Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2014, Page 12
12 Fréttir Páskablað 15.–22. apríl 2014
uuPassíusálmarEitt helsta trúarrit Íslendinga í gullfallegri útgáfu.Sígilt listaverk.Fermingargjafirsem fylgjabarninu Lífsreglurnar fjórar eru einfaldar en öflugar og vísa leiðina að frelsi og sjálfstæði.salka.is • Skipholti 50c • 105 Reykjavík Bókabúð Sölku opin 9-17 virka daga
M
óðir mín á erfitt með svefn
út af þessu og grætur bara,“
segir aðstandandi íbúa á
Höfn, öldrunarmiðstöð í
Hafnarfirði. Íbúar þar eru
í miklu uppnámi vegna fyrirsjáan-
legra breytinga á högum sínum en
þeir þurfa að reiða fram háar fjár-
hæðir til að tryggja áframhaldandi
búsetu á Höfn. Aðstandandinn seg-
ist hafa áhyggjur af því að þetta hafi
mikil áhrif á heilsu móður sinnar og
þetta verði til þess að henni hraki.
„Það væri mjög sorglegt því hún er
mjög hress, sjálfbjarga og dugleg,“
segir aðstandandinn og bætir við:
„Það eru allir mjög áhyggjufullir og
kvíðnir.“
Miklar skuldir
Höfn er öldrunarmiðstöð sem rekin
er sem sjálfseignarstofnun í Hafnar-
firði. Stofnunin á 78 íbúðir í tveim-
ur húsum í Hafnarfirði og er íbúðar-
réttur í húsunum seldur út til eldri
borgara, auk þess sem Hafnar-
fjarðarbær á nokkrar íbúðir í blokk-
unum.
Íbúarnir eignast ekki íbúðirnar
sjálfar heldur aðeins búseturéttinn
í þeim sem hvílir á íbúðinni óháð
eignarhaldi hennar. Þegar íbúarn-
ir flytja af Höfn, eða falla frá, greið-
ir sjálfseignarstofnunin kaupverð
búseturéttarins til baka. Nú er svo
komið að vegna skulda byggingar-
sjóðs Hafnar þurfa allir íbúar í hús-
unum tveimur að yfirtaka eignarrétt-
inn á sinni íbúð. Byggingarsjóðurinn
var rekinn með 20 milljóna tapi árið
2013 og er ljóst að ekki er hægt að
reka hann áfram. Ef íbúarnir gera
þetta tryggja þeir sér eignarrétt á
íbúðunum, en hafa í dag aðeins bú-
seturétt, sem áður sagði.
Kaupa eignarrétt
Til þess að kaupa eignarréttinn þurfa
flestir íbúarnir að taka lán og reiða
fram á bilinu 1,4 milljónir króna og
allt að fjórum milljónum fyrir hann.
Greiðslubyrði af slíkum lánum, ef
miðað er við lán til tíu ára, er sögð
vera frá tuttugu þúsund krónum til
þrjátíu og fimm þúsunda króna á
mánuði. „Þetta er mjög mikið fyr-
ir fólk á þessum aldri. Eldri borgar-
ar hafa ekki úr miklum peningum að
moða,“ segir aðstandandinn sem DV
ræddi við.
„Þar að auki er erfitt að sjá hvern-
ig þeir fá þessar tölur út. Þeir eru að
krefjast þess að fólk kaupi hlut í sam-
eigninni, en það virðist vera mis-
stór hlutur eftir því hvar íbúðin er og
hversu stór hún er. Það finnst mér
einkennilegt,“ segir hann.
Áhyggjur
„Við höfum haft miklar áhyggjur af
þessu í nokkurn tíma. Mér finnst
þetta allt svo skrítið því það er ver-
ið að þrýsta svo mikið á íbúana. Þeir
hafa einn mánuð til þess að sam-
þykkja þetta, sem er alltof stuttur
tími,“ segir aðstandandinn. „Fólkinu
hefur samt liðið vel þarna og myndað
góð tengsl sem gerir þetta enn verra.“
Vilja sjá ársreikninga
DV hefur heimildir fyrir því að fjöl-
margir aðstandendur hafi krafist
þess að fá ársreikninga. Þá eru
margir ósáttir við það að í janúar síð-
astliðnum var haldinn fundur með
íbúum þar sem þeim var ekki greint
frá þessum vandræðum, þvert á móti
var fólki sagt að allt væri eðlilegt.
Fundurinn á föstudag var þeim því
mikið áfall.
Mjög alvarleg staða 2009
Í desember síðastliðnum greindi DV
frá því að Höfn hefði stofnað til mik-
illa skulda og væri með neikvæða
eiginfjárstöðu. Þá skuldaði Höfn
fyrrverandi íbúum sínum og ættingj-
um þeirra 86 milljónir króna í lok árs
2010.
Þetta voru skuldir sem öldrunar-
miðstöðin, sem rekin er sem sjálfs-
eignarstofnun, skuldaði íbúunum og
hafði ekki getað endurgreitt þeim. Á
sama tíma var eiginfjárstaða félags-
ins neikvæð um tæplega 58 millj-
ónir króna. Þessi skuld Hafnar við
íbúana var stærsta einstaka skuld
öldrunarheimilisins en heildar-
skuldirnar námu ríflega 240 milljón-
um króna.
Staðan var svo alvarleg að í bréfi
með ársreikningi fyrir árið 2009 benti
Guðmundur Óskarsson, endurskoð-
andi félagsins, á að félagið gæti orðið
gjaldþrota. Þá greindi DV einnig frá
því að Höfn hefði fengið lán upp á 25
milljónir frá einum íbúa. Það lán var
tilkomið vegna þess að konan hafði
látið framkvæmdastjórann, Kristján
Guðmundsson, hafa umrædda fjár-
muni til ávöxtunar en svo rötuðu þeir
inn í reksturinn sem bókfært lán.
27 milljónir og fjórar í viðbót
DV greindi á sunnudag frá því að íbúi
í húsinu hefði nýlega greitt 27 millj-
ónir fyrir búseturétt og þyrfti nú að
taka fjögurra milljóna króna lán til
að greiða fyrir eignarréttinn.
„Móðir mín býr þarna og ég hef
gengið á eftir því núna í þrjú eða
fjögur ár að fá afrit af ársreikningum
félagsins en þeir hafa aldrei fengist.
Þeir pössuðu sig á því að dreifa ekki
ársreikningnum á fundinum heldur
voru þeir með hann í tölvu og vörp-
uðu honum upp á myndvarpa. Fólk
fékk enga pappíra í hendurnar. Svo
fengu þau bara umslag þegar þau
löbbuðu út, hver íbúi, þar sem kem-
ur fram hvað hver og einn á að borga
á þessum tíu árum,“ sagði maðurinn
sem DV ræddi við um helgina.
Segjast ekki vera að neyða fólk
Íslandsbanki segist ekki hafa sett
íbúum Hafnar, né forsvarsmönnum
öldrunarmiðstöðvarinnar afarkosti.
Í tilkynningu bankans segir að öldr-
unarmiðstöðin hafi leitað til Ís-
landsbanka um aðstoð vegna fjár-
hagsörðugleika, en að miðstöðin sé
ekki í vanskilum gagnvart þeim. Að-
koma bankans er því fyrst og fremst
sú að koma að mögulegum lausnum
á fjárhagsvanda Hafnar. „Í því felst
meðal annars að Íslandsbanki hef-
ur veitt félaginu vilyrði fyrir því að
aðstoða við fjármögnun mögulegrar
lánveitingar þess til íbúa Hafnar ef á
þarf að halda,“ segir í tilkynningunni.
Nauðvörn
Fram hefur komið að Gylfi Ingvars-
son, stjórnarmaður öldrunarmið-
stöðvarinnar Hafnar, segir að hið
gamla rekstrarform, það er kaup á bú-
seturétti, gangi ekki lengur. Það verði
því að finna leiðir til þess að tryggja
áframhaldandi öryggi íbúa á Höfn. Því
verði að breyta ákvæðinu um íbúðar-
rétt í eignarréttar ákvæði. n
Íbúar eru kvíðnir
og áhyggjufullir
n Þurfa að kaupa eignarrétt á íbúðum Hafnar og steypa sér í skuldir
Kaupa eignarrétt „Við höfum haft miklar áhyggjur af þessu í nokkurn tíma,“ segir aðstandandi MyNd Sigtryggur Ari
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is „Svo fengu þau
bara umslag
þegar þau löbbuðu út