Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2014, Qupperneq 6
Páskablað 15.–22. apríl 20146 Fréttir
Stal úr ELKO
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
dæmt tvítuga konu í sjö mánaða
skilorðsbundið fangelsi fyrir
þjófnað. Konan var ákærð fyrir
að stela þremur minnislyklum,
samtals að söluandvirði 10.985
krónur, úr verslun ELKO í Skeif-
unni þann 31. október í fyrra.
Konan játaði brot sitt skýlaust
fyrir dómi. Með broti sínu rauf
hún skilorð dóms sem hún hlaut í
mars í fyrra, en þá var hún dæmd
í sex mánaða fangelsi, skilorðs-
bundið til þriggja ára, vegna
hegningarlagabrots. Dómara
þótti hæfileg refsing vegna þjófn-
aðarbrotsins úr ELKO vera sjö
mánaða fangelsi, skilorðsbund-
ið í þrjú ár. Þá var henni gert að
greiða málsvarnarþóknun verj-
anda síns, samtals 87.850 krónur.
„Mikil vonbrigði“
Gjaldtöku við Geysi hætt eftir úrskurð Hérðsdóms Suðurlands
L
andeigendafélag Geysis hefur
ákveðið að hætta gjaldtöku við
Geysi. Ákvörðunin var tekin
eftir að Héraðsdómur Suður-
lands féllst á lögbannskröfu ríkis-
ins á gjaldheimtu við Geyissvæðið.
Dómur féll í málinu á mánudaginn
en ríkið kærði úrskurð sýslumanns
sem neitaði að verða við kröfunni.
Gjaldtakan hefur mætt mik-
illi andstöðu enda er hún á skjön
við lög. Ögmundur Jónasson, fyrr-
verandi innanríkisráðherra og
þingmaður Vinstri grænna, hefur
undanfarnar helgar gengið inn á
Geysissvæðið í mótmælaskyni án
þess að greiða fyrir og hafa inn-
heimtumenn ekki heft för hans né
annarra sem fylgt hafa fordæmi
Ögmundar.
„Niðurstaða Héraðsdóms
Suðurlands er landeigendafé-
laginu mikil vonbrigði,“ segir
Bjarni Karlsson, formaður Land-
eigendafélagsins Geysis, í yfirlýs-
ingu félagsins. „Dómur vekur upp
spurningar um eignarrétt og get-
ur tafið verulega fyrir nauðsynlegri
verndun og uppbyggingu á Geysis-
svæðinu sem er þegar á lista Um-
hverfisstofnunar um þau verndar-
svæði sem eru í mikilli hættu á að
tapa verðgildi sínu.“
Landeigendafélagið hyggst
fara ítarlega yfir röksemdir dóms-
ins og ákveða í framhaldi af því
hver næstu skref félagsins í málinu
verða. n
Rukka ekki lengur inn Gjaldtaka á Geysissvæðinu féll í grýttan jarðveg hjá fjölmörgum
Íslendingum. Mynd RöGnvalduR MáR
„Þetta er
áhyggjuefni“
„Það er búið að vera mikið af
slysum undanfarið, en það er
tölfræðilega séð ekki marktækt
um hvort aukningu sé að ræða.
En þetta er áhyggjuefni,“ segir
Guðbrandur Örn Arnarson,
verk efnastjóri aðgerðamála hjá
Slysavarnafélaginu Landsbjörg.
Mikil umfjöllun hefur verið um
vélsleðaslys að undanförnu en
á sunnudag lést karlmaður eftir
að hafa ekið fram af hengju við
Hrafntinnusker.
Í mars urðu nokkur önnur
alvarleg vélsleðaslys, meðal
annars á Þorskafjarðarheiði,
Hlöðuvöllum við Hlöðufell og á
Goðalandsjökli. „Þessi slys verða
alltaf mjög alvarleg vegna þess að
menn eru oft á miklum hraða og
fara fram af hengjum eða ofan í
gil,“ segir Guðbrandur í samtali
við DV.
Inni í göngunum
þegar sprengt var
n Hefur komið fyrir Hilmar í þrígang n Starfsmanni láðist að vara við
Þ
etta er í þriðja sinn sem ég er
inni í göngunum og það er
sprengt,“ segir gangagerða-
maðurinn og vélstjórinn
Hilmar Brynjólfsson. Hann
starfaði við gerð Vaðlaheiðarganga
allt þar til á fimmtudaginn, en þá var
hann inni í göngunum þegar sprengt
var í stafninum. „Eftir að þetta gerð-
ist í annað sinn þá lét ég yfirmann
minn vita að ef þetta gerðist í þriðja
sinn, þá liti ég á það sem uppsögn.
Ég og félagi minn vorum nýbúnir í
mat og vorum á leiðinni aftur inn í
göng. Ætli það hafi ekki verið tæpa
300 metra frá stafninum sem ég finn
höggbylgjuna og lætin í sprengjun-
um og þrátt fyrir að ég hafi var að
keyra veghefil þá fann ég rosalega
vel fyrir þessu,“ segir Hilmar. Hann
var ekki með heyrnarhlífar þegar
sprengjurnar sprungu, enda alger-
lega óundirbúinn þar sem enginn
hafði varað hann við.
Engin viðvörun
„Við mættum bíl sem var á leiðinni
út og í honum var sá starfsmaður
sem á að sjá til þess að enginn sé
inni í göngunum sem á ekki að vera
þar á meðan sprengt er og vara alla
við. Hann sagði hins vegar ekkert við
okkur og því vorum við grunlausir,“
segir Hilmar en sá sem fór inn í
göngin með honum hefur sjálfur ver-
ið tvisvar sinnum í göngunum þegar
sprengt er. Hann var aftur á móti
kominn mun styttra inn í göngin og
var auk þess með heyrnarhlífar á,
fyrir algjöra tilviljun. „Í bæði skipt-
in sem þetta hefur gerst áður, þá lét
ég mína yfirmenn vita og sagði þeim
að næst þegar þetta myndi gerast þá
myndi ég hætta. Hins vegar var ekk-
ert gert í málunum,“ segir Hilmar.
Hreint helvíti
Hann starfaði sem svokallaður úti-
maður og sá meðal annars um efnið
sem fellur til við sprengingar. Úti-
mennirnir sjá einnig um vegagerð
inni í göngunum, hefla veginn og
halda honum við. „Þarna inni er
mikill raki og lofthiti sem er líklega
hátt í 30°C. Fyrir þessar aðstæður
fáum við ekki neitt álag greitt, en þeir
sem starfa bara inni í göngunum fá
slíkt ofan á sín laun. Það er hreint
helvíti að vinna þarna inni í þessu,“
segir Hilmar. Ástæða fyrir hitan-
um inni er sú að 43°C heitt vatn fór
að flæða úr stafni ganganna eftir að
starfsmenn boruðu í vatnsæð.
nota lúðra framvegis
Þrátt fyrir að Hilmar hafi áður lent
í því að vera inni í göngunum við
sprengingu var ekki tilkynnt um
málið til Vinnueftirlitsins fyrr en eftir
þetta atvik, en það gerði Hilmar sjálf-
ur. Sjálfur hafði hann tilkynnt atvikið
til sinna yfirmanna. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Vinnueftirlitinu hafði
ekki verið tilkynnt um slíkt mál áður,
þó að ýmis önnur mál tengd ganga-
gerðinni hefðu verið til skoðunar.
Framkvæmdastjóri verkkaup-
andans Vaðlaheiðarganga ehf., Val-
geir Bergmann Magnússon, segir
að hann hafi fundað með fulltrúum
frá Vinnueftirlitinu og verktökunum
ÍAV og Ósafls vegna málsins. Í kjöl-
farið hafi verktakarnir breytt sín-
um vinnubrögðum, en nú verða
lúðrar þeyttir í hvert sinn sem á að
sprengja. Að sögn Valgeirs er hægt að
kenna um mistökum starfsmannsins
sem mætti Hilmari í göngunum, en
sá átti að vara Hilmar við. Því verði
betur hugað að því að koma mönn-
um út eða vara við sprengingu héð-
an í frá. n
Rögnvaldur Már Helgason
rognvaldur@dv.is
„Hreint helvíti að
vinna þarna inni
Sagði upp Hilmar Brynjólfsson starfaði
sem útimaður við gerð Vaðlaheiðarganga.
Hann hætti eftir að hafa lent í því í þriðja
sinn að vera grunlaus inni í göngunum
þegar sprengt var í stafninum.
Mynd BjaRni EiRíkSSon
Heitt vatn Mikill hiti er inni í göngunum
og raki, svo aðstæður eru ekki eins og best
verður á kosið. Ekki fá allir greitt álag vegna
þess. Mynd BjaRni EiRíkSSon