Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2013, Qupperneq 38
38 Menning 16.–18. ágúst 2013 Helgarblað
Mætti Baltasar í karakter
n Bill Paxton dreymdi um hlutverk í 2 Guns
B
ill Paxton er sannkölluð
goðsögn sem hefur unnið
með mörgum af stærstu
leikstjórum samtíman – var
til dæmis fastur gestur í myndum
James Cameron þar sem hann stal
yfirleitt senunni. Í viðtali við frétta-
vefinn Den of Geek segir Bill Paxton
frá því hvernig hann landaði hlut-
verki Earl í myndinni 2 Guns eftir
Baltasar Kormák – hlutverki sem Bill
Paxton dreymdi um að fá.
Í viðtalinu segir Bill Paxton frá því
að hann hafi fengið símtal frá um-
boðsmanni sínum varðandi hlut-
verkið. Hann hafi lesið handritið og
ekki trúað sínum eigin augum. Hann
hafi áttað sig á að þarna væri hlut-
verk sem passaði honum vel enda
blómstrar Bill Paxton yfirleitt í auka-
hlutverkum. Svo hrifinn hafi hann
verið af hlutverkinu að þegar hann
mætti á fundinn með Baltasar á
veitingastað í Beverly Hills hafi hann
ákveðið að mæta „í karakter“. Hann
klæddi sig líkt og persónan og breytti
rödd sinni – allt til að heilla Balta.
Svo langt gekk Bill Paxton að
tveim vikum fyrir fundinn með
Baltasar fór hann til rakara og klippti
hárið svo það passaði persónunni
betur. Hann safnaði yfirvaraskeggi
og keypti sér jakkaföt í stíl. Hann
segist í viðtalinu aldrei hafa hitt
Baltasar áður en hafi treyst dóm-
greind Marks Wahlberg sem hafi
unnið með Baltasari að Contraband.
Blaðamaðurinn spyr þá Bill
Paxton hvort hann hafi nokkuð
hrætt Baltasar með framkomu sinni.
Bill Paxton svarar neitandi. Hann
segir að kynni þeirra hafi verið eld-
fim – líkt og kviknað væri í húsi, eins
og hann orðar það. Og svona lýsir
Bill Paxton Baltasar Kormáki: „Hann
er ekki upptekinn af því hvað öðrum
finnst um vinnu hans. Hann er ná-
kvæmur og getur pyntað mann til
dauða til að ná sem mestu út úr hon-
um. Hann er engum háður og fer
sínu fram en tjáir sig á fallegan hátt
og líkar vel við að hlusta á sjálfan sig
tala.“ n
simonb@dv.is
B
yrjum á hinu einfalda. Mark
Wahlberg og Denzel eru
Murtaugh og Riggs (þeir
úr Lethal Weapon) fyrir 21.
öldina. Og þar sem Mel og
Danny létu sér nægja að kýta keyra
þeir á hvorn annan, slást og skjóta.
Myndin hefst á mikilli keyrslu, hvert
glæpagengið á fætur öðru, sem mörg
hver heyra undir Bandaríkjastjórn,
eru kynnt til sögunnar. Ef það eru
hnökrar í plottinu ferðast myndin of
hratt til að hægt sé að taka eftir því.
Spennuatriðin forðast það að
vera hreinar endurtekningar af því
sem maður hefur áður séð, sem er
meira en lítið mál þessa dagana.
Jafnvel línurnar eru ágætar. „Þetta
er ekki frjáls heimur, þetta er frjáls
markaður,“ segir einn vondi kallinn.
Mexíkóskur glæpamaður bendir
Bandaríkjamönnum á að það henti
þeim vel að halda Mexíkó fátæku
til að framleiða neysluvörur fyrir þá
sjálfa. Við höfum oft séð mexíkóska
glæpamenn áður, en þeir hafa
sjaldnast velt stöðu sinni fyrir sér svo
opinskátt.
Valinn maður er í hverju rúmi,
og auk aðalleikaranna tveggja má
nefna sérstaklega Bill Paxton sem
spillta CIA-manninn og gamla lög-
reglustjórann úr Miami Vice, Edward
James Olmos, sem hér er kominn
hinum megin við lögin í hlutverki
sem er eins og skrifað fyrir hann.
Fyrri hlutann reynist 2 Guns vera
afbragðs spennumynd, en enn hærra
rís hún um miðbikið þegar hlutirnir
taka óvænta vendingu og það sem
sóst var eftir er horfið fyrir full og
allt. „Verðum við ekki samt að hefna
okkar og drepa vondu gaurana?“ spyr
Wahl berg, eða eitthvað í þá áttina.
„Til hvers?“ spyr Denzel á móti.
Á þessu augnabliki virðist myndin
geta farið hvert sem er og jafnvel rifið
sig út úr Hollywood-formúlunni þar
sem allt gengur út á hefndina. En það
er einmitt hér sem hún bregst sjálfri
sér, því allt fer eins og búist var við.
2 Guns hefur mátulega ferska sýn á
eitt helsta minni Hollywood-mynda,
söguna af löggunum tveim sem eiga
erfitt með að vinna saman. Hún er
yfir meðallagi spennumynd og ef til
vill er ósanngjarnt að biðja um meira
en það. En einmitt vegna þess að hún
gefur meira í skyn getur maður ekki
annað en orðið fyrir vonbrigðum með
lokin. Tækifæri gafst til að endurskrifa
formúluna en það er ekki nýtt.
Baltasar hefur nú aftur sýnt að
hann getur gert Hollywood-myndir
betur en margir í Hollywood gera, en
hafandi „meistrað“ formúluna fer að
koma tími á að brjótast út úr henni.
Það verður spennandi að fylgjast
með honum takast á við alvarlegri
verkefni. n
Til hvers að hefna?
n Baltasar berst við formúluna og kemst nálægt því að sigra
Bíómynd
Valur Gunnarsson
valurgunnars@gmail.com
2 Guns
IMDb 7,0 Metacritic 39
Leikstjórn: Baltasar Kormákur
Aðalhlutverk: Denzel Washington, Mark
Wahlberg og Paula Patton
Handrit: Blake Masters, eftir sögu Steven Grant
Baltasar að störfum 2 Guns er
hans stærsta mynd til þessa.
Mark Wahlberg og Denzel
Washington 2 Guns hefur
slegið í gegn í Bandaríkjunum.
Bill Paxton í 2 Guns
Gerði allt til að heilla
Balta upp úr skónum.
Ást á Akureyri
Hjá Leikfélagi Akureyrar eru
hafnar æfingar á nýju leikverki,
Sek, eftir Hrafnhildi Hagalín. Sek
er magnað leikrit sem byggir á
dómsmáli frá 19. öld. Lífsþræðir
ábúenda og vinnumanns í Rifs-
hæðarseli á Melrakkasléttu flétt-
ast saman í örlagaríkum ástarþrí-
hyrningi. Með því að styðjast við
texta og tilsvör úr dómskjölum frá
þessum tíma byggir Hrafnhildur
upp spennandi atburðarás sem
kemur áhorfandanum sífellt á
óvart. Leikstjórinn, Ingibjörg Huld
Haraldsdóttir, útskrifaðist vorið
2011 úr Fræði og framkvæmd við
Listaháskóla Íslands. Verkið verð-
ur frumsýnt í Samkomuhúsinu 4.
október.
Menningar
Fótbolti og
skáldskapur
Ágúst Borgþór Sverrisson rithöfundur
n Fótbolti og skáldskapur ráða
ríkjum um helgina. Á föstudags-
kvöldið fer ég í fótbolta á batta-
vellinum við Austurbæjarskóla, á
laugardaginn jafna ég mig á harð-
sperrunum, skrifa á Cafe Roma
og kíki síðan á bikarúrslitaleikinn
í sjónvarpinu. Ég reyni svo að ná
upp góðum skriftum líka á sunnu-
daginn allt þar til ég fer í Kópavog-
inn til að horfa á Breiðablik–KR.
GusGus og partí
Ástríður Viðarsdóttir dagskrárgerðarkona
n Það verður heldur betur mikið
í gangi um helgina. Mig langar að
kíkja í Garðpartí Hressingarskál-
ans á föstudagskvöldið þar sem
GusGus spilar ásamt Sísí Ey og
plötusnúðum. Svo er ég að fara í
snarskemmtilegt kveðjupartí (já,
ég er búin að ákveða að þau verði
snarskemmtileg) hjá vinum mín-
um Tótu og Jóni sem eru að fara
að flytja til útlanda og annað gott
teiti hjá Birni Teitssyni sem er bú-
inn að vera í sumarafleysingum
sem fréttamaður á RÚV. Þannig að
það er partístand og tónleikar á
dagskránni þessa helgi.
helgin
16.–18. ágúst