Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2014, Blaðsíða 10
Páskablað 15.–22. apríl 201410 Fréttir
www.kebabgrill.is • Lækjargötu 10 Reykjavík • Sími 571-8800
Opnunartími: Mán-Fim 11-23, fös og lau 11-06, sun 13-23
Brauðið
bakað á
staðnum
Smakkaðu besta
Kebab í heimi!
Líkamsárás
á Selfossi
Ráðist var á mann sem var á
göngu á Eyrarvegi móts við
Húsasmiðjuna á Selfossi aðfara-
nótt laugardags. Árásin hafði
þann aðdraganda að tveir menn
voru að kýta inni á skemmti-
staðnum Fróni sem er við Eyrar-
veg. Í tilkynningu frá lögreglu
kemur fram að þar inni hafi
mennirnir tekist á. Þegar ann-
ar þeirra yfirgaf skemmtistaðinn
fylgdi hinn honum eftir og réðst
á hann fyrir utan með því að
sparka í fætur hans. Afleiðingarn-
ar voru þær að maðurinn sem
ráðist var á féll í götuna og hlaut
áverka á handlegg.
Rúður brotnar
á Ísafirði
Lögreglan á Vestfjörðum hafði
í nógu að snúast í liðinni viku.
Aðfaranótt sunnudags voru til
dæmis unnin skemmdarverk á
nokkrum stöðum á Ísafirði frá
miðnætti og fram á morgun.
Skemmdarverkin voru unnin
víða í bænum; rúða var brotin í
Landsbankahúsinu en auk þess
voru rúður brotnar við Tanga-
götu, Austurveg og Sundstræti.
Þá voru unnar skemmdir á bíl-
um við Smiðjugötu, Sundstræti,
Skipagötu og Aðalstræti.
Þeir sem einhverjar upp-
lýsingar geta gefið um þessi
skemmdarverk góðfúslega hafið
samband við lögregluna á Vest-
fjörðum, varðstöð Ísafirði í síma
450-3730.
Einn ökumaður var kærður
fyrir of hraðan akstur í umdæmi
lögreglunnar á Vestfjörðum, en sá
var stöðvaður í nágrenni Patreks-
fjarðar. Að auki var einn ökumað-
ur kærður vegna gruns um akstur
undir áhrifum fíkniefna.
A
flýsi ferðasali alferð eiga neyt-
endur rétt á að fá ferðina endur-
greidda, eða fá aðra sambæri-
lega ferð,“ segir í tilkynningu á
vef Neytendasamtakanna um réttindi
neytenda sem keypt hafa pakkaferðir
komi til verkfalls flugvallastarfsmanna
í lok mánaðar. „Ferðasali getur því
ekki neitað að endurgreiða pakkaferð
með vísan til þess að verkfall flugvalla-
starfsmanna teljist til óviðráðanlegra
aðstæðna. Réttur til endurgreiðslu, sé
ferð aflýst, er einfaldlega til staðar og
skiptir þá ekki máli af hvaða ástæðu
aflýsing stafar.“
Starfsmenn Isavia gripu til vinnu-
stöðvunar þann 8. apríl og hefur verið
boðað til frekari vinnustöðvana 23. og
25. apríl. Félag flugmálastarfsmanna
og Isavia hafa fundað stíft undan-
farna daga hjá ríkissáttasemjara en
það fyrrnefnda lagði fram tilboð á
fimmtudaginn. Isavia fór yfir tilboðið
um helgina.
Neytendasamtökin hafa barist fyrir
því í gegnum tíðina að ferðasalar fari
eftir settum reglum en árið 2010 var
Iceland Express skylt að endurgreiða
viðskiptavini flugferð sem féll niður
vegna eldgoss í Eyjafjallajökli. Ferðasali
taldi að alferð sem féll niður vegna eld-
gossins væri af óviðráðanlegum ástæð-
um og væri því ekki tilefni til að endur-
greiða ferðina. Neytendastofa féllst
ekki á þau rök og gerði Úrskurðarnefnd
í ferðamálum ferðasala að endurgreiða
ferðina. n ingolfur@dv.is
Verða að endurgreiða
Ef aflýsa þarf alferð vegna verkfalls á viðskiptavinur rétt á endurgreiðslu
Margt um manninn Örtröð myndaðist á Keflavíkurflugvelli þegar starfsmenn Isavia gripu
til vinnustöðvunar þann 8. apríl. Mynd AMG
F
élag háskólakennara hefur
boðað verkfall á áætluðum
prófatíma Háskóla Íslands, frá
25. apríl til 10. maí, ef ekki næst
að semja í kjaraviðræðum fyr-
ir þann tíma. Í félaginu eru aðjunktar,
lektorar, dósentar, sérfræðingar og
vísindamenn við Háskóla Íslands
en Félag háskólakennara telur að sá
hópur hafi dregist verulega aftur úr
prófessorum og sambærilegum hóp-
um í launum. Leiðrétta þurfi þennan
launamun.
Hræðilegar afleiðingar
María Rut Kristinsdóttir, formaður
Stúdentaráðs, segir að verkfall á
prófatíma muni hafa hræðilegar af-
leiðingar. Hún telur vandamálið vera
hluta af öðru stærra.
„Það er ennþá ekki greitt með 350
nemendum skólans. Sömuleiðis á að
hækka skrásetningargjöldin upp í 75
þúsund krónur og bara 39 milljónir af
þeim 180 milljónum munu renna til
skólans,“ segir María sem telur vanta
fjárhæðir sem hefðu annars skilað
sér í rekstur skólans. Þannig sé verk-
fall afleiðing þess að það sé búið að
skera niður í háskólanum í sex ár.
„Það er verið að kalla eftir ákveðinni
leiðréttingu á þessu.“
María segist ekki beina spjótum
sínum að starfsfólki háskólans held-
ur sé þrýst á báða aðila að semja.
Aðspurð hvort að verkfallið gæti
valdið brottfalli telur María að svo
gæti orðið. Hún segir marga búna að
sætta sig við að önnin sé ónýt. „Ég hef
heyrt í einhverjum að metnaðurinn
hafi svolítið flogið út um gluggann.“
María hvetur nemendur til að
missa ekki dampinn og gera ráð fyrir
að próf verði haldin á tilætluðum
tíma. „Vonandi nást samningar sem
fyrst og þá verður ekki af þessu verk-
falli. Ég set alla mína pressu þangað.“
Röng forgangsröðun
ríkisstjórnarinnar
Anna Rut Kristjánsdóttir, oddviti
Röskvu í Stúdentaráði Háskóla Ís-
lands, segir yfirvofandi verkfall enn
eitt dæmið um það að háskólinn sé
fjársveltur og að ríkisstjórnin hafi
ekki forgangsraðað eins og hún ætti
að gera. „Fyrst og fremst viljum við
þrýsta á stjórnvöld að semja og líka
að forgangsraða í samræmi við mikil-
vægi.“
Anna Rut segir verkfallið kristall-
ast í því hvað háskólinn stendur illa
fjárhagslega „Við sýnum aðgerðun-
um skilning og vonum að stjórnvöld
komi til móts við þessa kröfu. Slæm
kjör kennara bitna rakleiðis á okkur,
það skilar sér í verri kennslu og verri
gæðum náms þegar öllu er á botninn
hvolft.“
Mögulega lokaspretturinn
Jörundur Guðmundsson, formaður
Félags háskólakennara, segir að
samningaviðræðum hafi miðað
áfram um helgina. Aðspurður hvort
að búist sé við að samningar náist í
vikunni segir Jörundur að það verði
vonandi. „Það er verið að reyna að
leysa úr nokkrum málum ennþá.“
Hann segir að það geti verið
að samningaviðræður séu á loka-
sprettinum. „Það er ástæða til að
ætla það en það er ekki hægt að
ábyrgjast það fyrr en það er búið.“
Stúdentar mótmæla
Í hádeginu mánudaginn 14. apríl
efndu stúdentar til mótmæla við
fjármálaráðuneytið þar sem skorað
var á ríkisstjórn, fjármálaráðherra
og þingheim allan að finna fé til að
útkljá deiluna.
Nanna Elísa Jakobsdóttir,
laganemi og mótmælandi, segir að
verkfallið myndi setja allt úr skorð-
um. „Það yrði hræðilegt. Ég myndi
líklega þurfa fresta vinnunni minni
sem ég er búin að lofa mér í strax að
loknum prófum.“ n
Sætta sig við að
önnin sé ónýt
Yfirvofandi verkfall háskólakennara er enn eitt dæmið um fjársvelti Háskóla Íslands
Salka Margrét Sigurðardóttir
salka@dv.is
Óþreyjufullir stúdentar
Krefjast þess að samið verði
strax. Mynd SiGtRyGGuR ARi
Fjársveltur háskóli
Verkfall er afleiðing sex ára
niðurskurðar. Mynd SiGtRyGGuR ARi