Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2013, Page 52
52 16.–18. ágúst 2013 Helgarblað
Þ
að getur reynst sumum erfitt
að takast á við frægð og
frama, peninga og völd, enda
ýmsu sem þarf að fórna þegar
ná á miklum frama. Brjálaðir
aðdáendur, paparazzi-ljósmyndarar
og skáldaðar fréttir í dagblöðum eru
allt dæmi um ókosti heimsfrægðar
en þó virðist einnig sem fræga fólkið
lendi oftar fyrir rétti en annað fólk.
Blaðamaður DV tók saman nokk-
ur málaferli sem frægir einstaklingar
hafa þurft að takast á við.
„His Airness“ ekki sáttur
Körfuboltastjarnan Michael Jordan
stefndi matvöruverslunarkeðjunni
Dominick‘s sem og móðurfélagi þess,
Safeway Inc., árið 2009 fyrir að nota
nafn hans í leyfisleysi. Forsaga máls-
ins er sú að verslunarkeðjan birti
auglýsingu þar sem hún sendi „His
Airness“ hamingjuóskir fyrir að kom-
ast inn í Hall of Fame. Í auglýsingunni
var vissulega notast við þetta fræga
viðurnefni Jordan sem og treyjunúm-
er hans ásamt skilaboðunum „You
are a cut above“ en auglýsingunni
fylgdi afsláttarmiði sem veitti tveggja
dollara afslátt af steik frá Rancher‘s
Reserver.
Lögfræðingur Jordan hélt því fram
að sanngjarnt verð fyrir að fá að nota
viðurnefni Jordan væri fimm milljónir
Bandaríkjadala, en dómarinn Milton
Shadur sagði það einfaldlega græðgi
af hálfu körfuboltakappans. Það var
svo ekki fyrr en í júní á þessu ári sem
samkomulag náðist á milli stefnanda
og stefndu en þær viðræður fóru fram
fyrir luktum dyrum.
Ósátt við bílaumboð
Rappdívan og upptökustjórinn
Missy Elliott stefndi bílaumboðinu
Fox Valley Motor Cars í lok árs 2012
vegna kaupa á hvítum Lamborg-
hini Aventador. Elliott hélt því fram
að samningur hennar og umboðsins
hafi kveðið á um að hún myndi greiða
30 þúsund dali í reiðufé auk þess sem
fyrri bíll hennar, Bentley frá 2005,
myndi ganga upp í kaupverðið sem
hljóðaði upp á 376 þúsund Banda-
ríkjadali, en það gera tæpar 45 millj-
ónir íslenskra króna. Hún hafi hins
vegar aldrei fengið nýja bílinn, sem
hún átti að fá sendan fyrir mitt ár
2012, auk þess sem bílaumboðið hafi
hækkað verðið á bílnum. Ekki hefur
enn fengist niðurstaða í málið.
Megrunarvörurnar virkuðu ekki
Bandaríska leikkonan Kirstie Alley
hefur barist við aukakílóin í mörg ár
og þótti því tilvalið að stofna fyrir tækið
Organic Liaison sem framleiðir megr-
unarvörur. „Fyrir og eftir“-myndir af
Alley prýddu vörur fyrirtækisins og
sýndu umtalsverðan árangur í barátt-
unni við holdið og var neyslu megr-
unarvaranna þökkuð árangurinn. Á
síðasta ári var Alley svo stefnt af Mar-
inu Abramyan, óánægðum viðskipta-
vini, sem sagði vörurnar ekki virka
og benti á að ástæðan fyrir sjáanleg-
um mun á leikkonunni væri sú að
hún hefði stundað mikla líkamsrækt
og auk þess borðað afar hitaeininga-
snauðan mat eftir ströngu matarpl-
ani. Á meðan Alley tók þátt í dansþátt-
unum Dancing With the Stars hafi
hún til dæmis stundað líkamsrækt í
fimm til sjö klukkutíma á dag.
Dómarinn féllst á rök Abramy-
an og skipaði Alley að breyta um-
búðum á vörum sínum þannig að
tekið yrði sérstaklega fram að ekki
væri sannað að vörurnar virkuðu.
Þá þarf Alley að greiða Abramyan og
lögfræðingum hennar samtals 130
þúsund Bandaríkjadali, en það
gera rúmar 15 milljónir króna.
Vill heita 50 Cent
Bandaríski rapparinn 50 Cent,
sem heitir réttu nafni Curtis Jame
Jackson III, vill sannarlega ekki
að nafn hans sé notað í leyfis-
leysi. Árið 2008 stefndi hann
skyndibitakeðjunni Taco Bell
fyrir einmitt það eftir að keðjan
sendi fjölmiðlum víðs vegar um
Bandaríkin bréf þar sem rapparinn
var beðinn á gamansaman hátt um að
breyta nafninu sínu í 79 Cent, 89 Cent
eða 99 Cent en uppátækið var liður í
að auglýsa ódýran matseðil keðjunnar
þar sem réttir á matseðli kostuðu ekki
meira en 99 sent. Taco Bell virðist þó
hafa gleymt að senda slíkt bréf á rapp-
arann sjálfan sem var afar óánægður
með uppátækið og krafði skyndibita-
keðjuna um fjórar milljónir Banda-
ríkjadala í skaðabætur, en það gera
rúmar 476 milljónir íslenskra króna.
Ráðið var fram úr deilunni í nóvem-
ber 2009 með samkomulagi. n
topp 5
Áhrifamestu
í tónlistinni
1 Lady Gaga Lady Gaga halaði inn rúmar 168 milljónir Banda-
ríkjadala í janúarmánuði vegna tón-
leikaferðarinnar Born This Way. Hún er
auk þess með afar stóran hóp aðdáenda,
en 38 milljónir manna eru fylgjendur
stjörnunnar á Twitter og 58 milljónir á
Facebook. Aðdáendur hennar eru þeir
allra tryggustu í bransanum.
2 Beyoncé Knowles
Beyoncé græddi
umtalsverðar fjárhæðir
á árinu en nýjasta
tónleikaferð hennar hefur
halað inn rúmar tvær milljónir
Bandaríkjadala í hverri borg. Þá er hún
með sína eigin fatalínu auk þess að vera
með samning við stórfyrirtæki á borð
við H&M og Pepsi. Beyoncé er
dáð af milljónum og stútfyllir stærstu
tónleikahallir heims með skömmum
fyrirvara.
3 Madonna Madonna hefur
halað inn gríðarlegar
fjárhæðir á árinu og
þá aðallega vegna
tónleikaferðarinnar
MDNA sem hefur náð um
305 milljónum Bandaríkjadala í kassann.
Þá er hún með fatalínuna Material Girl og
ilminn Truth or Dare svo eitthvað sé nefnt
en þessi amma poppsins er hvergi nærri
hætt í bransanum.
4 Taylor Swift Söngkonan
unga er meðal ríkustu
tónlistarmanna heims
en hún gaf út sína fjórðu
breiðskífu í lok síðasta árs og
seldust yfir 1,2 milljónir eintaka á einni viku.
Þá hefur Swift einnig landað fjölmörgum
samningum við stór fyrirtæki á borð við
Coca Cola, Sony og Covergirl og vinsældir
hennar í hámarki um þessar mundir.
5 Bon Jovi Töffararnir í
Bon Jovi hafa verið
á tónleikaferðalagi
síðan í byrjun febrúar
en hljómsveitin hefur
halað inn meira en þrjár
milljónir Bandaríkjadala í hverri borg og
þar með grætt meira á árinu en Kanye
West, Jennifer Lawrence og Rafael Nadal
til samans. Þeir eru sívinsælir og alls
staðar fylla þeir tónleikasalina.
M
ichelle Obama, forsetafrú
Bandaríkjanna, undirbýr nú
útgáfu plötu þar sem rapp
og hip-hop verður í aðal-
hlutverki. Platan er hluti af verkefni
á hennar vegum sem nefnist Let‘s
Move! en það snýst um að binda
enda á offitu hjá bandarískum börn-
um og unglingum auk þess að stuðla
að auknu heilbrigði hjá yngri kyn-
slóðinni. Obama mun hvorki rappa
né syngja inn á plötuna sjálf en hefur
fengið fjölmargt tónlistarfólk með sér
í lið, svo sem Ashanti, Jordin Sparks,
Run DMC og Doug E. Fresh. Hún
mun hins vegar birtast í myndbönd-
um við lögin á plötunni en fyrirhugað
er að útbúa tíu tónlistarmyndbönd
og sýna þau í grunn- og framhalds-
skólum víðs vegar um Bandaríkin.
Platan, sem nefnist Songs for a
Healthier America, er væntanleg í
næsta mánuði og inniheldur 19 lög
um ágæti hreyfingar og holls matar-
æðis. Má þar nefna lög á borð við
U R What You Eat, sem á íslensku
myndi útleggjast sem Þú ert það sem
þú borðar, og Veggie Luv, eða Græn-
metisást.
Let‘s Move!-verkefnið hófst í byrj-
un árs 2010 og hefur Michelle Obama
ferðast víðs vegar um Bandaríkin til að
kynna það í skólum, íþróttafélögum
og öðrum stofnunum þar sem börn
koma við sögu. Markmið átaksins er
að uppræta offitu á meðal barna og
unglinga í Bandaríkjunum með öllu
innan örfárra kynslóða svo að börn
sem fæðist í dag verði í heilbrigðri
þyngd er þau ná fullorðinsaldri. n
Michelle Obama gefur út plötu
n Hluti af átaki gegn offitu barna og unglinga Áhyggjufull Michelle
Obama hefur miklar
áhyggjur af offitu banda-
rískra barna og unglinga. Panettiere
trúlofuð
Bandaríska leikkonan Hayden Panetti-
ere mætti á alþjóðlega flugvöllinn í
Los Angeles fyrr í vikunni með stóran
demantshring á fingri. Fjölmiðlar vest-
anhafs hafa velt því fyrir sér um nokkra
hríð hvort leikkonan smávaxna hafi
hlotið bónorð frá kærasta sínum til
nokkurra ára, úkraínska þungavigtar-
kappanum Wladimir Klitschko, en nú
hafa þær sögusagnir verið staðfestar.
Panettiere og Klitschko hófu ástarsam-
band árið 2009 en hættu saman tveim-
ur árum síðar. Ekki leið þó á löngu þar
til þau byrjuðu saman á ný og nú virð-
ist brúðkaup vera í vændum.
Stjörnurnar fyrir rétti
n Lögsóknir einn af fylgifiskum frægðar og frama„
His
Airness
Michael
Jordan
Missy Elliott
Kirstie Alley50 Cent
Organic Liaison Óánægður viðskiptavinur sagði megrunarvörur Kirstie Alley ekki virka.