Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2013, Page 54
54 Fólk 16.–18. ágúst 2013 Helgarblað
Fastráðin við Metropolitan
n Dísella Lárusdóttir fráskilin og með nýjan kærasta
D
ísella Lárusdóttir er fyrsti
Íslendingurinn til að fá
fastráðningu í hinni virtu
Metropolitan-óperu í New
York. Velgengni hennar innan
óperunnar hefur farið stigvaxandi.
Fyrir nokkrum árum skráði hún sig í
söngkeppni á vegum óperunnar. Þar
komst hún í undanúrslit og í kjölfarið
var henni boðinn tímabundinn
samningur. Stjórnendur óperunnar
hafa hins vegar verið svo ánægðir
með hana að nú hefur hún fengið
fastráðningu.
Margt hefur gengið á í lífi Dísellu
í New York en hún er nýlega skilin,
og komin með nýjan kærasta. Hún
segir frá ævintýralegu lífi sínu í
viðtali í Vikunni og því þegar hún
fluttist með ungan son sinn í litla
einstaklingsíbúð í stórborginni New
York. Þar voru aðstæður fremur
fábrotnar.
„Meðferðis höfðum við einungis
þrjá poka af flíkum, snyrtivörur,
bleyjur og kaffikönnu,“ segir Dísella
frá.
Kærasti Dísellu heitir Bragi Jóns-
son og deilir söngástríðunni með
henni. Hann er sjálfur efnilegur ba-
ssasöngvari sem nýlega út skrifaðist
úr Royal College of Music í London.
Bragi stefnir á að flytja yfir Atlants-
hafið til Dísellu, þar sem tækifærin
bíða þeirra. nBjörgvin Páll
eignast dóttur
Handboltakappinn viðkunnan-
legi Björgvin Páll Guðmundsson
eignaðist sitt fyrsta barn á dögun-
um með eiginkonu sinni, Karenu
Einarsdóttur. Það var dóttir sem
kom í heiminn og hefur hún nú
þegar fengið nafnið Emma.
Hamingjuóskunum rignir yfir
lukkuleg hjónin á Facebook-síð-
um þeirra. Litla fjölskyldan býr í
Þýskalandi þar sem Björgvin Páll
spilar með Bergischer HC.
Gengur vel
Velgengni Dísellu er
ævintýraleg.
V
ið ætlum aðeins að stýra
skipinu frá of mikilli pólitískri
umræðu,“ segir Kristófer
Dignus Pétursson en hann
mun stýra áramótaskaupinu
í ár.
„Að sjálfsögðu verður einhver póli-
tík, það er óhjákvæmilegt, en það hef-
ur verið dálítið mikil pólitísk ádeila í
síðustu skaupum og það hefur verið
þungamiðjan í þessu en okkur langar
að létta þetta aðeins upp. Fara meira
bara í fyndnina og minna í að uppræta
hlutina. Við erum ekki að fara í það að
leysa einhver mál.“
Kristófer segir aðstandendur
skaupsins þvert á móti ætla að leggja
áherslu á að hafa það skemmtilegt og
fyndið.
„Við ætlum að reyna að nota þess-
ar 70 mínútur sem við fáum til að gera
í alvörunni skemmtilegan gamanþátt,
fyrst það eru nú allir að horfa á þetta.“
„Við erum sérvitur og skrýtin
þjóð“
En hvar verður áherslan fyrst pólitíkin
verður ekki í forgrunni?
„Áherslan er úti um allar trissur,
bara eins og áherslan er hjá Íslending-
um. Við erum náttúrlega ADHD-þjóð;
verðum brjáluð við minnsta tæki-
færi og í mjög stuttan tíma og finnum
svo eitthvað annað daginn eftir til að
vera brjáluð yfir. Skaupið verður dá-
lítið þannig og athyglisbrestur verð-
ur þema í skaupinu. Þannig að þetta
verður mikið hingað og þangað og
við reynum að snerta á mörgu, bæði
því sem hefur gerst á árinu og líka því
sem einkennir okkur sem Íslendinga í
dag. Við erum sérvitur og skrýtin þjóð
þannig að við ætlum svolítið að leika
okkur með það.“
Ríkisstjórnin tekin fyrir
Árið í ár hefur verið ansi viðburða-
ríkt og segist Kristófer hafa úr nógu að
vinna. Alþingiskosningarnar verði til
að mynda teknar fyrir.
„Svo býður þessi „bromance“ á
milli Bjarna og Sigmundar náttúr-
lega upp á ýmislegt sem og allir þessi
nýju flokkar sem buðu sig fram í kosn-
ingunum, það er fullt af gullmolum
þar,“ segir hann og bætir við að ný
ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Fram-
sóknarflokks sé hrein gullnáma.
„Hún er dugleg að gera alls konar
skemmtilega hluti til að búa til efni
fyrir okkur þannig að það er úr nógu
að moða.“
Halda öllu opnu
Handritshöfundar skaupsins eru þau
Ilmur Kristjánsdóttir, Ari Eldjárn,
Pétur Jóhann Sigfússon, Baggalútarn-
ir Bragi Valdimar Skúlason og Guð-
mundur Pálsson og Steinþór Hró-
ar Steinþórsson, betur þekktur sem
Steindi Jr. og segist Kristófer einstak-
lega ánægður með hópinn.
„Mesta vinnan fer í handritaskrifin
þannig að við byrjuðum snemma í
sumar að hittast. Svo þyngist róðurinn
núna í september, bæði í „hittingum“
og skrifum, og við ljúkum handritinu
svona 85 prósent í október en skiljum
15 prósent eftir ef eitthvað skemmti-
legt skyldi gerast rétt fyrir áramót,“
segir Kristófer og bætir við að tökur
fari fram í lok nóvember.
„Við ætlum að halda þeim
möguleika opnum að geta skipt út
einhverju atriði ef það er eitthvað nýtt
sem við tökum upp rétt fyrir áramót.“
Laddi staðfestur í skaupið
„Laddi verður að vera með,“ seg-
ir Kristófer, spurður hvort búið sé að
velja leikara í skaupið.
„Ég veit ekkert hvað hann er að fara
að gera en ég get lofað þér því að hann
verður með. Það er það eina sem er
orðið staðfest.“
Eins segir Kristófer að handritshöf-
undarnir verði einnig nýttir í leik.
„Við erum náttúrlega með fanta-
góða grínleikara í skrifteyminu og ætl-
um að nýta það, svo þau munu bæði
skrifa og leika,“ segir hann og nefn-
ir þar Ilmi, Pétur Jóhann, Steinda og
Sögu sem dæmi.
Blendnar tilfinningar
En hvernig leggst það í Kristófer að
bera þá miklu ábyrgð að stýra sjálfu
skaupinu?
„Ég er mjög spenntur núna en svo
verð ég örugglega mjög hræddur líka.
Þannig að þetta eru blendnar tilfinn-
ingar en þetta eru allt skemmtilegar
tilfinningar.
Hann segist undirbúinn fyrir gagn-
rýni en að Íslendingar séu þó ekki
mjög langræknir.
„Það eru alltaf allir brjálaðir í viku,
eða rosa glaðir í viku, og svo er fólk
bara búið að gleyma hvernig skaup-
ið var.“ n
Pólitík ekki
í forgrunni
Hörn Heiðarsdóttir
blaðamaður skrifar horn@dv.is
n Kristófer Dignus leikstýrir skaupinu n Pétur Jóhann, Ari og Ilmur meðal höfunda
Seldi pítsur
og kandífloss
Leikarinn og baráttumaðurinn
Stefán Karl Stefánsson safnar nú
fé til að fjármagna samtök sín
Regnbogabörn. Stefán Karl var í
fréttum nýverið þegar hann seldi
kandífloss í miðborginni og kom
út í mínus vegna himinhás raf-
magnskostnaðar. Nú selur Stefán
Karl pítsur með aðstoð Domino‘s
á Íslandi. Þeir sem vilja styrkja
starfsemi Regnbogabarna geta
pantað Góðgerðapítsu Domino‘s
og rennur þá féð til baráttu Stefáns
Karls gegn einelti.
Gleymdi að
láta greina sig
Hugleikur Dagsson frumsýnir
brátt teiknimyndaþáttinn Hulli
og ræddi um athyglisbrest sinn í
viðtali við Monitor. Hann sagðist
vera með svo mikinn athyglisbrest
að hann hafi hreinlega gleymt að
láta greina sig.
„Eftir að athyglisbrestur komst
í umræðuna sagði ein vinkona
mín mér að ég hlyti að vera með
athyglisbrest og upp frá því hef
ég velt því fyrir mér af alvöru. Ég
ætlaði alltaf að fara að láta greina
mig en það gæti verið merki um
athyglisbrest og upp frá því hef
ég velt því fyrir mér af alvöru. Ég
ætlaði alltaf að fara og láta mig
greina mig en það gæti verið
merki um athyglisbrest og ég
hef aldrei komið því verk,“ sagði
Hugleikur.
MynD GauiEMiLs
Kristófer Dignus Kristófer segir minni
áherslu verða á pólitík en oft áður.
Handritshöfundar Einvalalið grínista mun skrifa skaupið í ár.