýliðum. Cardiff mun þó njóta góðs af
því að hópurinn er nokkuð reynslumikill
og þá hefur stjórinn, Malky Mackey, gert
sniðug kaup í sumar og meðal annars
fengið Steven Caulker og Gary Medel.
Liðið vantar þó alvöru markaskorara
og mun mikið mæða á hinum unga en
óreynda Andreas Cornelius sem kom í
sumar. Cardiff nær að bjarga sér frá falli
og endar í 17. sæti deildarinnar í vor.
Lykilmaður: Peter Whittingham
Fylgstu með: Andreas Cornelius
18 Stoke
Tími Stoke City í deild þeirra bestu fer að
líða undir lok. Stoke var ósannfærandi
stóran hluta síðustu leiktíðar og endaði
sex stigum frá fallsæti. Afar lítið hefur
verið í gangi á leikmannamarkaðnum
hjá Stoke í sumar og hafa einungis tveir
leikmenn bæst við hópinn á meðan sjö
eru farnir. Liðið hefur átt erfitt með að
skora mörk og þar að auki átt afar erfitt
uppdráttar á útivelli í deildinni. Nái liðið
ekki að styrkja sig með öflugum sóknar-
mönnum mun fara illa í vor.
Lykilmaður: Asmir Begovic
Fylgstu með: Mark Muniesa
19 Crystal
Palace
Palace komst upp í úrvalsdeildina í vor
eftir að hafa endað í 5. sæti Champ-
ionship-deildarinnar. Wilfried Zaha
átti stóran þátt í velgengni Palace í
fyrra en hann er nú horfinn á braut til
Englandsmeistara Manchester United.
Í liðinu er þó fjöldi ungra og efnilegra
leikmanna sem eru tilbúnir að berjast
fyrir liðið og gera vel. Reynsluleysi mun
þó að líkindum verða liðinu að falli líkt
og raunin hefur verið þegar liðið hefur
komist í úrvalsdeildina.
Lykilmaður: Mile Jedinak
Fylgstu með: Dwight Gayle
20 Hull
Hull City mun fara rakleiðis aftur niður í Championship-deildina. Leikmannahópur liðsins
er fljótt á litið einfaldlega sá slakasti. Liðið komst beint upp í úrvalsdeildina í fyrra og
það tókst með öguðum varnarleik. Hull vantar alvöru markaskorara enda skoraði liðið
einungis 61 mark á síðustu leiktíð. Til samanburðar skoraði falllið Peterbrough 66 mörk.
Danny Graham er kominn til félagsins og verður það hlutverk hans að sjá um markaskor-
un. DV spáir því að Hull falli í vor og verði hálfgert fallbyssufóður fyrir stóru liðin.
Lykilmaður: Robby Brady
Fylgstu með: Allan McGregor
13 West Brom
West Brom kom allra liða mest á óvart
í fyrra og endaði í 8. sæti deildarinn-
ar. Þá var liðið með Romelu Lukaku
innanborðs sem er nú farinn til Chelsea.
West Brom hefur haft tiltölulega hægt
um sig á leikmannamarkaðnum í sumar
og byggir liðið á sama kjarna og í fyrra.
Miklar vonir eru bundnar við reynslu-
boltann Nicolas Anelka sem hefur
staðið sig vel á undirbúningstímabilinu
og skorað nokkur mörk. Miðað við leik-
mannahópinn er ekki raunhæft að spá
liðinu sama gengi og í fyrra. Liðið mun
þó aldrei verða í neinni fallbaráttu og
tryggja sæti sitt örugglega í deildinni.
Lykilmaður: James Morrison
Fylgstu með: Nicolas Anelka