Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2013, Qupperneq 44
44 Lífsstíll 16.–18. ágúst 2013 Helgarblað
Seldu húsið og
skoða heiminn
É
g lít ekki svo á að við séum
strandaglópar á Íslandi. Maður
er strandaglópur ef maður er á
stað sem maður vill ekki vera á,“
segir Kanadamaðurinn Rocky
Vachon. Hann kom ásamt kærustu
sinni, Paulu Fatia, til Íslands á mánu-
daginn í síðustu viku. Þau urðu fyrir
því óláni, þegar þau komu til Íslands
frá Bandaríkjunum, að afgreiðsla á
mótorhjólinu þeirra tafðist hjá tolla-
yfirvöldum í Ameríku. Þau höfðu gert
ráð fyrir að bíða í nokkra daga eftir
hjólinu en sú bið lengist um viku, hið
minnsta.
Rocky og Paula, 35 og 33 ára, tóku
saman fyrir um þremur árum. Þau
höfðu bæði hug á að leggja land und-
ir fót, eða hjól, og skoða heiminn.
Einu ári eftir að þau kynntust hafði
Paula selt húsið sitt og jafnaði þá
upphæð sem Rocky hafði safnað sér.
Þau hættu bæði í vinnunni og settust
upp á hjólið.
Þau óku frá heimabæ sínum,
Hamilton í Ontario-héraði í Kanada í
ágúst 2011. „Við fórum vestur Kanada,
í gegnum Vancouver og þaðan yfir
til Bandaríkjanna,“ segir Paula um
upphaf ferðalagsins. „Við ferðuðu-
mst um Bandaríkin, fórum þaðan
til Mexíkó, Belís og svo Gvatemala,“
heldur hún áfram. Þegar þau nálg-
uðust suðurhluta Ameríku, eftir 146
ferðadaga og 25 þúsunda kílómetra
akstur, tók ferðalagið á mótorhjólinu
óvæntan endi. Flutningabíll þröngvaði
þeim út af veginum og þau höfnuðu
ofan í skurði – eiginlega á kaf í skolp.
Þau sluppu bæði ómeidd en hjólið
skemmdist töluvert og varð óökuhæft.
Lærði að gera við hjólið
Rocky, sem er menntaður rafmagns-
verkfræðingur, hófst strax handa við
að endurbyggja hjólið og skipuleggja
framhald ferðarinnar. Hann segist ekk-
ert hafa kunnað þegar hann byrjaði að
skrúfa það í sundur og panta varahluti.
Hann tók myndir af hverju skrefi og
setti allar skrúfur og bolta í poka sem
hann merkti. „Ég er ekki bifvélavirki en
ég get næstum því kallað mig það eftir
þetta,“ segir hann og hlær. „Það er gott
að þekkja hjólið þegar eitthvað kemur
upp á. Ég kunni ekki að gera við dekk
þegar ég byrjaði en núna get ég bjarg-
að mér með flest. Ég reyni að gera allt
sjálfur,“ segir hann.
Þau fóru aftur af stað í byrjun
sumars og hafa verið á ferðalagi um
Kanada í næstum 70 daga og ferðuðu-
mst um austurhluta Kanada, Ný-
fundnaland og Labrador. Því næst
flugu þau til Íslands.
Boðið í bústað
Rocky og Paula njóta nú íslenska sum-
arsins, þó megnið af farangri þeirra,
auk fararskjótans, vanti. Þau hafa verið
tiltölulega heppin með veður. Fyrstu
nóttina gistu þau við Keflavíkur-
flugvöll en næsta dag húkkuðu þau
sér far í Reykjanesbæ, þar sem þau
komust í verslun og nettengingu. „Við
erum með fötin okkar og tjaldið. Það
er nóg í bili,“ segir hann af því æðru-
leysi og þeirri gleði sem einkennir fas
þeirra beggja.
Á föstudaginn hittu þau Gylfa Jón
Gylfason, fræðslustjóra í Reykjanesbæ,
fyrir utan ráðhúsið í bænum þar sem
þau höfðu tjaldað. Gylfi Jón bauð þeim
í mat og í kjölfarið að dvelja í sumar-
húsi hans að Hafurbjarnarstöðum, á
milli Garðs og Sandgerðis, þar til þau
fá hjólið í hendurnar. Þau eru hæstá-
nægð með þá gestrisni. Gylfi Jón hefur
sýnt þeim Reykjanesið og þau hafa
meðal annars skoðað Gunnuhver, vin-
sælan ferðamannastað við Reykjanes-
vita. Þá fengu þau lánaðan bíl hjá
heimamanni til að fara í dagsferð að
Gullfossi og Geysi.
Flækingar
Rocky og Paula halda úti skemmtilegri
vefsíðu þar sem fylgjast má með ferða-
lagi þeirra. „Not all those who wander
are lost“ eru einkennisorð vefsíðunn-
ar. Á íslensku gæti það útlagst sem:
Flækingar eru ekki alltaf villtir. Tilvitn-
unin er úr Hringadróttinssögu en slóð
vefsíðunnar er einmitt notallthose-
whowanderarelost.ca.
Rocky tekur myndir og Paula skrif-
ar texta um það sem á daga þeirra
drífur á ferðalaginu. Þar má meðal
annars sjá nákvæmt sundurliðað yfir-
lit yfir eyðsluna á ferðalaginu, en á
ferð þeirra um Ameríku eyddu þau að
jafnaði sem jafngildir 6.600 krónum á
dag. Þau spara mjög við sig í mat og
gistingu enda tjalda þau yfirleitt utan
hefðbundinna tjaldstæða. „Stundum
komumst við ekki í sturtu svo dögum
skiptir,“ segir Paula og hlær. „Núna veit
ég hvernig það er að vera skítugur hjól-
reiðamaður (e. dirty biker).“
Sigur Rós í uppáhaldi
Þau stefna á að vera tvær til þrjár vik-
ur á ferðalagi um Ísland eftir að þau
fá hjólið. Þau hafa merkt við marga
staði sem þau ætla að heimsækja hér,
en Rocky er mikill aðdáandi hljóm-
sveitarinnar Sigur Rósar. Hann féll
fyrir landinu þegar hann sá heimilda-
myndina Heima, um tónleikaferðalag
sveitarinnar um Ísland.
Þau Rocky og Paula áætla að ferð-
ast þar til peningurinn klárast. „Við
ætlum næst til Danmerkur, með Nor-
rænu, og svo sunnar, þegar fer að
hausta. Við ætlum í haust til Portúgal,
þar sem Paula fæddist og á fjölskyldu
sem hún þekkir lítið. Hún hefur ekki
komið þangað frá því hún var þriggja
ára,“ útskýrir Rocky. „Fjölskylda mín
býr í Portúgal og Frakklandi. Ég þekki
þau ekki en hef hitt suma einu sinni,
fyrir löngu síðan. Það verður gaman
að hitta þau,“ bætir Paula við.
Þau gera ráð fyrir að verja vetrin-
um í Portúgal og hyggja á að heim-
sækja Marokkó líka. Þegar fer að vora
ætla þau að færa sig norðar á bóg-
inn og heimsækja Sviss og Ítalíu, hið
minnsta. „Okkur langar að fara til
Egyptalands, aka með Nílarfljótinu
og heimsækja Jórdaníu. Við verðum
svo að sjá til hvort hægt verður að fara
til Tyrklands og Alsír en aðstæður í
þeim löndum verða að ráða því,“ seg-
ir Rocky. Hann hefur að auki reynt að
sannfæra kærustu sína um að heim-
sækja Pakistan og Íran, en til Íran
langar Rocky mikið að koma, sérstak-
lega norðurhéraðanna. „Ég er enn að
reyna að sannfæra hana …“
„Við sjáum til,“ grípur hún fram í og
hlær. Þau ætla að láta veðrið ráða för,
svolítið eins og Íslendingar. „Við för-
um heim þegar við erum annaðhvort
orðin leið hvort á öðru eða blönk.“
Finna frið á hjólinu
Þau viðurkenna aðspurð að það
geti tekið á að vera saman á ferða-
lagi allar sólarhringinn, svo vikum
og mánuðum skiptir. Stundum kast-
ist svolítið í kekki. „Við erum stund-
um spurð hvers vegna við notum ekki
hljóðnema til að tala saman þegar
við erum á mótorhjólinu,“ segir Paula
en segir að það komi ekki til greina.
„Við notum tímann á hjólinu til að
hugsa og vera út af fyrir okkur,“ seg-
ir Rocky. „Þó við sitjum þétt saman
þá eru þetta einu stundirnar sem við
fáum frið hvort fyrir öðru. Það skipt-
ir máli,“ segir hann og Paula tekur í
sama streng.
Þau segja að mótorhjólið veiti
þeim mikið frelsi. Þau geti skoðað
staði sem aðrir þurfa jeppa til að kom-
ast á. Hjólið komist vegi sem smábíl-
ar komist ekki. „Þetta er eins og jeppi
á tveimur hjólum – þannig komumst
við lengra og getum séð meira en ef
við værum á bílaleigubíl,“ segir Rocky
en bætir við að Paula verði svolítið
hrædd ef vegirnir eru mjög slæmir.
Hugmyndin kviknaði í Taívan
Fyrir um tíu árum var Rocky að vinna
við enskukennslu í skóla í Taívan, til
að eiga fyrir háskólanámi. Hann keypti
sér vespu og fór að aka um strendur
landsins. Það var þá sem hann fékk þá
flugu í höfuðið að ferðast um heiminn
á mótorhjóli. Hugmyndin var nokkur
ár í gerjun og undirbúningi. Eftir há-
skólanám fékk hann vinnu sem gaf
vel. En vinnan átti ekki við hann. „Ég
þoldi ekki vinnuna og gat ekki hugs-
að mér að sitja á bak við skrifborð
næstu 30 árin. Svo kynntist ég Paulu
og sagði henni frá því hvað mig lang-
aði að gera,“ útskýrir Rocky. Paula seg-
ir að hana hafi líka langað til að ferðast
en í fyrstu hafi hugmyndin um að gera
það á mótorhjóli verið fráleit. Honum
hafi þó fljótt tekst að sannfæra hana
um ágæti þess að ferðast um á mótor-
hjóli. „Ég féll fyrir stöðunum sem hann
ætlaði að heimsækja,“ segir hún.
Húsið seldist og þau drifu sig af
stað, eins og fram hefur komið. Paula
segist þó stundum sakna heimahag-
anna, fjölskyldunnar og kattanna
sinna, sem eru 13 og 17 ára. Þeir eru í
pössun hjá bróður hennar og móður
og heyra má að hún óttast að hitta þá
ekki aftur. „Kettir geta alveg náð 20 ára
aldri,“ segir Rocky til hughreystingar. n
n Rocky Vachon og Paula Fatioa fóru í heimsreisu á mótorhjóli n Fengu höfðinglegar móttökur í Reykjanesbæ
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
„Við erum
með fötin
okkar og tjaldið
Fararskjótinn Þau skötuhjú lentu utan
vegar í El Salvador í janúar 2012. Þau sluppu
ómeidd en gerðu hlé á ferðinni því hjólið
skemmdist. Nú eru þau aftur komin af stað.